Alþýðublaðið - 30.04.1940, Side 4
ÞRIÐJUDAGUR 3Ö. APRÍL 1940.
ÞRIÐ JUDAGUR
Næturlæknir er Daníel Fjeld-
sted, Hverfisgötu 46, sími 3272.
Næturvörður . er í Reykjavík-
ur og Iðunnar-Apóteki.
ÚTVARPIÐ:
19.15 Þingfréttir.
19.45 Fréttir.
20.15 Upplestur: Úr „Vordögum,“
eftir Jónas Jónsson (Pálmi
Hannesson rektor).
20.45 Tónleikar Tónlistarskólans:
Sónata í F-dúr fyrir celló og
píanó, eftir Johs. Brahms.
Celló: dr. Edelstein; píanó:
dr. Ux'bantschitsch).
21.10 Hlj ómplötur: Symfónía nr.
2, eftir Borodin, o. fl.
21.55 Fréttir.
Dagskrárlok.
1. maí í Hafnarfirði.
Fulítrúaráð Verkalýðsfélaganna
í Hafnarfirði gengst fyrir skemmt-
un í Bæjarþingssalnum kl. 8V2. 1.
maí merki verða seld á götunum
allan daginn.
Forðum í Fiosaporti,
revýan 1940 verður sýnd í
kvöld klukkan 8 í Iðnó.
Háskólafyrirlestur á sænsku.
í kvöld kl. 8 lýkur sænski
sendiívennarinrij fil. mag. Anna Z.
Osterman, við fyririestraflokk
þann, sem hún hefir flutt að und-
ahförnu, og er þetta um leið síð-
asti. fyrirlestur hennar á þessu
skólaári. Efnið í þessum fyrirlestri
veröur um söngleikahúsið (óper-
una) í Stokkhólmi og sjónleika-
húsið frá tímum Gústavs III. og
síðan,
Hús tll sðlu.
Einlyft hús í SkerjafirÖi.
Rafmagnseldavél og leiðslur
fyrir rafmagnsupphitun, eign-
arlóð. Steinhús í Austurbæn-
um, 3 íbúðir, 2 herbergi og eld-
hús hver. Tvílyft timburhús í
Miðbænum, væg útborgun, o.
m. fl. .
Fasteignasalan Aðalstræti 8.
Sími 4180.
HELGI SVEINSSON.
Ferminpargjafir
nytsamar og skemmtilegar: Leð-
urbuddur 60 aura. Leðurseðla-
veski frá 5,25. Púðurkvasta-
hylki 1,75. Cigarettuveski frá
3.75. Greiður 0,55. Töskuspeglar
1,00. Borð- og veggspeglar frá
2.75. Ódýrir skinnvettlingar fyr-
ir börn og fullorðna. Nýtízku
kven- og herrahanzkar. Skjala-
Nótna- og Skólatöskur frá 2,75.
Visitkortamöppur. Myndaramm-
ar, margar stærðir, frá 1,50. -—
Barnatöskur frá 2,50, allir litir.
Tóbaksbuddur frá 2,75. Merkis-
spjöld 1,95. Lyklaveski, mismun-
andi gerðir frá 2,25 o. fl. o. fl.
til fermingargjafa. Alskemtileg-
asta úrval bæjarins af nýtízku
KVENVESKJUM. — Fallegar
TÖSKUR fyrir ungar stúlkur frá
kr. 7,50. Georgetteklútar 2,50.
Komið tímanlega, því birgðir eru
mjög takmarkaðar.
ALLT ATSON LEÐURVÖRUR.
Hljóðfærahúsið.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
KOMMÚNSTAR OG DAGSBRÚN
Frh. af 1. síðu.
í þessum efnum, og tilkynningar,
áskoranir eða annað, er þeir
kynnu að birta í nafni Dags-
Brúnar, því ‘í fullu heimildar-
leysi gert og þeir algerir óheim-
ildarmenn að.
Einar Björnsson, Sigurður
Halldórsson, Torfi Þorbjörnsson,
Gísli Guðnason, Sveinn Jónsson,
Þorlákur G. Ottesen, Guðm. Ó.
Guðmundsson, Marteinn Gísla-
son.“
Stalín ávarpar ís-
lenzka alpýðn.
OLAÐ KOMMÚNISTA birtir
í dag ávarp frá Moskva,
undirritað af Alþjóðasambandi
kommúnista. Þétta er boðskapur
Stalins til verkalýðsins.
í ávarpinu segir:
„ ... Heimtið prentfrelsi! ...
Alþióðasamband kommúnista
kallar ykkur undir merki verka-
lýðsins, undir hinn glæsta fána
Marx, Engels, Lenins og Stalins,
— því aðeins undir þessu merki
munuð þér sigra.
Friður meðal þjóðanna! Lifi
Sovétríkin, vígi friðar, frelsis og
sósíalisma!
Lifi bræðralag öreiga allra
landa."
— nema Finna og Pólverja,
mætti bæta við.
Þetta er á 2. síðu blaðsins, en
á 1. síðu er boðað til einingar-
kröfugöngu verkalýðsins! Hvern
langar til að vera með?(!)
NOREGUR
Frb. af 1. síðu.
J Eystridal hafa Þjóðverjar ver-
ið stöðvaðir af Norðmönnum fyr-
ir norðan Röros. Sprengdu Norð-
menn þar járnbrautarbrú yfir
Glaumelfi í loft upp, og Þjóð-
verjum hefir ekki tekizt að kom-
ast yfir ána með mótorhjóladeild-
ir sínar, þótt þeir hafi gert ítrek-
aðar tilraunir til þess með því
að spenna gúmmírenninga milli
brúarstöplanna og nota þá í stað
brúarinnar.
I Guðbrandsdal hefir sókn
Þjóðverja strandað á vörn Banda-
manna milli Kvam og Otta. En
fyrir norðan Dombás lítur út fyr-
ir að hersveitum þeim, sem Þjóð-
verjar sendu úr Eystridal vestur
yfir fjöllin til þess að ráðast á
járnbrautina upp af Guðbrands-
dal að baki Bandamanna, milli
Dombás og Stören, hafi lent
saman við her Bandamanna við
Hjerkinn, sem járnbrautin ligg-
ur fram hjá, og Kvik-
ne, lítið eitt norðaustar. Engar
nánari fregnir liggja fyrir af
þeim átökum, en ef Þjóðverjar
hefðu þar miklu liði á að skipa,
gæti það orðið Bandamönnum
hættulegt, því að yfirráðin yfir
járnbrautinni frá Dombás til
Stören eru þeim mjög þýðingar-
mikil, af því að þá leið verða
þeir að flytja lið sitt, sem ætlað
er að sækja sunnan að Þránd-
heimi.
Lokað allan daginn á morgnn.
Tryggingarstofnun ríkisins.
1. O. G. T.
IÞÖKUFUNDUR í ikvöld kl. 9
(af sérstökum ástæðum). Bróð-
ir Sigfús Sigurhjartarson flytur
erindi.
ST. FRÓN nr. 227. Fundur fell-
ur niður fimmtudaginn 2. maí.
Næsta fundardag þar á eftir,
16. maí, fer fram kosning á
fulltrúum til Umdæmisstúku
og Stórstúku, einnig verður þá
mælt með umboðsmönnum.
F.U.J.
Talkórinn hefir æfingu í kvöld
fel. 8,30 í fundarsal félagsins.
Allir F. U. J. félagar eru beðn-
ir að mæta I kvol'd kl. 9,30 í Al-
þýðuhúsinu, 6. hæð.
Munið eftir að kaupa ykkur
F. U. J. skyrtu fyrir kvöldið! —
Þær fást í afgreiðslu Alþýðu-
blaðsins.
B nAfölLA BÍO ]
I GUNGA
DIN
Amerísk stórmynd frá
Indlandi, byggð yfir sam-
nefnt hetjukvæði enska
skáldsins, Rudyard Kipl-
ings.
Börn innan 14 ára fá ekki
aðgang.
NYJA BIO
Fyrirskipanir
forsetans
Amerísk stórmynd frá
Fox-film. Aðalhlutverkin
leika:
Robert Taylor,
Barbara Stanwyck
og Vicktor McLaglen.
Börn fá ekki aðgang.
Síðasta sinn.
Strætlsvanar tllpna:
Á morgun hefjast ferðir að Vatnsþró og verður ekið
frá Lækjartorgi, um Hverfisgötu að Vatnsþró og til baka
um Laugaveg. 1. ferð kl. 7,50 og síðan á 30 mínútna fresti
til kl. 23,50. Á helgidögum er 1. ferð kl. 9,20. Ferðir með
Landsspítalavagni falla niður frá og með deginum á morg-
un.
Að Lögbergi verður ekið frá 1.—20. maí sem hér segir:
Frá Reykjavík kl. 7,15, 13,15:!: og 19,15*.
Frá Lögbergi kl. 8, 14,15* og. 20,15*.
(*Um Fossvog.)
STRÆTISVARGNAR REYKJAVÍKUR H.F.
Til brúðargjafa:
Kristall, handunninn.
Keramik Schramberger,
heimsfrægur kunst Keramik.
K. Einarsson & Bjornsson
Bankastræti 11.
ÁRÁSIR VÍSIS
Frh. af 3. síðu.
andúðina gegn 1. maí eru skoð-
anabræður G. Th. En nú er
svo komið, að einnig þessi
andúð er brotin á bak aftur. í-
haldið fylkir nú liði 1. maí í
annað sinn, og það er ekki von
til þess, að því skiljist ennþá til
fulls þýðing þessa dags. Von-
andi glæðist skilningurinn eftir
því, sem tímar líða.
Langtum réttara er að segja
að Sjálfstæðismenn séu nú að
taka þennan dag ,,traustataki“
eins og þeir hafa áður reynt,
að taka traustataki bæði ís-
lenzka fánann og íslenzka þjóð-
sönginn, heldur en að segja
slíkt um Alþýðuflokksinn, sem
frá upphafi hefir gengizt fyrir
því, að vinna daginn upp.
Við Alþýðuflokksmenn
gleðjumst yfir þessum framför-
um hjá ,,Sjálfstæðinu,“ þó
nokkuð beri enn á barnasjúk-
dómum í sambandi við alla
þeirra meðferð á deginum, en
þeir hverfa vonandi smátt og
smátt.
. Á einum stað segir G. Th., að
Alþýðuflokkurinn hafi farið
þess á leit, ,,að Sjálfstæðismenn
hefðu sameiginleg hátíðahöld
með þeim.“
Ég gerði gerin fyrir því í gær
hér í blaðinu, hvað fram hefir
farið í þessum efnum. og vísa
til þess.
Það er nú hinsvegar kunnugt
orðið, að það voru Sjálfstæðis-
menn einir í nefnd Dagsbrúnar,
sem ekki vildu ganga að til-
boði Fulltrúaráðsstjórnarinnar.
Þeir eiga því alla sök á því, að
sameiginleg hópganga verður
ekki farin, og sameiginlegur
útifundur ekki haldinn.
Kommúnistarnir fleygðu öllu
fyrir borð, öllum kröfum, öllum
verkalýðssöngvum, öllum rauð-
um fánum, bókstaflega öllu,
sem þeir hafa talið’ einhvers
vert, að undanförnu. Þeir
finna, að þeir eru nú gjörsigr-
aðir og eiga engrar uppreisnar
von, nema nýjar blekkingar
geti hjálpað, og nú á að grípa
til þeirra. Sú blekking er i því
fólgin, að safna öllum þeim,
sem vörðu árás Rússa á Finn-
land saman undir þjóðfána ís-
lendinga, til þess að reyna að
þvo af sér landráðastimpilinn,
sem öll þjóðin sér nú á enni
þeirra.
En líka þessi blekking mun
mistakast. Alþýða landsins veit
að hin einu samtök, sem hún
getur treyst, eru verkalýðssam-
tökin, hennar eigin samtök, og
eini flokkurinn, sem aldrei
fleygir fyrir borð hagsmuna-
málum hennar er Alþýðuflokk-
urinn.
Það er leitt og nærri óskilj-
anlegt, að Sjálfstæðismenn
skyldu ekki geta fallist á sam-
komulagsgrundvöll Fulltrúa-
ráðsins um sameiginleg hátíða-
höld 1. maí, og að þeir skyldu
gera sig svo smáa, að láta
stranda á því, að merki Al-
þýðusambands íslands skyldi
haft við hátíðahöldin .
Þetta sýnir ljósara en allt
annað, hve grunt stendur allt
samstarfstal þeirra og hve
nauða lítið má treysta þeim. —
Við, sem höfum af heilindum
unnið að samstarfi núverandi
stjórnarflokka, hljótum að
hrökkva við, þegar árs samstarf
hefir ekki borið meiri árang-
ur.
En við munum hvergi hika.
Alþýðusamtökin eru hin einu
samtök hér á landi, sem hvorki
finnst í efni í Kuusinena né
Quislinga, og þau munu hik-
laust vinna að velferð lands og
þjóðar, meðan hrammur ofbeld
isins ekki knúsar þau.
Við vitum einnig, að svo að
kalla öll þjóðin vill einingu og
samstarf. Við höfum rétt út
hendina til þess samstarfs við
Sjálfstæðismenn og aðra, sem
af heilindum unna frelsi og lýð-
ræði. En við höfum jafn kröft-
uglega greitt högg í herbúðir
þeirra, sem við vitum að búa
yfir svikum og vinna með und-
irferli.
Hið 24 ára langa starf ís-
lenzkra alþýðusamtaka hefir
nú loks yfirunnið alla mótstöðu
gegn 1. maí hátíðahöldunum.
Komið nú og fagnið þeim
sigri, alþýðumenn og konur í
Reykjavík.
Komið í fylkingar alþýðu-
samtakanna svo Vísi gefist
tækifæri til að birta myndir af
öðru en fáeinum regnhlífum
niðri við Varðarhús, eins og í
fyrra, er hann sýnir hópgöngu
alþýðusamtakanna.
Komið og minnist frænd-
þjóða okkar, sem nú búa við of
beldi og yfirgang.
Komið og sýnið Vísi að
,,flokksbrotið“, sem hann ótt-
ast, er stór og sterk fylking
samtaka og samhuga fólks.