Tíminn - 06.02.1963, Qupperneq 7

Tíminn - 06.02.1963, Qupperneq 7
Utgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjóri: Tómas Arnason Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og IndriSí G Þorsteinsson Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Auglýs- mgastjóri: Sigurjón Davíðsson Ritstjórnarskrifstofur I Eddu. núsinu. Afgreiðsla, auglýsingar óg aðrar skrifstofur i Banka stræti 7. Símar: 18300—18305. - Auglýsingasími: 19523 Af. greiðslusími 12323. - Askriftargjald kr 65.00 á mánuði innan- lands. í lausasölu kr. 4,00 eint — Prentsmiðjan Edda h.f, — Flúið á bak við de Gaulle Stjórnarblöðin þykjast vera mjög kampakát þessa dag- ana. Framsókn er búin að missa kosningamálið, segja þau (sbr. forustugrein Vísis í fyrradag) Sá sem tók kosn- ingamálið af Framsókn, var enginn annar en de Gaulle Frakklandsforseti. Útilokun hans á aðild Breta að EBE veldur því, að ísland mun ekki þarfa að taka neina afstöðu til EBE. Þar með pr það úr sögunni, að Fram- sóknarmenn geti nokkuð deilt á stjórnarflokkana fyrir það að vilja aukaaðild að EBE. Það er auðséð á þessu, að stjórnarflokkarnir hafa ótt- azt, að sú afstaða, sem þeir voru búnir að taka til EBE, myndi ekki mælast vel fyrir og telja sig því eiga de Gaulle mikið að þakka. Hann hafi með afstöðu sinni tekið kosn- ingamálið af Framsókn. Stjórnarflokkarnir ba^ta vissulega nýrri blekkingu við fyrri blekkingar sínar, þegar þeir reyna að túlka afstöðu de Gaulle þannig, að hún þýði það, að ísland muni ekki í framtíðinni þurfa að taka neina afstöðu til EBE. Síðan frakkland tók þá afstöðu að útiloka Bretland, hafa öll hin ríkin í EBE lýst því yfir ákveðnara en nokkru sinni fyrr, að þau séu fylgjandi aðild Breta. Því er harla ólíklegt, að Frökkum takist að útiloka þá, til langframa, enda taka Frakkar sjálfir fram, að það sé ekki ætlunin. Flest bendir þvi til þess, að Bretar verði aðilar EBE fyrr en síðar, en jafnvel þótt það dragist eitthvað, komast íslendingar ekki hjá að taka afstöðu til EBE. EBE hefur ekki hætt að vera til, þótt de Gaulle hafi hindvað inngöngu Breta um skeið. Evrópulöndin, sem eru utan EBE, verða því að taka afstöðu til þess eftir sem áður hvort þau viija heldur hafa viðskipti sín við EBE á grundvelli einhvers konar aðildar eða á grundvelli venjulegs tolla- og við- skiptasamnings. Að þessu leyti hefur afstaða de Gaulle til Breta engu breytt. Það er því hrein blekking. þegar — stjórnarflokkarn- ir eru að fela sig bak við de Gaulle og reyna að láta eins og það sér úr sögunni, að ísland þurfi að taka afstöðu tii EBE. Það vandamál er óleyst eftir sem áður, en af- stöðu tii þess mun verða að taka á næsta kjörtímabili, þótt menn reyni að draga það á langinn í lengstu lög. Þess vegna þurfa kjósendur að taka afstöðu til þess í næstu kosningum, hvort heldur skuii horfið að aukaað- ild eða tolla- og viðskiptasamningi. Síðar mun ekki gefast tækifæri til þess. „Afrek“ Emils Alþýðublaðið keppist nú við að skrifa mikið lof um Emil Jónsson fyrir afrek hans á sviði húsnæðismálanna. ,,Afrek“ Emils eru í stuttu máli þessi: Dregið hefur stórlega úr íbúðabyggingum, svo að húsnæðisskortur fer nú mjög vaxandi. Byggingarkostnaður hefur aukizt svo stórlega, að þau lán, sem byggingarsjóður veitir íbúðarbyggjend- um, hrökkva ekki fyrir aukningu byggingarkostnaðar- ins frá 1958. Þessum staðreyndum reynir Alþyðublaðið að leyna með því að benda á, að heildarútlán tú íbúða hafi hækk ao seinustu árin. En sú hækkun segn lítið, þegar hún nægir hvergi nærri fyrir auknum byggingarkostnaði. Annars er það kannske táknrænasta dæmið um hinn „sanna áhuga“ Alþýðuflokksins í húsnæðismálum, að semustu sex árin urðu heildarlán til ibúðabygginga lang- !ægst á árinu 1959, þegar Alþýðuflokkurinn fór einn með stjórnina. Forustugrein úr „The Guardian“, Manchesfer: - Hver verður næsti formaður brezka Verkamannaflokksins? Callaghan og Wilson eru bæðir vænlegir sem forsætisráðherraefni Þingflokkur brezka Verka- ínannaflokksins er um þessar mundir að kjósa forma.nn í stað Hugh Gaiitskells, sem lézt ný- lega. Fylgzt er af athygli með þessari kosninigu bæði í Bret- landi oig víðar, þar sem svo get ur fiarið, að hinn nýkjörni for- maður flokksins verðli næsti forsætisráðherra í Bretlandi, ef Verkamannaflokkurinn sigr- ar í næstu kosningum. Grein sú, sem hér fer á eft- ir, birtist í hinu kunna brezka bla'ði The Guardian s. 1. föstu- dag. Er þar fjallað um þá þrjá forustumenn Verkamianna- flokksins, sem til greina koma við formannskjörið, en úrsliit þess munu kunmgerð á morgun, fimmtudag: ÁRDEGIS í DAG verða þing- mönnum Verkamannaflokksins afhent gögn til að kjósa nýjan Leiðtoga. Enginn getur efazt um mikilvægi þessa kjörs. Þing mennirmr eru ekki aðeins að kjósa nýjan leiðtoga Verka- mannaflokksins, heldur eru þeir sennilega um leið að kjósa næsta forsætisráðherra Bret- lands. Verkamannaflokkurinn hefur góðar sigurhorfur í næstu almennu þingkosningum, en eiginleikar flokksforingjans munu hafa veruleg áhrif á úr- slit þeirra kosninga. Kjósend- urnir munu spyrja, hvort hann verði dugandi forsætisráðherra. Hitt er þó meira um vert. að ef Verkamannaflokkurinn sigrar í kosningunum, verður leiðtogi hans að vísa landinu veginn og stjórna því. Þörf mun verða á sönnum leiðtoga. Hann kemur til með að taka í arf erfiðar aðstæður, — at- vinnuleysi, kyrrstætt efnahags- líf og stirðleika í sambúð okk- ar við Evrópu, — og þó eru aðstæðurnar þannig, að í þeim er mikið tækifæri fólgið. Mað- ur, sem er traustur í starti og hefur góða dómgreind, getur komið fótunum aftur undir Bretland. Sá maður. sem ekki væri starfinu vaxinn, gæti leitt þjóðina út í enn meiri ógöng- ur. Þingflokkur Verkamanna flokksins er því ekki einungis að kjósa fyrir flokkinn, heldur einnig fyrir þjóðina, — og meira að segja að verulegu leyti fyrir hin vestrænu sam- tök. MENNIRNIR ÞRlR, sem til greina koma, eru allir færir um að gegna mikilvægum ráð- herraembættum. En ef til vilL er verið að kjósa mann í æðsta starf á Bretlandi. Georg Brown hefur hugrekki, seiglu og kraft Hann var dyggur stuðnings maður Hugh Gaitskells, jafn vel þegar svartast var i álinn Hann hafði skynsamlega af- stöðu til þess, hvernig leila ætti aðildar að Efnahagsbanda Laginu, og hann hefur aLdrei hvikað frá TyLgi sínu við sam féLag Atlantshafsins Hann hefur notið virðingar sem vara- formaður þingflokksins. En þrátt fyrir þetta, og þrátt fyrir að reiknað sé með bví- hvernig maður getur vaxið við að þurfa aiit í einu að gegna hinum æðstu embættum, þá er erfitt að gera sér Brown í hug ■ ■ i'; '■ ■ ÞREMENNINGARNIR, sem keppa um formennskuna í Verkamanna flokknum (faliS aS ofan: Brown, Callaghan og Wilson. arlund sem heppilegan forsæt- isráðherra. Hann er stundum of fljótráður í dómum, þekk- ing hans er of takmörkuð, orð hans of hvatvís og aðferðir hans eru gailaðar. Hann kynni að reynast Verkamannaflokkn- um hinn óþarfasti í kosningum og landinu til tjóns sem for- sætisráðherra. ÞA ERU aðeins tveir eftir um að velja, þeir Callaghan og Wilson. Hvor þeirra sem er getur orðið dugandi forsætis- ráðherra, þó að menn geti greint á um þá. Wilson hefur ef til vill betri eiginleika til að leiða þjóðina út úr fjárhags- legu öngþveiti en nokkur for sætisráðherra hefur haft síðan Bonar Law leið. f þessu efni stendur hann langtum framar en Callaghan, þó að hann hafi sem fjármálaráðherraefni reynt að kynna sér undirstöðu atriðin af hinu mesta kappi síðast liðið ár. Wilson hefur það einnig fram yfir, að hafa gegnt ráðherraembætti áður Og hann er sá eini keppinaut- anna, sem það hefur gert Hann hefur öðlazt mikla reynslu í viðskiptum við Rússa einkum j viðskiptasamningun- um árið 1947 við hinn harða og slæga Mikoyan, sem hann var að heita mátti einn um. Wilson hafði á sér vafasamt orð eftir átökin í Verkamanna flokknum á árinu 1960. Hann getur þó afsakað sig með því. að hann hafi látið einingu flokksins sitja í fyrirrúmi og þó ávallt haldið tryggð við kjarna stefnu sinnar. Hann er álitlegur sem stjórnandi, þjóð- arleiðtogi og samningamaður gagnvart öðrum þjóðum. SAMT SEM áður mun fjöldi fólks, bæði innan Verkamanna- flokksins og utan taka Callag- han fram yfir Wilson. Callag- han er ekki aðeins aðsópsmik- ill maður, heldur hefur hann orð fyrir að vera hreinn og beinn og heiðarlegur viðskiptis Hann hefur mikla hæfileika, þó að hann hafí haft færri tækifæri en keppinautar hans til þess að sýna þá. Þeir, sem hafa fylgzt með honum í nefnd um og á ráðstefnum, þegar hann er að afla stuðnings við umdeild atriði, eru líklegir til að viðurkenna hæfni hans. Hann var ekki ráðherra í síð- ustu stjórn Verkamannaflokks- ins, en hann er fullfær um að fást við gáfaða og erfiða sam- starfsmenn. Callaghan tók engan þátt í deilunum innan Verkamanna- flokksins árið 1960. Vegna þessa, auk annars, geta ákveðn ir hópar innan Verkamanna- flokksins sætt sig við hann, þó að þeir geti ekki með nokkru móti sætzt á Wilson sem leið- toga. Það er satt, að Callaghan stendur Wllson að baki í reynslu, og það er einnig rétt, að hann er minna kunnur er- lendis. Samt sem áður er það mjög sennilegt, að orð hans verði mikilsmetin, bæði í Washington og öðrum höfuð- borgum. Hann er þánnig gerð- ur, að hann er líklegur til að fást við óvænta erfiðleika af rósemi og skynsemi. Hann er að sumu leyti óreyndur, en áreiðanleiki hans og góð dóm- greind eru meðmæli með hon- EF FRAMUNDAN eru löng og erfið átök um efnahagsmál in, er mikilvægt að lúta leið sögn þess manns. sem þekkir undirstöðuatriði fjármálanna Bretland ræður yfir kjarnorku vopnum og þv; er nauðsynlegt að leiðtogi þess sé ekki of fljót ráður. Þeir Wilson og Callag han uppfylla þessi skilyrð) báðir. • Hvorum sem er vrði fagnað sem leiðtoga Verka mannaflokksins og líklegum forsætisráðherra. Vér kysum heldur að Callaghan yrði fyrir valinu. ! T f MIN N, miðvikudaginn 6. febrúar 196S z

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.