Tíminn - 15.02.1963, Side 2

Tíminn - 15.02.1963, Side 2
m LDNDUM í rauninni er það rangt, þegar fólk segir, að þag hafi verið með kvef síðasta hálfa mánuðinn, og að það geti bókstaflega ekki losn að við þessa pest. Kvefið sjálft stendur nefnilega ekki yfir í meira en þrjá daga. Þag sem þjá ir fólk í lengri tíma eru afleið- ingarnar af kvefinu, sjúkdómur, sem alls ekki stafar af sömu sótt kveikjum og þeim, sem orsökuðu kvefið. Kvefið er veirusjúkdómur, og því fylgja venjulega ekki nein kvalafull einkenni. Það leggst að- allega í slímihimnurnar í nefi, nefkoki og hálsi, veldur eymslum í hálsinum og rennsli úr nefi og jafnvel höfuðverk. En kvefið er um garð gengið eftir þrjá daga. En því miður eru svo fyrir En nú er spurningin, hvort ekki sé mögulegt, að komast hjá þessari óþægilegu veiruárás með bólusctningu. Um það má gera sér góðar von ir, þar sem nýbyrjaðar cru til- raunir við að rækta kvefveirur í vefjarbitum af nýrum úr látn- um mönnum. Erfiðleikinn er bara sá, að fjöldamargar tegundir eru til af kvefveirum. Sannað er, að þeir eru 9—14, en reiknað er mcð, að þeir séu fieiri. Vonazt er til þess, að aðeins fjórir til fimm þeirra orsaki meg inið af ölium kvefsóttum. Þannig verður hægt að láta bólusetja sig 75% af ölíum kvefsjúkdómum. Og þá vaknar enn ein spurning in, breiða þá bara ekki hinir sýkl arnir úr sér, o,g þrífast á gervi- grundvelli? Ánægðar ER HÆGT AÐ VERJAST KVEFI? hendi aðrar frumur, sem tilbún- ar eru til að taka við af veirun- um. Sóttkveikjum, sem halda til í nefi og nefkoki ,og fá venju- lega engu illu til leiðar komið, auðnast þarna frjór jarðvegur í hinum ertu og þreyttu siímhimn- um. Það er eiginlega ómögulegt að komast hjá veiruárásinni, jafnvel þó að heilsan sé í góðu lagi, en heilbrigðisástandið hefur mikið ag segja fyrir næstu árás, það eru sóttkveikjurnar. Ef heilsan er mjög góð eru lít- il líkindi til þess að sóttkveikj- urnar valdi alvarlegum veikind- um. Þetta er kannski skýringin á því, að margir álíta, að mikið magn af C-vítamíni sé óbrigðult meðal gegn kvefi. Vítamínið get- ur ekki komið í veg fyrir veiru- árásina, en þeir sem ekki hafa nóg C-vítamín fyrir í líkamanum eru auðvitað veikari fyrir sótt- kveikjunum, þegar þær taka til starfa, en hinir. Og þennan víta- mínskort er stundum hægt að jafna, áður en sóttkveikjurnar gerast hættulegar. Annars hefur það komið í ljós við rannsóknir, ag hvaða kvef- meðal sem er, jafnt bólusetning- ar, saltvatn eða hóstasaft, bætir kvefið um svona 30—50%. Skýringin á þessu fyrirbrigði er sú, að kvef er að miklu leyti sálrænn sjúkdómur, og þar hafa því skoðanir sjúklingsins sjálfs mikið að segja. Það er því frekar trúin á með- alið sem læknar, heldur en hitt að meðalið sé svo áhrifaríkt. Þag lýsir sér á fleiri vegu, hvernig kvef getur staðið í beinu sambandi við sálarástandið. Kon ur verða t.d. miklu oftar kvefað- ar en karlmenn. Áður fyrr var þessi staðreynd útskýrð á þann hátt, að konur hefðu nánari tengsl við börn í skólum eða á barnaheimilum, en börnin kæmu oft með kvefið heim með sér. En sú skýring er ekki fullnægjandi. Það hefur nefnilega komið í ljós, ag barn- lausar konur fá alveg jafnoft kvef og þær sem eiga börn. Vísindamenn hallast að því, að tilhneiging konunnar td að yfir buga tilfinningar eins og reiði, hatur eða ótta, geri hana næm- ari fyrir kvefi. Gagnstætt því, sem fólk hefur trúað í aldaraðir, virðast rann- sóknir hafa leitt það í ljós, að að konur sigrist frekar á slíkum tilfinningum, en hið þögla og sterka kyn. Að minnsta kosti hefur komið í ijós, að fólk, sem býr við and- lega erfiðleika, eða á erfitt með að koma sér fyrir í nýju um- hverfi, kvefast frekar en annað fólk. Einkum gildir þetta um her- menn, sem nýbyrjaðir eru í hern um. Og vor- og haustkvef, hefur einnig verið útskýrt sem afleið- ing af loftlagsbreytingu, breyt- ingum í lifnaðarháttum og klæða burði, frekar en afleiðing af hita breytingum. Það hefur nefnilega aldrei ver ið hægt að sanna, að kuldi eða hiti hafi nokkur áhrif á það, hvort fólk fær kvef eða ekki. Þá má öllum vera ljóst, að kuldi er ekki ástæðan fyrir kvefi, hann kemur ekki einu sinni við sögu, þegar kvefið myndast, en aftur á móti hefur hann mikið að segja upp á af- leiðingarnar, eins og til dæmis alls konar bólgur. með áfengis- Iaust Lido Aðalfundur kvenfélags Háteigs- sóknar var haldinn í Sjómanna- skólanum 5. þ.m., en félagið á 10 ára afmæli um þessar mundir. Það var stofnað 17. febrúar 1953. Félagið hefur á umliðnum ár- um unnið fjölþætt störf og á nú álitlega fjárupphæð í sjóði, sem varið verður aðailega til fegrunar Háteigskirkju og kaupa á kirkju- munum, eftir nánari ákvörðun síðar Á aðalfundinum voru rædd ým- is félagsmál, var m. a. ákveðið, að félagið minntist 10 ára afmælis sins með afmælisfagnaði á Hótel Borg n.k. sunnudag. Á fundinum var samþykkt eftr- farandi tillaga: „ Aðalfundur kvenfélags Háteigs sóknar, 5. febi. 1963, lýsir ánægju smni yfir áfengislausum skemmt- unum ungs fólks í Lidó og styð- ur eindregið þær óskir, að nauð- synlegar ráðstafanir verði gerðar til þess að' þeim verði fram haldið“. Stjórn félagsins skipa: Laufey Eiríksdóttir. form., Halldóra Sig- túsdóttir, varaform., Ágústa Jó- hannsdóttir gjaldkeri. Sigríður Bpnónýsdóttu, ritari. Meðstjórn- endur: Guðbjörg Birkis, Sesselja Konráðsdóttir, Sigríður Einarsdótt- ir. Presturinn twistar Prestar þurfa hvorki að vera gamlir, alvarlega þenkjandi né leiðinlegir, það finnst að minnsta kosti krökkunum í klík- unni, sem þessi prestur til- heyrir. Hann heitir F. P. Brown og umdæmi hans er Chiswick, eitt af úthverfum Lundúnaborg- ar. Hann nýtur mikilla vinsælda hjá yngri sóknarmeðlimum sín- um, og aðalástæðan er sú, að hann er sjálfur nokkurs konar „gæi“, en það er hugtak, sem meiri tökum nær á unga fólk- inu, en nokkrar ritningargrein- ar. Brown geysist um götur sókn- ar sinnar á skellinöðru, og oft reiðir hann einhvern af hinum ungu aðdáendum sínum fyrir aftan sig. Hann kippir hempunni upp á mjaðmir, áður en hann fer í útreiðartúra, en innan undir er hann svo í kúrekabux- um og skellinöðrustígvélum. Séra Brown er einnig velkom inn á samastað klikunnar, en það e_r lítið veitingahús í Eal- ing. Á myndinni hér til vinstri fær hann sér snúning með einni af fegurðardísum staðarins, og hann dansar i leðurjakka prestshempu. Á myndinni til hægri sési presturinn á skeiiinöðrunni á samt öðrum „gæum". — Af stað, hrópar hann, og andartaki síðar keyra þeir allir benzínið í botn. Hver var aðstaðan fyrir „viðreisn11 og hver er hún nú? Tveir fjölskyldumenn, A og B, bygg'ðu sér íbúðir. Báðar voru íbúðirnar (jafnstórar) 330 m hvor. A byggði sína íbúð 1959 og kostaði hún 407 þús. kr. B. byggði sína íbúð 1962 og kostaðii hún 552 þús. kr. A fékk 100 þús. kr. lán frá liús- næðismálastjórn, en B 150 þús. kr. lán. Nú er spurt: Hvor þeirra er betur settur fjárhagslega með íbúðina sina, A eða B? Stjórnarsinnar svara: B er hcldur betur settur, því að hann fékk 50 þús. kr. hærra lán. Stjórnarandstæðiiigiar svara: A er bctur settur, því að íbúðin hans er 145 þús. kr. ódýrari. Dýrtíðin étur hims vegar 145 þús. kr. af 150 þús. kr. lániinu hjá B, svo að hann á ekki nema 5 þús. kr. eftir af láninu sínu, þegar hann er búinn að borga verðhækkun- ina. Þá á A 100 þús. kr. lánið sitt óeytt, því að hann þurfti ekki að borga þessa verðhækk- un. Auk þessa er eftir að taka fram það, sem vegur ef ti'i vill hvað þyngst og það er, að B verður að greiða þúsundum króna meina í vexti árlega en A. Met Þekkt, erlent fjármálarit birtir nýlega skýrslu um aukn- ingu dýrtíðar frá miðju ári 1961 til jiafnlengdar 1962 í 12 Vestur-Evrópulöndum. í 11 löndum hefur dýrtfðin vaxið um 2—6%, en í því 12. um 11%. Tólfta landið er fsland. „Viðreisnardýrtíðin“ á metið. Annað mef „Forvextir hæstir á íslaiul'i", segir danska biaðið Politiken nú nýlega, Blaðið ber saman vexti í 13 löndum og ni'ður- staðan er þessi': Hér eru for- vextir 9% (framlenging 9*/j %), en í því landi, sem kemst næst á þessu svúði eru þeir 6I2 %. Samanburðat- löndin eru öll j Vestur-Evrópu. Hér er því haldið fram af stjórnarvöldunum, að háu vext irnir hafi verið tii hagsbóla fyriir sparifjáreigendur. Það hefðu þeir e. t. v. getað orðið ef ekki hefði annað komið til. Fn vaxtahækkunin er aðeins þáttur „vi'ðreisnarinnar'*. Og „viðreisnardýrtíðin" gieypir ekki áðejns vaxtahækkunjna, heldur vextina í heild og drjúg an hluta af höfuðstólnum að auki. Samanlagðar ínnstæður í bönkum og sparisjóðum hafa hapkkað verulega í ísl. krónum eftir „viðreis.n“, en i pundiun eða dollurum er upphæðin svo að segja hin sama, þrátt fyrir hið mikla góðæri við sjávar- síðuna af náttúrunnar vöidum. Afleiðing íbú'ð, sem kostaði 370 þús. kr. árið 1959, kostaðj á sl. árú 502 þús. kr. Ef gert er ráð fyr- ir 100 þús. kr. framlagi eig- enda bæði árin og venjuiegum bankavöxtum að öðru ieyti hafa vaxtagreiðslur af íbúð- innii hækkað úr 19 þús. kr. fyrra árið, þ. e. 1959, upp í rúmlaga 34 þús. kr. síðara árið, þ. e. 1962. Þá cr eftir að rcikna afborganir eða fymingu, sem hækkar með byggingarkostn- aðinum. □ 2 T f M I N N, föstudagurinn 15. febrúar 1963.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.