Alþýðublaðið - 23.04.1940, Qupperneq 3
Ititsfcjóri: F. R. Valdemarssom.
í fjarveru hans: Stéfám Fétursson. Símar 4802 og 5421 (heima).
Ritsígórn: AlþýSuhúsiriu við Hverfisgötu.
Simar: 4902: Ritötjóri. 4901: Innlendar fréttir. 5021: Stefán Pét-
ursson (hekna) Sellandsstíg 16. 4903: Vilhj. S. Vilhjálms-
son (heirma) Brávallagötu 50.
Afgreiðsla: Alþýðuhúsinu ^gengið inn frá Hverfisgötu.
Simar: 4900 og 4906.
Verð kr. 2,50 á mánuði. 10 aurar í lausasölu.
AL>Ý9UPRENTSMI8JAN H.P.
Fyrsti maí í ár
-------»-----
FYRSTI MAÍ er
verkalýðsins um
heim. Og þar sem verkalýður-
inn hefir framar öllum stéttum
harizt fyrir friðsamlegri og
bróðurlegri samvinnu allra
þjóða, er fyrsti maí jafnframt
dagur alþjóðahyggjunnar,
feræðralagsins meðal mann-
anna, hverrar þjóðar, sem þeir
eru.
Aldrei hefir verið meiri þörf
á því að halda á lofti þessari
þýðingu fyrsta maí hátíðahald-
anna en einmitt í ár. Því enda
þótt verkalýðurinn sé bræðra-
lagshugsjón sinni trúr eins og
áður, hefir harðdrægum og á-
byrgðarlausum sérhagsmuna-
.klíkum auðvalds og einræðis
úti um heim enn á ný tekizt að
steypa þjóðunum út í hörmung-
ar blóðugrar styrjaldar, þar
sem bæði með morðtólunum og
feinum eitruðu aðferðum stríðs-
æsinganna er unnið markvíst
að því, að myrða þann vísi til
alþjóðlegs skilnings og alþjóð-
legrar samvinnu, sem vaxið
feefir upp í slóð verkalýðshreyf-
ingarinnar frá því að hún hóf
göngu sína.
Það er hlutverk verkalýðsins
á slikum tímum, að halda á
lofti merki alþjóðahyggjunnar
og bræðralagsins meðal mann-
anna til þess að hindra það að
feinum blindu öflum gamla
tímans, auðvaldsins og einveld-
isins, takist að eitra samlíf
þjóðanna til langframa. Það er
felutverk hans að berjast fyrir
réttlátum og varanlegum friði
undir eins og þeim öflum hefir
verið steypt af stóli, sem á-
byrgð bera á þessari styrjöld,
friði, sem tryggir öllum þjóð
um rétt til þess að ráða sér
sjálfar, jafnt þeim smáu sem
þeim stóru, og skapar öruggan
grundvöll fyrir friðsamlegri
sambúð þeirra í framtíðinni.
Við íslendingar stöndum, að
minnsta kosti enn, fyrir utan
þá styrjöld, sem nú er háð. En
aldrei höfum við fundið eins
vel til þess og í dag, hversu
mjög framtíð smáþjóðanna, og
þá einnig framtíð okkar, er und
ir því komin, að réttlátur og
varanlegur friður fáist að stríð-
inu loknu, á grundvelli full-
komins jafnræðis og gagn-
kvæms skilnings meðal þjóð-
anna. Nánustu frændþjóðir
okkar hafa þrátt fyrir einlægan
friðarvilja og fullkomið hlut-
leysi verið dregnar inn í ófrið-
inn og lönd þeirra gerð að víg-
velli. Finnar hafa orðið fyrir
blóðugri og tilefnislausri árás
Sovét-Rússlands. Þeim tókst að
verja frelsi sitt, en land þeirra
liggur í rústum eftir árásina.
Danir hafa orðið að horfa upp
á hið varnarlausa land sitt her-
tekið að jafn tilefnislausu af
Hitler-Þýzkalandi og beygt
undir ok nazistiskrar harð-
stjórnar um ófyrirsjáanlegan
tíma. Norðmenn verða ’nú dag-
lega að leggja líf sitt í sölurnar
til þess að verja land sitt og
frelsi fyrir sams konar kúgun-
artilraun. Og engum dettur í
hug, að sá tími verði talinn
nema í hæsta lagi í vikum þar
til Svíar verða einnig að taka
sér sverð í hönd til þess að
mæta blóðugri og ægilegri árás
sama ofbeldisins og ofureflis-
ins á land þeirra.
Hvergi í heiminum hefir
bræðralagshugsjónin og al-
þjóðahyggjan borið fegurri á-
vöxt en einmitt í samvinnu
þessara landa sín á milli, hinni
norrænu samvinnu. Og hvergi
hefir það verið greinilegra, að
það er verkalýðshreyfingin,
sem er grundvöllur slíkrar
samvinnu. Hvað er því eðli-
legra en það, að við minnumst
fyrsta maí í ár fyrst og fremst
þessara frændþjóða okkar og
baráttu þeirra bæði fyrr
og nú fyrir frelsi, jöfn-
uði og bræðralagi, sem
hvergi í heiminum hefir borið
eins glæsilegan ávöxt? Við vit-
um ekki, að hve miklu leyti
þær geta haldið fyrsta maí há-
tíðlegan í ár á sama hátt og
hingað til. En við vitum hitt,
að þær berjast raunverulega í
dag fyrir þeim hugsjónum, sem
fyrsti maí er helgaður. Og við,
sem enn höfum tækifæri til
þess að halda upp á fyrsta maí,
eins og hingað til, getum í ár
ekki gert það betur en að hylla
þessar frændþjóðir okkar á
stund hættunnar, sem nú geng-
ur yfir þær. Við hyllum þar
með um leið þær hugsjónir,
sem dagurinn er æfinlega helg-
aður: hugsjónir verkalýðs-
hreyfingarinnar, jafnaðarstefn-
una og alþjóðahyggjuna, sem
hvergi hafa mótað veru-
leikann sjálfan eins varanlega
og einmitt á Norðurlöndum.
Fulltrúaráð verkalýðsfélag-
anna hér í Reykjavík hefir
þegar boðað til hátíðahalda
fyrsta maí. Látum þau verða
að voldugri og einhuga sam-
úðaryfirlýsingu með hinum
stríðandi frændþjóðum okkar á
Norðurlöndum, undir fánum
þeirra, okkar eigin þjóðfána og
hinum sameiginlega fána
verkalýðshreyfingarinnar. Á
engan annan hátt getum
við betur haldið fyrsta maí há-
tíðlegan í ár.
„Forðum í Flosaporti.“
Dömufrakkar álvalt fyrir-
liggjandi. Guðm. Guðmundsson,
klæðskeri, Kirkjuhvoli.
dagur
allan
AU»Y«i8)LAO» ______ WHÖJUDAGUR 23. APRIL 194«
Allmikil jarðabótavinna
austur i 01fusi i sumar.
—>'—.♦
Rfklð ætlar að kanpa jarðfirnar fivamm ofg
Kirkjuferjn 09 allan afnotarétt að Hvolslandfi.
t*ar eiga að rísa upp nýbýli i framtíðinni.
/I LÞINGI hefir nýlega
*"*■ samþykkt frumvarp
um allstór jarðakaup í ölf-
usi og afnotarétt jarða.
Er ráðgert að á jörðum
jessum verði f ramkvæmd
stórfelld jarðabótavinna
með það fyrir augum að
coma þar síðar upp nýbýla-
hverfum.
Þessar jarðir eru: Hvammur
í Ölfusi og Kirkjuferja með
hjáleigu. Hvammur stendur
eins og kunnugt er til vinstri
við veginn austur undir Ing-
ólfsfjalli, og fylgir jörðinni
mikið land. Kirkjuferja stend-
ur hægra megin við veginn rétt
niður við Ölfusá og er mjög
kostarík jörð. Þá er í frumvarp-
inu um afnotarétt Hvolslands,
en sú jörð er líka kostarík og
stendur hægra megin við veg-
inn austur, en sést bærinn tæp-
lega af veginum. Allar þessar
þrjár jarðir eru með þeim kosta
ríkustu og land þeirra með því
bezta, sem völ er á austan
fjalls.
tíðaráformið er að koma þarna
upp hverfi af nýbýlum, sem míð-
ast við heimilþarfir nýbyggjanna,
en viðfangsefnið nú í atvinntileys
inu er að skapa á löndunum
atvinnu til undirbúnings þessu
áformi.
Nefndin valdi þessi lönd eftir
nákvæma athugun. Starfi hennar
er alls ekki lokið. Hún mun
halda áfram að athuga Iönd við
kauptún og kaupstaði, ekki ein-
Ungis til þess að koma þar upp
nýjum býlum, heldur til að koma
upp ræktuðum löndum fyrir I-
búa þessara staða, svo að þeir
geti stundað þar ræktun með-
fram annari vinnu.
— Hefir nokkur áætlun verið
gerð um hve mörg nýbýlin verða
í Ölfusi?
„Nei, um það er engin áætlun
enn sem komið er, enda er hægt
að brjóta löndin og vinna þar
að jarðabótavinnu, án nokkurrar
slíkrar áætlunar. En nefndin lítur
svo á, að réttast væri að taka
mest allt Ölfusið fyrir og skipu-
leggja það með þétta byggð fyrir
augum, þar sem hvort tveggja er
fyxir hendi, góðar samgöngur og
væntanlegt áveituland til afnota,
bæði í ölfusforum og ef til vill
austur í Flóa.
— Verður unnið að þessu í
sumar?
„Það má gera ráð fyrir því,
að allmikið verði unnið að jarð-
(árbótavinnu í isumar, enda er full
þörf fyrir atvinnu nú og meira
en það. öllum mun líka skiljast
að hér er um opinbera vinnu
að ræða, sem hlýtur í framtíðinni
að skapa mikil verðmæti."
Þættir úr verzlunar- og iðnaðar-
sögu íslands
heitir nýútkomin bók eftir Chr.
Fr. Nielsen umboðs- & heildsala.
Er þetta 1. hefti og von á fleirum.
Þá segir enn fremur í frum-
varpinu:
„Ef ekki semst við eigendur um
kaupverðið, er ríkisstjórninni
heimilt að taka eignarnámi
jarðir þær og afnotaréttindi, er
um getur í 1. gr. Eignarnámið
skal framkvæmt samkv. lögum
nr. 61 14. nóv. 1917.
RfkisstjöminÐi er heimilt að
verja úr ríkissjööi til landþurk-
unar og vegagerðar í sambandi
við stofnun nýbýla allt að 150
þús. krönum á árlnu 1940 og allt
að 200 þús. br. á árinu 1941“.
Frumvarp þetta var borið fram
að tilhlutun landbúnaðarráðherra
en hann skipaði nefnd til að
rannsaka og undirbúa þetta mál
og á Ingimar Jónsson skólastjóri
sæti í þeirri nefnd fyrir hönd
Alþýðuflokksins.
Leitaði Alþýðublaðið í dag um-
sagnar hans um það og sagði
hann meÖal annars:
„Aðaltilgangurinn með þessum
lögum er sá að skapa á þessum
löndum jarðabótavinnu í sumar
og næsta sumar og láta vinna
þar að því að undirbúa landið
svo að síðar meir verði komið
upp á því nýbýlum í stórum
stíl. Hins vegar er ekki ætlunin
að koma upp nú þegar nýbýlum
þarna, heldur verður landið þurk-
að og unnið svo að það geti
þróast til góðrar ræktunar, en
þau mistök hafa mjög oft orðið,
að land, sem tekið hefir verið til
ræktunar, hefir verið tekið allt af
fljótt í notkun, túnsvæðin hafa
verið þurrkuð of lítið, ræktunin
hefir verið allt of hröð og nær-
ingarefnaforði mýrarinnar lwí
ekki komið að þeim notum, sem
orðið hefði, ef meiri þolinmæði
hefði gætt og landið fengið að
Þetta mál er tvíþætt. Frarn-
Jarðarför míns hjartkæra eigitunanns og föður
Sæmundar Kristjánssonar
fisksala
fer fram frá fríkirkjunni miðvikudaginn 24. apríl. Hefst með
húskveðju að heimili okkar, Hringbraut 188, kl. 1% e. hád.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Þorgerður Sveinsdóttir. Sigurdís Sæmundsdóttir.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
Arnfríðar Ólafsdóttur.
Fyrir mína hönd og annarra aðstandenda.
Guðhjörg Loftsdóttir.
STÚDENTAFÉLAG REYKJAVÍKUR.
Stúdentar hylla Gnnnar Gnnnarsson, skðld
að Bótel Borg annað kvðld kl. 8,30 e. k.
Formaður félagsins: Ávarp.
Sigurður Nordal prófessor: Gunnar Gunnarsson.
Pétur Á. Jónsson óperusöngvari: Einsöngur.
Hallgrímur Helgason tónskáld: Einleikur á píanó,
frumsamin lög.
D A N S .
Aðgöngumiðar á kr. 3,50 seldir í anddyri Háskólans í dag
og á morgun kl. 4—7 e. h.
Hátíðabúningur.
Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík.
Fundur
verður haldinn þriðjudaginn 23. þ. m. kl, 8V2 e. h. í Alþýðu-
húsinu (gengið inn frá Hverfisgötu).
FUNDAREFNI:
Fyrirtæki fulltrúaráðsins, 2. umræða.
Önnur mál. STJÓRNIN.