Alþýðublaðið - 11.05.1940, Side 3
LAUGARDAGUR 11. MAI 1940
ALÞÝÐUBL.AÐID I
•--------- ALÞTÐUBLAÐIÐ----------------------*
Ritstjóri: F. R. Valdemarsson.
í fjarveru hans: Stefán Pétursson. Símar 4902 og 5021 (helma).
Ritstjórn: Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Símar: 4902: Ritstjóri. 4901: Innlendar fréttir. 5021: Stefán Pét-
ursson (heima) Sellandsstíg 16. 4903: Vilhj. S. Vilhjálms-
son (heima) Brávallagötu 50.
Afgreiðsla: Alþýðuhúsinu gengið inn frá Hverfisgötu.
Símar: 4900 og 4906.
Verð kr. 2,50 á mánuði. 10 aurar í lausásölu.
ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN H . F ,
■ >---------------------—-----------—--------♦
Nú er hin skarpa skálmöld komin
ffVF.R er sjálfum sér næstur.
Þess vegna varS okkur í
gær tíðræddara um það, sem
gerðist hér í fyrrinótt og gær-
morgun, heldur en um aðra við-
burði, sem sömu klukkustundirn-
ar voru oð gerast suður á meg-
inlandi Evrópu, enda þótt þeir
muni vissulega reynast ólíkt ör-
lagaríkari fyrir heiminn í heild
og sennilega meira að segja fyr-
ir okkur. Það er hin ægilega
árás Hitler-Þýzkalands á Hol-
land, Belgíu og Luxemburg.
Frá því að fyrsta mánuði og
fyrsta þætti stýrjaldarinnar lauk
með ósigri Pólverja að austan,
hefir stöðugt verið tíðindalaust
á vesturvígstöðvunum. Hin mikla
sókn Hitlers, „leifturstríðið" á
möti Vesturveldunum, sem allir
bjuggust við strax í október í
haust, hefir mánuð eftir mánuð
iátið eftir sér bíða. Það er eins
pg Hitler hafi hikað við að láta
sverfa þannig til stáls við stór-
veldin England og Frakkland, í
vitund þess, að það yrði allt
önnur og alvarlegri viðureign, en
hinn ójafni leikur við smáríkin
í Mið-Evrópu, sem hann hefir und
anfarin ár ráðizt á, einangruð og
hjálparlaus, hvert á eftir öðru.
Það er eins og hann hafi haft
einhverja óljósa húgmynd um það
að ef vitisvélarnar væru virki-
lega settar í gang á vesturvíg-
stöðvunum, þá myndi hann ekki
lengur hafa vald á viðburðunum,
heldur sjálfur verða rekald í rás
þeirra.
Ef til vill hefir hann gert sér
vonir um það, að geta ógnað
Vesturveldunum til þess að semja
frið, án þess að til frekari vopna-
viðskipta kæmi í þetta sinn, eftir
að hann' hafði undirokað Pól-
land með hjálp Stalins. En þá
hefir honum skjátlast, eins og
honum skjátlaðist í upphafi, þeg-
ar hann hélt að vináttusamning-
urinn við Stalin nægði til þess
að hræða Vesturveldin frá því
að standa við skuldbindingar
sínar við Pólland, þegar árásin
var gerð á það. England’ og
Frakkland voru seinþréytt til
að hræða Vesturveldin frá því
vandræðanna, en í haust var þeim
nóg boðið af svikunum og samn-
ingsrofunum. Og síðan hefir al-
drei hvarflað að þeim að semja
nokkurn frið við Hitler. England
hefir ekki látið hræðast af kaf-
bátahernaði hans né tundurdufl-
um. Það hefir haldið áfram að
þrengja hring hafnbannsins um-
hverfis JÞýzkaland, og ekki held-
ur hvikað eftir tilraun þess til
að rjúfá hann með árásinni á Dan
mörku og Noreg. Og nú hefir
Hitler loksins neyðst til þéss áð
taka afleiðingunum af sínum eigin
friðrofum og griðrofum. Sóknin
mikla, senr á að færa honum
sigur í styrjöldinni, er byrjuð
með hinni blóðugu árás á Hol-
land, Belgiu og Luxemburg, hlut-
laus lönd, sem ekkert hafa til
saka unnið. En færir hún hon-
unr sigurinn? Geri hún það ekki
þá er saga Hitlers senn á enda.
En hver sem úrslit sóknarinnar
verða, þá er eitt víst, að það
eru hroðalegri viðburðir í aðsigi
á vesturvígstöðvunum nú, en nokk
urn hefir lórað fyrir. Nú fyrst
er hin skarpa skálmöld komin
í þessu striði.
Kuusinarnir tala
um Quislinga!
AÐ er mjög neyðarlegt, þeg-
ar bíað Einars Ölgeirssonar
er að tala um Quislinga hér í
sambandi við brot Breta á hlut-
leysi okkar. Kommúnistablaðið
veit ofur vel, að enginn hefir
beðið um brezka vemd hér, en
að við erum hinsvegar vopnlaus
þjöð, sem gefum ekki varið hlut-
leysið.
En hvernig var það hér fyrir
ári síðan, þegar þýzka herskipið
,,Emden“ var að koma hingað í
kurteisisheimsókn? Var þáð ekki
einmitt Einar Olgeirsson, sem þá
stóð upp á alþingi með þjósti
mikluni og svivirðingum um rik-
isstjórnina fyrir það, að hún
skyldi ekki hafa beðið brezku
stjórnina að senda hingað her-
skip okkur til verndar? Enginn
annar flokkur hér, en Kommún-
istaflokkurinn hefir nokkru sinni
gert kröfu til þess að beðið væri
um brezka eða aðra erlenda
vernd.
Það situr því þegar af þeirri
ástæðu sízt á blaði kommúnista
að saka aðra um undirlægjuskap
við Breta, svo ekki sé á hitt
minnst, hve hlægilegt það er,
þegar Kuusinarnir eru að tala
urn Quislinga.
4---_____-------------
Skriftarkensla'
Þeir, sem óska að fá
kennslu í skrift fyrir gagn
fræðapróf í vor, gefi sig
fram sem fyrst.
Guðrún Geirsdóttir.
13ími 3680.
i---------—_---------~4
Reyktar raaðmagi
sérstaklega góður.
EGG, lækkað verð.
BJÚGU, daglega ný.
KOMIÐ — SÍMIÐ — SENDIÐ.
SBEKKA
Asvallagötu 1. Sáni 1678
Sírai 3570.
Ávarp forsætisráðherra til
r
1
■E* ORSÆTISRÁÐHERRA Her-
* mann Jónasson flutti ávarp
tíl þjóðarinnar í útvarpið í gær-
kvöldi kl. 8V2.
Fer ræða hans hér á eftir.
„íslendingar! Þau tíðiindi hafa
gerst að brezkur herskipafloti
kom til Reykjavíkur snemma í
nrorgun og setti á land hóp her-
manna, sem nú hafa hertekið
Reykjavík og nokkra aðra staði.
Með brezka hernum kom sendi-
herra Mr. Howard Smith, sem
nýlega hefir verið útnefndur
sendiherra Breta í Reykjavík, —
en hafði til skamms tíma verið
sendiherra Breta í Kaupmanna-
höfn.
í all ítarlegu samtali, senr ég
ásamt meðráðherrum mínurn átti
við sendiherrann í morgun, -ékýr-
ir hann svo frá að ráðstafanir
þær, er ég áðan nefndi og gerðar
hafa verið, séu eingöngu gerðar
í varúðarskyni. Sendiherrann lýsti
því yfir að brezka rikisstjórn-
in hafi talið óhjákvæmilegt að
hernema hér á landi vissa staði
sem eru hernaðarlega þýðingar-
miklir til þess að koma í veg
fyrir að Þjóðverjar gripu til svip-
aðra ráðstafana.
íslenzku ríkisstjórninni varekki
allskostar ókunnugt urn, að þessi’
hertaka gæti borið að höndum.
Brezka ríkisstjórnin hafði áður
látið þá skoðun í Ijósi við ís-
Ienzku ríkisstjórnina að slík her-
taka á þýðingarmiklum stöðum í
landinu væri naúðsynleg fyrir ör-
yggi landsins, af þeim rökum,
sem að framan eru talin. En is-
lenzka ríkisstjórnin hafði mjög
harðlega mótmælt þessari skoð-
un, sem og því, að slík hertaka
gæti komið til greina. — íslenzk
stjórnarvöld hafa ekki veitt neina
mótstöðu gegn þessu broti á hlut-
leysi íslands og þessari skerðingUi
á sjálfstæði þess — en ríkisstjórn
in hefir borið fram eindregin
mótmæli. Hinn brezki sendiherra
hefir tekið við þessum mótmæl-
utn og um leið hefir hann full-
vissað mig um að ríkisstjórn hans
hafi engin áform um að blanda
sér inn í stjórn landsins. Þessi
verknaður sé eingöngu framinn
vegna hinna tilefnislausu árása
Þjóðverja á Danmörku og Noreg.
Sendiherrann kvaðst óska eftir
að berida á að taka Þjóðverja
á hernaðarlegá þýðinganniklúm:
stöðum á norskú ströndinni hafi
orðið þeim framkvæmánleg ein-
göngu vegna þess að Bretar hafi
viljað virða hlutleysisrétt Norpgs.
Markmið brezku stjórnarinnar
með. hernámi íslands af brezku
herliði sé eingöngu að hindra
Þýzkaland í að breiða út styrj-
öldina til íslenzks forráðasvæðis.
Af því leiði jafnframt að þessi
her. verði ekki í landinu degi
lengur en nauðsyn krefji vegna
styrjaldarinnar.
Þessar ákveðnu yfirlýsingar frá
hinni vinveittu brezku þjóð eru
óneitanlega nokkur sólskinsblett-
ur í þeim dökka skugga sem
nú ffefir borið yfið.
Með sendiherranum kom einn-
ig hingað til Iands Mr. Harris,
formaður brezka hluta brezk-ís-
lenzku . viðskiptanefndarinnar.
Hann kemur í þeim erindum að
taka upp samninga um verzlun- *
arviðskiptin milli íslands og Bret-
lands.
Þeim þjóðum fjölgar nú með
hverjum degi, sem dragast inn
í sjálfa styrjöldina. — Holland
og Belgía hafa nú í dag bæst
í þennan hóp. Hjá okkur þrengj-
ast sundin og erfiðleikamir vaxa.
Ofan á það bætist svo hertaka
landsins um skeið — að vísu
framkvæmd af mjög vinveittri
þjóð. En öll él birta um síðir
og þó framundan sé övissa, er
þó eitt víst, að bezta ráðið er
að standa saman sem einn mað-
ur — taka þessu með jafnvægi
og ró. Þolinmæðin þrautir vinn-
ur allar segir gamalt og vitur-
legt íslenzkt máltæki.
Eins og nú á stendur óska ég
að íslenzka þjóðin skoði hina
brezku hermenn sem komnir em
til íslands, sem gesti og sam-
kvæmt því - sýni þeim eins og
öðrum gestum fulla kurteisi í
hvívetna“.
Aðalfnndar Norræna
félagsins.
Ávarp télagsiDS til frænd
pjóðannaá Norðurlðndum
TU ORRÆNA félagið Iiélt að-
alfund sinn í fyrrakvöld
og setti forseti félagsins, Stef-
án Jóh. Stefánsson félagsmála-
ráðhex-ra fundinn og stjórnaði
honum.
Guðlaugur Rósinkranz, ritari
Norræna félagsins flutti skýrslu
urn starfsemi félagsins á liðnu
ári. í félaginu eru nú 922 félag-
ar og hafði ein ný deild verið
stofnuð á árinu. Var það á ísa-:
firði. Að lokinni skýrslu ritarans:
var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt í einu hljóði:
„Það ofbeldi, sem framið hef->
ir verið gegn hinum norrænu
frændþjóðum vorum, hlýtur að
vekja djúpa sorg og gremju í
huga hvers íslendings og inni-
Iega samúð vegna þeirra örlaga,
sem þær verða nú að þola. Þótt'
vér séum svo fámennir og lítils;
megandi, að vér getum ekkii
sýnt hug vorn í verki, viljum:
vér ekki láta hjá líða að segja
hug vorn. Því sendum vér hin-
um norrænu frændþjóðum bróð
urkveðjur. Vér biðjum þess, að
hið eilífa réttlæti og gifta, sem
allt fram á síðustu tíma hefir
vakað yfir þeim, haldi nú og
æfinlega hendi sinni yfir þeirn,
frelsi þeirra og menningu.“
Þá fór frarn stjórnarkosning og
var stjórnin öll endurkosin, en
hana skipa: Stefán Jóh. Stefáns-
son, Vilhjálmur Þ. Gíslason, Guð-
laugur Rósinkranz, Jón Eyþórs-
son og Páll ísólfsson.
Að lokum flutti forseti félags-
ins, Stefán Jöh. Stefánsson á-
varp, sendihérra Dana, aðalræð-
ismaður Svia og ræðismaður
Finna flutti þakkarorð 0g Karla-
kór Reykjavikur söng þjóðsöngva
allra Norðurlandanna.
¥ GÆR var dregið í 3. fiokki
■*■ Happdrættisins, og komu
upp þessi númer;
10 000 krónur:
23423
5000 krónur:
5973
2000 krónur:
9227
1000 krónur:
5688 24774
500 krónur:
2508 3015 3917 19126 20707
24081 24246
200 krónur:
168 595 844 5071 5335
8386 9145 9176 11547 11903
11948 13531 14019 17041 17348
18837 19776 20861 21371 21674
22568 22954 23574 24514 24781
100 krónur:
125 132 357 544 577
662 714 1065 1296 1657
1880 1922 2034 2211 2291
2564 2769 2883 3162 3222
3267 3392 3361 3445 3465
3548 3740 3966 4084 4220
4291 4301 4467 4703 4775
4865 5147 5215 5423 5505
5553 5671 5690 5728 6028
6036 6115 6116 6126 6364
6941 7102 7466 7762 7811
7830 7859 7873 7899 7955
8066 8130 8195 8317 8447
8519 8649 8780 8875 8962
8964 9032 9035 9065 9231
9301 9440 9558 9605 9690
9776 9849 10162 10205 10382
10641 10768 10895 11018 10196
11281 11305 11337 11473 11577
11647 11738 11796 11848 12379
12433 12499 13062 13066 13102
13230 13237 13895 13962 14051
14181 14302 14305 14367 14377
14442 14563 14711 14800 14862
15115 15129 15243 15376 15568
15788 15825 15898 16083 16180
16258 16263 17095 17172 17181
17197 17259 17267 17487 17558
17657 17983 18046 18054 18065
18135 18323 18560 18644 18723
18812 18824 18865 19078 19435
19466 19739 19765 19846 19991
20127 20224 20233 20411 20533
20563 20664 20818 20891 21040
21143 21271 21370 21516 21559
21857 21972 22025 22039 22054
22307 22326 22519 22644 22683
22699 22835 22855 22907 .22946
23134 23241 23312 23448 23510
23540 23541 23694 23915 23935
23960 23981 24047 24245 24767
24889 24936 24990
(Birt án ábyrgðar.)
Legnbekkir
mikið og vandað úrval.
Vatnsstíg 3.
Húsgagnaverzlun
Reykjavíkur.