Alþýðublaðið - 09.03.1940, Blaðsíða 1
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON
ÚTGEFANDI: ALÞÝBUFLO&&1CJMNN
XXI. ÁRGANGUR.
'11" 11 r “■in; ■■11»*
LAUGARDAGUR 9. MARZ 1940.
58. TÖLUBLAÐ
MUNIÐ Hörpudanzleikinn í
Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu í kvöld kl, 9,36.
SVINHUFVUD
Svíkur Stalin nú einnig samning
sinn við Kuusinen, forseta
finnsku „alþýðustj órnarinnar11,
eins og hann kallaði það, 1
Terijoki? Myndin er tekin, þeg-
ar samningurinn var undirritað-
úr í Moskva. Kuusinen stendur
við hliðina á Stalin. Molotov er
að skrifa undir.
Bretar bíalr ®l Iæra
að verjast segnlmðgn
nðn tnndnrdnflnnum.
„Qneen Elizabeth" hafði
ðtbúnað til hess.
LONDON í morgun. FÚ.
ÞAÐ vakti mikla athygli, er
það vitnaðist um leið og
mesta skip heimsins, „Queen
Elizabeth“, kom til New York,
að hún hefir sérstakan útbúnað,
sem ver skipið hættunni af s'eg-
ulmögnuðu tundurduflunum.
Mörg önnur brezk skip hafa
nú fengið þennan útbúnað. Eru
lagðir yísar, sem rafmagn er
ieitt um, utan um skipsskrokk-
fefc. á 4. irfBn. -
Bretar og Frakkar ern ð-
ánægðir með afstððn Svfa.
-— ♦ -
Vilja fá að flytja ltertil Flnnlands
Það kemur berlega í Ijós í
brezkum og frönskum blöðum,
að þau eru mjög óánægð mteð
afstöðu Svía og forgöngu í þess-
um friðarumleitunum. En því
var harðlega mótmælt af „Soc-
ial-Demokráten“ í Stokkhólmi
í gær, að Svíar reyndu á nokk-
urn hátt að fá Finna til að ganga
að friðarskilmálum, sem ekki
væru fullkomlega heiðarlegir
fyrir þá.
„Soci«l-Demokraten“ leggur
áherzlu á það, að fastur grund-
völluf fyrir friðarvonir sé enn
ekki fundinn, en bendir jafn-
framt á það, að tef Rússar vilji
ekki unna Finniun heiðarlegs
friðar, sem tryggi fullkomlega
sjálfstæði þeirra, þá eigi Rússar
á hættu stríð við bæði Vestur-
veldin, England og Frakkland
og það mjög fljótlega.
Það þykir líka augljóst, af
öllum blaðaummælum á Eng-
FA. á 4. st«u.
PAASIKIVI.*
TANNER.
Sambomnlag milll Finna og Rússa eða
stríð mllli Vestnrveldanna og RússlaadsT
■ -----------.......
Sánmingar bak við tjðidin bæði I Stokkhólmi og Berlín.
Urslitatilraun Norðurlanda
til pess að komast hjá ófriði.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun.
ÞAÐ hefir nú verið staðfest af Tanner, utanríkismála-
ráðherra finnsku stjórnarinnar, að beinar friðarum-
leitanir séu byrjaðar milli Finna og Rússa fyrir milligöngu
þriðja ríkis, og er það almennt álitið, áð það sé Svíþjóð, enda
þótt allar líkur bendi til, að Þýzkaland beiti sér einnig fyrir
því, að friður verði saminn.
Talið er af blöðum á Norðurlöndum, að það muni mjög
fljótt verða úr því skorið, hvort styrjöldin á Finnlandi
haldi áfram eða ekki. En flestum blaðaummælum kemur
'saman um það, að eftir þetta sé varla um annað að velja,
en samkomulagsfriðar milli Finnlands og Rússlands, eða í-
hlutunar af hálfu Englands og Frakklands, sem myndi þýða
stríð milli þeirra og Rússlands og mjög sennilega gera Norð-
urlönd jafnframt að vígvelli í styrjöld Vesturveldanna við
Þýzkaland.
Fullyrt er að finnsk samninganefnd sé komin til Stokk-
hólms til þess að ræða friðarsamninga og hefir í því sam-
bandi heyrst, að sendiherra Rússa þar, Alexandra Kollon-
toj, hafi tekið upp samningaumleitanir við Eljas Erkko,
sendiherra Finna þar. ,
Samningaumleitanir einn-
ig i Rómaborg og Moskva.
—__—.—»..—--
En það þykir augljóst að samningaumleitanir fari sam-
tímis fram í Berlín. Það er nú opinbert mál, að Paasikivi,
aðalsamningamaður Finna við Rússa í haust, og Svinhufvud,
fyrrverandi Finnlandsforseti, hafa undanfarna daga dvalið
í Stokkhólmi. En þeir eru báðir farnir þaðan, og er það kunn-
ugt, að Svinhufvud fór í flugvél til Berlínar í gær og gekk
strax á fund von Ribbentrops utanríkismálaráðherra Hitl-
ers. Tilkynnt hafði verið, að von Ribbentrop færi til Ítalíu
í dag á fund Mussolinis og Ciano greifa. En í morgun var
því lýst yfir, að Svinhufvud myndi fara þangað með hon-
um, og er talið víst að það standi í sambandi við friðar-
umleitanirnar.
Um ferðir Paasikivi er ókunnugt, en orðrómur gengur
um það, að hann hafi farið til Moskva.
Um leppstjórn Kuusinens í Terijoki er ekki lengur taiað.
Fullvíst þykir, að Stalin muni ekki láta hana standa í vegi fyrir
^samningum, ef hann þykist sjá sér hag í þeim á þessari stundu.
Ósjófært skip Maðið
f iski varð að snúavið
Leki kom skyndilega að skipinu er
það var nýlega lagt af stað til útlanda.
fj EGAR ELDEY, hið ný- ♦
keypta skip Ingvars
Vilhjálmssonar, var í gær að
leggja af stað út með 90 tonn
af fiski, sem útgerðin hafði
bæði fiskað og keypt, kom
skyndilega allmikill leki að
skipinu. Var það þá ekki
komið nema hér rétt út fyrir.
Alþýðublaðið hafði í morgun
tal af Ingvari Vilhjálmssyni og
spurði hann um þetta atvik. —
Hann sagði:
„Pað var verið að rétta komp-
ásana héma rétt fyrir utan, á
leáðinni út, þegar skyndilega.
kom leki að skipinu. Sást strax
að lekinn var aftan á því, rétt
við sjávarmálið, svo ofarlega, að
ekki þurfti annað en að velta 10
olíutunnum, sem voru á þilfarinu,
dálítið tíl, svo að sjór hætti aið
streyma inn í skipið.
Pað þurfti heldur ekki að leita
að gatinu nema á 2—4 tomma
svæði. Er talið, að lekinn sé inn-
án í rórkistunni."
— Var skipið ekki nýkomið úr
Slippnum?
„Jú, og hafði verið þar alllengi
til skoðunar. Verður nú að taka
allan fiskinn úr því, selja sumt
af honum og salta hitt. En síðan
verður að taka skipið aftur upp
í slippinn.“
— Þetta veldur ykkur allmiklu
tapi?
„Vitanlega, en það er þó fyrir
öllu, að lekinn skyldi koma svona
sinemma í Ijós. Verra befði verið,
hefði lekinn orðið þegar lengra
var komið út.“
Eldey kom hingað fyrir nokkru
siðan og var keypt frá útlönd-
um.
Happdrættið I Alþý&uhúsinu.
Umboðið fyrir happdrætti há-
skólans verður opið í kvöld til
kl. 12 á miðnætti. Dregið verður
á mánttdaginn.
Rafmagnsbilun
í bænum í dag
RAFMAGNIÐ bilaði kL 8 mín.
fyrir 11 f morgun.
Alþýðublaðið náði tali af raf-
magnsstjóra, og sagði hanin, að
það væri annar strengurinn frá
Elliðaánum, sem hefði bilað, og
hefði hann sent út menn til að
rannsaka bilunina. Ljós komu
aftur rétt fyrir hádegið, en voru
dauf fyrst í stað.
Samtðk fflilli Hiti-
1 ers, Stalins og
ob Hnssoiinis?
Brezka útvarpið
fór í dag hörðum
orðum um samningaum-
leitanir þær, sem nú eru í
gangi, fyrir forgöngu Sví-
þjóðar og Þýzkalands, um
frið milii Finna og Rússa.
Það sagði, að för Ribben-
trops til Ítalíu sé farin
eftir samkomulagi milli
Þýzkaiands, Rússiands og
Ítalíu um að skipta meg-
inlandi Evrópu í áhrifa-
svæði sín á milli. Þýzka-
land eigi að fá Norðurlönd,
Rússland Eystrasaitslönd-
in og Finnland og ítalía
Ralkanskaga.
Héngn aftan i bil
og meiddnst
"D ÉTT fyrir hádegið S gær var
hringt á lögreglustöðina og
sagt, að tvelr drenghnokkar veeru
suður hjá Grhnsstaðaholti ai-
blóðugir.
Fóru tveir lögregluþjónar suð-
ureftir og tóku drengina og fóru
með þá á Landsspítalann og
siðan heim með þá.
Voru þetta litlir hnokkar, 5 og
6 ára, Þorsteinn og Jóhann Egils-
synir, Ásvallagötu 25. Höfðu þeir
dottið á götuna og meiðst all»
mikið á höfði, er þeir slepptu
bil, sem þeir höfðu hangið aft-
an í.
Er það stórhættulegur leikur,
scnn böm iðka hér, að hanga
aftan í bílum, sem eru á fieygi-
ferð, og verður ekki nógsamlega
við því varnð.
Ætti lögregla bæjarins að hafa
miklu strangara eftirlát en áður
með slíkum leik.
Byltíng við stjérnar*
kosningn I Fiskif élaginu
Kristján Bergsson féll við kosn-
inguna eftlr sextán ára starf.
—........... .
23 ára gamall hagfræðingur, Davíð
Ólafsson, var kosinn forseti.
-..... 4 --
U ISKIÞINGIÐ hélt Iokafund sinn x gærkveldi og fór
þá fram kosning á stjórn fyrir Fiskifélagið_Alger
stjórnarbylting varð við kosninguna.
Davíð Ólafsson, 23 ára
gamall hagfræðingur, sonur
Ölafs heitins Gíslasonar út-
gerðarmanns í Viðey, var
kosinn forseti með 6 atkvæð-
um.
Kristján Bérgsson fékk 5
atkvæði, en 1 seðill var auð-
ur.
Hinn nýi forseti er algerlega ó-
kunnur og óreyndur. Hann lauk
prófi rið háskólann í KM i vet-
ur og fjallaði prófritgerð bans
um fiskveiðar íslendinga.
Kristján Rergsson hefir verið
forseti Fiskifélagsins siðan 1924,
éða í 16 ár.
Einnig var skipt um meðstjóm-
endur. Kosnir voru Emil Jónsson
ritamálastjóri og Sigurjón Þ.
Fónsson fymærandi bankastjóri
frá ísafirði.
Þeir, sem fóru úr stjöminni,
voru Bjami Sæmundsson fiski-
fræðingur, sem hefir átt sæti i
stjóm félagsins frá upphafi, og
Geir Sigurðsson skipstjóri.
í varastjöm vom kosnir: Árni
Friðriksson fiskifræðingur og
Frh. á 4. sfðu.