Tíminn - 06.02.1963, Qupperneq 15
ÁRNESINGAR
A'ðalfundur Framsóknarfélags
Árnessýslu verður haldinn að Sel-
fossi, sunnudaginn 10. febrúar n.k.
og hefst kl. 2 e.h.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfund-
arstörf. 2. Kosning fulltrúa á
flokksþing. 3. Önnur mál. Stjórnin.
KIÓSVERJAR
Aðalfundur Framsóknarfélags
Kjósarsýslu verður haldinn að Hlé
garði, mánudaginn 11. þ.m. kl. 9
síðdegis. Stjórnin.
Rússar mótmæla
Framhald af l síðu
Sagt er í Moskvu, að mótmæla-
orðsendingar Sovétstjórnarinnar,
sem sendar eru út rétt í þann mund
er samningaviðræðum þríveldanna
í Washington og New York um
kjarnorkuvopn hefur verið frestað
samkvæmt uppástungu Sovétríkj-
anna, séu í rauninni meira en mót
mælaorðsendingar. Komið geti í
ljós að þær séu liður í aðgerðum,
sem ætlað sé að breyta grundvell-
inum að viðræðum þeim, sem fram
fara, eða er verið að undirbúa
bæði austan hafs og vestan.
Þá segir í fréttum frá Moskvu,
að stjórn æðstaráðs sovézka komm
únistaflokksins hafi á föstudaginn
rætt vandamálin í sambandj við
efnahagsbandalagið og stöðu mála
milli Frakklands og Vestur-Þýzka-
lands vegna þess að viðræðurnar
við Breta fóru út um þúfur. Kos-
ín var sérstök nefnd, og er henni
ætlað að rannsaka m. a. Rómar-
samninginn.
Austursfræti
Framhald af 1 siðu.
Annars hefur danski skipulags-
sérfræðingurinn próf. Bredsdorf
lagt til að Austurstræti verði í
framtfðítínj aðeins fyrir fótgang-
andi fólk. Ekki hefur enn verið
tekin fullnaðarákvörðun um það,
en það verður sennilega innan tíð-
ar, því útreikningarnir úr um-
ferðarkönnuninnj eru væntanlegir
frá Danmörku mjög fljótlega.
Bárður Daníelsson hefur teikn-
að stórhýsi Silla og Valda, sem
verður áfast Pósthúsinu, og nær út
að Kolasundi í hina áttina. Verð-
ur þá nær samfelldur húsveggur
norðan megin götunnar. Ásbjörn
Ólafsson hefur nýlega unnið lóða-
mál um hluta lóðar sinnar á horni
Austurstrætis og Lækjargötu, og
nær lóð hans þá út í miðja
„Skemmu", þar sem Teppi h. f.
er til húsa.
Víðavangur
yrtu ummæla. Það var þó alveg
óþarfi, því að kommúnistar
hafa innra með sér aldrei tekið
hátíðlega það sem Mbl. hefur
sagt um kommúnismann og alls
ckkj tekið mark á því, sem það
hefur sagt um forystumenn ís-
Ienzkra kommúnista. Þeir hafa
skilið þetta, sem nauðsyn og
sjálfsagðan hlut í þeim hrá-
skinnaleik, sem þessir flokkar
verða að leika.
Einar tekur af
vafann . . .
Einar Olgeirsson hefur lík-
lega fundið þennan ótta hjá
forystumönnum Sjálfstæðisfl.
Hann taldl því nauðsynlegt að
sannfæra þá sem bezt, a® af-
staða Sósíalistaflokksins til inn
anlandsbaráttunnar væri hin
sama og áður. Því hefur hann
í hverri ræðunni af annarri
hrósað Sjálfst.fl. og dásamað,
hve gott væri að eiga vi® hann
samstarf, jafnframt því að
hann úthúð’ar Framsóknar-
flokknum á alla kanta og tehir
hann ósamstarfshæfan.
. . . og þeim léttir
Þessar yfirlýsingar Einars 01
geirssonar ganga reyndar þvert
á öll skrif stjórnarblaðanna um
Þjófffylkingu Framsóknar og
kommúnista. En gleði íhaldsins
yfir að hafa fengið óræka vissu
um það aftur að leiðin til sam
starfs við Sósíalistaflokkinn er
fullkomlega opin, er svo mikil,
að Vísir ræður sér ekki
fyrir kæti og rekur upp gleði-
hróp.
En meffal annarra orða, ætli
Einar sé farinn að velta því fyr
ir sér, hvort hann eigi að taka
að sér dómsmálaráðherraem-
bættið í Þjóðfylkingarstjórn-
inni með Sjálfstæðisflokknum.
Þaff stendur varla á Sjálfstæðis
flókknum að bjóða embættið
fram, ef að líkum Iætur?
Síminn
FramnaJd af 1. síðu.
eð viðtakandi er á tali, og má af
því marka símanotkunina.
Þegar þeim breyttngum, sem nú
er verið að vinna að, verður lokiff,
mun símaþjónustan í bænum
batna, og telur bæiarsímstjóri,
eins og fyrr segir, að í haust muni
fara að verða minna um tafir við
aff komast fram en nú hefur veriff
um skeið. Þessar breytingar eru
allumfangsmiklar og hefur tekið
60—80 þúsund vinnustundir að
vinna að þeim.
jm fjölmörgu vinum okkar og
innilegar þakkir færum við hinu
félagssamtökum, sem vottuðu okkur vinsemd og samúð vegna
sviplegs fráfalls sonar okkar og bróður
Magnúsar Einarssonar,
búfræðikandidats.
Jakobína H. Þórðardóttir, Einar Ásmundsson
Björn E. Einarsson, Ragnar Einarsson
Óskar Einarsson, iiigveldur Hös'kvndsdóttir
Sigríður E. Zoega, Geir Zoega
Þórður Einarsson, Dóra Sigurjónsdóttir
Ásmundur Einarsson, Margrét Kjartansdóttir
Ásgeir Einarsson, María Gísladóttir.
Útför mannsins míns,
Ragnars Guðmundssonar,
verður gerð frá Fríkirkjunni, fimmtudaginn 7. febrúar kl. 10,30 f.h.
Athöfninni verður útvarpað. — Þelr, sem vilja minnast hins látna,
eru vinsamlega minntir á Minningarsjóð systkinanna frá Hrafna-
björgum.
Krisfín Sveinbjörnsdóttir.
Alúðar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður
okkar
Valgerðar Mekkínar Eiríksdóttur
frá Hlíð í Lóni.
Guðbjörg Sigurðardóttir
Solveig Þ. Sigurðardóttir
Eirikur Sigurðsson
Maður gæti haldið að þetta værl hjúkrunarkona, en svo er ekki. Hún er bara að sýna okkur elna af nýj-
ustu uppfinningunum f baráttunni gegn kuldanum, sem sé öndunargrímu, sem hitar loftið upp, um leið
og öndun fer fram. Gríman gengur fyrir rafhlöðu, sem stúlkan heldur á í hægri hendi og í vinstri hendi heid-
ur hún á stillitæki. Rafhlaðan gefur rafmagn til þess að htta loftið upp í 4 klukkustundir. Hún er talln koma
sér sérstaklega vei fyrir fólk, sem
Fellur Diefenbaker
Framhald aí 1. síðu.
ir, að hann munj greiða at-
kvæði gegn vantrauststillög-
unni á minnihlutastjórn í-
haldsmanna, sé það tryggt,
að Diefenbaker fari ekjk; á-
fram með embætti forsætis
ráðherra í stjórninni.
í óstaðfestum fregnum
frá Ottawa segir, að 6 ráð-
herrar minnihlutastjórnar-
innar hafi komið saman til
fundar í dag, og rætt mögu-
leikana á því, að fá Diefen-
baker til þess að segja af
sér. Hins vegar hefur einn
þessara sex ráðherra borið
þessa frétt til baka, og sagt
aðalumræðuefni fundarins
aðeins hafa verið þau vand
ræði, sem nú steðja að
stjórn Diefenbakers, og alls
ekki hafi verið rætt um það,
að hann segði af sér.
Stungið hefur verið upp á
Georges Nowlan efnahags-
málaráðherra sem eftir-
manni Diefenbakers í for-
sætisráðherraembættinu, ef
til þess kæmi, að hann segði
af sér. Nowland er einnig
íhaldsmaður.
Hafísinn
Framhald af 16. síðu.
hljóðandi fréttatilkynning frá
Landhelgisgæzlunni og Jóni Ey-
þórssyni, um ískönnunarflugið: |
„Leiguflugvél á vegum Land-1
helgisgæzlunnar undir stjórn
Garðars Pálssonar fór í ískönn-
un til Vestfjarðamiða í morg-
un. Flogið var norður með Vest
fjörðum i 5—6 mílna fjarlægð
frá annesjum. Á móts við Galt-
arvita sáust fyrst dreifðir smá
jakar. Jakastangl þetta náði
inn að mynnj ísafjarðardjúps,
að stefnulínu milli Galtar og
Rits Flogið var til norðvesturs
um 14 sjómílur frá Galtarvita
yfir strjála ísbreiðu, og var
á erfitt meS öndun.
þá komið í auðan sjó að kalla. í
ísbreiðunnj var um helmingur
sjávar þakinn ís að meðaltali.
Þá var haldið áfram norður
með landi og hélzt jakastrjál-
ingur norður á móts við Rit, var
lítill út af Aðalvík en þéttist
nokkuð út af Straumnesi. Þar
var líka ískurl í fjörunni. En
norðan og austan Kögurs var
íslaust og hreinn sjór. Var flog
ið lengst austur að vitanum í
Látravík.
Frá Horni var síðan tekin
stefna beint í norður. 28 sjómíl
ur undan landi byrjaði dreift
ískurl, en sjálf ísbrúnin hefst
32 sjómílur norður af Horni á
67° N og 22° 25’ V og liggur
þar beint frá austri til vesturs
svo langt sem séð varð, en norð
ur undan voru hafþök af ís,
sem sennilega ná norður og
vestur að Grænlandsströndum.
ísinn' var þunnur við jaðarinn,
smáflögur og kurl, áreiðanlega
lagnaðarís, sem myndazt hefur
í vetur. Aðeins stöku jakar
höfðu orðið fyrir hnjaskj og
lirannazj upp 2—4 metra yfir
sjólokin á að gizka.
Frá ísbrúninni beint norður
af Horni var flogið með fram
henni í vesturátt. Og liggur ís-
brúnin í aðaláttum frá 67° N
22° V til 66° 49723° 30’ og það-
an VNV á 66° 55724° 25’ og
þá SV á 66° 35725°. Þaðan
var tekin stefna á Galtarvita og
flogið aftur yfir íshraflið út-
af Djúpi.
Segja má, að talsvert ísrek
sé á öllu svæðinu Göltur —
Straumnes og út að sjálfri ís-
brúninni, sums staðar í þéttum,
mjóum beltum, en þar á milli
smákurl á strjálingi.
Samkvæmt athugunum okk-
ar er sigiing fyrir Horn og suð-
ur með Vestfjörðum hættulaus
í björtu veðri, ef nokkur varúð
er við höfð. — Hins vegar
verður að telja hana viðsjála
eða hættulega í myrkri,
Völuspá
Framhald af 16. síffu.
sína um aldamótin, en það er vel
þekkt verk. Flutningur tekur 20
mínútur. Fóstbræður hafa áður
flutt Völuspá, fyrir nær tíu árum,
og þá með píanóundirleik. Flytj
endur eru nú kórfélagarnir, 50
talsins og öll Sinfóníuhljómsveit-
in. Æfingar fara fram í Háskóla-
bíói, og verður lokaæfing árdegis
á fimmtudaginn.
Á undan Völuspá leikur Sin-
fóníuhljómsveitin Rómönsu með
Ulbrigðum ópus 51 eftir Grieg, og
á eftir verður flutt sinfónía Beet-
hovens no. 8 í f-dúr.
Pompidou
Pompidou harmaði hina um-
fangsmiklu bandarísku fjárfest-
ingu í Evrópu. — Við höfum sjálf-
ir dregið þessa fjárfestingu hing-
að til okkar, en það yrði mjög
slæmt, ef EBE yrði stjómað af
auðhringum, sagði hann.
Enn fremur sagði hann, að Sovét
stjórnin sé óánægð með sáttmál-
ann, sem gerður hefur verið milli
Frakka og Vestur-Þjóðverja. Ekki
kvað hann liggja fyrir neinar á
ætlanir um stjórnmálalegar við-
ræður milli Sovétríkjanna og
Frakklands um þessar mundir.
Hallsfein
Framhald af 3 síðu
skýrsla, sem rætt var um að láta
nefndina gera, er viðræðurnar
hættu. Dregur Hallstein þá álykt-
un af gangi málanna fram til
þessa, að hægt sé að finna lausn
á öllum vandamálunum, sem fyrir
liggja.
— Það er ekki hægt að segja,
að viðræðurnar hafi verið komnax
í strand, eða að fullvíst hafi verið
orðið, að þær myndu ekki heppn-
ast, sagði hann. Ekki getur verið
nokkur vafi á því, að miklir mögu-
leikar voru fyrir hendi um að við-
ræðurnar myndu heppnast, .ef
þeim hefði verið haldið áfram.
TÍMINN, miðvikudaginn 6. febrúar 1963
15
í