Alþýðublaðið - 10.02.1940, Page 3
LAUGA1DAQU8 16. FEBR. 1946.
ALÞfÐUBLAÐIÐ
ALÞYÐUBLAÐID
RITSTJÓRI:
F. R. VALDEMAESSON.
^ í fjarveru bans:
STEFÁN PÉTURSSON.
AB'GREIÐSLA:
ALÞÝÐUHUSINU
(Inngangur frá Hverflsgötu).
SlMAR:
4800: AlgreiÖsla, auglýaingar.-
4901: Ritstjórn (innl. fréttir).
4902: Ritstjóri.
4903: V. S. Vilhjálms (heima).
4905: Alþýðuprentsmiðjan.
4906: Afgreiðsla.
5021 Stefán Pétursson (heima).
ALS»ÝÐUPRENTSMIÐJAN
írás á rauða
krossinn.
ÞAÐ líður nú varla svo dag-
ur, að Þjóðviljinn hralryrði
okki Finna og þá, sem málstað
fieirra taka í orði eða verki hér
heima. Sjálfsagt er líka til þess
aklast af yfirboðurum hans aust-
fjr í Moskva. Þeir hafa ekki ausið
í Þjóðviljann 160 þúsund krónum
í símskeytum einum, í gegnum á-
róðursskrifstofu sína, alþjóða-
samband kommúnista, á síðustu
t\eimur árum, án þess aö vita,
að þeir ættu þar víst verkfæri,
h\enær sem er og til hvers, sem
vera skyldi.
Þeim hefir heldur ekki skjátl-
ást í því. Svo „hundflatan skræl-
ingjalýð" höfum við íslendingar,
þrátt fy.rir hundadagakonungdóm
Jömndar sællar minningar, aldrei
séð, eins og þá erindreka Stalíns
hér, sem að Þjóðviljanum standa.
Einn daginn tyggja þeir í blaði
sinu upp eftir útvarpinu og blöð-
unum í Moskva, að Erkko hafi
æst Fiima upp til ófriðar við
Rússa, annan, að Rússar séu
ekki í neinu stríði við finnsku
þjóðina, heldur aðeins að frelsa
hana undan oki Mannerheims og
Tanners, þriðja, að allt sé lygi,
sem frétzt hefir af óförum Rússa,
fjórða, að Finnlandssöfnunin hér
sé byggð á æsingum og blekk-
ingum, Finnar séu jafnfjarskyld-
ir okkur og Kongonegrar.
Siðast í gær fundu þeir það út,
að rauði krossinn hér hefði svikið
ætlunarverk sitt og brotið hlut-
leysi sitt með því að gangast
fyrir Finnlandssöfnuninni ásamt
norræna félaginu, „félagsskap
veizlusnápa og snobba hér í bæ“,
eins og þeir kalla það, sem
„l.efðu nú um stund gerzt áróð-
uistæki fyrir Mannerheim“! Það
er bara furða, að ýmsir af þeirra
sanntrúuðustu safnaðameðlim-
um, svo sem Kristinn Andrésson,
skuli, þrátt fyrir það kunna við
sig í þeim félagsskap! Og fil
sl-amms tíma voru tveir af Siglu-
fjarðarleiðtogum þeirra, þeir Að-
albjörn Pétursson og Otto Jör-
gensen, einnig í norræna félag-
inu, en var vikið úr því fyrirrúss-
neskan áróður þar gegn Finnum,
fyrstu Norðurlandaþjóðinni, sem
fyrir árás hefir orðið. Þaö lítur
sannarlega ekki út fyrir það, að
kommúnistar hafi kunnað neitt
jlla við sig í þessum „félagsskap
veizlusnápa og snobba", sem
Þjóðviljanum er nú allt í einu
orðinn svo mikill þyrnir í aug-
um.
Rauði krossinn á, samkvæmt
ák^ u Þjóðviljans, með Finn-
iandssöfnuninni „að hafa gerzt
áróöurstæki fyrir ákveðinn stríðs-
aðila í stað þess að starfa eins
og honum bar“. Hvernig það er
hugsanlegt, ef það væri satt, sem
sovétstjórnin segir, að Rússland
og Finuland eigi ekki í neiwu
stríði, veit víst Þjóðviljinn einn!
En hingað til er ekki vitað, að
Kommnnistar heima og
Eftir Jónas Guðmundsson. erlendis
EG HEFI heyrt ýmsa
menn fui’ða sig mjög á
þeim furðulegu ósannindum,
sem sagðar eru í rússneska út-
varpinu um Norðurlöndin og
ástandið þar. Og víst er, að slík-
ar fregnir eru næsta fjarri lagi
og koma okkur hér spankst
fyrir.
Frétt eins og sú, t. d., að al-
þýðan í Danmörku sé svo kúguð
og kvalin og óánægð með á-
standið þar, að nærri daglega
þurfi með her og lögrgelu að
bæla niður uppreisnartilraunir,
sem hin þrautpínda alþýða Dan-
merkur sé að reyna að gera, er
á þann veg, að varla verður
lengra komizt í lyginni. Við,
sem vel þekkjum hvernig á-
stand er í Danmörku og um
önnur Norðurlönd, hlægjum að
slíkri fregn. Allar lygafréttirnar
um ,,árásir“ Finna á Rússa, og
um það, að það sé ekki styrjöld
við Rússa, sem nú á sér stað,
— heldur borgarastyrjöld í
Finnlandi — og fleira af slíku
tagi, sem daglega er endurtek-
ið í rússnesku útvarpi og blöð-
um, eru jafn ósannar og fjar-
stæðar og ásakanirnar í garð
Svía og Norðmanna, en allt er
þetta af sama toga spunnið.
Allur þorri manna á
Norðurlöndum — það má raun-
ar óhætt segja allir, — nema
hinar sanntrúuðustu kommún-
istakindur — taka móti þessum
fréttum með sívaxandi fyrir-
litningu á þeirri stjórn, sem
býður heiminum upp á slíkar
lygar og blekkingar jafnframt
því, sem margir vorkenna hinni
vesölu rússnesku alþýðu, sem
þannig er logið að, og blekkt til
fylgis við böðla sína með svo
það fé, sem safnað hefir verið af
rauða krossinum og norræna fé-
laginu hér til Finnlands, hafi far-
ið til neins annars en til þess að
líkna særðum, sjúkum og bág-
stöddum, eins og ætlunarværk
rauÖa krossins er, hvar sem er í
heiminum.
Þjóðviljinn þarf því ekki að
hafa neinar áhyggjur ut af hlut-
leysi rauða krossins í sambandi
við Finnlandssöfnunina hér á
landi. En af því að honurn virð-
ist liggja það svo mjög á hjarta,
að hann „njóti samúðar og virð-
ingar um allan heim“ og líknar-
systur hans „verndar beggja
hinna striðandi herja“, eins og
hann kernst að orði, væri ekki xir
vegi að fara þess á leit við hann,
að hann snéri sér til húsbænda
sinna austur í Moskva og spyrði
þá, hvemig þeir færu að því að
tryggja öryggi og hlutleysi rauða
krossins í líknarstarfi hans á víg-
völlum Finnlands. Eða kallar
Þjóðviljinn það að sýna rauða
krossinum „samúð og virðingu"
og „vernda líknarsystur" hans, að
varpa úr lítilli hæð sprengikúlum
niður á sjúkrahús, sem greinilega
eru merkt rauða krossinum, og
myrða þannig hjúkmnarkonurnar
og sjúklingana, sem hafast þar
við, eins og árásarflugvélar Sta-
lins gerðu á Kyrjálanesi fyrir
nokkrum dögum?
Það er áreiðanlega bezt fyrir
Þjóðviljann að tala sem minrist
um rauða krossinn í sambandi
við árásina á Finnland. Og um-
fram allt er það bezt fyrir hús-
bændur hans austur í Mosjcva.
dæmalausri „upplýsingastarf-
semi.“
En ef við litum nú í kringum
okkar héi’na, ex’u það þá nokkru
ur málflutning kommúnistanna
okkar hérna, eru það þó nokkru
minni ósannindi og blekkingar,
sem höfð eru í frammi í blöð-
um þeirra og ræðum hér en
fram koma í hinu rússneska út-
varpi?
Er ekki öllu lýst hér á landi
eins og hér búi gjörsamlega
undirokuð þjóð? Er ekki stjórn
landsins lýst á sama hátt og
rússneska útvarpið lýsir stjórn
Finnlands? í ríkisstjórn ís-
lands, segja kommúnistarnir,
að sitji engir aðrir en landráða-
menn, kúgarar og glæpamenn. í
stjórn þjóðbankans segja þeir
sitja keyptir erindrekar er-
lends auðvalds, sem ekki
gera annað en kúga alþýð-
una, selji réttindi landsins og
haldi verndarhendi yfir glæp-
samlegu fjármálasukki.
Á alþingi segja þeir að sitji
menn, sem ekkert geri til þess
að bæta hag alþjóðar, efnalegan
og andlegan, en sem ræni þjóð-
ina og skattpíni hana á allan
hátt til ágóða fyrir sjálfa sig
og „auðvaldið.“ Það er ekki
hægt að sjá af blöðum komm-
únista annað, en að hér rlki
slíkt neyðarástand meðal al-
mennings, að líklegt megi
telja, að uppreisn brjótist út þá
og þegar „eins og í Danmörku.“
*
Slíkar skýrslur eru það sem
Brynjólfur Bjarnason og Einar
Olgeirsson senda til Moskva um
ástandið hér á landi og sams-
konar skýrslur berast til Moskva
frá erindrekum Rússastjórnar
um allan heim. Stórþjóðir vita
lítið um smáþjóðir, að öllum
jafnaði, þó sæmilega séu mennt-
ar. Hver mun þá þekkingin vera
hjá þeim þjóðum, sem eru kúg-
aðar og kvaldar og varnað að
afla sér allrar menntunar eins
og er í Rússlandi og öði’um
einræðisríkjum. Við hverju er
að búast hjá þjóðum, sem
banna — að viðlagðri lífláts-
hegxiíngu, að hlusta á erlendar
útvarpsstöðvar eða lesa erlend
blöð eða þýðingar úr þeim.
Ef einhver Rússi reyndi af
„Þjóðviljanum“ einum að
mynda sér skoðanir á íslandi og
íslendingum hlyti hann að
komast að þeirri niðurstöðu, að
ástandið hér væri þannig, að
fullkomin nauðsyn væri á því
að hinn ,,sigursæli“ rauði her
kæmi hingað og leysti þjóðina
úr ánauð þeirri, sem henni væri
haldið I af þeim „glæpamönn-
um,“ sem hún sjálf hefir kjörið
til að stjórna sér.
Hver maður hlyti að fá þá
skoðun á íslandi, að hér væri
ekkert frelsi á nokkru sviði, en
kúgun og harðrétti væri beitt
á öllum sviðum af valdhöfun-
um.
Og það er eins og sumir
menn hér í landinu trúi þessum
lýsingum og það menn, sem
hafa hér fullt frelsi á öllum
sviðum þjóðlífsins. Forsprakk-
ar kommúnista, sem njóta hér
fullkomins frelsis, jafnvel frels-
is til þess að í’eka hér land-
ráðastarfsemi. sem kostað getur
alþjóð frelsið og marga menn
lífið, þeir ti’úa því sjálfir, að
svona sé ástandið hér. Þeir
finna ekki hvert frelsi þeir hafa
af því þeir hafa aldrei verið
sviftir því. Þessir sömu menn
vita það, að í þeirra eigin „föð-
urlandi“ — Rússlandi — er
hver maður réttdræpur, sem
opinberlega gerir sig sekan um,
þó ekki sé nema tíunda hluta
af þeim andróðri, sem þeir
reka hér algerlega óáreittir.
Kaupsýslumenn, sem raka
saman fé 1 skjóli þess verzlun-
arfrelsis, sem hér ríkir, leggja
fé fram til þess að styðja menn-
ina, sem vilja eyðileggja þetta
frelsi, sem þeir sjálfir og aðrir
njóta.
Þeir menn skilja áreiðanlega
ekki hvert frelsi þeir hafa fyrr
en þeir hafa tapað því.
Embættismenn í þjónustu
ríkis, bæjarfélaga og opinberra
og hálfopinberra stofnana, sem
þjóðfélagið hefir kostað námið
hjá að mestu leyti, og síðar
veitt starf til þess að vinna
landi og þjóð gagn, leggja lið á
margvíslegan hátt landráða og
svikaflokki þeim, sem markvist
vinnur að niðurrifi þess þjóð-
félags, sem þeir eru launaðir til
að þjóna og vernda.
Þeir menn skilja áreiðanlega
ekki hvers þeir njóta í þjóðfé-
laginu fyrr en þeir hafa misst
það allt,
Verkamenn, sem með baráttu
sinni um mörg ár hafa lyft stétt
sinni, og þar með þjóðfélaginu
sem heild, á hærra menningar-
stig en íslenzk alþýða hefir
nokkru sinni fyrr staðið á,
leggja sumir hverjir lið hinum
svívirðilega landráðaflokki. —
Halda þeir, að betra taki við
þegar öllu hefir verið velt í rúst
í stað þess að halda baráttu
sinni ‘ áfram, markyisst ög á-
kveðið, einmitt nú, þegar þeir
finna þann þrótt, sem í stétt
þeirra býr, til þess að hefja sig
enn hærra. með jafnri og skyn-
samlegri þróun. Munu þeir
skilja hvert 'óhappaverk þeiij
eru að vinna, fyrr en það er um
seinan?
*
Árás Rússa á Finnland hefir
opnað augu þúsunda manna hér
á landi og milljóna marma er-
lendis fyrir því, hver ofbeldis-
stefna kommúnisminn er. Fram
til þess tíma tókst hinum sí-
ljúgandi kommúnistum allra
landa að blekkja fjölda manna.
Margir trúðu ósannindum þeirra
um það, að Rússar mundu aldrei
ráðast á neina smáþjóð, og sann
leikurinn er sá, að Rússar hafa
allra þjóða minnsta þörf á því
að leggja undir sig lönd annarra
þjóða. Þeir ráða yfir einu mesta
landflæmi veraldar, þar sem
nóg í'úm er fyrir alla, og' land-
gæði og önnur auðlegð frá nátt-
úrunnar hendi stórkostlegri en
víðast hvar annarsstaðar, Nú
sjá allir að þetta tal þeirra var
blekking.
Rússar sömdu við Þjóðverja
um að ráðast að baki hinnar
pólsku þjóðar og leggja hana
í fjötra og stela landi hennar.
Meira níðingsverk hefir ennþá
ekki verið unnið svo saga mann-
kynsins kunni frá að greina. —
Síðan hafa þeir með ofbeldis-
hótunum kúgað Eistland, Lett-
land og Lithauen til þess að
lúta sér og síðast réðust þeir á
Finnland. Þeir gerðu ekki ráð
fyrir mótspyrnu, sízt svo
sterkri, sem hún varð, en ef
Finnar hefðu farið að eins og
Eystrasaltsríkin, var röðin
komin að Noregi og Svíþjóð og
þar með var takmarki Stalins
náð, en það er að eyðileggja
hina gömlu, stei'ku menningu
Norðui’landa.
Allir þekkja ósannmdi kom-
múnista um það, að í Rússlandi
ríki frelsi fyrir ,,alþýðuna.“ En
þar er ekkert frelsi. Enginn má
gefa þar út blað, ef það gagn-
rýnir stjórnarvöidin eða flytur
aðra kenningu en kommúnism-
ans. Engir mega stofna félag
til þess að vinna gegn ríkjandi
stjórn eða breyta ríkjandi
þjóðskipulagi (.eins og kommún-
istar fá leyfi til hér og annars
staðar í lýðræðislöndum). Eng-
inn má boða til opinberra um-
ræðufunda um stjórnmál án
þess að eiga það á hættu að
loknum fundinum að verða
tekinn af lífi Sífelldar njósnir
og eltingaleikur á sér stað með-
al ráðandi manna kommúnista-
flokksins um hvað þeir tala,
hugsa og hafast að og leiðir
þetta af sér fjölda fangelsanir
og líflát í stórum stíl. Og ekki
tekur betra við, þegar til at-
vinnufrelsisins kemur. Allt er
hneppt í fjötra ánauðar og opin-
berra fyrirskipana, svo ekkert
sem heitir frelsi á því sviði, er
þar heldur til.
Óheilindin eru einræðismönn-
unum jafnt í blóð borin og ó-
sannindin og blekkingarnar. —
Stórkostlegar árásir eru í blöð-
um og útvarpi til dæmis
gei'ðar í þessum löndum út
af því að Englendingar tóku af
lífi fyrir skemmstu tvo íi'a, sem
sannað var á að höfðu orðið 5
mönnum að bana og voru sem
landráðamenn í þjónustu er-
lends ríkis. En þessi sömu ríki
lífláta fjölda manns fyrir blátt
áfram engar sakir. Þar eru
menn unnvörpum drepnir á
hinn svívirðilegasta og smánar-
legasta hátt, jafnvel úr hungri
og kulda, fyrir það eitt að vera
af Gyðingaættum og sjá þó all-
ir að við því getur enginn mað-
ur gert, hverrar ættar hann er.
Þar eru menn líflátnir með því
að hella ofan í þá ólyfjan, e£
þeir drýgja þann glæp, að hlustá
á erlent útvarp, eða ef feður
þeirra hafa haft aðra skoðun á
einhverju máli en einræðisherr-
unum þykir við hafa átt. Hver
sá maður, sem reynir að vinna
gegn stefnum þessara ríkja, er
svívirtur, ofsóttur og rægður á
allan þann hátt, sem ófyrirleitn-
ustu forsprakkar þeirra geta
upp hugsað. Nægir þar að benda
á árásirnar á Churchill, Eden,
Beck, Sandler, Tanner, Mann-
erheim og marga aðra, sem hafa
svarað einræðisstjórnunum full
um hálsi. Lygarnar og óhróður-
inn, sem útbreiddur er um slíka
menn, er með eindæmum.
Á öllum sviðum er það sama
sagan, sama boðorðið: það, að
misþyrma og kúga alla í heima-
högum, ljúga á andstæðingana
og rægja þá, reyna að misnota
lýðræðið þar sem það er enn til,
til þess að eyðileggja það, en
leyfa enga frjálsa hugsun né
skoðun innan vébanda sinna
ríkja, x’áðast aftan að andstæð-
ingunum, þegar það er hægt, en
fjargviðrast út af hlutleysis-
brotum, ef á móti er tekið,
svíkja alla samninga, sem þeir
gera sjálfir, hvenær sem það
þykir hentugt, en ætla vitlausir
að vei’ða ef aðrir fara eins að
eða svara í sömu mynt.
Þannig hafa kommúnistar og
nazistar hagað sér erlendis, og
halda áfram að gera það enn í
dag.
*
En er nú nokkur munur á
kommúnistunum héma heima?
Um nazista er hér ekki að ræða,
þeir sáluðust svo að kalla strax
úr vesaldómi. Kommúnistarair
hér eru vasaútgáfa af kommún-
istum annarra landa.
Brynjólfur er- vasaútgáfa af
Stalin og Einar af Sinovjev áð-
ur en Stalin tók hann af lífi.
Sömu blekkingarnar, sami á-
róðurinn, sömu bardagaaðferð-
irnar eru viðhafðar. Hámai'ki
sínu í hræsni og tvískinnungs-
íætti ná kommúnistar hér þeg-
ar þeir eru að hampa Jóni Sig-
urðssyni sem einskonar „frum-
kommúnista.“ Meiri svívirðu er
ekki hægt að sýna minningu
Jóns Sigurðssonar og meiri
hræsni er ekki hægt að hugsa
sér en þá, að flokkur, sem er
boðinn og búinn til þess, á
hvaða augnabliki sem er, að
svíkja land og þjóð undir yfir-
ráð menningarsnauðustu þjóðar
heimsins, skuli vera að minnast
á Jón Sigurðsson, sem alla æfi
barðist fyrir því. að ísland fengi
sjálfstæði og væri öllum óháð.
Það væri fullkomin ástæða til
að banna með lögum, að nafn
Jóns Sigurðssonar sæist nokk-
urn tíma í slíku landráðablaði.
Hámarki sínu náði hin opin-
bera landráðastarfsemi komm-
únista hér á landi í grein þeirri,
er Þjóðviljinn birti hér fyrir
nokkru undir fyrirsögninni:
,Utanríkisverzlun íslands sett
undir leynilegt eftirlit brezku
ríkisstjómarinnar.11 Og undir-
fyrirsögnin var svona: „Vald-
hafarnir, sem ljúga landráðum
upp á aðra, eru sjálfir að fremja
xau.“ Öll er sú. grein hreint
landráðaskrif og hefði vel mátt
verða okkur til mikils tjóns, ef
mark hefði verið á hermi tekið.
Mér og öðrum varð á að spyrja,
er grein þessi birtist, hvort lög-
reglan liti ekki í blöðin áður en
pau væru send út. En svo virð-
is.t ekki vera. Þó nú séu komn-
ir tveir lögreglustjórar virðist
vanta einn enn til þess að hafa
eftirlit með því að landráða-
starfsemi sé a. m. k. ekki rekin
1 blöðunum. Á slíkum tímum
sem þeim, er nú standa yfir, er
þess fullkomin þörf að eftirlit
sé með slíkum landráðablöðum
og Þjóðviljinn er. Allar þjóðir
gera nú ráðstafanir til þess að
fyrirbyggja allt það, sem verða
má til tjóns þjóðarheildinni,
jafnvel þó skerða þurfi réttindi
þau, sem menn njóta á venju-
legnm tímum. En hvað er gert
í því efni hér?
*
Þó við furðum okkur á fregn-
unum frá Moskva, eru þær i
raun og veru í engu verri en
þær firrur og þau ósannindi,
sem kommúnistarnir hér heima
viðhaía. Og af þeim verður
aldrei annars að vænta.
En er ekki kominn tími til
þess að lýðræðisþjóðirnar, og
þar á meðal íslendingar. fari að
gera sér í fullri alvöru ljóst,
hvert stefnir, ef slíkum stefn-
um sem einræðisstefnunum er
leyft að festa rætur. Hin megna
fyrirlitning, sem skapazt hefir
á kommúnistum síðustu mán-
uðina hér á landi, sýnir glöggt,
að allur þorri þjóðarinnar er
slíkum stefnum og flokkum
andvígur.
Sjá ekki allir menn það, sem
eitthvað hugsa, að lýðræðið
hlýtur að líða undir lok, ef ein-
ræðisstefnum er leyft að eflast
1 lýðræðislandi. Einræðið er
sýkill, sem sýkir allan þjóðar-
líkamann og drepur að lokixm
allt, sem heitir lýðræði.
Frh. á 4. sí&u.