Tíminn - 27.02.1963, Blaðsíða 8

Tíminn - 27.02.1963, Blaðsíða 8
 Séð yflr vélasalinn á sýningunni. HVAÐ UNGUR NEMUR Þriðji starfsfræðsludagur sjávarútvegsins var haldinn s.l. sunnudag í Sjómannaskólanum. Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu voiu þar veitt- ar upplýsingar um fjölmarga þætti þessa þýðingarmikla at- vinnuvegar. Augu manna eru nú sífellt að opnast betur og betur fyrir þeirri mixlu þýðingu, sem starfs fræðsla hefur fyrir atvinnuvegi þjóðarinnar, og þá um leið fyr- ir lífsafkomu hennar. — Hin mikla aðsókn, sem nú er orðin að starfsfræðsludögunum sýnir þetta bezt. Hinu er svo ekki að neita, að vitaskuld er það hvergi nærri nóg að veita ungl- ingum þessa fræðslu einn eða tvo daga á ári. Að því hlýtur að verða stefnt, ag koma slíkri deild Landhelgisgæzlunnar, — enda var þar m. a. froskmann að finna. Þá var einnig mikil aðsókn að vélasal Vélskólans, þar sem skólastjórinn, Gunnar Bjarnason, leiðbeindi, ásamt þremur kennurum og 30 nem- endum skólans, svo og ag deild um sjómannaskólans, þar sem sýnd voru alls kyns siglinga- verig nefndar öðrum fremur er þó harla erfitt að gera upp á milli þeirra, en eins og gefur að skilja voru þær nokkuð mis- jafnlega forvitnilegar. Eitt áttu þær þó allar sameiginlegt: Auðséð var, ag allir, sem þar höfðu lagt hönd á plóginn höfðu gert það af stakri vand- virkni og alúð og eiga þeir all- ir miklar þakkir skildar. Margir unglingar heimsóttu einnig vinnustaði. 275 ungling- ar fengu til daemis aðgöngu- miða að togara í Reykjavíkur- höfn og hafa vafalaust flestir notfært sér þá. Vonandi gerasí einhverjir þeirra sjómenn á togurum, þegar fram líða stund ir. Þess skal getið, að forstöðu- menn fyrirtækja rómuðu mjög nrúðmannlega framkomu ungl- inganna og er það vissulega mjög ánægjulegt. Fleiri komu á bennan ’starfs- fræðsludag en Reykvíkingar einir. Til dæmis komu 30 nem- endur úr gagnfræðaskólanum í Keflavík, ásamt kennara sfn- um. x Eins og áður hafði Ólafur Gunnarsson sálfræðingur veg og vanda af yfirumsjón með starfsSræðslunni. . Hann fór fyrstur manna að berjast fyiir ihenni hér og er nú farinn að •sjá nokkurn ávöxt baráttu sinn ar, þótt enn sé lan.gt í land að starfsíræðslan komist á það stig, er hún þarf að komast ÞRÖNG A ÞINGI Á T í M I N N miðvikudagur 27. febrúar 1963,

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.