Alþýðublaðið - 30.03.1940, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 30.03.1940, Qupperneq 3
... ALÞÝSUBLAÐIS Briet Bjarnhéðtasdóttir er borln tll grafar i dag. Bríet Bjarnhéðinsdóttir. ! ALÞYÐUBLABW srfSTJóai: j W. R. VAUÐMMAMSSON. í íjarveru feans: | STEFÁN PÉTUBSSON. j AFGKP3æ>SLA: j AÍÞÝDUHÚSINU j (Inngangnr tré Hverfkgötu). SÍMAR: 4800: Aígreiö«la» auglýsingar. 4901: Ritstjórn (innl. fréttir). 4802: Ritstióri. 4903: V. S. Vilhjálms (heima). 4905: Alþýðuprentí:fniðjan. 490S: Afgreíðsla. ,5021 Stefán Pétursaon (heimgt). ! ALhÝÐUPRENTSMIÐJAN £-------------*---------* Vofa atvinnu íeyslsins. 1S|VÍ lengur, sem líður á það ^ stríð, sm nú geisar úti í heimi, því ljósara verður það, að baráttan gegn vofu atvinnu- leysisins, sem stríðið þegar hef- ir sært fram, verður ein harð- asta raunin, sem það leggur okkur á herðar. Stríðið er ekki búið að standa nema í rúmlega hálft ár, og nokkur stöðvun hefir hingað til ekki orðið á siglingum eða að- flutningum til landsins. Engu að síður vofir nú algert atvinnu- leysi yfir 900 byggingariðnað- armönnum bara hér í Reykja- vík, sem hafa samtals um 4000 manns á sínu framfæri, og auk þess yfir fjölda annarra verka- manna, sem atvinnu hafa haft af byggingum. Því að þótt eng- in siglingastöðvun hafi enn orð- io, hefir verðhækkunin á er- lendu byggingarefni þegar orðið svo mikil, að mjög lítið hefir fengizt inn af því, síðan stríðið hófst, enda er gjaldeyr- ir þjóðarinnar takmarkaöur, og innflutningur á ýmsum öðrum nauðsynjum, svo sem matvæl- urn og eldsneyti, taldist vitan- lega ennþá meira aðkallandi í byrjun ófriðarins. En nú er svo komið. að ekki er annað sýnilegt en að öll bygg- ingarvinna stöðvist til fulls og fjölmenn stétt manna, sem hing- að til hefir átt við þolanleg kjör að búa, verði ofurseld hálfu eða heilu hungri, nema aftur verði rýmkað mjög verulega um inn- flutning á byggingarefni. Það er í fullri vitund um alvöru þessa ástands, sem þingmenn Reykjavíkur hafa nú, eftir á- skorun byggingariðnaðarmanna, borið fram þingsályktunartil- lögu á alþingi þess efnis, að fela stjórninni að liðka svo til um innflutning á byggingar- efni, að ekki þurfi að taka fyrir byggingar nýrra húsa, að sjá um, að nægilegt efni'sé stöðugt fyrir hendi til viðhalds húsa og verkstæðisvinnu, og að nota eftir því, sem við verður kom- ið, faglærða iðnaðarmenn við þá iðnaðarvinnu, sem ríkið læt- ur framkvæma eða styrkir. Það ætti ekki að þurfa að ætla, að slík tillaga mætti mikilli mót- spyrnu hjá þingi eða stjórn eft- ir áð sýnilegt er orðið, hvað yf- ir vofir, enda þolir það enga bið lengur, að atvinna byggingar- iðnaðarmanna verði tryggð með þeim ráðstöfunum, sem í þings- ályktunartillögunni er farið fram á. En það eru ekki aðeins bygg- ingariðnaðarmennirnir, sem nú verða að horfast í augu við vofu atvinnuleysisins. Baráttan við hana er' þegar í dag orðinn al- varlegur veruleiki fyrhr aðra fjölmenna stétt verkafólks. Það er daglaunafólkið hér í Reykja- vík, Hafnarfirði og raunar víð- ar, sem á þessum tíma árs hef- ir stöðugt haft atvinnu við salt- fisksverkun, en nú stendur uppi atvinnulaust og með tvær hend- ur tómar af því, að togararnir fiska eingöngu í ís og saltfisks- veiðar þeirra hafa fallið niður. Atvinnuleysi þessa fólks er líka afleiðing striðsins, að minnsta kosti óbein afleiðing þess, og það er óhjákvæmilegt, að hið opinbera hefjist handa til þess að sjá því á einn eða annan hátt fyrir vinnu og brauði, ef stríðið heldur áfram árum saman og saltfisksvertíð togaranna fellur niður af völd- um þess, vegna hinna arðsam- ari ísfisksveiða, því að það er tilviljun í ár, að vinnan við hita- veitúna bjargar þó aldrei sé nema nokkurn. hluta þessa dag- launafólks frá neyðarástandi. Það hefir komið fram þings- ályktunartillaga á alþingi frá tveimur Alþýðuflokksmönnum Frh. á 4. síðu. IÐ HÖFUM FENGIÐ 99 " fjölda margar réttar- bætur, en margar þeirra eru aðeins á pappírnum og ekki í £ramkvæmdinni.“ Þessi orð sagði Bríet Bjarn- héðinsdóttir við mig, er ég átti samtal við hana dagirm fyrir átt- ræðisafmæli hennar í september 1936, og mér finnst rétt að rifja þau upp í dag, þegar hún er borin til grafar. Þetta var dómur hennar sjálfrar um árangurinn af baráttu hennar, sem þá hafði staðið í hálfa öld og rúmlega það. Það er óhætt að fullyrða, að með Bríeti Bjarnhéðinsdóttur hverfur merkasta konan, sem ís,- iand hefir alið á þessari öld. Hún var alveg sérstæð kona. Hún hóf rnerki kvenfrelsisbarátt- > unnar ein og óstudd veturinn 1885, og með þeim hætti, sem vakti stórkostlega furðu. Hún var bóndadóttir norðan úr Húna- vatnssýslu, nýkomin hingað íil bæjarins, og lítið sem ekkert hafði þá verið minnzt á það, að konumar væru misrétti beittar i þjóðfélaginu. Þeim hafði frá alda öðli verið markaður bás, sem tai- inn var hæfa þeim, og annar staður var þeim ekki ætlaður. Æ Það valrti því eltki litla furðu, þegar þessi bóndadóttÍT birti grein í Fjallkonunni 5. júní 1885, og krafðist aukinnar menntunar til handa konum og jafnrétti við 'karlmenn í opinberum máium. En Briet gerði ekltí aðeins að krefj- ast réttinda. Hún snéri sér fyrst og fremst til kvénnanr.a sjálfra, rakti fyrir þeirn orsakimar fyrir áhugaleysi þeirra, senf hún að visu taldi skiljaniegt, þegar telc- ið væri tillit til aðstöðu þeirra, og hvatti þær lögeggjan til auk- innar menntunar, en hana taldi hún fyrsta og stærsta skilyrðið fyrir því, að konurnar gætu féngið jafnrétti við karlmenn og notfært sér það. — Þetta var og stefna Bríetar alla hennar löngu baráttuæfi. Hún gerði allt af miklar og strangar kröfur til kvennanna, og ég hygg, að hana hafi oft sviðið að: sjá tómlæti þeirra og áhugaleysí fyrir eigin málum. Þegar Bríet var að alast upp nörður í Húnavatnssýslu, gekk aldia yfir landið. Unga fólkið hafði vaknað við gnýinn af sjálf- stæðisbaráttunni upp úr og um 1874, og nýjar skoÖanir og ný viöhorf ruddu sér til rúms. Með rétti er hægt að líta á Bríeti sem einn' bezta' fulltrúa þessa æsku- lýðs. Hún var stórbrotin í skap- gerð, stórgáfuð, þrekmiltíl, áræð- in og áköf, að hverju máli sem hún gekk. Það var því ekki und- arlegt, þó að hún gerðist braut- ryðjandi upp á eigin spýtur, skapaði sjálf stefnu og stjórnaði baráttunni fyrir henni. En þö að greinin hennar vekti mikla athygli 1885, þá vakti það enn meiri undrun, þegar hún lét það boð út ganga tveimur árum seinna, að hún ætlaði að halda opinberan fyrirlestur um réttindi kvenna; því að það var í fyrsta sinn, sem íslenzk kona réðist í slíkt stórvirki. Þessi fyrirlestur var haldinn i Góðíemplarahúsimi og fyrir húsfylli. Hann var ekki neítt bænakvak. í skýrum drátt- um dró hún upp myndir af að- stöðu og réttleysi konunnar og krafðist fullkomms jafnréttis kvenna við karla þegar í stað. Upp úr því hefst baráttan fyrir alvörn, og frá þeirri stundu stóð gnýr um nafn hennar, sem aldrei þagnaði, jafnvel ekki þö að henni finnist sjálfri, að hún væri hætt. Þegar nafn hennar var nefnt stóð myndin af hinni gömlu sterku konu í Þingholtsstræti 18 lifandi fyrix hugskotssjónttM manna. Um það leyti, sem Bríet fiutti fyrixlestur sinn, var hún leyni- lega trúlofuð Valdimar Ásmunds- syni, en ekki sýndi hún honuni þó handritið að fyrirlestrinum. Hún gat staðið edn, og hún sýndi það alltaf, að hún þorði það.. Heimili þeirra Brietar og Valdi- mars varð arinn ýmissa trelsis- hugsjóna hér í Reykjavík. Valdii- mar var hinn mikilhæfasti mað- ur, djarfur í skoðunum og á- "kafur í sókn fyrir þeim. Betri maka mun Bríet vart hafa getai fengið. SkoÖanir þeirra féllu sanr- an. og þau uppfylltu hvort annaö. Það var mikils virði fyrir þessa sterku konu, sem var að hefjia merki frelsishugsjónar, sem varla nokkrum manni hafði áður dottið í hug hér á landi. Valdimar Ástnundsson, sem var ritstjóri Fjallkonunnar, fékk mik- ið af erlendum blöðum og tima- ritum, og þar kynntist Bríet fyrst baráttunni erlendis fyrir málefn- um kvenna. Jafnframt setti hún sig í samhand við kvenréttinda- hreyfinguna erlendis og hélt hún þvi sambandi áfrani alla tíð. Á næstu árum ritaði Bríet mik- ið um þessi mál og flutti fyrir- elstra. Hún stofnaði Kvenrétt- indablaðið, sem um skeið varð útbreiddasta blað hér á landi. Jafnframt stofnaði hún kvenfé- Iög og ferðaðrst um landið þvert og endilangt. Hún var öþreytandi í starfi sínu. Árið 1902 var hún boöin á kvemnaþing, sem haldið 'Var í tlslo. Hún ætíaði að fara þangað, en það ár lézt Valdimar, svo að ekkert varð af för hennar. En 1904 var stofnað Alþjóðasam- band kvennéttindafélaga, og fylgdist hún vel með störfum þess, þó að hún gæti ekki sótt stofnþingið. Tveimur árum siöar sótti hún þing Alþjóðasambands- ins, og hafðí það ferðalag stór- kostíeg áhrif á hana. Þegar hún kom heim hóf hún ákafari bar- áttu en nokkru sinni áður, og náði sú barátta hámarki um 1911, en þá fengu konur ýms réttíndi, þó ekki kosningarrétt til alþingis fyrr en 1915 og þá takmarkaðan. En 1918 unnu þaer fullnaðarsigur í því máli og fengu jafnan kosh- ingarrétt á við karlmenn. Sigurinn í kosningaréttarm ál- umrm nægði Bríeti þó ekki. Kon- umar áttu við margs konar mis- rétti aö búa, og nú hófst barátt- Frh. á 4. siðu. LAUGABDAGUR 30. MARZ 1940 •-------——------------- « svo, að hún er orðin að einni stórkostlegri vígvél. Þessári manntegund er lýst í hundruð- um bóka eftir höfunda, sem ekki eru af gyðinglegum upp- runa: í ,,Þegninum“ eftir Hein- rich Mann, í „Tíðindalaust á Vesturvígstöðvunum'1 eftir Re- marque, í „Útlögum" eftir Peter Martin Lampel. ,,Ár í Helvíti" eftir Wolfgang Langhoff og mörgum fleiri.“ Kolka gerir engan greinar- mun á því, hvort raenn hafa andúð á þjóð eða ákveðnum flokki manpa eða stefnu, er á einum og öðrum tíma ryður sér til rúms með ofbeldi innan þjóð- félaganna. Mjög víða í bókum Reeds kemur fram mikil aðdá- un á Þjóðverjum, en skörp gagnrýni á Bretum. Enginn Englendingur, sem ég hefi lesið bækur eftir, gagnrýnir Breta jafn óvægilega og Reed gerir. Hann bendir þeim á ófrelsið, sem alþýðan 1 Englandi eigi við að búa um öll ytri þægindi, sem sé gagnstætt því, sem er í Þýzkalandi. Hann telur ,.slum“- hverfin hreinan smánarblett á Englandi og segir, að þeim sé útrýmt að fullu í Þýzkalandi. Þlann hæðir Breta fyrir gamlar venjur þeirra, sem ekki sam- rýmast orðið nútíma vinnu- brögðum í stjórnmálum og hernaði, og bendir þeim á hví- • líka yfirburði Þjóðverjar hafi þar fram yfir þá. Þjóðverjar velji menn sína eftir dugnaði þeirra og þekkingu, en ekki eftir því af hvaða ætt þeir eru eða. í hvaða skóla þeir hafa gengið. En hann gerir meira. Hann bendir Bretum á að þeir sofi meðan Þjóðverjar vaki í öllu því, er að hernaði lýtur. Og er sá maður ásökunarverð- ur, sem bendir þjóð sinni á þá hættu, sem yfir henni vofir? Sá, sem sér hættuna og gerir það ekki, er landráðamaður. Eins og Kolka er skylt sem lækni að benda sjúkling sínum á þá hættu, sem yfir honum vofir ef hann þreytir ekki um lífernisháttu, eins er hverjum syni þjóðar sinnar skylt að benda á þá hættu, sem hann sér að yfir henni vofir. Til þess að afs.týra árásarhættunni þýðir ekkert annað en aukinn vígbún- aður, og þá leið verður að fara. Það er eina leiðin, sem til er, segir Reed. * „Andinn frá Versölum“ gegn- sýrir þessa bók, segir Kolka. „Hann klauf Evrópu í tvo fjandsamlega flokka, sigurveg- ara og undirokaða. Ranglæti og hatri var sáð og lýðræðið í Þýzkalandi kafnaði í þeim gróðri, sem óx upp af því sæði.“ Til sannindamerkis um að „andinn frá Versölum11 sé ekki uppistaða þessarar bókar og síð- ari bóka Reeds um þessi efni má benda á, að á einum stað segir hann á þessa leið: „Þegar friðurinn var saminn og hið nýja landabréf Evrópu gert, var það óheillaráð tekið að lima sundur það ríkið, sem síður skyldi. Hinu forna Austurríki- Ungverjaland stóð heiminum engin hætta af, en heimsfriðn- um mun ávalt stafa hætta af hinum þýzka hernaðaranda og friður fæst ekki fyrr en honum er hnekkt, með hvaða ráðum svo sem það verður gert.“ Sannleiksgildi þessara um- mæla höfum við nú sannprófað í annað sinn á æfi einnar kyn- slóðar. Það er með öllu rangt, að Ev- rópa hafi eftir 1918 greinzt í sigurvegara og sigraða. Á Þýzkalandi var í engu tilliti níðst eftir að friðarsamningar voru komnir á, nema ef það er kölluð áníðsla að krefjast af- vopnunar, en það var sú minnsta krafa, sem hægt var að gera á hendur því. Fé til end- urreisnar atvinnulífi Þýzka- lands streymdi þangað í svo stórum stíl frá Bretlandi og Bandaríkjunum sérstaklega, að það nam meiru en öllum stríðs- skaðabótum þeim, er Þjóðverj- ar nokkurn tíma inntu af hendi. * Kolka segir réttilega í grein sinni að við íslendingar, sem minnsta ábyrgð bærum á þeim ófarnaði, sem hræsnisfull heimsmenning hefir steypt þjóðunum í, ættum að reyna að skoða þá atburði, sem nú gerast, frá hlutlausu sjónarmiði og gera okkur hleypidómalaust grein fyrir þeirri framvindu, ^em nú á sér stað.“ Þetta er rétt mælt, en hann heldur því einnig fram, að þessvegna eigum við ekki að lesa bækur, slíkar sem „Hruna- dansinn“, heldur aðrar, minna . áróðurskenndar, að því er virð- ist svo sem bækur eftir Bruce Lockhart og aðra honum líka. Hvernig maður á að geta gert sér hleypidómalaust grein fyrir hlutunum með því að lesa ekki þær bækur, sem mestu róti valda á hverjum tíma, eins og bækur Reeds áreiðanlega gerðu 1938 og 1939, er harla vont að sjá og skilja. Ef til vill veit Kolka einhverja leið til þess, þó ég sjái hana ekki. Hinsvegar vill svo til að ég hefi líka lesið sumar bækur Lockharts og ég fæ ekki með bezta vilja séð, að á þeim kenn- ingum, sem þær flytja, sé veru- legur munur og á kenningum Reeds. Ein af béztu bókum Bruce Lockharts er bókin „Guns or butter“, sem hefir fengizt hér í Reykjavík í danskri þýðingu undir nafninu „Kanoner eller Smör“ og margir því vafalaust hafa lesið. Hann lýsir í síðustu köflum þessarar bókar nokkuð „andan- um frá Postdam", sem nú gegn- sýrir þýzku þjóðina. Stríð, land- vinningar, yfirdrottnun, for- ingjadýrkun og dýrkun hins þýzka hernaðaranda, ásamt hæfilegri fyrirlitningu á til- verurétti annarra eru megin þættir „andans frá Postdam." Um það, að skapa skilning og samstarf milli Þýzkalands og Englands segir Lockhart í þess- ari bók sinni: „Ég held að frá Breta hálfu verði að byggja það samstarf á tveim aðalatriðum: styrkleika og umburðarlyndi, Vér verðum að Vera svo sterkir, að árás af hálfu Þýzkalands sé óhugsandi og þýði fyrir þá sama sem sjélfs morð. Vér getum ekki látið oss á sama standa um örlög Evrópu. Ef stjórna á Evrópu með valdi — munum vér einnig að loknm verða að beygja oss fyrir vald- inu.“ Hvernig ætlast nú hr. Kolka til að sá styrkleikur verði skap- aður af Englands hálfu öðruvísl en með öflugum vígbúnaði og hernaðarbandalagi? Hvernig getur Bretland á annan hátt oið ið svo öflugt, að það sé „sjálfs- morð“ fyrir Þýzkaland að leggja til ófriðar við Bretland? Og ef svo er, hver er þá munur skoðana hans og skoðana Reeds, höfundar „Hrunadansins"? * í niðurlagi greinarinnar ræðst svo læknirinn á Menningar- og fræðslusamband alþýðu fyrir að gefa út slíka bók sem „Hruna- dansinn“ er. Hann segir, að sú menningarstarfsemi sé seyrð og lævi blandin“, sem „laumar að lesendunum áróðri og jafnvel lygum undir því yfirskyni, að .verið sé að fræða þá.“ Hræddur er ég um, að ef Frh. á 4. siðu,

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.