Alþýðublaðið - 15.03.1940, Page 1
Alþýðuflokksmenn!
Munið ÁRSHÁTÍÐINA
annað kvöld.
RITSTJÓRI: F R. VALDEMARSSON
ÓTGKFANÐI: ALÞÝÐUFLOKKURINN
XXI. ÁRQANGUH
FÖSTUDAGUR 15. MARZ 1940.
63. TÖLUBLAÐ
Kaupið aðgöngumiða
á ÁRSHÁTÍÐ Alþýðu-
flokksfélagsins sem fyrst.
Skípin hafa selt ísfisk fyrir
20 millj. kr. siðan í október.
...
Meðalsala hvers togara í hverri ferð 88 þú&und krón-
ur, meðalsala línuveiðara og vélbáta 54 þúsund krónur.
TOGARAR, línuveiðarar og vélbátar hafa alls farið 155 *
ísfisksöluferðir á tímabilinu frá 1. janúar síðastliðn-
um til 11. marz.
Alis hafa þessi skip selt afla sinn fyrir 490 348 sterl-
ingspund, eða í íslenzkum krónum, reiknað með 25 lcróna
gengi, 12 258 700.
í janúar voru alls farnar 56 ferðir og selt fyrir 195 009
sterlingspund, í febrúar voru farnar 74 ferðir og selt fyrir
231708 sterlingspund og frá 29. febr. til 11. marz voru
farnar 25 ferðir og selt fyrir 63 631 sterlingspund.
Af þessum 155 ísfisksöluferðum síðan um áramót hafa togar-
arnir farið 114 ferðir, en línuveiðarar og vélbátar 41 ferð.
Togararnir hafa alls selt fyrir 402 176 stpd, eða 10 054 300
íslenzkra króna. Að meðaltali hafa togararnir selt í ferð fyrir
3528 sterlingspund, teða 88 108 krónur.
Línuveiðararnir og vélbátarnir hafa selt alls fyrir 88 176
sterlingspund, eða 2 204 400 krónur, eða í ferð að meðaltali 53 766
krónur.
Þetta eru að vísu háar upp-
hæðir, en þess b'er um leið vel
að gæta, að frádráttur er mjög
mikill og ekki nema tiltölulega
lítiii hluti gjaldeyrisins kemur
heim.
Alþýðublaðinu hefir ekki tek-
izt að fá nákvæmar tölur um
sölu skipanna síðustu mánuðina
fyrir áramót, en í nóvember og
desember nam heildarsalan um
6 milljónum króna, en skipin
seldu einnig meirihluta októ-
bermánaðar, og er því ekki of
hátt áætlað að telja. að ísfiskur
hafi vterið seldur síðan stríðið
brauzt út fyrir um 20 milljónir
íslenzkra króna,
Þetta fé kemur vitanlega í
mjög góðar þarfir, eftir öll hin
erfiðu ár útgerðarinnar, en þess
her vel að gæta, að árin hafa
um leið verið erfið fyrir sjó-
mannastéttina og maður skyldi
þó ætla af þessum fsfisksölum,
að hægt væri að búa eitthvað
betur að henni en áður. Hún
setur líka líf sitt og limi í mikla
hættu, eins og við höfum kom-
izt að raun’um. Á það hefir vilj-
að bresta, að útgterðarmenn hafi
sýnt nógu góðan skilning á rétti
hennar og þörfum.
Kviknar í línnveið-
ara frð Akranesi.
IGÆRMORGUN kviknaði í
línuveiðaranum „Sigrún“,
sem skráður er á Akranesi. Yar
hann staddur 12 sjómílur út af
Akranesi, þ'egar þetta vildi til.
Menn bbenndust töluvert, en
skipið komst að landi.
Slysið vildi til á þann hátt,
að olíubrúsi, sem stóð óskorð-
aður á káetugólfi, valt um koll,
og skvettist olían á glóandi
kolaofn og varð strax stórt bál.
Frh. i 'L sööu.
Hæstiréttur;
Démur fi máli út af
sundi milli húsa.
IMORGUN var kveðinn upp í
Hæstarétti dómur í málinu
Sigurþór Jónsson og ísleifur
Jakobsson, sem eigendur Veltu-
sunds 1 og Hafnarstræti 4 gegn
Austurstræti 3 h/f.
Héraðsdóminn kváðu upp
dómendur í merkjadómi Reykja
víkur, þeir Lárus Fjeldsted
hrm., Sigurður Thoroddsen
verkfræðingur og Georg Ólafs-
son bankastjóri.
í dómi Hæstaréttar segir svo:
,. Aðaláf rýj endur, Sigurþór
Jónsson og ísleifur Jakobsson,
sem skotið hafa máli þessu til
hæstaréttar með stefnu 22. sept.
f. á., hafa krafizt þess aðallega,
að viðurkenndur verði óskorað-
ur eignarréttur þeirra að gang-
ræmu þeirri, sem liggur afgirt
austanvert á lóðinni Austur-
stræti 5 frá Austurstræti að
sunnan og að lóðamörkum
Austurstrætis 3 annars vegar og
Veltusunds 1 og Hafnarstrætis
4 hins vegar að norðan, en til
vara, að þeim verði dæmdur ó-
skoraður umferðarréttur yfir
téða gangræmu. Þá krefjast þeir
þess, að niður verði fellt ákvæði
merkjadómsins um umferðar-
rétt gagnáfrýjanda yfir fram-
hald gangræmu þessarar frá áð-
urnefndum lóðamörkum og yfir
í Hafnarstræti. Svo krefjast að-
aláfrýjendur málskostnaðar fyr-
ir báðum dómum eftir mati
hæstaréttar.
Gagnáfrýjandi, Austurstræti
3 h/f., sem skotið hefir málinu
til hæstaréttar með stefnu 23.
sept. f. á., hefir aðallega krafizt
Frk. á 4.
Brynjólfnr Bjarnason
fékk kinnbest ð al-
þingi i gær.
Forsætlsráðherrann poldl
kögursveini Stalins ekkl
köpuryrðin.
CÁ ÓVENJULEGI atburð-
ur gerðist í sölum al-
þingis í gær, að Hermann
Jónasson forsætisráðherra
rétti Brynjólfi Bjarnasyni al-
þingismanni og aðalfor-
sprakka kommúnista snögg-
an kinnhest með flötum lófa
— svo að Brynjólfur riðaði
við.
Nokkrir þingmenn voru — utan
fundar í þinginu — að ræða um
Finnlandsmálin, og sló Hermann
Jónasson þvi fram, að kommún-
istaforsprakkarnir hér ættu allir
að taka upp ættamafnið Kuu-
sinen og kenna sig með þvi við
hinn fræga flokksbróður sinn frá
Terijoki.
Brynjólfi • mun hafa sámað
samanburðurinn við þennan fé-
laga, enda kvað nú Stalin vera
búinn að láta drepa hann, og
mun hann því i augum Brynjólfs
vera orðinn „upplagður svikari".
Rauk Brynjólfur upp og svaraði
forsætisráðherra um • heimsku.
Kvað hann forsætisráðherra vera
frægan að heimsku, en þó hefði
hann sjálfur ekki talið hann vera
svona heimskan.
Þeir alþingismennimir stóðu
sitt hvoru megin við borð, og
rétti forsætisráðherra hinum kinn-
hestinn yfir borðið og mælti eitt-
hvað til Brynjólfs um leið.
Ýfðist Brynjólfur afskaplega
við þetta og varð svo hvumsa að
hann kom engu orði upp um
stund og vissi ekki hvað til
bragðs skyldi taka, en rauk svo
út.
1 dag ber Þjóðviljinn sig mjög
illa undan kinnhestinum, sem
Brynjólfur fékk, og er bersýni-
legt, að Kommúnistaflokkinn
sviður allan sárt undan honum.
fiDllhringnm stolið úr
búðarglngga.
¥ FYRRINÓTT var brotin rúða
í sýningargulugga Árna
Björnssonar á horni Austur-
strætis og Lækjargötu og stolið
35 gullhringum.
Lágu 36 gullhringar á bakka
í glugga öðrum megin við hurð-
ina. Hafði glugginn verið möl-
brotinn og hringirnir gripnir af
bakkanum. En einn hringurinn
fannst í rúðubrotunum undir
glugganum.
. Ein af þeim mörgu, sem nú eru heimilislausir á Finnlandi.
Finnar flýja úr héraðunum,
sem Russar eiga nú að fá.
— —»....
400 Búsund manns taka sig npp til að
forða sér nndan rússneskri ógnarstjórn.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. KHÖFN í morgun,
UM 400 þúsund manns eru nú að flýja úr þeim héruð-
um, sem Rússar eiga að fá á Kyrjálanesi og norðan og
vestan við Ladoga. Það vill ekki búa við rússneska stjórn og
tekur sig upp með allri búslóð sinni til þess að leita nýrra bú-
staða inni í Finnlandi. Rússar fá ekkert nema landið, autt
og yfirgefið af öllu fólki.
Finnska stjórnin hefir sent alla þá járnbrautarvagna og bif-
reiðar, sem hún hefir yfir að ráða, til Kyrjálaness, til þess að
flytja fólkið á brott þaðan. Enn fremur verður allur búpening-
ur þeirra, húsmunir og annað, flutt á brott. Er það gífurlegt
verkefni, sem hér þarf að vinna, og þó einkanlega, að koma fólk-
inu fyrir í öðrum landshlutum.
íbúar Helsingfors flykkjast
nú einnig aftur til höfuðborgar-
innar. En eiiis og kunnugt er,
hvarf mikill hluti íbúanna á
brott þaðan vegna loftárása
Rússa á borgina. Allar járn-
brautarlestir, sem til Helsing-
fors fara, eru troðfullar af fólki,
og færri en vilja komast þangað
loftleiðis frá Svíþjóð.
Flnnar verða fyrir ópr-
lep fjárhagslegu tjóni.
KHÖFN í morgun. FÚ.
Það er nú verið að íhuga,
hvert fjárhags- og viðskiptatjón
Finnar muni bíða vegna friðar-
samninganna og hversu úr verði
bætt.
Um VS hluti af útflutningi
Finna fór um Viborg, sem
Rússar fá samkvæmt friðar-
samningunum, og 10% um
Hangö. Á Kyrjálanesi, sem
Rússar fá, eru fjölda margar
sögunarmylnur og verksmiðjur,
sem framleiða trjákvoðu, og er
Finnum mikill hnekkir að því,
að missa þær.
Svfar hjóða Finnum 18
millj. kr. viðreisnarlán.
að upphæð 18 millj. sænskra
króna. Hjálparnefndin í Svíþjóð ,
hefir óskað eftir 9000 sjálfboða-
liðum til þess að vinna viðreisn-
arstörf í Finnlandi.
256 danskir málmiðnaðar-
menn fóru í gær í vinnuþjón-
ustu til Finnlands. Finnlands-
hjálpinni dönsku verður haldið
áfram með sama sniði og und-
anfarið þrátt fyrir friðinn, og
engin ákvörðun hefir enn verið
tekin um hvað gera skuli við
hina dönsku sjálfboðaliða í
Finnlandi,
Kallio Finnlandsforseti hefir
simað Herbert Hoover fyrrver-
andi Bandaríkjaforseta, formanni
Frh. á 4. sföu.
Rússar hafa misst
200 þús. manns,
1590 skriðdreha
og 700 fingvolar!
KHÖFN í gærkv. FO.
ÞAÐ er haft eftir Mann-
erheim hersböfðingja,
að manntjón Fiana l styrj-
öldinni hafi alls numið 15
þúsund manns, en að mann-
tjón Rússa muni hins vegar
hafa orðið um 200 þúsund
manns.
Ennfremur segir Manner-
heim, að Rússar hafi orðið
að láía 1500 skriðdreka fyr-
ir Finnum, og að Finnum
haíi tekizt að eyðileggja fyr-
ir Rússum 700 flugvélar.
Finnski herinn stendur
uppi ósigraður og óbrotinn,
ssgir Mannerheim, en iandið
er ofiítið og varaliðið of
takmarkað til þess, að fært
| hefði verið að halda styrj-
: öldinni lengur áfram án að-
: stoðar.
Svíþjóð hefir boðizt til þess
að veita Finnum viðreisnarlán
Svíar og Miena reiðabnnir að
gera varnarbandaiag við Finna.
--------------------•.+...
Danir verða ekki með í bandalaginu.
-------»■.....
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins. Kaupmannahöfn í morgun,
STJÓRNIR NOREGS OG SVÍÞJÓÐAR hafa nú lýst
því yfir, að þær séu reiðubúnar til þess að ræða rnögu-
leika á varnarbandalagi milli Noregs, Svíþjóðar og Finn-
iands, þannig, að hvert þessara ríkja ábyrgist landamæri
hinna tveggja og komi til liðs við hvort þeirra, sem á kynni
að verða ráðizt. Frh. & 4. sföu.