Tíminn - 13.01.1963, Page 15
Sextugur á morgun:
Ingólfur Davíösson, grasafræðinpr
Fyrir réttum 40 árum stóð tví-
tugur piltur fyrir framan mig við
prófborðið í Unglingaskóla Ár-
skógsstrandar, og við hlið okkar j
sat hinn miskunnarlausi próf-
dómari, sem greip fram í með auka
spurningar þegar honum þótti ég
vera of vægur. En pilturinn lét
sér hvergi bregða og sló öll vopn
úr hendi prófdómarans með skýr-
um og snöggum svörum.
Eftir það skildu leiðir piltsins
og mín, hann gekk leið háskóla-
borgarans eins og vera bar og hug
ur hans stóð til, en ég lifði lífi
smáborgarans við hin margvísleg-
ustu störf. En við, hann og ég, átt-
um eftir að mætast eftir áratugi
á vettvangi, sem okkur var báðum
kær, á vettvangi grasafræðinnar.
Ingólfur Davíðsson er fæddur
að Reistará við Eyjafjörð og
bjuggu foreldrar hans Davið Sig-
urðsson hreppstjóri og María Jóns
dóttir lengi á Stóru-Hámundar-
stöðum á Árskógsströnd. Ingólfur
varð stúdent frá Menntaskólanum
á Akureyri 1929, og lauk magist-
erprófi við háskólann í Kaup-
mannahöfn í náttúrufræði (í
grasafræð'i sem sérgrein) árið
1936. Bæði þá og síðar (1946)
sótti hann námskeið í jurtasjúk-
c'ómafræði við landbúnaðarháskól-
ann í Kaupmannahöfn. Árið 1937
gerðist Ingólfur fastur starfsmað-
ur við Búnaðardeild Atvinnudeild-
ar Háskólans og hefur starfað þar
síðan og haft meðal annars með
höndum rannsóknir jurtasjúk-
dóma.
Eftir að' Ingólfur hafði fengið
fast starf við Atvinnudeildina, hóf
hann í sumarleyfum sínum að
rannsaka gróður íslands í ýmsum
héruðum þess._ Hann safnaði.geysi-
miklu af jurtum á ferðum sínum
' og jók' þannig miklu við þekk-
inguna á útbreiðslu tegundanna.
Og þessu aukastarfi (eða réttara
sjálfboðastarfi) hefur hann haldið
áfram allt til þessa dags; og á efa-
laust eftir að vera flórunni okk-
ar innan handar enn um langt
skeið. En Ingólfur hefur gert
meira en að safna jurtunum, hann
hefur um tugi ára skrifað fræð-
andi greinar um einstök grös og
gróður í blöð og tímarit. Mun
hann vera manna fróðastur um út
breiðslu íslenzkra jurta. Auk þess
hefur hann gefið út sjálfstæðar
bækur, svo sem Kennslubók í
grasafræði, yfirgripsgóða bók um
öll helztu stofublóm, sem ræktuð
eru hérlendis, og fleira, sem of
langt yrði upp að telja.
Enn fremur hefur hann látið
sig varða allt það, sem að garð-
yrkju lýtur, enda lengi verið rit-
stjóri Garðyrkjuritsins. Kennslu
í grasafræði í skólum hefur hann
einnig haft á hendi. Hann hefur
og samið visihdaritgerðir um jurt-
ir og er félagi í Vísindafélagi ís-
lendinga.
Ingólfur er einn þeirra manna,
sem aldrei fellur verk úr hendi;
hann tindrar af lifandi áhuga, og
er enn jafn kvikur á fæti og þeg-
ar hann slapp frá prófborðinu
1923, enda ekki lært þá list að
aka í bifreið húsa á milli.
Að lokum vil ég þakka vini mín-
um Ingólfi fyrir alla góða viðkynn-
ingu og samstarf okkar á sviði
grasafræðinnar. Samstarfið við 3.
útgáfu á Flóru íslands og við bók-
ina Garðagróður. Og síðast en
ekki sízt þakka ég honum mikil-
lega fyrir þá óteljandi undafífla,
sem hann hefur leitað uppi fyrir
mig um landið þvert og endilangt.
Sh'ka greiðasemi tekst mér aldrei
að borga í þessari jarðvist. En það
er ekki ég einn, sem hefi orðið
fyrir „barðinu“ á greiðasemi hans,
hann hefur í hvívetna verið boð-
inn og búinn að leysa hvers manns
vanda í ríki Flóru, þegar til hans
hefur verið leitað.
Ingólfur er kvæntwr danskri
ágætiskonu, Agnesi Marie Inge-
horg, og eiga þau þrjú efnileg
uppkomin börn.
Jæja, vinur minn Ingólfur. Nú
ertu að stíga upp á 7. tugaþrep-
ið í aldursstiganum. Eg óska að
þetta þrep veiti þér enn meira út-
sýni en áður yfir hinar víðfeðmu
lendur hinnar yndislegu íslenzku
Flóru, og gefi þér líf og heilsu
til að halda „áfram lengra, ofar,
hærra“.
Hjartanlega til hamingju með
rnorgundaginn.
Ingimar Óskarssön.
Kjördæmisþing
Framsóknarmenn í Norðurlands
kjördæmj eystra halda aukakjör-
dæmisþing, er hefst iaugardaginn
26. þessa mánaðar kiukkan eitt
eftir hádegi á Hótel KEA, Akur-
eyri.
lö mm filmuleiga
Kvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
.Flestar gerðir sýningarlampa
Odýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
Ljósmyndavörur
Filmur
Framköllun og kópering
Ferðatæki (Transistor)
FILMUR OG VÉLAR
Freyjugötu 15
Sími 20235
Sextugur í dag:
Hannibal Valdimarsson,
forseti ASÍ
Hannibal Valdimarsson, forseti
Alþýðusambands íslands er sextug
ur í dag. Hann er fæddur í Fremri
Fannardal við Skutulsfjörð 13.
janúar 1903, kominn af kjarn-
miklu athafna- og dugnaðarfólki
vestur þar. Hannibal lauk gagn-
fræðaprófi á Akureyri 1922, en
gekk síðan á kennaraskóla í Dan
mörku og lauk kennaraprófi þar
1927. Stundaði síðan barnakennslu
á ísafirði og Akranesi og var skóla
stjóri í Súðavik 1929—31. Gerðist
síðan kennari við gagnfræðaskól
ann á ísafirði og skólastjóri þar
frá 1938—54. Hann annaðist út-
gáfu vikublaðsins Skutull um
skeið og gegndi margvíslegum
trúnaðarstörfum á ísafirði og í
verkalýðshreyfingunni þar og var
formaður Alþýðusambands Vest-
fjarða 1934—54. í stjórn Alþýðu-
flokksins átti hann sæti 1943—54
og forseti ASÍ hefur hann verið
síðan 1954. Alþingismaður síðan
1946. Hann var og ritstjóri Alþýðu
blaðsins 1952—54. Hann hefur rit-
að margt í blöð og tímarit, eink-
um um stjórnmál og verkalýðs-
mál. Hann er kvæntur Solveigu
Sigríði Ólafsdóttur frá Strandselj-
um og eiga þau nokkur mannvæn
leg börn.
Hannibal Valdimarsson er löngu
þjóðkunnur maður fyrir störf sín
að skólamálum, félagsmálum og
stjórnmálum. Hann var félagsmála
ráðherra 1956—1958. Um hann
hefur jafnan staðið nokkur styrr,
enda er maðurinn harðskeyttur í
málafylgju og lætur jafnan að sér
kveða, þar sem hann kernur að
| málum. í verkalýðshreyfingunni á
hann orðið mikla sögu og hefur
átt mikinn þátt í þróun þeirra
mála hina síðustu áratugi. Hanni-
bal er skarpgreindur maður og
mikill ræðumaður. Hann er nú
formaður Alþýðubandalagsins.
Ferðafélag íslands
Ferðafélag íslands heldur
kvöldvöku í Sjálfstæðishúsinu
þriðjudaginn 15. febrúar 1963.
Húsið opnað kl. 20,00.
Fundarefni:
1. Kristján Eldjárn, Gísli
Gestsson og Þórhallur Vilmund
arson: Frásögn og litskugga-
myndir úr Nýfundnalandsför
sumarið 1962.
2. Myndagetraun, verðlaun
veitt.
3. Dans til kl. 24.00.
Aðgöngumiðar seldir í bóka-
verzlunum Sigfúsar Eymunds-
sonar og ísafpldar.
Verð kr. 40,00.
Maður fersi
Framhald af 1. síðu.
um eldsupptök. Bæjarfógetinn
sagði þá, að meiðsli Bryndísar
væru ekki fullljós.
Kristján Valdimarsson, sem
þarna lét líf sitt, var sonur Hug-
rúnar skáldkonu — Filippíu
Kristjánsdóttur.
Alþýðuhús
Framhald af 16. síðu
sr, og svalir sem vita út að Lind-
argötu. Kristján sagði, ag skrif-
stofurnar mundu verða búnar til
notkunar í vor og samkomusalirn-
ír að hausti, ef verkinu miðar
samkvæmt áætlun.
Sigvaldi Thordarson, arkítekt,
liefur gert breytingateikningar
af húsinu.
Iþróttir
Rósmundur 7, Siguróli 6, Bjöm
Kr. 2, og Ásgeir, Ólafur og Árni
1 hver.
KR-liðið lék ógætilega fyrri
hálfleikinn en byrjaði þann síð-
ari ágætlega. Eins og áður er
ICarl Jóhannsson langbeztj maður
kðsins, en ágætan leik sýndu
einnig Reynir Ólafsson og Guðjón
í markinu. Ekki fæst nægilega
mikið út úr unglingalandsliðs-
mannnum Birni Blöndal, en nafni
hans Björn Einarsson, sem einnig
er nýliði í liðinu, lofar góðu. Mörk
KR skoruðu, Karl 7, Reynir 5,
Ólafur 3, Pétur 2.
Dómari var Axel Sigurðsson og
dæmdi vel. — alf.
HJÚLBARDAViDGERÐ VESTURDÆJAR
Auglýsir
Höfum til sölu flestar stæröir af snjóhjólbörðum fyrir fólksbíla. Einnig flestar stærðir af venjulegum hjólbörð-
um fyrir fólks- og vöruflutningabíla. — Hagstætt verð. —
, " * ' '
ATH.: — Sendum gegn póstkröfu um land allt. — — Opið alla daga, helga sem virka, frá kl. 8 f.h. til 23 e.h.
HJÓLBAR.ÐAVIPGERÐ VESTURBÆJAR
Við Nesveg — Simi 2 3 1 2 0.
T f MIN N, sunnudaginn 13. janúar 1963 —
15, <