Tíminn - 06.02.1963, Page 9

Tíminn - 06.02.1963, Page 9
 ELIOT SKÁLD LEYSIR FRÁ SKJÓÐUNNI Eftirfarandi viðtal, er brezki blaðamaðurinn Tom GreenweU átfti við skáldið T.S. Eliot, birt- ist fyrst í dagblaðinu York- shire Post, og þótti ekki ó- merkara en svo, að síðan hefur þa<ð verið endurprentað i safn- ritum og bókmenntatímaritum. Hér birtist það nokkuð stytt og þó vonandi ekki brenglað sctningum. Skáldskapur Eliots hefur hverfandi lítið verið þýddur á íslenzku og leikrit hans ekki flutt hér á svi'ði. En fyrir 2—3 árum komu hjngað hjóniin E. Martin Brown pró- fessor í leiklist og Henzie Rae- burn leikkona, og lásu saman af sviSi Þjóðleikhússins, nokkra kafla úr Ieikritum eftir Eliot. Áheyrendur voru sára fáir, en þeir munu seint gleyma þessum le'ikritaflutn- ingi þeirra hjóna. En helztu leikrit efrir Eliot eru: Murd- er in the Cathedral (1935), Family Reunion (1939), The Cocktail Party (1950) og The Confidential Clerk (1955). Ljóðabókin The Waste Land (1922) hefur orðið ein fræg asta Ijóðabók á þessari öld, og Eliot hlaut bókmenntaverð- laun Nóbels árið 1948. TRÚLEGA hefur enginn bók- menntamaður á þessari öld haft meiri áhrif á enskar bók- menntir en T. S. Eliot (burtséð frá því hugarróti, er Freud olli meg sálfræðikenningum sínum og hinum sérstæða per- sónuleika Bernard Shaw). Svo margt hefur verið ritað um verk hans og komið sem afleiðing þess — bæði heima og erlendis — að jafnvel þótt öll hans ljóð, leikrit og æviatriði væru glötuð, myndi hann samt halda áfram að setja svip á bókmenntirnar. — Finnst yður ekki, að gagn- rýnendur eigi að gagnrýna út frá sérstöku siðferðilegu sjón- armiði? — Ég finn mig ekki þess um- kominn að segja öðrum gagn- rýnendum hvaða siðferðisjónar mið þeir eigi að hafa, en það leiðir af sjálfu sér, að þeir, ekki síður en allar aðrar mann- legar verur, hafi siðferðilegan mælikvarða. Og ég held það sé erfitt að draga línuna milli hreinnar bókmenntalegrar gagnrýni og þeirrar er byggist á siðferðilegum, trúarlegum, félagslegum eða stjórnmálaleg um sjónarmiðum. Gagnrýni, svo framarlega sem hún er bók menntaleg, á fyrst og fremst að beinast að bókmenntalegu gildi verksins, er um ræðir. — Er ekki nærri ómögulegt að einangra bókmenntaleg verðmætj sérhvers verks? — Jú, eiginlega er ég þeirrar skoðunar. Sjónarmið og sann- færing gagnrýnanda hlýtur að hafa á'hrif á gagnrýni hans. — Hún hlyti að vera innantóm, ef svo væri ekki. — Hvað álítið þér um ljóð, sem innihalda tilvitnanir úr óbundnu máli, t. d. hjá Mari- anne Moore, sem innihalda klausur úr dagblöðum og tíma- ritum? — Það er kunnara en frá þurfi að segja, að ég dáist að skáldskap Marianne Moore. — Hún á til að taka klausur úr blöðum, en aðeins í formi at- hugasemda, og ég gerði mig líka sekan um það fyrr á árum. En á undan mér varð Shelley til þess í kvæðinu Queen Mab. En að innlima klausur ur ó- bundnu máli í kvæðin, það hefur Ezra Pound gert með góðum árangri. Og fyrir nokkr um árum orti ég kvæðið Tri- umphal March, og ég felldi inn í það efni frá stríðsárun- um fyrri, tekið beint úr bók eftir þýzkan hershöfðingja, — gott ef það var ekki sjálfur Von Ludendorff, þetta var frá árinu 1918. Auðvitað var það óbundið mál, en það kom að góðu gagni fyrir mig, og ég er enn þeirrar skoðunar, að þetta sé allgott kvæði. — Hvað um tilvitnanir í kvæðum yðar, sem framan af árum var ekki hægt fyrir alla að átta sig á, hvort var allt frá yður sjálfum komið eða aðfengið og þér funduð síðar nauðsyn á að setja at- hugasemdir með kvæðunum? — Ég held að ástæðan fyrir því að ég tók upp á því að gera athugasemdir hafi verið ásökun frá gagnrýnanda. í einu kvæða minna hafði ég notað án tilvitnunarmerkja línuna „the army of unalterable law“ úr kvæði eftir George Meredith. Þessi gagnrýnandi ásakaði mig fyrir að hafa gerzt svo ósvífinn að hnupla þessari ljóðlínu. Ég verð að segja sem er, að ég ætlaðist til að allir þekbtu þessa línu og gætu þess vegna stillt henni til samanburðar við anda og skoðun kvæðisins að öðru leyti. Ég hugsaði mér ag brenna mig ekki á sama soðinu aftur og því skyldi ég geta þess, hvaðan ég tæki til- vitnanir, svo að ekki væri hægt að bregða mér um svik. í seinni kvæðum mínum nota ég aftur á móti lítið af tilvitnun- um. — Hver er, að yðar áliti, tilgangur ljóðagerðar? — Sá, að veita ánægju, og ef þér spyrjig hvers konar á- nægju, get ég svarað því einu, að segja: Þá ánægju, sem Ijóð veita En satt að segja álít ég, að góð kvæði, um leið og þau veita slíka ánægju, gefi lesand- anum annað og meira en á- nægjuna. Það er ekki aðeins á- nægja, heldur upphafning lífs- ins, það gerir þeim, sem njóta ljóðsins, meira virði að lifa lifinu. — En með kvæðum yðar ætl izt þér ekki nákvæmlega til að vera lesinn til ánægju? — Er það ekki? Raunar ekki nákvæmlega. — Ég er viss um að þér hafið ekki fyrst og fremst skemmt- un eða dægrastyttingu í huga. — Nú, jæja. í ljóðum mínum utan við leikritin set ég fram það, sem ég vildi sagt hafa. Og T. S. Eliot, Nóbelsskáld, og kona hafi mér tekizt að segja það við sjálfan mig á fullnægjandi hátt, þá er fyrsta skilyrðið fengið. En það segir sig sjálft, að ljóð verða að vekja skemmt- un, annars eru þau hreint og beint ekki lesin. Tónlist, sem enginn vill heyra, hefur glatað tilgangi sínum, er það ekki? — En hugmyndin að skemmta fólki er ekki það, sem örvar yður til að yrkja? — Nei, það er sannarlega ekki skipulagt eins og skemmti samkoma. Ég held, að það sem hvetur mig til ag yrkja ljóð, sé, að það er eitthvað inni í mér, sem ég þarf að losna við. Ég verð að ná því út. Þetta er eins konar búkhreinsun, ef þig viljið heldur hafa það svo. En ég veit ekki. hvað það er,' sem ég vil losna við fyrr en ég er laus við það. Með öðrum orðum, ég held menn viti ekki gerla hvað þeir vilja sagt hafa fyrr en þeir eru búnir að segja það. — En þetta innra með yður er ekki þörf eða löngun til að skemmta? — Nei-nei, þag er það efcki. En samt, því aðeins að skáldi hans finnist það, sem losnar með þessu móti, eigi að færa eitt- hvað eða hafa einhverja þýð- ingu fyrir aðra, þá hefur skáld ið ekki almennilega losnað við það. Þag verður að koma í því formi, að fólk getí veitt því viðtöku. Skáldið finnur sig knú- ið til að losna við það, en með einhverju móti verður það að berast öðrum mönnum, þótt ekki sé nema sárafáum. — Reynig þér í ljóðum yðar og leikritum að koma fyrir ein hverjum trúarlegum boðskap? — O-nei. Ég hef ekki veru- legan áhuga á að koma boð- skap á framfæri með því móti. Ef ég hefði boðskap ag flytja, hvort heldur trúarlegan eða ekki, mundi ég koma honum á- leiðis rétt eins og að senda skeyti með þeim orðum, sem nauðsynleg eru til þeirra hluta. Ég mundi ekki vefja það í um- búðir. f leikritum læt ég ann- að fólk hafa fyrir því að finna boðskapinn. Fólk finnur t. d. alls konar boðskap í Shake- speare. Leikrit hans eru óþrjót- andi fyrir túlkendur. Shakespe- are lagði til ríkulegt efni, sem Framhald á 5. síðu. Á þessari mynd eru gamlir byltingasegglr I heimi bókmenntanna. taliS frá vinstrl: Lquís MacNeice, Ted Hughes (hann er ungt skáld, sem getið hefur sér orS), þá kemur T. S. Eliot, lærlfaðlrinn, sjálfur æðsti páfi atómskálda eða „Grand Old man of Literature", næst ur honum kemur W. H. Auden og yzt tll hægri er Stephen Spender. Tvelr þessara félaga hafa heimsótt ísland, þelr MacNelce og Auden, sem ferðuðust hér um landið sumarið 1936 og skrifuðu bók um ferðina í sendibréfum og Ijóðum, Letters from lceland. Sam- býlingar Audens á Hótel Borg þekktu hann strax á lyktlnni álengdar, þvi að hann bar á sér bita af kæstum hákarli allan tímann sem hann bjó f fínasta hótell höfuðborgarinnar. Margir þekkja kvæði Audens um ísland, þvi að það hefur komið út í íslenzkri þýðingu Magnúsar Ásgelrssonar. . TIMINN, miðvikudaginn 6. febrúar 1963 9 \

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.