Alþýðublaðið - 21.05.1940, Side 4
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAl 1940
Það stendur ekki á sama
hvernig hið prentaða lítur
út. Við gerum yður ánægðan.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Við höfum smekklegt úrval
af pappír, og prentum á hann
fyrir yður hvað sem er.
Alþýðuprentsmiðjan h.f.
ÞRIÐJUDAÖUR
Næturlæknir er Eyþór Gunnars-
son, Laugavegi 98, sími 2111.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
20,00 Préttir.
20,25 Erindi; Frímerkið 100 ára
(Magnús Joshumsson póst-
fulltrúi).
20,50 Tónleikar Tónlistarskólans.
Einleikur á píanó (Árni
Kristjánsson); a) Bach-
Liszt: Prelúdía og fúga í a-
moll. b) Bach: Sicilienne.
c) Bach-Rachlew: Passaca-
glia.
21,10 Hljómplötur: Fiðlukonsert í
d-moll, eftir Paganini.
21,45 Fréttir. Dagskrárlok.
Forðum í Flosaporti
verður leikið annað kvöld kl.
8,30, en ekki kl. 8, eins og venju-
lega. Hefir þetta orðið að sam-
komulagi milli revýunnar og Leik-
Bahia Bianea og dóttir hennar,
Pódó (Emilía Borg og Sigrún
Magnúsdóttir).
félags Reykjavíkur, til þess að ó-
náða ekki fólkið frá fréttatíman-
um, enda er hernaðaraðstaða revý-
unnar alltaf að breytast, og verð-
ur á næstu sýningu margt tekið til
meðferðar, sem skeð hefir undan-
farna daga. ,
Handritasafn
Landsbókasafnsins verður flutt
úr bænum í dag. Verður því kom-
ið fyrir á öruggum stað. Enn frem-
ur er verið að koma ýmsum mun
um úr Þjóðminjasafninu á örugga
geymslustaði.
Launauppbót
starfsmanna ríkisins. Fjármála-
ráðuneytið hefir tilkynnt, að frá
og með deginum í dag verði greidd
launauppbót á laun opinberra
starfsmanna ríkisins fyrir fyrstu 4
mánuði ársins.
Ærin Mjallhvít,
eigandi Magnús Magnússon,
Bergþórshvoli við Fáskrúðsfjörð,
eignaðist nýlega 4 lömb, sem öll
lifa. Voru það allt hrútar vænir
og hraustir. Mjallhvít er 8 vetra,
var tvö fyrstu skiptin tvílembd og
næstu þrjú skiptin þrílembd og nú
fjórlembd. Hafa öll lömb hennar
alltaf skilað sér á haustin og verið
væn, enda fæðir hún lömb sín sér-
Margreynt
y
sem sérstak
staklega vel. S.l. haust vógu þrí-
lembingar Mjallhvítar 13,13 og 16
kg.
Farsóttir og manndauði
í Reykjavík vikuna 21.—27. apr-
íl í svigum tölur næstu viku á
undan): Hálsbólga 72 68). Kvef-
sótt 115 (167). Blóðsótt 22 (15).
Gigtsótt 2 (0). Iðrakvef 17 (34).
Kveflungnabólga 7 (3). Taksótt 2
(1). Skarlatssótt 0 -1). Munnang-
ur 0 (2). Hlaupabóla 5 (4). Ristill
0 (2). Kossageit 0 (1). Stingsótt 2
(0). — Mannslát 9 (10). — Land-
læknisskrifstofan. (FB.)
Hjúskapur.
Hinn 18. þ. mán. voru gefin
saman í hjónaband af séra Jóni
Auðuns Gréta Líndal (dóttir
Björns Líndals á Svalbarði) og
Guðmundur Árnason bókhaldari í
Rafha, Hafnarfirði.
70 ára
er á morgun merkiskonan Benia
S. Illugadóttir, Hólmfastskoti,
Njarðvíkum.
Þeir,
sem hafa bækur að láni úr bóka-
safni MFA og Sjómannafélagsins,
eru beðnir að skila þeim hið allra
fyrsta.
KNATTSPYRNUMÓTIÐ
Frh. af 2. síðu.
heppnin hafi einnig verið öll á
hlið Fram í gærkveldi. Framar-
ar gerðu allmörg snögg og
hættuleg upphlaup, en án þess
að ná árangri og eitt mark settu
þeir hjá sjálfum sér. Allmikil
breyting hefir verið gerð á liði
Fram. Nú er Jón Magnússon
horfinn úr liðinu, en hann var
í fyrra einhver hættulegasti
maður þess vegna fráleika síns.
II. fl. vormótið hefst annað
kvöld kl. 8 með leik milli Fram
og Víkings. Dómari verður Jó-
hannes Bergsteinsson. Strax að
þeim leik loknum leika K.R. og
Valur, dómari Gunnar Aksels-
son.
VESTURVÍGSTÖÐVARNAR
Frh. af 1. síðu.
líklegt, aö þeir muni þar inn-
an skamms ná saman við her-
sveitir sínar, sem berjast nú
nyrzt og vestast í Norður-
Frakklandi, norðaustur af
Cambrai.
Virkin við Liége og Namur
austur við Maas eru hins vegar
enn, að minnsta kosti að
nokkru leyti, á valdi Banda-
manna, og er það Þjóðverjum
mjög bagalegt, að ein aðaljárn-
brautarlínan yfir Belgíu til
Fraklands liggur um þessar
borgir.
Belgiska útvarpið flutti ann-
anhvorn klukkutíma í allan
gærdag hvatningarávörp til
belgiska setuliðsins, sem verst í
Namur og Liége, en óhugsan-
legt er talið, að það geti varizt
þar til lengdar.
Siöðuijar loftárásir bak
við vigstððvar Þjððverja
Brezka flugmálaráðuneytið
tilkynnir, að flugherinn brezki
hafi haldið áfram árásum sín-
um á herlið og hernaðarstöðv-
ar Þjóðverja, meðal annars á
hersveitir þeirra á vígstöðvum
þeirra við Rethel. Loftárás var
gerð á olíugeyma í Rotterdam
í nótt og kviknaði í þeim. Nýj-
ar árásir hafa verið gerðar á
olíuvinnslustöðvar og olíu-
geyma í Norðvestur-Þýzka-
landi.
Til loftbardaga hefir komið
hvað eftir annað og í einum
réðist brezkur flugvélaflokkur
á 100 þýzkar flugvélar. Voru
11 þeirra skotnar niður. Einn
flugmanna Breta skaut niður 3.
í hinum ýmsu flugleiðöngrum
Breta á sunnudaginn urðu þeir
fyrir nokkru tjóni og er síðan
saknað 14 brezkra flugvéla, en
flugvélatap Þjóðverja er mikið
meira.
Þjððverjar ejrða 1000 smá
lestum af benzinl á dag!
Svo er talið, að Þjóðverjar
þurfi nú 1000 smálestir af ben-
zíni handa hinum vélknúnu
hernaðartækjum sínum á Vest-
urvígstöðvunum á hverjum sól-
arhring. Er því fátt, sem Þjóð-
verjum kemur ver heldur en að
tjón sé gert á benzínbirgðum
þeirra.
Þykjast sumir fréttaritarar
þegar sjá þess vott, að Þjóð-
verjar geti ekki endalaust beitt
flugher sínum eins og þeir hafa
gert fram að þessu, bæði vegna
takmarkaðra benzínbirgða og
vegna þees, að flugvélatjón
þeirra sé miklu meira en
Bandamanna.
Bandamenn panta enn
1000 flugvélar í Ameríkn
Fréttaritari ameríska blaðs-
ins „New York Times“ í Los
Angeles í Kaliforniu skýrir
blaði sínu svo frá í dag, að hann
hafi fengið vissu fyrir því, að
sameiginleg innkaupanefnd
Bretlands og Frakklands hafi
gert pöntun á 1500 flugvélum í
Kaliforníu, og er nokkur hluti
þeirra tveggja hreyfla árásar-
flugvélar af nýjustu gerð.
McKenzie King forsætisráð-
herra Kanada hefir símað Win-
ston Churchill og endurtekio
loforð Kanadamanna um að
standa með Bretum þar til
fullnaðarsigur er unninn. Hafa
Kanadamenn nú þegar 100 000
manns undir vopnum.
McKenzie King tilkynnti í
fulltrúadeild þingsins í Ottawa
í gær, að ákveðið hefði verið að
æfa þriðja kanadiska herfylk-
ið til þess að senda til Evrópu,
auk þess sem æfðir verða menn
til viðbótar í fyrsta og annað
herfylki.
Hfnn nýi jrfirbershðfð-
Ingi Bandamanna.
í Bretlandi virðist vera almenn
ánægja me'ð útnefningu Wey-
gands yfirhershöfðingja. Er hann
sagður vera sá maður, sem mesta
herfræðilega þekkingu og hern-
aðarlega reynslu háfi, þeirra sem
völ var á. Hann var einn af öfl-
ugustu talsmönnum þess, að
Maginotlinunni væri komið upp
og að víggirðingarnar væru
framlengdar meðfram öllum
norðurlandamærum Frakklands.
Hann hefir árum saman sagt
■ OAMLA BIOK
Byltlag í Texas.
Amerísk stórmynd er ger-
ist í lok borgarastyrjald-
arinnar í Norður-Ameríku.
Aðalhlutverkin leika:
JOAN BENNET og
RANDOLPH SCOTT.
Stríðsfréttamynd: Loftá-
rás á Skotland o. fl.
Börn fá ekki aðgang.
SÍÐASTA SINN!
nýja bio ■
VeðnrspámaðnrinB
Bráðfyndin amerísk
skemmtimynd frá Colum-
biafilm um veðurfræði,
ástir og stjórnmál. Aðal-
hlutverkin leika af miklu
fjöri: Ida Lupino, Ralph
Bellamy og Walter Con-
nolly.
Aukamynd:
MEÐ BYSSU Á ÖXL.
Hernaðarmynd.
Móðir mín
/ ... 1
Sigríður Jónsdóttir
andaðist að kvöldi 20. þ. m. að heimili mínu, Hólum við Kleppsveg.
Jens Bjarnason.
Hér með tilkynnist að móðir okkar, ekkjan
Álfheiður Stefánsdóttir
frá Kirkjubrú á Álftanesi andaðist í nótt.
Reykjavík, 21. maí 1940.
Stefán, Guðjón, Hallur, Sólveig, Þórunn,
Þjóðbjörg, Álfheiður og Gíslína.
það fyrir, með hverjum hœtti
Þjóðverjar myndu ráðast á
Frakkland, og þykja spár hans
þar um hafa rætzt nákvæmlega.
Hann er talinn einna margfróð-
as’tur núlifandi mannai í því, sem
kallað er „hreyfingarstríð“, þ. e.
stríð á bersvæði, utan víggirð-
inga. Atburðir seinustu daga hafa
leitt það í ljós, að foringjar
Þjóöverja kunna þá grein hern-
aðar fullkomlega, en með því að
fela Weygand æðstu yfirstjórn
hersins, gera Bandamenn sér
vonir um, að Þjöðverjar mæti
foringja af sinni eigin gerð.
Frönsk blöð benda á það í jgær,
að þráh ryrir þessa breytingu á
æðstu yfirstjórn hersins, megi
rnenn ekki gera sér vonir um, að
hafin verði skyndisókn, eða nein-
ar flausturslegar ráðstafanir gerð-
ar, en menn megi vera þess full-
vísir, ,að Weygand muni nota
,fyrsta tækifærið, sem býðst, til
þess að ráðast á Þjóðverja, þar
sem þeir eru veikastir fyrir.
: Blöðin í FEakklandi minna og
á það, að Weygand taki viÖ yfir-
stjórn hersms á h-ættulegri stundu
eins og lærifaðir hans Foch í
heimsstyrjöldinni, en láta jafn-
framt í Ij-ós fullkomið traust á
því, að honum muni takast að
leiða styrjöldina til sigurs, eins
og Foch gerði.
Weygand kom í flugvél frá
Sýrlandi, þar sem hann hafði
starfað fram á síðustu stundu og
var tekinn til starfa. í franska her-
málaráðuneytinu tveim klukku-
stundum eftir að hann kom til
Parísar.
80 smálesta skriðdrekar!
Það hefir verið tilkynnt í
London, að farið sé að fram-
leiða 80 smálésta skriðdreka, en
hingað til hafa Þjóðverjar ekki
teflt fram stærri skriðdrekum
en 70 smálesta.
Brezki herinn hefir nægar
birgðir af skriðdrekum, segir í
tilkynningunni.
Hásbólabóbasafntð i Lonv
ain brann til kaidrabola.
Amerískir blaðamenn, sem
farið hafa til háskólabæjarins
Louvain í Belgíu, sem barizt
var um fyrir helgina, segja, að
bókasafnið fræga hafi brunnið
til kaldra kola, og logi enn í
rústunum.
Ráðhúsið og dómkirkjan,
hvorttveggja frægar byggingar,
Hðfnm fenaið síð-
nsto tískublððin.
Sniðum og mátum
Saumastofan er flutt
á Vestug. 14 Sími
3632.
Guðrfin Bíldahl.
I. O. G. T.
MÍNERVA nr. 172. Fundur
annað kvöld. Benedikt B.
Guðmundsson flytur erindi
um sálarrannsóknir o. fl.
Æ.T.
ST. EININGIN nr. 14. Fundur
gnnað kvöld kl. 8. Efeir fund:
Kaffidrykkja, ræðuhöld,
steppdans.' Sigfús Halldórs-
son skemmtir. Dans. Æ.T,