Alþýðublaðið - 15.05.1940, Side 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
----------ALÞÝÐDBLAÐIÐ ----------------------------
Ritstjóri: F. R. Valdemarsson.
í fjarveru hans: Stefán Pétursson. Símar 4902 og 5021 (heima).
Ritstjórn: Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Símar: 4902: Ritstjóri. 4901: Innlendar fréttir. 5021: Stefán Pét-
ursson (hehna) Sellandsstíg 16. 4903: Vilhj. S. Vilhjálms-
son (heima) Brávallagötu 50.
Afgreiðsla: Alþýðuhúsinu gengið inn frá Hverfisgötu.
Símar: 4900 og 4906.
Verð kr. 2,50 á mánuði. 10 aurar í lausasölu.
ALÞÝÐUPEENTSMIÐJAN H.F.
V erzlunarsamningar við Breta
FIRLÝSINGAR BRETA um
það, að þeir muni í samn-
ingaumleitunum þeim, sem nú
fara fram hér í bænum um aukin
verzlunarviðskipti milli þjóðanna,
veita íslendingum hlunnindi, sem
þeir hafi ekki áður haft, munu
vekja hér nokkrar vonir um það,
að eitthvað kunni að rætast úr
um atvinnuhorfur og afkomu
fólks. Það er Uka að vonum,
því að útlitið er eins og stendur
langt frá því að vera bjart.
Síldarvertíðin og sá atvinnu-
vegur, sem hún hefir skapað,
hefir verið ein meginstoðin undir
afkomu þjóðarinnar á undanförn-
um árum, en nú er svo komið,
að þeir markaðir, sem við höf-
um selt sildina og síldarafurðirn-
ar aðallega á, eru lokaðir, svo
að þangað er ekki hægt að selja
nokkum skapaðan hlut, og veld-
ur því hið algera hafnbann, sem
Bretar hafa sett á Þýzkaland og
Pólland siðan Þjóðverjar lögðu
þaÖ undir sig.
Þá má heldur ekki gleyma því,
að Danmörk er nú komin í hið
sama hafnbann og að litlar eða
engar líkur em til þess, að við
getum verzlað nokkuð við Noreg.
Yfirleitt má fullyrða, að öll
utanríkisverzlun okkar sé undir
Bretum komin; þeir ráða því,
livert við seljum eða hvort við
seljum nokkuð úr landinu.
Það er ekki venja hervelda, að
taka tillit til þess í skiptum sin-
um við smáþjóðir, sem utan
standa, hvort þær bíði tjón
Það er algengast, að þau noti
vald sitt tii hins ítrasta á styrj-
aldartímum og skeyti ekki um
aðra, enda er það ekki nema
skiljanlegt, þegar vitað er, að
þessi veldi em að heyja baráttu
um sína eigin tilvem jafnvel um
alla framtíð. En það mun nú
koma í ljós við þær samninga-
umleitanir, sem nú fara fram hér,
hvbrt Bretar beita okkur þeirri
aðferð, sem herveldin em vön
að beita á ófriðartímum gagn-
vart smáþjóðunum, sem eru að
meira eða minna léyti upp á
náð þeirra komin. Yfirlýsing ligg-
ur að vísu fyrir um þetta, og
fulltrúi brezku stjómarinnar er
hingað kominn með fullu umboði
til að semja um hagkvæmari
verzlunarviðskipti við okkur en
við höfum áður haft í viðskiptum
okkar við þessa stórþjóð. Aðeins
ér eftir að vita, hvað Bretar telja
hagkvæmt fyrir okkur og hver
þaii hlunnindi em, sem þeir hafa
talað um í yfirlýsingum sínum.
Á þessu veltur allt, því að
reynsla undangenginna mánaða
hefir orðið sú, að smáþjóðimar
hafa átt bágt með að skilja ýms
þau rök, sem stórar og voldugar
þjóðir hafa borið fram við þær
um það, sem þeim væri oig sé
hagkvæmast.
En ef svo verður, að mjög
verði bætt um í verzlunarvið-
skiptum okkar við Breta, þá má
gera ráð fyrir, aö nokkuð veru-
lega muni rætast úr um afkomu
atvinnuvega okkar og þar með
afkomu þjöðarinnar í heild. Það
má fullyrða, að Bretar eða
Bandamenn muni einmitt nú hafa
fulla þörf fyrir að fá allar vör-
ur okkar, yfirleitt allt, sem við
getum út flutt, ef við fá-
um það verð fyrir, sem geri okk-
ur mögulegt að lifa af fram-
leiðslunni og halda henni gang-
andi.
í sambandi við þetta má minn-
ast á það, að nú hefði verið
gott fyrir okkur íslendinga,
að niðursuðuiðnaður okkar hefði
verið kominn á hærra stig en
raun er á, því að telja verður lík-
legt, að einmitt nú sé hægt að
selja ófriðarþjóðunum svo að
segjá ótakmarkað af niðursuðu-
vörum, þar sem þær eru svo
hentugar fyrir hermennina á
vígvöllunum. En við því er ekki
neitt að gera úr þvi sem komið
er; við verðum að telja
það gott, ef okkur tekst
að reka niðursuðuverksmiðjur
okkar, sem til eru, af fullurn
krafti og afla hráefnis til þeirra.
Nú munu og hraðfrystihúsin
ikoma í góðar þarfir, en þau eru
nú hringinn í kring um allt land
Hæstiréttur sjrbnar
bifreiðastjéra af
kærn réttvísinnar.
NÝLEGA kveð hæstiréttur
upp dóm í málinu: Rétt-
vísin og valdstjórnin gegn Páli
Óskari Guðjónssyni bílstjóra,
Kárastíg 2.
Málavextir eru þeir, að 4.
okt. s.l. ók Páli bílnum R 607
að Sunnuhvoli. Yar einn far-
þegi með honum, drukkinn. •—•
Vildi farþeginn ekki fara út við
Sunnuhvol og átti Páll þar í
nokkru þófi við hann. Sá hann
þá litla telpu standa hægra
megin við bílinn. Þegar ekki
tókst að koma farþeganum út,
ætlaði bílstjórinn að aka fyrir
portdyrnar. En í því bíllinn fór
af stað, varð bílstjórinn þess
var, að eitthvað varð undir
hægra framhjólinu. Hljóp hann
þegar út og sá, að barn lá fyr-
ir aftan hægra framhjólið. Tók
bílstjórinn barnið þegar og ók
með það á Landsspítalann, en
þar dó það á öðrum degi eftir
að slysið varð.
Því næst var mál höfðað
gegn bílstjöranum fyrir að
hafa valdið dauða barnsins af
gáleysi. Sakadómari sýknaði
Pál og staðfesti Hæstiréttur
dóminn.
Kappreiðar „Fáks“
26. maf.
KAPPREIÐAR Hestamanna
félagsins „Fáks“ fara
fram sunnudaginn 26. þ. m. —
Hefir sú venja verið, að þær
færu fram annað hvítasunnu-
dag, en það fórst fyrir að þessu
sinni.
Verður keppt í stökki 300 og
350 metra, skeiði 250 metra og
þolhlaupi. Verða samskonar
verðlaun og síðastliðið ár.
„Fákur“ hefir efnt til happ-
drættis um hestinn „Geysi,“
sem vann flest verðlaunin á
kauppreiðunum í fyrra. Verður
dregið í happdrættinu eftir
kappreiðarnar.
og fleiri en eitt á sumum stöðum.
Það er áreiðanlegt, að allur
verkalýður og raunar allir ls-
lendingar bíða þess með óþreyju,
að sjá úrslitin af þeim samning-
um, sem nú fara fram. Þeir vita,
að á þeim getur oltið öll afkoma
þjóðarinnar á þeim voðatimum,
sem við lifum á. **
hér I hænum eru alvar*
legga aðvaraðir um að tiU
kynna fiegarf er fðlk hef*
ir flutt úr húsum peirra
eða I þau.
Tekið á móti tilkynning*
um I manntalsskrifstofu
bæjarins Pésthússtræti 7
og fi Iðgregluvarðstofunni,
og fást par að lútandieyðu*
blðð á háðum stððum.
Þeir, sem ekki tilkynna
f lutninga verða kærðir til
sekta lðgum samkvæmt.
♦-----;--•--——--^--;-— -----*
Til Hreðavatns og Borgarness
N-. k. fimtudag hefjast áætlunarbílferðir um Hvalfjörð.
Frá Reykjavík: Alla fimtudaga, laugardaga og mánu-
iaga. > 8 #
Frá Borgarnesi: Alla föstudaga, sunnudaga og þriðju-
dagá.
BIFREIÐASTÖÐIN HEKLA. — Sími 1515.
♦—:-------------------------------------♦
Það tilkynnist hérmeð, að allir reikningar á hreiska
setuliðið verða greiddir í brezku sendiherraskrifstofunni í
dag, miðvikudag 15. maí, kl. 2—3 e. h. og framvegis á hverj-
um miðvikudegi. ;; f
YFIRFORINGINN.
— ÚTBREIÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ —
OG FASTEIGNASKRIFSTOFU
opnað I Hafnarstræti 4f Reykjavfik.
LÖGFRÆÐIS -
höfum vlð
Önnumst kaup og sölu fasteigna, verðbréfa,
skipa, bíla og ýmissa annarra verðmæta.
Gerum samninga, tökum að okkur innheimtu,
málflutning og önnur lögfræðileg störf.
Höfum m. a. í umboðssölu:
1. Húseignir bæði við fjölfarnar verzlunargöt-
ur og í íbúðarhúsahverfum innan Hringbrautar, í
Skerjafirði og á Seltjarnarnesi, þar á meðal nokk-
ur gömul hus, ódýr, hentug fyrir trésmiði, til að
kaupa og vinna að endurbótum við. Höfum kaup-
endur að húseignum hér í bænum, sérstaklega
einbýlishúsum, og ennfremur sumarbústöðum.
2. Erfðafestulönd í nágrenhi Reykjavíkur, þar
á meðal eitt með íbúðarhúsi og útihúsúm.
3. Marga vélbáta (einn 30 tonna).
4. Nokkrar járðir víðsvegar um land.
5. Sumarhótel úti á landi.
Ennfremur viljum við vekja eftirtekt á því, að
við munum leggja sérstaka áherzlu á kaup og sölu
loðdýra. Við höfum sambönd við nokkur stærstu
og beztu.refa- og minkabú landsins.
Höfum veðdeildarbréf til sölu.
Óskum eftir fasteignum og skipum í umboðs-
sölu. — Hús í Reykjavík óskast í skiptum fyrir
góðar bújarðir.
Gunnar Sigurðssson lðgfræðingnr & Geir Gunnarsson, miðlari
... * -
Hafnarstræti 4. (Gengið inn frá Veltusundi). Skrifstofusími 4306. Heimasímar 5314 og 4306; —