Tíminn - 10.03.1963, Blaðsíða 1

Tíminn - 10.03.1963, Blaðsíða 1
59. tbl. — Sunnudagur 10. marz 1963 — 47. árg. SPARKAD? TK-Reykjavík, 9. marz. ÁTÖKIN innan SjálfstæSisflokks- ins I VestfjarSakjördæmi fara nú s harðnandi og er málið nú kom- ið á alvarlegt stlg. Eins og á'ður hefur verið greint frá hér í blaffinu halda Matthías Bjarnason og stuðningsmenn hans meirihlutavaldi yfir málgagni flokksins í kjördæminu, Vestur- iandi. Ritstjórinn, sem ráffinn hef- Í-W" ' 'v ' ' ÞORBERGUR ÞÓRÐARSON — fór hörðum orðum um framkvæmdirnar. ur verið að blaðinu og erindreki flokksins á Vestfjörffum, Högni Torfason, hefur ekki fengið að koma nærri blaðinu ennþá — ekki fengið aff skrifa staf í það. Matthí- as Bjarnason mun nú hafa náð algerum undirtökum í apparati flokksins á ísafirði og krefst hann þess að Kjartan J. Jóhannsson víki úr 2. sæti listans. Hót- ar Matthías því að. bjóða sig fram ufan flokks ef hann fái ekki sæt- ið. Gísli Jónsson, aldursforseti þings j ms, 74 ára, neitar að víkja úr 1. sætinu, en Sigurður Bjarnason ritstjóri frá Vigur krefst þess að fá efsta sætið. Talið er, að auðveldara verði að j fá Gísla til að fallast á aff víkja j af listanum, ef Kjartan J. Jóhanns son hefur áður dregiff sig til baka úr 2. sætinu. Þorvaldur Garðar, íiamkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins, otar og sínum tota pft- ir megni og eygir hann nú mögu- leika á þriðja sætinu. Líklegustu lausnina á þessum erfiðu framboðsvandamálum Sjálfstæðisflokksins í Veslfjarða kjördæmi telja menn því þessa: Þeir GMi Jónsson og Kjartan J. Jóhannsson hverfi báðir af list- anum. Sigurður Bjarnason verð- ur í efsta sæti, Matthías Bjarna- son í 2. sæti og Þorvaldur Garð- ar Kristjánsson í því þriðja. , Adsjubei, tengdasonur Krust- joffs og aðalritsjtóri Izvestia, hefur að undanförnu verið í heimsókn í Ítalíu ásamt konu sinni. A finimtudaginn gekk hann fyrir páfa og átti við hann einkaviðræður í meira en stund arfjórðung, og er sagt að vel hafi farið á með þeim. Margir halda, að þeir hafi rætt um hugsanlega heimsókn Krúst- joffs í páfagarð, enda sagði Jóhannes páfi við þetta tæki- færi, að kaþólska kirkjan væri hlutlaus í alþjóðamálum. Á myndinni, sem birtist hér, sjást þau Adsjubei ritstjóri og kona hans, dóttir Krústjoffs, standa fyrir frnman Péturskirkjuna í Róm. J RÓMANTÍKIN FL ÝR ÖRFIRISEY JK-Reykjavík, 9. marz. HIN GAMLA miöstöð reykvíkskrar rómantíkur, Örfirlsey, er ekkl leng ur líkleg til að vera ákvörðunar- staður borgarbúa á sunnudagsgöng- um. Hún er I þann veglnn að verða mlðstöð fiskiðnaðar Reykjavíkur. Verbúðirnar hafa smám saman verið að teygja sig út Grandann; fyrir löngu eru komnar þar smá- bátabryggjur, og ný togarabryggja er komin við Grandann, þar sem nú er verið að reisa risastóra skemmu. En það er skammt sið- an fiskiðnaðurinn náði fótfestu í ÖrfiriSey sjálfri. Þar er áætlað að tólf fiskvinnslustöðvar rísi á næstu árum, og er bygging tveggja þeirra komin vel á veg. ' Þetta eru húsin við Hólmabraut 2 og 4, én Hólmabraut nefnist gatan sunnan megin á eynni. Norð an megin heitir Örfirisbraut. Við þá götu verða sex fiskvinnslu- stöðvar eins og við Hólmabraut. Allar fi'skvinnslustöðvarnar verða með sama lagi, þau verða tvær hæðir og tæplega 1400 fermetrar að flatarmáli. í flestum þeirra verður stunduð jöfnum höndum fisk- og síldarvinnsla. Dr. Jakob Sigurðsson hefur þegar reist eina hæð af vinnslu- stöð sinni, og s<ömuleiðis Fisk- miðstöðin h.f., en það eru samtök 22 fisksala í bænum, sem ætla að hafa þar fiskmóttöku og fisknýt- ingu. Einar Sigurðsson útgerðar- maður á lóðarrétt á næstu lóð við Fiskmiðstöðina, Hólmabraut 6, fyrirtækið Sunnansíld h.f. verð ur á nr. 8 og Baldur Guðmundsson útgerðarmaður, sem á aflaskipið Guðmund Þórðarson, verður á nr. 10. Lóð nr. 12 er enn ekki ráð- stafað. Hinum megin hafa tvær lóðir verið festar. Við Örfirisbraut 1 verður Valtýr Þorsteinsson frá Akureyri og við nr. 3 verður Fri'ðrik Jörgensen stórkaupmað- ur, sem nú snýr sér æ meira að sjávarútveginum. Flestir þessir aðilar ætla að hefja Byggingar á þessu ári, og sumir þeirra ætla að hefja einhverja vinnslu þegar á árinu. Ekki eru allir jafn hrifnir af handaganginum í Örfgirisey. Þór- bergur Þórðarson rithöfundur er sennilega sá maður, sem þekktast ur er fyrir vináttu við Örfiris- ey gamla tímans. Er blaðið hafði tal af Þórbergi, var hann harð- orður um framkvæmdirnar þar. — Eg trúi því, að mennirnir, sem hafa eyðilagt þennan falleg- asta blett í nágrenni bæjarins, fari í verri staðinn eftir dauðann, sagði Þórbergur. Hann kvaðst næstum alveg hættur að fara í Framh. á bls. 15. UÐIIBARNI BÓ-Reykjavfk, 9. marz. UM KLUKKAN H f dag hringdl síminn aS Fossvogsbletti 39 vlð Bú- staðaveg. Húsfreyja svaraðl, en með an hún talaðl í sfmann komst son- ur hennar á öðru ári út úr húsinu. Sfm'talið varaði aðelns þrjár mfnút- ur, en þá hljóp konan út á eftlr drengnum. Hún fann hann slasað- an og meðvltundarlausan liggjandi á syðrl vegbrún vlð garðhliðlð hjá húsinu. Slysið var tilkynnt lögreglunni kl. 11,05. Kristmundur Sigurðsson í umferðardeild rannsóknarlög- reglunnar skýrði blaðinu frá at- burðinum á þessa leið: Slysadeild götulögreglunnar var komin á vettívang þegar Kristmund bar að. Drengurinn var þá á leið í ^ sjúkrabíl á slysavarðstofuna, og sá Kristmundur engin vegsum-. merki önnur en lítið barnsstígvél, sem lá utarlega á veginum sunnan megin nokkuð löngu vestar en drengurinn hafði legið. Þetta var stígvél af drengnum og sokkur- inn í því. Kristmundur ályktaði þegar, að bíllinn sem ók á dreng- inn, hefði verið á vesturleið, og hefði drengurinn kastast fram við höggið, Lögreglumenn sögðu Kristmundi, að hitt ■ stígvélið af drengnum hefði legið því nær fast hjá honum. Hvítabandið átti að taka við slösuðum til hádegis í dag, en Framh. á bls. 15. SéS vestur Örfirisey. Vinstra megin sjást fiskverkunarhús dr. Jakobs Sigurðssonar og Fiskmiðstöðvarinnar h.f. Þarna rísa tvaer húsaraðlr eftir eynnl endllann'-i. sex hús í hvorri röð. tLjósm.: TÍMINN-RE). I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.