Alþýðublaðið - 19.02.1940, Síða 1

Alþýðublaðið - 19.02.1940, Síða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ÁRGANOUR. MÁNUDAGUR Í9. FEBR. 1940. 41. TÖLUBLAÐ Höfðabrekka í Mýrdal. Höfðabrekka í Mýrdal uppeld- isheimili fyrir vandræðapilta. ——.——♦-——— iarnaverndarráð og Barnaverndariiefnd vilja koma á samvinnu milli ríkis og bœjar nm petta mál Barnaverndarráð ÍSLANÐS og Barna- verndarnefnd Reykjavíkur héldu sameiginlegan fund 15. þ. m. og ræddu aðallega um nauðsyn þess, að stofnað verði þegar í vor uppeldis- heimili fyrir vandræðapilta á aldrinum 12—18 ára. Var samþykkt á fundinum áskorun á félagsmálaráðu- néytið um að borið yrði fram frumvarp um stofnun og rekstur uppeldisheimilis fyr- ir pilta, þegar á yfirstand- andi þingi. Félagsmálaráðherra mun hafa snúið sér aftur til þess- ara aðilja og beðið þá að leita eftir samvinnu um þetta mál við stjórnarvöld Reykjavík- urbæjar. Barnaverndarráð og Barna- verndarnefnd hafa fengið tilboð «m kaup á jörðinni Höfða- brekku í Mýrdal, sem er mjög vel hýst og gefur góð skilyrði einmitt til slíkrar starfsemi, þár sem þar er hægur vandi að skapa unglingum margskonar vérkefni við þeirra hæfi. Barnavemdarnefnd og Barna verndarráð hafa skrifað félags- málaráðuneytinu bréf um þetta mál og fylgdi tillögu þ'ess, svo- feld greinargerð: ,.Þörfin er mjög bi’ýn fyrir slíkt heimili. Afarmikill fjöldi piíta á þessum aldri lendir í þjófnaði og öðrum afbrotum, og stánda barnaverndarnefndir nær gersamlega ráðþrota að spöma við slíkum ófögnuði, méð því að ókleift reynist að út- vega verstu afbrotapiltunum stáði í sveit til langdvalar. Töl- ur úr skýrslum barnavemdar- nefndar Reykjavíkur sýna, hve afbrot unglinga eru tíð. Árið 1937 t. d. frömdu 20 verstu af- brptadrengirnir (12.7% af tölu afbrotadrengja) þ. e. þeir, sem gerst höfðu sekir um 7 afbrot eða fl., 271 afbrot eða 53,8% eða öllum afbrotum drengja. ÁriS 1939 frömdu 21 róttækustu af- brotadrengirnir (ca. 9% af tölu afbrotadrengja) þ. e. þeir, sem gerst höfðu sekir um 7 afbrot eða fleiri, 325 afbrot eða rúm- lega 51% af öllum afbrotum drengja innan við 16 ára ald- ur. Margir þessara pilta voru aðeins í sveit á sumrin og allir voru í bænum annað veifið, fyr- ir syma fékkst enginn staður, aörir struku, eða heimilin treystust ekki til að hafa þá, og þannig gat barnaverndarnefnd- in ekki spornað við þvíi að þeir héldi afbrotaferli sínum áfram. Nú hefir oss nýlega borizt tilboð um kaup eða leigu ó mjög vel hýstri jörð ippð góðum ræktunar- og vinnu- skijyrðum og vel í sveit settri og að því er virðist ágætlega til þess fallinni, að verða setur fyr- ur uppeldisheimili fyrir vand- ræðapilta. Mælist barnavernd- ráð íslands og barnayerndar- nefnd Reykjavíkur eindregið til þess, að ráðuneytið láti taka nú þegar tilboð þetta til rækilegrar athugunar, með því að eigandi arðarinnar þarf að fá svar við tilboðínu hið fyrsta. Fari svo, að tilboðinu verði tekið og málinu hrundið í fram- kvæmd, sem vér væntum, þyrfti að gera ráðstafanir til þess að tryggja duglegan og hagsýnan bústjóra og stjórn- saman, fjölhæfan kennara til forstöðu heimilinu. Væntum vér þess, ef til framkvæmda kem- ur, að vér fáum íhlutunarrétt um val . á forstöðumönnum heimilisins, bústjóra og kenn- ara, sem og öðru starfsfólki. En ef ekki þætti tiltækilegt að festa kaup á þessari jörð eða að taka hana á leigu, áréttir barnaverndarráðið og barna- verndarnefnd Reykjavíkur þá áskorun sína, að leitast. verði þegar fyrir um kaup á heppi- legri jörð í þessu skyni.“ — En hvernig verður háttað rekstri þessarar stofnunar, ef til kemur? spyr blaðið formann barnaverndarráðsins, Arngrím Kristjánsson skólastjóra, sem gefið hefir því upplýsingar um þetta mál. ..Tilætlunin er, að um rekstur uppeldisheimilisins takist sam- vinna á milli ríkisins og Reykja víkurbæjar. í sambandi við kostnaðarhlið málsins, þarf það að vera ljóst, að nú þegar, ber hið opinbera mikinn kostnað, þótt um lítinn eða engan árang- ur sé að ræða eimnitt vegna vöntunar á uppeldisheimili. — Hér er áreiðanlega um það að ræða, að spara eyririnn en kasta krónunni, ef ekkert er að hafst. En auk þess kemur hinn mikli menningarauki, sem fæst við stofnun slíks heimilis." Reykjavlkurbær kaup« Ir ishúsið isbjðrnlnn. ■----«----- Verðið var um 90 þúsund kr. og verð- ur þarna hraðfrystistöð, eins og áður. —-*—-——* —-——. BÆJARRÁÐ hefir samþykkt fyrir sitt leyti að kaupa ís- húsið ísbjörninn og er nú hafin vinna við viðgerðir á íshúsinu, en það brann allmikið eins og kunnugt er síðast- liðinn aðfangadag jóla. Eigendur ísbjarnarins voru ekkja Ólafs heitins Benjamínssonar, Geir Sig- urðsson fyrrverandi skip- stjóri og fleiri. Seldu þessir eigendur Reykjavíkurbæ ís- húsið fyrir um 90 þúsundir króna að því er sagt er. — Bæjarstjórn á enn eftir að leggja formlegt samþykki sitt á kaupin- Eins og kunnugt er, hefir fiski- málanefnd haft starfsemi sína í þessu íshúsi undanfarin ár, og þaðan hefir verið stjörnað ýms- um framkvæmdum, sem gerðar hafa verið í sambandi við bygg- ángu frystihusa vlðs vegar uni Bretar og þjóðverjar berj~ ast innan noskrar landhelgi. —----■»■■■'---- ■ Þýzkt hjálparsklp sneð 326 brezka fanga wm borð á beimleið i&naii skerja f Noregi ————4.—--—- Brezkur tundurspillir fór inn i landhelgina og frelsaði hina brezku fanga eftir vopnaviðskipti. iandið. I íshúsinu hafa unnið oft um 40 manns, bæði konur og karlar, en nú hefir engin vinna verið þar síðan íkviknunin varð í íshúsinu. ' Ákveðið mun vera, að áfram- hald verði nú á þessari starfsemi, enda mun full þörf vera á því, ekki sizt nú, eftir að tekizt hefir að selja svo mikið af hraðfryst- um og flökuðum fiski og skýrt var frá hér í blaðinu fyrir nokkru. Það ber að fagna því, að bærinn skuli hafa fest kauþ á Is- birninum, og það er fullkomlega í samræmi við tillögur og vilja Alþýðuflokksins. Vonandi verður Frh. á 4. síðtt. Frá fréttaritara Alþýðublaðsins KHÖFN í morgun. NGIN fregn vakti aðra eins athygli um helgina og viðureign brezka tundur- spillisins H. M. S. Cossack og þýzka skipsins Altmark inn- an norskrar landhelgi- Altmark var með 326 brezka sjómenn innanborðs, en þeir höfðu verið á skipum, er Graf von Spee hafði sökkt áður en brezku herskipin réðu niðurlögum þess. Alt- mark var birgðaskip fyrir Graf von Spee og var það vopnað. Brezki tundurspillirinn bjargaði öllum brezku sjó- mönnunum og voru þeir sett- ir á land í Leith á laugardag. Skfrtla um atburðina. LONDON í gærkveldi. FÚ. Þegar brezka flotamála- stjórnin fékk pata af því, aS Altmark væri á leið meðfram Noregsströndum til Þýzkalands, var þegar ákveðið að gera til- raun til þess að stöðva skipið og bjarga hinum brezku föngum, sem í því voru. Brezkar flugvél- ar flugu yfir skipið og gáfu því stöðvunarmerki. en skipið leit- aði inn í norska landhelgi, og fóru brezku tundurspillarnir Intrepid og Cosack inn í land- helgi. þar sem skipið var, og kröfðust þess, að fangarnir væri afhentir, en tveir norskir fall- byssubátar komu einnig á vett- vang. Skipherrann á Cosack bauðst til, að settur væri sam- eiginlegur varðmannaflokkur af brezku tundurspillunum og norsku fallbyssubátunum á Altmark, og skyldu þeir sigla þvi til Bergen, þar sem frekari ákvarðanir yrði teknar í sam- ræmi við alþjóðalög og reglur. En þessu boði var hafnað. — Skipherrann á öðrum norska fallbyssubátnum kvað sér ekki kunnugt um, að brezkir fangar væri í Altmark, sem hafði kom- ið við í Bergen, og fengið leyfi til þess að halda áfram ferð sinni suður með Noregsströnd- um innan landhelgi. Brezku tundurspillarnir hurfu nú á brott, en er skygga tók fengu þeir fyrirskipun um að gefa nánar gætur að Altmark og stöðva það og bjarga brezku sjómönnunum. Þegar tundur- spillarnir fundu hið þýzka skip kom til bardaga og strandaði þýzka skipið eða því var rent á land. Sjóliðar af HSM Cos- sack fóru um borð í Altmark og björguðu brezku föngunum. sem voru í haldi niðri í skipinu. Það er talið, að nokkur hluti hinnar þýzku skipshafnar hafi bjargast á land á flótta. Norsku fallbyssubátarnir höfðu ekki af- skipti af viðureigninni. Skips- höfnin á þýzku olíuflutninga- skipi, sem var statt utan norskr- ar landhelgi, sökkti skipi sínu, er brezki tundurspillirinn Ivan- hoe gaf því merki um að stöðva. Þfefalt Iilníleysisferot. í raun og veru er hér um þre- falt hlutleysisbrot að ræða. seg- ir í einkaskeyti. Altmark, vopn- að skip með brezka fanga inn- anborðs, brýtur hlutleysi Nor- egs með því að fara inn í norska landhelgi. Norðmenn rannsaka ekki skipið nægilega og leyfa því að sigla innan norskrar landhelgi og Bretar taka til sinna ráða og ráðast inn í land- helgina, þegar sýnt er að skipið flýr undan tundurspillinum. Enda hefir þessi atburður framkallað hörð mótmæli og allmiklar æsingar. Nygaards- vold forsætisráðherra. sem gegnir störfum Kohts um þess- ar mundir, fór þegar á fund Frh. á 4. síðu. ------------------------- 20 skipshcfHir á íspritHtMaf Ips | áðnægjn nteð ýis itjðr sin. SKIPSHAFNIR á 20 tog urum hafa nú sent stjórnum Sjómannafélag- anna í Reykjavík og Hafn- arfirði bréf um kjör þeirra og kaup. Kemur óánægja sjó- rnanna með ýms atriði æ skýrar í Ijós, og virðast þeir albúnir að halda mál- um sínum til streitu til hins ítrasta. Óánægjan stafar af mörgum atriðum, sem.ýms hafa verið gterð að umtalsefni hér í blaðinu undanfama daga. Þá hafa vélstjórar skrifað sínum félagsskap. Umæður fara stöðugt fram milli fulltrúa sjómanna og útgerðar- manna. Finnar verHa að hðrfa undan I 2. varnarlínia. Saribaldafeersveitin er li í lelð tii vígvallanna. ...^ Norðmem. leyfa ekki ¥opnafiutnlEg. Einkaskeyti til Alþýðublaðsins Kaupmannahöfn í morgun. ■p* INNAR hafa nú orðið að körfa undan á nokkru svæði til annarrar línu Mannerheim- víggirðinganna á Kyrjálaeyði. Talið er, að þessi viggirðing sé jafnvel betur útbúin en fyrsía liiian, enda er fullur baráttuþfjrtt- ur í finnska hernum. Mikið af óþreyttu varaliði hefir nú verið sent til vígstöðvanna, og geta nú hetjurnar, sem varizt hafa ofureflinu í þrjár vikur sam- fleytt, fengið nokkra hvíld. Finnum berst nú stöðugt hjálp utanlands frá og er síðasta fregn- in um hjálp þeim til handa á þá leið, að Garibaidahersveitin svonefnda, en hana ski'pa 10 þús- und ítalir, sem búsettir eru í Frakklandi, sé nú í þann veginn að leggja af stað til að berjast við hlið Finna. Mannerheim hershöfðingi hefir gefið út ávarp til hersins, þar sem hann hvetur hann til að berjast til þrautar, og skýrir frá því, að nú sé hjálpin loks að koma. En yfirlýsing, sem Koht utan- ríkismálaráðherra Noregs gaf út I gærkveldi, vekur ugg og ótta. t þessari yfirlýsingu er frá því skýrt, að Norðmenn myndu áfram verða hlutlausir í styrjöldinni — og að framvegis verði vopna- flutningur til Finnlands ékki leyfður um Noreg, hvað þá liðs- flutningar. Baraldir Gnðmnds- son forseti samein- aðs nings. ■p UNDIR hófust í Alþingi í * dag með fundi í samein- uðu þingi. Forseti sameinaðs þings var kosinn Haraldur Guðmundsson, 20 seðlar auðir við kosninguna, kommúnistar og Sjálfstæðismenn. Kvenfélag Alþýðuflokksins heldur aðalfund sinn í kvöld ri. 8,30 í Alþýðuhúsinu við Hvg,

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.