Alþýðublaðið - 21.05.1940, Blaðsíða 2
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAl 1940
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
orskn kommúnistarair i
20 STK. PAKKINN KOSTAR KR.
Að marggefnu tilefni leyfi ég mér hér með að mótmæla al-
gerlega rógburði þeim, sem um mig hefir gengið, að ég kærði
og léti sekta þá viðskiptamenn, sem í vinsemd við verzlun mína
koma með fataefni á karla og konur til sauma.
Ég mælist fastlega til, að þeir, sem eru svo auðtrúa að trúa
slíkum sögum, leiti upplýsinga hjá lögreglu bæjarins um þetta.
Verða þeir hér eftir látnir sæta ábyrgð, sem halda uppi
sliku níði.
Mun ég her eftir, sem fyr, taka fataefni á karla og konur til
vinnslu eftir því, sem við getum annað.
Fyrir hönd Klæðaverzlunar Andrésar Andréssonar h.f.
ANDRÉS ANDRÉSSON.
¥0ri!0I m
verður lokað í dag frá kl.
12—4 vegna jarðarfarar,
Áfengisverzlun ríkisins.
Drengjaföt, matrosaföt, jakka-
föt, frakkar. Sparta, Laugavegi
10, shni 3094.
FORNSALAN, Hafnarstræti
18, kaupir og selur ný og notuð
húsgögn, lítið notuð karlmanna-
föt o. fl. Sími 2200.
Útbreiðið Alþýðublaðið.
Velkomin í
nágrennið
Gerið gúmmískókaupin
hjá okkur eins. og vant
er, það borgar sig bezt,
það vit'a allir. Allskonar
gúmxníviðgerðir. Höfum
einnig margar stærðir og
gerðir af uppgerðum skó-
hlífum og krakkastígvél-
um með tækifærisverði.
Gúmmískógerðin
Laugavegi 68. Sími 5113.
Sækjum. Sendum.
Gúmiskógerðin
Vopnl
Aðalstræti 16. Sími 5030.
Allar gúmmíviðgerðir fljótt og
vel af hendi leystar.
Sækjum. — Sendum.
Seinasíi
er á morgun á strá
Fog filthöttum.
Hattaverziunin
Vestnrgðtn 12
(Áður Hattaverzlun
Gunnl. Briem).
MðnustuUnazistahersins.
----♦----
FrásH^ii amerfsks fréttaritara,
sesn var f tlslé, ®m siapp paðam«
PEGAR Þjóðverjar tóku
Oslo var þar staddur
íréttaritari frá ameríska stór-
blaðinu „The’ Christian Science
Monitor," Edmund Stevens.
Hann dvaldi í Oslo nokkra
daga, en slapp til Svíþjóðar, og
hefir skrifað þaðan einna ítar-
legastar fréttir af því sem fram
fór í höfuðborg Noregs fyrstu
vikuna eftir innrás Þjóðverja.
Hafa greinar hans bxrzt í „The
Christian Science Monitor“ og
mörgum öðrum blöðum, ame-
rískum og enskum.
Fréttaritarinn segir frá því,
að blað norska Alþýðuflokks-
ins, ,,Arbeiderbladet,“ hafi taf-
arlaust verið bannað eftir inn-
rásina. Ennfremur blöðin „Aft-
enposten“ og „Tidens Tegn.“
Nazistablað landráðamanns-
ins Quislings, segir hann, hafði
áður komið út í einum 2000 ein-
tökum, sem er hlægilega lítið
upplag á norskan mælikvarða.
En eftir komu Þjóðverja var
það strax flutt í prentsmiðju
„Aftenpostens“ og byrjað að
gefa það út í 200 000 eintök-
um!
Þá segir Edmund Stevens frá
því, að blað kommúnista, „Ar-
beideren," hafði fengið að
koma út eftir sem áður, enda
hafi það í ritstjórnargrein, for-
dæmt alla mótspyrnu gegn
þýzka innrásarhernum og skor-
að á verkamenn að taka upp
vinsamlega samvinnu við hin
þýzku nazistayfirvöld í borg-
inni!
Ameríska blaðið „New Lead-
er,“ skýrir einnig frá því, að í
ameríska kommúnistablaðinu
„Daily Worker“ hafi þ. 17. apr-
íl, eða viku eftir að innrásin var
gerð, birzt ávarp frá norska
kommúnistaflokknum, þar sem
því væri lýst yfir, að Bretland
eitt ætti sök á stríðinu í Noregi
og að innrás Þjóðverja hefði
verið gerð til þess eins að
tryggja hlutleysi landsins!!
Þessu ávarpi norska komm-
únistaflokksins, sem einnig var
birt í sænska kommúnistablað-
inu „Ny Dag,“ fylgdi nokkur
hrakyrði hins ameríska komm-
únistablaðs í garð norsku jafn-
aðarmannastjórnarinnar fyrir
það, að hún skyldi heldur
kjósa að verja landið, en að
beygja sig undir ok Hitlers.
„New Leader“ staðfesti þá
frétt, sem áður hefir borizt
hingað, að norsku kommúnist-
arnir vinni að því undir vernd-
arvæng þýzku nazistayfirvald-
anna í Oslo og í þjónustu þeirra,
að „endurskipuleggja“ verka-
lýðshreifinguna, eins og það sé
kallað, með það fyrir augum að
sveigja hana til hlýðni við Hitl-
er.
Þjóðviljinn hér var nýlega að
reyna að breiða yfir þessi land-
ráð norsku kommúnistanna með
því að benda á það, að Nordahl
Grieg, sem hefir talið sig til
100 meno skotnir
í Osió fyrsín dfik-
nnaeftirínnrásina!
P* RÉTTARITARI ame-
ríska bíaSsins, „The
Christian Science Moni-
tor“, skrifar blaði sínu eft-
ir komuna frá Oslo til
Stokkhólms, að hann hafi
áreiðanlega vitneskju um
það, að um 100 Norðmenn
hafi verið teknir fastir og
skotnir í Oslo fyrstu vik-
una eftir að Þjóðverjar
náðu borginni á sitt vald.
Helmingurinn af þess-
um mönnum voru, segir
fréttaritarinn, norskir bíl-
stjórar, sem neituðu að
aka bílum fyrir innrásar-
herinn og gerast þannig
verkfæri í hendi hans
gegn sínum eigin lands-
mönnum.
!rÝ###############################v>
flokks þeirra og berst nú
gegn Hitler sem óbreyttur her-
maður í Norður-Noregi, hefði
ort kvæði til Noregs, sem lesið
var upp í brezka útvarþinu á
þjóðhátíðardegi Norðmanna, þ.
17. maí. Taldi Þjóðviljinn það
afsönnun þess að norsku kom-
múnistarnir hefðu gerzt land-
ráðamenn og gengið Hitler á
hönd, og hélt því fram, að
brezk útvarpsfrétt, sem hingað
kom fyrir nokkru um fram-
komu kommúnistablaðsins og
kommúnistaflokksins í Oslo,
væri upp login og auk þess
„löguð til“ af Alþýðublaðinu,
sem kommúnistar hér virðast
telja ennþá lævísara í frétta-
burði sínum, en nokkurt útvarp
eða útbreiðslumálaráðuneyti
erlendis.
í frásögn fréttaritarans frá
„The Christian Science Moni-
tor“ og „New Leaders“, hefir
Þjóðviljinn nú svarið við þvætt
ingi sínum. Það er þýðingar-
láust fyrir hann að ætla að
nota Nordahl Grieg sem skálka
skjól fyrir norsku kommúnist-
ana, enda er það ólíkt, sem
hann hefst að: hann í Norður-
Noregi með byssu í hönd á móti
innrásarher Hitlers — þeir sem
auðmjúkir þjónar þýzka inn-
rásarhersins í Oslo.
Sohuf SiBflðar Undset
fallinn i loregi.
í fregn frá Noregi segir, að
Anders Undset verkfræðingur,
sonur Sigríðar Undset skáldkonu,
sé fallinn í baráttunni við inn-
rásarherinn.
Auglýsið í Alþýðublaðinu.
Um 500 maons á snnd
ivikn blaðamanna.
Aliir fiokkar ern (ali-
skipaðir nema einn.
O UNDKENNSLA blaða-
k-® manna hófst í gærmorgim
kl. rúmlega 7.
Hefír sú ákvörðun Blaða-
mannafélagsins að efna tii sund-
vikunnar með samningum við for
stjóra Sundhallarinnar um miklu
lægra gjald en áður hefír þekkzt
orðið mjög vinsæl og er þátttak-
an miklu meiri en nokkurn gat
grunað í fyrstu.
Alls hafa tæplega 500 manns
sótt um þátttöku og eru allir
flokkar fullskipaðir nema einn,
björgunarsundsflokkurinn.
Þessi tilraun hefir geíizt svo
vel, að gera má ráð fyrir því,
að Blaðamannafélagið muni efna
oftar til slíkrar starfsemi.
ðk bíl olvaðir, fékk
2I§ króna sekt og
sviptnr oknleyfi i 6
¥ GÆR VAR KVEÐINN
upp dómur í málinu vald-
stjórnin gegn Bjarna Einars-
syni fyrir brot á áfengislögun-
um og lögum um notkun bif-
reiða.
Málsatkvik eru þau, að hann
samkvæmt eigin játningu og
framburði vitna, ók bifreiðinni
368 um götur bæjarins að
kvöldi hins 6. mars síðastliðinn
og var þá undir áhrifum áfeng-
is. Reyndist áfengismagn í blóði
kærða, er af honum var tekið
rétt eftir aksturinn, 1,80'4.
Undirréttur dæmdi kærða til
að greiða 100 króna sekt til
ríkissjóðs og svipti hann öku-
eyfi í 3 mánuði.
Hæstiréttur ákvað sektina kr.
00 og svipti kærða ökuleyfi í
6 mánuði.
Meistaraff okkur:
Valar vann Fram með
fjórnm gegn lill.
LEIKURINN í gærkveldi
milli Fram og Vals var
fjörugur og betur leikinn en
leikurinn á sunnudaginn milli
K. R. og Víkings. Úrslit urðu
þau, að Valur sigraði með 4
mörkum gegn engu. Valsmenn
voru að verulegu leyti betri en
Framliðið, og því vel að sigrin-
um komnir. Eftir þessum tveim
leikum að dæma munu Vals-
menn vinna mótið með miklum
yfirburðum.
Ástæðan fyrir þessu er sú, að
lið Vals er svo að segja alveg
hið sama og verið hefir undan-
farin ár og auk þess eru allir
liðsmennirnir í ágætri æfingu.
Er vafasamt að Hermann hafi
t. d. nokkru sinni verið jafn-
góður og nú. Hið sama má raun-
ar segja um marga fleiri úr liði
Vals, — Það má segja að ó-
Frh. á 4. síðu.