Tíminn - 06.02.1963, Síða 3
BRETAfi VERDA AO GANGA
AO RÚMAR-SAlTMAlANOM
NTB-París, 5. febrúar
Georges Pompidou forsætis
ráðherra Frakklands sagði í
dag að hann væri þess fullviss,
að Bretar myndu eiga eftir að
verða aðilar að Efnahagsbanda
lagi Evrópu, en það yrði að
gerast í samræmi við Rómar-
sáttmálann.
Forsætisráðherrann, sem hélt
ræðu við hádegisverð blað'amanna,
sagði, að dyrunum hefði ekki verið
lokað fyrir Bretum, en þeir verði
að sætta sig við það, að viður-
kenna Rómar-sáttmálann. Ekki á-
leit Pompidou, að það, ag viðræð-
Fimm símastrengir
yffir Horöursjó
NTB-London, 5. febr.
Ætlunin er að leggja
fimm ný;ja talsímastrengi
neðansjávar í Norðursjón-
um, og er þeim ætlað að sjá
fyrir aukinni símanotkun á
þessari leið.
Tveir strengjanna verða
lagðir frá Bretlandi til' Vest-
ur-Þýzkalands, tveir til Hol-
lands og einn til Danmerk-
ur.
Hver strengur á að geta
annað 120 símtölum í einu,
og verða þcir styrktir með
20 km millibili.
124 skip fórust
á síðasfa ári
NTB-London, 5. febr.
Tryggingasambandig í Liv
erpool segir frá því í árs-
skýrslu sinni, að á árinu
1962 hafi farizt fleiri skip,
talið í brúttólestum en
nokkru sinni áður frá því ár
ið 1929, þó að undanskild-
um stríðsárunum.
Samtals fórust 124 skip
507530 brúttólestir í fyrra,
og sigldi helmingur þessara
skipa undir grísku, líb-
önsku, líberísku eða Pan-
ama-flaggi.
Samvinna um út-
varp, sjónvarp og
kvikmyndir
NTB-París, 5. febr.
Frakkland og Vestur-
Þýzkaland hafa tilkynnt, að
þau hafi komið á fót sam-
eiginlegri nefnd, sem á að
samræma samvinnuna milli
landanna, hvað snertir út-
varp, sjónvarp og kvikmynd
ir. Nefndin er sett á fót í
sambandi við sáttmálann,
sem stjórnir Frakklands og
Vestur-Þýzkalands hafa
gert sín á milli um alhliða
samvinnu.
Karjalainen heidur
til Sovétríkjanna
NTB-Helsingfors, 5. febr.
Ahti Karjalainen forsæt-
isráðherra Finnlands og
kona hans fara í opinbera
heimsókn til Sovétríkjanna
21. febrúar n.k., að því er
skýrt var frá í Helsingfors í
dag.
Heimsóknin mun standa
yfir í tíu daga, og er hún
farin í boði sovézku stjórn-
arinnar.
um hefði yerið hætt í Brussel
myndi á einn eða annan hátt skaða
einingu Vesturlanda.
Pompidou kvað Nassau-samning
þeirra Kennedys forseta og Mac-
millans forsætisráðherra sýna ljós-
lega, að Bretar óskuðu enn eftir
því, að vera í nánu sambandi við
Bandaríkin. í þessu sambandi
bætti hann við, að það hefði verið
von manna, að brezku herirnir
myndu tengjast sterkari Evrópu-
böndum og þá sérstaklega Frakk-
iandi, vegna landfræðilegrar ná-
iægðar landanna.
Ráðherrann sagði, að það væri
til hagsbóta, að viðræðum við
Breta yrði ekki haldið áfram nú,
par eð ríkin fimm, sem aðilar eru
að EBE auk Frakklands, nálguðust
nú óðum Breta í samningunum, en
af því leiddi, að þau fjarlægðust
Rómar-sáttmálann. — Það er hægt
að harma þennan frest, sem orðið
hefur á viðræðunum, en ekki er
hægt að segja, að hann stefni ein-
ingu Vesturlanda í hættu, sagði
forsætisráðherrann.
Þá sagði ráðherrann, að bezta
leiðin til þess að bæta úr þeim
vanda, sem nú hefði risið upp,
væri að styrkja Evrópu og efna-
hagsbandalagið. Þetta verður að
vera takmark okkar næstu mánuð-
ma.
Hann lét í það skína, að afstaða
Bandaríkjanna til EBE hefði nokk
uð breytzt síðustu vikurnar, en
Bandaríkin hefðu upphafi tekið
mjög jákvæða afstöðu til banda-
iagsins, þótt nú líti svo út, sem
þau álíti, að Efnahagsbandalag
Evrópu,, nái það tilsettu marki,
muni skapa ýmiss konar erfiðleika
fyrir útflutning landsins.
Framh. á bls. 15.
Á föstudaginn í síðustu viku
varð ægilegt flugslys yfir Ank-
ara, iþar sem tvær flugvélar
rákust á og féllu síðan til jarð-
ar á eitt aðaltorg borgarinn-
ar. Um 80 manns létu lífið í
þessu slysi, og að minnsta kosti
100 særðust hættulega. Vélarn-
ar voru íarþegaflugvél af Visc
ount-igerð frá egypzka flugfélag
inu Middle East Airlines með
fjögurra manrm áihafnar, og
herflugvél af gerðinni C-47
með tvo menn innanborðs. —
Þegar flugvélarnar rákust á
splundruðust þær, og féll brak
ið úr þeim logandi til jarðar.
Benzíngeymar vélanna sprungu
einnig í loft upp og kviknaði
vig iþað eldur í 37 byggingum.
Fjöldi bíla eyðilagðist, og á
myndinni má sjá brak úr flug-
11 farfþega
innanborðs, auk vélum og brennandi bíla.
Bretar ætla sér ekki að
snúa baki við Evrópu
NTB—Strassbourg, 5. febr.
Formaður nefndar Efnahags
bandalags Evrópu, Walter
Hallstein, réðist í dag harka-
lega á Frakkland á þingi
Evrópuráðsins í Strassborg.
Sakaði hann Frakkland um að
hafa eyðilagt viðræðurnar í
Brussel, um aðild Breta að
EBE.
Urnmæli Hallsteins að þessu
sinni voru miklu harðorðari en
þau orð, sem hann lét falla um
málið á blaðamannafundi í síð-
ustu viku, og er álit manna, að
breyting sú, sem orðið hefur á
Hallstein eigi rætur að rekja til
viðræðna þeirra, sem fram hafa
farið innan EBEwiefndarinnar
mánudag og þriðjudag. Ástæða er
til þess að trúa því, að varafor-
maður nefndarinar, Sicco Mans-
holt, hafi haft mikil áhrif á við-
ræðurnar. Hallstein er sá nefnd-
armanna, sem tekið hefur hvað
ákveðnasta afstöðu gegn Frakk-
landi.
Sa.gði Hallstein að viðræðurnar
'5 Breta hefðu verið velheppn-
aðar, en hann sakaði Frakka um
að hafa vanrækt skyldur EBE.
Benti hann einnig á það, að notk-
un neitunarvaldsins f EBE hefði
brotið í bága við vissar reglur
bandalagsins.
Þá lýsti Hallstein ánægju sinni
yfir ummælum Heath vara-
utanríkisráðherra Breta þess efn-
is, að Bretar myndu ekki snúa
baki við Evrópu þrátt fyrir þetta.
— Það verður ekki einungis að
halda dyrunum opnum fyrir Breta
heldur verður að vinna að því
að finna lausn á vandamálinu,
þar til Bretar hafa fengið aðild
að bandalaginu. Viðræðurnar að
undanförnu hafa ekki verið til
einskis, heldur hefur aðild Breta
aðeins verið frestað um sinn.
Síðan skýrði Hallstein mjög ná
kvæmlega frá gangi viðræðnanna,
og frá þeim árangri, sem náðst
hefur, og að lokum frá þeim
vandamálum, sem enn eru óleyst.
Var ræða hans í rauninni sú
Framh. á bls. 15.
Mikill rekís á Eyrarsundi
Eyrarsund var þakiS rek-
ís í dag og f jöldi danskra og
sænskra ísbrjóta unnu að
því að aðstoða um 10 skip,
sem sátu föst í ísnum. Um
líkt leyti beindi ísskrifstof-
an í Málmey þeim tilmælum
til skipa, sem ekki eru sér-
staklega til þess gerð að
sigla í ís, að þau héldu sig
í höfn og reyndu ekki að
komast í gegn um rekísinn
á Eyrarsundi af eigin ramm-
leik.
Ástandið fór versnandi bæði
á Eyrarsundi og Helsingja-
botni í dag hvað ísrek snerti, og
áttu ísbrjótarnir í erfiðleikum
með að halda aðalsiglingaleið-
unum opnum.
Sums staðar í sunnanverðri
Svíþjóð mældist allt að 25 stiga
frost í dag. Vetraiveðráttan
gerði einnig allar samgöngur
mjög erfiðar á flestum stöðum
í Evrópu, bæði á landi, sjó og
í lofti, en í Moskvu gátu íbúarn
ir tekið ofan skinnhúfurnar,
því þar mældist tveggja stiga
hiti í dag, og er það í fyrsta
sinn á þessu ári, sem ekki er
þar frost.
Um það bil 100 manns hafa
látið lífið í Japan af völdum
kuldanna. Ikeda forsætisráðh.
skýrði japanska þinginu frá því
að 12 þúsund heimavarnarliðs-
menn hefðu verið kallaðir til
þess að fjarlægja snjóinn
af þeim svæðum, sem verst
hafa orðið úti. Fimmtán manns
létu lífið í snjóflóði í Vestur-
Japan í dag.
I dag var kaldasti dagur vetr
arins á mörgum stöðum í Sviss
og mældist þar 21 stigs frost,
og í Salzburg i Austurríki
komst frostið niður í 28 stig.
TÍMINN, miðviklidaginn 6. febrúar 1963
3