Tíminn - 15.02.1963, Side 15

Tíminn - 15.02.1963, Side 15
Nýja skipan parf Framhald ai 1. síðu greiðsla og góð kjör til að eign- ast þær. Ríkið hjálpaði meira til ihér en verig hefði sem milliliður, til 'þess að jarðir hcldust í byggð eftir því sem nokkur tök væru á. En á meðan ekki fengjust ábú- endur á eyðijarðir, ættu þær helzt að vera í eigu ríkisins, og þar væru þær falar hverjum þeim, er búa vildu á þeim. Tveir fundir voru haldnir á þinginu í dag. Á þeim fyrri voru íögð fram tvö ný mál, þrjú tekin til fyrri umræðu, en afgreiðslu á fundunum hlutu þrjú mál, þ. e. ályktanir þær, sem hér fara á ef'- ir: 1. Erindi sýslunefndar Austur- Húnavatnssýslu um hækkún á hundaskatti hljóðar svo: Búnaðarþing mælir með svo- felldri breytingu á lögum nr. 7 frá 3. febrúar 1953 um hunda- hald o. fl. 3. gr. orðist svo: Af hundum búfjáreigenda skal greiða kr. 30,00 í skatt árlega. Einnig af minkahundum, dýrhund um og sporhundum, enda hafi verið veitt sérstakt leyfi til slíks hundahalds og þeir hundar hafðir í öruggri gæzlu. Af öðrum hund- um greiðist 500 króna skattur ár- lega. Skatturinn rennur í bæjar eða sýslusjóð og innheimtist á mann- talsþingi. Jafnframt leggur búnaðarþing áherzlu á að framkvæmd hunda- hreinsunarinnar verði tekin til gagngerðrar endurskipulagningar í samráði við yfirdýralækni. 2. Erindi fulltrúafundar bænda í Austur-Skaftafellssýslu og Bún- aðarfélags Kirkjubæjarhrepps um tjón af völdum grágæsa, er hljóð- ar svo: Búnaðarþing felur stjórn Bún- aðarfélags íslands að beita sér fyrir því, að fram fari þegar á þessu ári vísindaleg rannsókn á lifnaðarháttum grágæsa og álfta, og sérstaklega á því hversu mikl- um spjöllum þessar fuglategund- ir valda á ræktunar- og beitilönd um og leiðir til að koma í veg fyrir tjón af völdum þessara fugla. Búnaðarþing felur stjórn Bún- aðarfélags íslands að sækja um styrk úr Vísindasjóði til þessara rannsókna. f greinargerð segir: Um tjón af völdum grágæsa hefur verið mikið rætt á undan- förnum árum og með hverju ári verða alltaf fleiri og fleiri bænd- ur, sem kvarta undan tjóni af völdum þeirra, bæði á ökrum, nýræktartúnum, görðum og enn fremur á afréttarlöndum. Nú eru grágæsir friðaðar frá 1. apríl — 20. ágúst, og mun sú friðun vera liður í alþjóðasam- þykkt um þau mál. Ef um það væri að ræða að fá þennan frið- unartíma afnuminn eða breyttan, væri nauðsynleg forsenda fyrir þeirri breytingu að rannsókn á tjóninu hefði áður farið fram. Af 'Samtali við dr. Finn Guð- mundsson telur nefndin miklar líkur fyrir því, að til þessa rann- sóknarstarfs á næsta sumri gæti fengizt hæfur maður, ef fé væri fyrir hendi til kaupgreiðslu og annars kostnaðar, sem af starfinu leiddi. Enn fremur hefur verið rætt við formann stjórnar raunvísinda deildar Vísindasjóðs, dr. Sigurð Þórarinsson, og er hann hlynnt- ur því að rannsókn þessi verði gerð og styrkt af fé Vísindasjóðs 3. Erindi Framleiðsluráðs land búnaðarins um auknar leiðbein- ingar í mjólkurvinnslu og mjólk urmeðferð hljóðar svo: Búnaðarþing mælir með og leggur áherzlu á, að ráðinn verði svo fljótt sem fært er ráðunautur í mjólkurmálum hjá Búnaðarfé- lagi íslands. Felur þingið stjórn B.í. að fara fram á sérstakt fjárframlag í þessu skyni. Þessi tvö síðasttöldu mál komu frá allsherjarnefnd, en í henni eiga sæti: Gunnar Guðbjartsson, Ingimundur Ásgeirsson, Sigurjón Sigurðsson, Sveinn Jónsson, Bene dikt H. Líndal og Jón Gíslason. Tollasamningsleið Framhalö aí síðu P',ramsóknarilokkinn og komandi kosningar, sem komig hafi í veg fyrir, að ríkisstjórnin sótti ekki um fulla aðild íslands að EBE þegar sumarið 1961. Það, sem komið hefur fram hjá ráðherrum — einkum Gylfa Þ. Gíslasyni, sem orð hefur haft fyr- ir ríkisstjórninni í þessu máli — virðist allt benda til þess, að vest- ur-þýzka stjornin hafi talið í við- ræðum íslenzkra ráðherra við hana, að full aðild íslands kæmi gkki til greina eða a.m.k. ótíma- bæra. Áður en Gylfi hélt með fyigdarliði sínu til Bonn þá um spmarið hafði hann pressað fram júkvætt svar frá ýmsum hagsmuna- samtökum um að þegar í stað yrði sótt um aðild íslands ag bandalag- inu. Eftir svar þýzku stjórnarinn- ar tóku ráðherrar ag tala um að Iklega gætu íslendingar ekki geng ið undir ákvæði Rómarsáttmálans ( — ekki öll. Áður hafði Mbl. skrif- j að í gríð og erg um nauðsyn þess I ag sækja strax um aðild, málið þyldi enga bið og Samband ungra ! Sjálfstæðismanna gerði samþykkt þar um. ! Gylfi Þ. Gíslason lýsti því yfir á ráðstefnu félagsins Frjálsrar menn mgar um efnahagsbandalagsmálið, að með öllu væri óhugsandi, að íslendingar gætu fengið tolla- og viðskiptasamning við EBE og sagðist sérstaklega vilja vara menn við aðbera slíkar tálvonir í brjósti. Tilefni þessa var, að Eysteinn Jóns son hafði lagt á það áherzlu við þetta tækifæri, að íslendingar ættu að stefna að þessari leð. S.l. sumar, bentu Frakkar og forystumenn fleiri EBE-ríkja G.Þ.G. svo á, að tolla- og viðskipta samningsleiðin myndi verða heppi- lcgasta leiðin fyrir ísland. Ríkis- stjórnin hefur hins vegar einkum hallað sér að Bonn í málinu og þar var aukaaðild íslands talin heppilegri og Hallstein og embætt ismennirnir i Brussel tóku undir það. Þegar svona var komið og samn- ingarnir við Breta drógust stöð- ugl á langinn og óðum styttist í aiþingiskosmngar á íslandi taldi rikisstjórnin af ótta við Framsókn ' arfiokkinn ng vegna þess að hún fann, að skoðanir hennar áttu ckki hljómgrunn með þjóðinni, heppilegast að láta sem hún hefði enga skoðun á málinu að sinni, en telja tvær leið'ir, aukaaðildarleið- ina og tolla- og viðskiptasamnings- ltiðina báðar koma til greina. í hita þeirra umræðna, sem fram hafa unr málið farið, hafa ráð- herrar hins vegar kallað tolla- og viðskiptasamningsleiðina „nei- kvæða og óábirga". Ríkisstjórnin vill aukaaðild, en skv. skýrslu rikisstjórnarinnar sjálfrar þýðir sú leið m a samninga um „við- kvæm mál“ eins og það er orðað — eð'a m.a. að hleypa útlending- um inn i íslenzkan fiskiðnað — en þag hefur G.Þ.G. lýst yfir í ræðu,! að væri lítr varhugavert. Af þessu stutta yfirliti er ljóst,! að það er óttinn við Framsóknar- f'okkinn ásamt því að elendir mepn hafa talið umsókn íslands ótimabæra eins og mál stóðu, sem komið hefur ' veg fyrir að ríkis-! stjórnin hat, sótt um aðild að j EBE. — Hinis sífelldu fregnir frá j Bonn af ræöum dr. Adenauers og úr fréttapésum EBE, þar sem ís- iand er talið meðal þeirra ríkja, scm vilja aðild að EBE gefa líka ’ otvírætt til kynna, hvernig ráð herrar Tslands hafa hagað málflutn ingi sínum í viðræðum við forystu menn EBE. — Er þeim mönnunr. scm svo ístöðulitlir hafa reynzt i örlagaríkasta sjálfstæðismáli þjóð-' arinnar treystandi til að taka þær lokaákvarðanir, sem mjög sterk- ar líkur eru á, að taka verði á næsta kjörtímabili? — Tilraunir ráðherranna nú til að reyna að' nota tímabundna frestun á við- iæðum við Breta sem skálkaskjól til að fela málstað sinn í málinu fram yfir kosningar, hlýtur og að styrkja þá afstöð'u manna, að slík-1 um mönnum sé ekki treystandi. Það hlýtur þó að teljast kórónan a málflutningi ríkisstjórnarinnar í þessu máli, er Gylfj Þ. Gíslason, sem hefur sagt eitt í dag og annað á morgun og oiðinn er margsaga í málinu, lagði á það ríka áherzlu i lok ræðu sinnar á Alþingi í fyrra dag, að menn ættu nú umfram allt ao forðast að gefa nokkrar þær yf- iriýsingar í þessu máli, sem reynsl- an myndj sanna, að fengju ekki staðizt!! Fékk nýra úr láfnum Frar*--'i!d ; ! I sí5u nýru, sín eigin, sem bæði eru óstarfhæf og þriðja nýr- ar, sem hann fékk úr mið- aldra mannj nýíátnum með samþykki ættingja hans. Fyr ir aðgerðina hafði Lukas ver ið haldið lifandi með gerfi- nýra. Nýra hins látna var kælt niður i 10 gráður á þann hátt, að sérstakur vökvi var látinn koma í stað blóðsins. Síðan var nýrað tengt æðum í kviðarholi Lucass. Eftir uppskurðinn, sem tók sex klst. og í tólui þátt 14 lækn- ar og hjúkrunarkonur, var Lucas fluttur í stérstakan klefa, þar sem loftig var siktað og gerilsneytt. Lækn- ar þeír oa hjúkrunarkonur, sem önnuðust hann urðu að baðast og klæðast dauð- hrein‘uðum fötum, áður en þau fóru inn í klefann. Læknar telja, að þessi að gerð geti rutt brautina fyr- ir flutning lifrar og fleiri líffæra úr dauðum mönn- um í lifandi. i CHICAG0 jhm-St. Paul, 6. febrúar. íslendingafélagið í Chicago held ur þorrablót þann níunda febrú- ar. íslenzkum mat hefur verið flogið að heiman að vanda. Skemmtun þessi er orðin það vin- sæl hér ; norðvesturhluta Banda- ríkjanna, að íslendingar úr mörg- um ríkjum leggja á sig langa ferð til að geta etið fylli sína af ís- lenzkum mat. Valdimar Björnsson, fjármála- ráðherra, mun halda aðalræðuna. Formaður félagsins er Valur Egilsson, tannlæknir, í Chicago. Blómlegt starf KEA Framhald af 16. siðu. ið við myndarlegt útibú á Greni- vík og flutt í það, lokið við bygg ingu hraðfrystihúss á Dalvík og það tekið í notkun, mjólkur og brauðbúð við Eiðsvallagötu breytt í kjörbúð, opnuð ný matstofa í Hafnarstræti 89 með sjálfsaf- greiðslufyrirkomulagi, hafinn var undirbúningur að nýrri kjöt- vinnslustöð á Oddeyrartanga og unnið að stækkun útibúa á Hauga nesi, Grímsey og Hrísey. Mörg mál eru á dagskrá á næst- unni, svo sem að fjölga útibúum á Akureyri, breyting á skrifstofu og verzlunarhúsnæði þar og unnið verður að nýrri og mjög stórri mjólkurvinnslustöð á Glerárej'r- um. Eins og fyrr segir, eru félags- deildir KEA nú 24 og er deildin á Akureyri þeirra stærst. KEA hefur verzlun, iðnað eða aðra að- stöðu til atvinnureksturs á rúm- lega 60 stöðum á Akureyri. Kristmann Framhald at i síðu að hitta mann, sem ég þurfti að tala við. Það er lítið gaman að vera í París á þessum tíma, rétti timinn þar er á vorin. Það er lítil Parísarstemning, þegar maður þarf að ganga á skóhlífum og vera með trefil um hálsinn. — Vinur minn frá Genóva sagði mér í París, ag það borgaði sig ekki að fara sunnar, því kuldinn væri svo mikill. Ég fór því ekki lengra en til Parísar. — Já, ferðalagið heim með Drottningunni var sérstaklega skemmtilegt, sérstaklega meðan við vorum í ísnum, sem náði langt út í Skagerak. Fyrst fylgdi okkur ísbrjótur. Sums staðar var ísinn spannarþykkur en annars staðar var bara hem. Aðeins einu sinni varð skipið að snúa við og velja aðra rák, og töfin alls var ekki nema sex-sjö tímar. — Þessir þrír-fjórir mánuðir mínir erlendis ha2a verið vel heppnaðir, en nú er ég kominn heim, og verð ekki neitt á faralds- fæti á næstunni. Heimta biskup Framhald at 1 síðu holt og skocfanir komu einnig fram um það, að biskupsstól- arnir yrðu þrír, í Skálholti, að Hólum og í Reykjavík. Bjarni Benediktsson dómsmálaráð nerra taldi marga annmark’a á flutningi biskupsstólsins frá Reykjavík en sagðist taka und- ir við Eystein Jónsson, en hann hafð; talið, að afhending Skálholts : hendur Þjóðkirkj- unnar myndi fremur verða t‘l Framdrátfar því að biskupsstól! vrði endurreistur í Skálholti en hið gagnstæða. Frumvarpið skyti alls ekki ioku fyrir þær dyx-. T°1 i! solu 5 herb og tvö eldhús ásamt einu baSherbergi í gamla bænum. Sér hita- veita og sér inngangur. eignarióð. 1. veðréttur laus Einbýlishús úr steini við miðbæinn á góðri lóð. 2 herb og eldhús Jarðir í Holtum, Flóa, Hreppum og víðar ¥ elags- fyndur íFUF -*• ALMENNUR f é 1 a g s fundur verður haldinn í FUF í Reykjavík föstudaginn 15. febrúar, klukkan 8,30 í Tjarnar- götu 26. Fundar- efni: — Kosning fulltrúa á flokks- þingið. — Einar EINAR Ágústsson, borg- arfulltrúi, flytur ræðu um vænt- anlegar kosningar í Reykjavík. — Stjórnin. ÁRSHÁTÍÐ FRAMSÓKNARFÉLÖGIN í Reykjavík halda árshátíð sína föstudaginn 22. febrúar næstkom- andi. — Árshátíðin verður hald- in i GlaUmbæ. Til hennar verður vandað sem bezt og verði stilÞ i hóf. Munið: Árshátíðin verðtir 22. febi-úar. FUNDURI F.U.F. ALMENNUR félagsfundur verð- ur haldinn í FUF í Reykjavík föstudaginn 15. febrúar, klukkan 8,30 í Tjarnargötu 26. Fundarefni: Kosning fulltrúa á flokksþingið. — Einar Ágústsson, borgarfuIRrúi, flytur ræðu um væntanlegar kosn- ingar í Reytjavík. — Stjórnin. Fleiri en einn Framhald af 16. síðu. ingar kvennanna á manninum oft ærið óljósar. f morgun játaði hinn handtekni að vera valdur að megihluta árás- anna, en síðar tók hann aftur þá játningu. Yfirleitt var framburð- ur hans mjög hringlandalegur og mótsagnakenndur, enda virtist lög reglunni maðurinn ekki vera greindur. Þar sem flest bendir til andlegrar vanheilsu mannsins, vcrður hann látinn í geðrannsókn hið fyrsta. Lögreglan mun halda áfram að tala við manninn, en jafnframt leita sönnunargagna annars stað- ar, þar sem framburður mannsins er oft ærið vafasamur og óábyggi legur. Verður reynt að ná sam- bandi við fleira fólk, sem getur gefið einhverjar upplýsingar. Á meðan hefur maðurinn verið úr- skurðaður í gæzluvarðhald. í árásunum í vetur hefur aldr- ei verið um líkamsmeiðingar að ræða, heldur hefur aðeins verið þrifið til kvennanna, en þeim sleppt nærri samstundis. Útvarpsgjöld Framhald af 13. síðu. gjöfull við okkur, að vegur á móti allri sporðreisn okkar frægu ríkis- stjórnar, vera hægt að sjá inn- hcimtuliðinu hinu fjölmenna fyrir jákvæðari ziðfangsefnum, jafnvel hætta við að bjóða út varaliðinu og spara þjófaleitina? Reykjavík, 6. febr. 1963 Guðmundur Þorsteinsson frá Lundi Innilega þakka ég vinum og vandamönnum góðar gjafir og vinarhug á 50 ára afmæli mínu 2. febr. s.l. Lifið heil! Sölvi Guttormsson, Síðu. T í M I N N, föstudagurinn 15. febniar 1963. 15

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.