Alþýðublaðið - 07.05.1940, Blaðsíða 1
XXI. ÁRGANGUR ÞRIÐJUDAG 7. MAf 1940 104. TÖLUBLAÐ
ítalskar hernaðarflugvélar í Libyu, við landamæri Egyptalands, þar sem í óða önn er nú
verið að búa allt undir stríð.
Samkomulag í nétt um áhættu
péknunina á kaupskipunum.
----4.-
Ábættapóknunin hækkar fyrir alla nm
4 kr. en það er nm 50*1* fyrir háseta.
"p\EILUNNI milli sjómanna á kaupskipunum og útgerð-
arfélaganna er lokið.
Þrátt fyrir það þó að svo liti út í gærkveldi, að alger-
iega slitnaði upp úr samningum og vinnustöðvun yrði,
tókst samkomulag í nótt og voru samningar undirritaðir
kl. 4 í morgun.
Úrslit deilunnar urðu þau, að nýtt áhættusvæði er komið í
samningana og að áhættuþóknunin hækkar fyrir háseta úr 250%
upp í 300%. Sömu upphæð fá aðrir skipverjar án tillits til kaups
þeirra, og verður hækkunin hlutfallsleg eftir því.
Nýjar breytingar á
brezkn stjórninni i
aðsigi?
Chamberiain Ujrtnr ræðu
sína um strlðið i Noregi
í brezha ginginu i dag.
CHAMBERLAIN flytur
ræðu sína um styrjÖIdina
í Noregi í brezka þinginu í dag,
sennilega kl. 4, og er hennar
beðið með mikilli eftirvænt-
ingu um allan heim.
Búizt er við því, að miklar
umræður verði á eftir, og að
stjórnin verði fyrir alvarlegri
gagnrýni fyrir brottflutning
hersins frá Suður-Noregi. Mun
leiðtogi Alþýðuflokksins, Att-
lee, talá næstur á eftir forsæt-
isráðherranum, en síðan Sir
Archibald Sinclair, foringi
frjálslynda flokksins. Það er
ekki gert ráð fyrir því, að um-
ræðunum verði lokið í kvöld,
og sennilega talar Churchill
ekki fyrr en á morgun.
Sum ensku blöðin gera ráð
fyrir því, að breytingar hljóti
að verða á brezku stjórninni að
þessum umræðum loknum.
„Times“ virðist vilja auka völd
Churchills enn. En „Daily Te-
legraph" krefst þess, að jafn-
aðarmenn taki nú einnig sæti í
stjórninni.
Samningurinn er viðbótar-
samningur við samninginn frá
7. október 1939, sem er fram-
lengdur. Viðbótin er í 4 grein-
um og er svohljóðandi:
1. gr. Fyrir siglingar á svæðinu
milli 63° og 45° N. br. og austan
20° V. 1. greiðist viðbótaráhættu-
þóknun kr. 4,00 pr. sólarhring
hverjum skipverja, sem samning-
ur pessi nær til. Þessi aukaþókn-
un greiðist frá byrjun þess dæg-
urs ,er skipið kemur inn á á-
hættusvæðið og til loka þess
dægurs, er skipið kemur til hafn-
ar (miðað við kl. 12 eða 24).
Á sama hátt reiknast aukaáhættu-
þóknun þessi frá byrjun þess
dægurs, er skipið fer úr hðfn á
þessu áhættusvæði og til loka
þe«s dægurs, er það fer út af
því. Fyrir þann tíma, sem skip
liggur i höfn greiðist ofanrituð
aukaþóknun ekki.
2. gr. Á svæðinu milli 8. og
3Q° A. 1. og milli 65.° og 72.° N.
br. greiðist sama áhættuþóknun
og í Ameríkuferðum. Ef skip
liggur í norskri höfn greiðist þó
sa-ma áhættuþóknun og í öðrum
höfnum ófriðaraðila.
3. gr. Samningurinn gildir til
næstu áramóta, þó þannig, að ef
veruleg breyting, miðað við und-
anfarna mánuði, verður á á-
hættunni, að áliti nefndar, sem
aðilar koma sér saman um, þá
hefir hvor aðili fyrir sig rétt ti)
þess að krefjast endurskoðunar á
samningnum, og náist eigi sam-
komulag innan 14 daga, þó ajp
þeim fresti liðnum að segja hon-
um upp með 14 daga fyrirvara,
að því er snertir þau svið, þar
sem nefndin telur' að veruleg
breyting hafi orðið. \
Ef hvorugur aðili hefir sagt
upp samningi þessum fyrir 15.
des. n. k., heldur hann áfram að
gilda þar til honum er sagt upp
meÖ 14 daga fyrirvara.
4. gr. Ákvæði samnings þessa
skulu gilda frá og með 21. apr.
s. 1. Að öðru leyti en hér er
fram tekið, framlengist samning-
urinn frá 7. október 1939 ó-
breyttur.
NorAmem eiga bezta lið
sitt ósigrað í Norður-Noregi
Búist við að Þjóðverjum lendi innan
skamms saman við það á leiðinninorður
T/’OHT UTANRÍKISMÁLARÁÐHERRA NORÐMANNA
ÁÁ. Sagði í viðtali í London í gær, að bezta liðið, sem
Norðmenn ættu á að skipa, væri enn óþreytt og ósigrað í
Norður-Noregi.
Hann sagði, að Norðmenn hefðu síðan Rússar réðust á
Finna haft mikinn viðbúnað þar nyrðra, af því að þeir
hefðu gert ráð fyrir því, að svo gæti farið, að Rússar réð-
ust á Noreg. Þangað hefði því verið sent töluvert lið og
það verið æft vel í fjallahernaði og nú ættu Þjóðverjar
þessu liði að mæta, ef þeir reyndu að brjóta undir sig
Norður-Noreg.
Þjóðverjar halda því fram,
að lið þeirra hafi nú hafið sókn
sína frá Grong í Þrændalögum
norður á hóginn og telja það
fara hratt yfir. En talið er víst,
að þess verði ekki langt að
bíða, að það reki sig á mót-
spyrnu 6. norsku herdeildarinn-
ar, sem er sögð hafa tekið sér
varnarstöðu sunnarlega í Norð-
ur-Noregi, þvert yfir landið,
sem alls staðar á þessum slóð-
um er mjög mjótt frá sjó til
sænsku landamæranna, og
mjög ógreitt yfirferðar. Þessi
herdeild Norðmanna er talin
vera vel útbúin að öllum ný-
tízku vopnum.
Frá Narvik berast ekki mikl-
ar fregnir. Það er álitið að
Þjóðverjar hafi þar um 4000
manna her, en hann er króaður
þar alveg inni af brezka flotan-
um og hersveitum Banda-
manna. Þó er búist við því, að
nokkur tími geti liðið, þangað
til hann verður að gefast upp,
því að hann hefir búið ramm-
lega um sig á öllum beztu stöð-
um umhverfis horgina.
1 þýzkum fregnum kemur það
fram, að franskir Alpahermenn
eru komnir til vígstöðvanna við
Narvík og taka þátt í sókninni
þar á hendur þýzka landgöngu-
liðinu. En brezk herskip skjóta
öðru hvoru á varnarstöÖvar þess
frá sjónum. 1 sænskum blöðum
er því haldið fram, að aðstaða
Þjóðverja fari mjög versnandi
þarna nyrðra. Veður er sagt
mjög slæmt sem stendur á þess-
um slóðum, stórhríðar og erfitt
um allar hernaðaraðgerðir.
Flýða ð opnum bðt frð
Notegi til Skotlands.
1 norska útvarpið frá London
talaði í gær norskur maður og
skýrði frá för sinni og þriggja
félaga sinna í opnum bát yfir
Frh. á 4. síðu.
3 tnndnrspillai sðkkt fjrrir
BandamðnnDm við Noreg.
-----«----
Einum brezkum, einum irðnskum, og einnmpólsknm
LONDON í morgun. FÚ.
GÆR síðdegis og gærkveldi
var tilkynnt, að sökkt hefði
verið 3 tundurspillum fyrir
Bandamönnum.
Brezka flotamálaráðuneytið
tilkynnir, að brezkum tundur-
spilli hefði verið sökkt, þegar
verið var að flytja herlið
Bandamanna frá Namsos. Ekk-
ert tjón varð á neinu herflutn-
ingaskipanna. Flugvélarnar,
sem árás gerðu á herflutninga-
skipaflotann og verndarskipin,
voru mjög margar. Komu þær
.í bylgjum og má þakka það á-
gætri vörn, að ekki varð meira
tjón að. Skothríðin úr loft-
varnabyssum herflutningaskip-
anna og herskipanna var hin á-
kafasta. Gátu flugvélarnar því
ekki flogið mjög lágt. Tvær
þeirra voru skotnar niður.
Tundursplllirinn, sem sökkt
var, „Afride“, varð fyrir
sprengikúlu. Tundurspillirinn
var 1600 smálestir og var syst-
urskip tundurspillisins „Cos-
sacks“. Á „Afride“ mun hafa
verið um 200 manna áhöfn.
í brezka flotanum voru 179
tundurspillar, er styrjöldin
brauzt út. Frá þeim tíma hafa
Frh. á 4. síðu.