Tíminn - 27.02.1963, Blaðsíða 5
Njósnirnar
Framnaid al i. siðu.
ara til njósnastarfa fyrir þá hér
á landi, og var þess óskað, að
þessir menn yrðu látnir hverfa
af landi brott hið fyrsta.
Samkvæmt skýrslu dóms-
málaráðuneytisins skýrði Ragn-
ar yfirsakadómára frá mála-
vöxtum 5. janúar s. 1. Þá höfðu
Rússarnir um nokkurt skeið
• reynt bæði beint og óbeint að
fá Ragnar til njósnastarfa. —
Tveim dögum síðar átti Ragn-
ar fund með Rússunum. Höfðu
lögreglumenn komið sér svo fyr
ir, með samþykki Ragnars, að
þeir gátu fylgzt með viðræðum
Ragnars og sendiráðsmanna,
og skráðu þeir þær næstum orð
réttar.
Vildu Rússarnir fá upplýsing
ar um strætisvagnastjóra á
Keflavíkurflugvelli og ná sam-
bandi við þá! Þeir spurðu einn
ig ag því, hvort útlendingar
gætu fengið vinnu við höfnina
í Reykjavík, og minnzt var á
myndatökur af Loranstöðvum.
Síðast í janúar. átti Ragnar
cnn fund með Rússunum og í
það skiptið vig Hafravatn. Þá
var ákveðið að halda annan
fund á sama stað klukkan hálf
níu mánudaginn 25. febrúar.
Ók Ragnar á mótsstað á tilsett-
um tíma og leyndust tveir lög-
reglumenn í aftursæti bifreiðar
hans. Rússarnir komu á fund-
arstað, túlkurinn settist upp í
bíl hjá Ragnari. Þarna voru
Rússarnir teknir höndum, en
fengu að aka á brott, þegar
þeir höfðu sagt til sín og Ragn-
ar hafði staðfest kennsl sín á
mönnunum.
Fréttatilkynning ríkisstjórn-
arinnar um þétta njósnamál er
svohljóðandi:
„Utanríkisráðherra hefur í dag
kvatt ambassador Sovétrikjanna
á fund sinn og afhent honum orð
sendingu, þar sem mótmælt er til-
raun tveggja starfsmanna sendi-
ráðs Sovétríkjanna til þess að fá!
íslenzkan ríkisborgara til að
starfa að njósnum fyrir þá hér
á landi, og var þess óskað að
menn þessir yrðu látnir hverfa af
landi brott hið fyrsta.
Nánari málavextir koma fram
af bréfi dómsmálaráðuneytisins,
dags. í dag, til utanríkisráðuneyt
isins, og skýrslu þeirri sem þar
er nefnd en bréfið og skýrslan
fara hér á eftir, einnig fylgja
myndir er lögreglan tók 25. þ.m.
Bréf dómsmálaráðuneytisins til
utanríkisráðuneytisins:
Hér með sendist utanrikisráðu-
neytinu yfirlitsskýrslu, varðandi
tilraunir tveggja starfsmanna
sendiráðs Sovétríkjanna hér í
borg til þess að fá íslenzkan ríkis j
borgara til að starfa að njósnum-
fyrir þá hér á landi.
Svo sem sjá má af skýrslu þess
ari hafa umræddir starfsmenn,
Lev Kisilev, 2. sendiráðsritari og
Lev Dimitriev, sendiráðsstarfs-
maður, leitað til íslenzks manns,
Ragnars Gunnarssonar, Reykja-
völlum í Mosfellssveit og falið hon
um upplýsingasöfnun sem fram
hefur átt að fara með leynd, og j
greitt honum peninga, að því er j
ætla verður í þvf skyni að fá hann
til að halda áfram slíkri starf-
semi. Enn fremur kemur fram
af skýrslunni að upplýsingasöfn
un þessari er m.a. beint að Kefla
víkurflugvelli og að starfsnfönn-
um á flugvellinum, sem jafnframt
er varnarstöð samkvæmt varnar
samningi íslands og Bandaríkj
anna og á vegum Atlantshafs-
bandalagsins, sem ísland er aðili
að.
Atferli þetta er sannað með
framburði hins íslenzka aðila og
staðfest með framburði lögreglu'
manna, er í eitt sinn voru áheyr-
endur að viðræðum hans við hlut-
aðeigandi sendiráðsstarfsmen'n,
og enn fremur er stuðzt við fleiri
gögn.
Atferli slíkt, sem hinum erlendu
sendiráðsstarfsmönnum hér er
borið á brýn, mundi, ef hlutað-
eigendur heyrðu undir íslenzka
lögsögu, verða heimfært undir 93.
grein almennra hegningarlaga.
Er málefni þetta hér með falið
utanríkisráðuneytinu til viðeig-
an.di meðferðar.
Skýrsla dómsmálaráðuneytisins
dags, 26. febrúar 1963.
Laugardaginn 5. janúar 1963
hringdi til yfirsakadómarans i
Reykjavík Ragnar Gunnarsson,
Reykjavöllum, Mosfellssveit.
Hann kvaðst þurfa að skýra frá
þýðingarmiklu máli. Síðar sama
dag kom hann samkvæmt um-
tali á fund yfirsakadómara. Skýrði
Ragnar frá því, að tveir starfs-
menn sovézka sendiráðsins hér í
borg hefðu farið þess á leit við
sig, að hann tæki að sér að stunda
njósnir fyrir þá hér á landi. Af-
henti Ragnar yfirsakadómara skrif
lega- skýrslu um málefni þetta og
jafnframt fjóra 1000 króna seðla,
en þá fjárhæð tjáði hann að þess
ir aðilar hefðu skilið eftir heima
hjá honum gegn andmælum hans,
er þeir komu til hans í desember
síðastl.
Samkvæmt skýrslu Ragnars fó
hann til Ráðstjórnarríkjanna árið
1953, sem þátttakandi í íslenzkri
Anti Fascist Committee of Soviet
Youth og fyrir milligöngu M.Í.R.
(Menningartengsl íslands og Ráð-
sijórnarríkjanna. Mörgum árum
síðar, þ.e. vorið 1959, leitaði
sovézkur sendiráðsstarfsmaður,
sem ekki er lengur hér á landi, til
Ragnars og bar honum kveðju frá:
túlki þeim og leiðsögumanni er
ferðazt hafði með fyrrnefndri
sendinefnd í Ráðsf jórnarríkjun-
um. Sendiráðsmaður þessi sótti
fast að ná sambandi við Ragnar
og hittust þeir margsinnis á næstu;
tveim árum. Ræddi sendiráðsmað j
urinn á nokkrum fundum aðal-
lega um málefni Sósialistaflokks-
ins, en Ragnar hefur allan þan'
tima, sem hér um ræðir verið
flokksbundinn só>s-íalisti. Nokkr-
um sinnum leitaði sendiráðsmað-
urinn á Ragnar urn að taka að
sér njósnastörf og skipulagningu
þeirra og bauð honum fé fy
en Ragnar hafnaði þessu. Hann
tók þó einu sinni, samkvæmt
beiðni, Ijósmynd af Loranstöðinni
á Snæfell'Snesi og afhenti mynd-
ina sendiráðsmanninum sem bauð
greiðslu fyrir, en Ragnar hafnaði
Várð síðan alllangt hlé á því að
Híkir aðilar leituðu fundar vi'
Ragnar.
í byrjun desember s.l. barst j
Ragnari fynr milligöngu íslenzks
kunningja hans í M.Í.R. ósk um
samfundi frá staifsmanni í sendi-
ráð'inu Kisilev að nafni. Hittust
þeir Ragnar og sendiráðsmaður-
nn tvívegis í desember. í síðara
skiptið á heimili Ragnars og var
þá með Kisilev túlkur, er reyndist
vera Lev Dimitriev, einnig starfs-
maður í sendiráðinu. Á þeim fundi
lýsti Kisilev því, að þeir stæðu í
þakkarskuld við Ragnar vegna
myndatökunnar og skildi við brott
för sína eftir fyrrnefnda peninga
'pphæð án þess að sinnn andm;(’
urn Ragnars. Var ákveðinn fund
ui með þeim á sama stag hinn 7
janúar 1963 kl. 19,00. Nokkru sið-
ar leitaði Ragnar sambands við
vfirsakadómara, eins og áður seg-
ír, og kvaðst vilja binda endi á á-
sókn þessa, og tjáði hann sig fús-
Framhald á 15. síðu. 1
6FSTA MYNDIN þegar Rússsrni Vom- > bíl sinum tll mótsstaðarins. Hinar tvær neðri sýna þá í hópi
ögreglumannanna .> rr ganga ú> sl<U3g, im kiiríki þeirra, Á efri myndinni er túikurinn í frakka, en á
hinni neðri er sendiráðsritarinn i úlpu og með hatt.
TÍMINN, miðvikudagur 27. febrúar 1963.
5