Tíminn - 19.03.1963, Blaðsíða 1
ÚTLENDINGAR í FISKIÐNAÐ
SJÁ ALÞINGIS-
FRÉTTIR BLS. 6
LUMA
ER LJOSGJAFI
benzin eda diesel
Gullfoss brennur
ASils—Kaupmannahöfn, 18. marz.
í morgun kom upp eldur í Gull-
foss, þar sem hann liggur í þurrkví
hjá skipasmíSastöS Burmeister og
Wain í Kaupmannahöfn, og er meg
iniS af afturhluta skipsins gerónýtt.
Má búast viS aS viSgerS á því taki
marga mánuSi.
Eldurinn kom upp um klukkan
9 í morgun eftir íslenzkum tíma,
og breiddist hann afar ört út. —
Steig upp af skipinu mikill reykj-
armökkur, sem sýnilegur var um
alla Kristjánshöfn. Eldsvoðinn
vakti mikla athygli og umferðar-
stiflur mynduðust á þeim stöðum,
sem eldurinn var sjáanlegur frá,
þar eð fiölmenni stöðvaði bíla
sína til þess að horfa á eldinn. —
Lögreglan varð að kalla út' auka-
lið til ag koma reglu á umferðina.
Kristján Aðalsteinsson, skip-
stjóri á Gullfossi, skýrði Berling-
Framh. á bls. 15.
Tíminn fékkyþessa mynd símsenda frá Kaupmannahöfn. Skilyröi voru mjög slaem til sendingar. Þó er myndin
n teKKvpess
það skýr, að greinilega sést að um mikinn eld hefur verið að ræða, einkum í skut. Myndin er tekin skömmu eftir
að eldurinn gaus upp. (Pglfoto).
TYEIR í FLUGVÉL
TÝNAST í HAFI
MB-JK-Reykjavík, 18. marz.
Tveggja hreyfla flugvélar með
tveimur íslenzkum flugmönnum
hefur verlð saknað síðan snemma
i morgun. Flugvélin var yfir At-
lantshafi vestur af Labrador í
STEKÁN MAGNÚSSON
flugstjóri
Kanada á leiðinni frá Gander á
Nýfundnalandi til Narssarssuaq á
Grænlandi, síðast er fréttist af
hennl.
Þetta er ný fjögurra sæta
Piper Apache-flugvél, TF-AID,
ÞÓRÐUR ÚLFARSSON
flugmaður
sem flugfélagið Flugsýn hefur
keypt. Tveir starfsmenn Loft-
leiða, Stefán Magnússon flug-
stjóri og Þórður Úlfarsson flug
maður, flugu vélinni. Stefán er
36 ára gamall og er einn af
reyndustu flugstjórum Loft-
leiða og Þórður er 24 ára og
hefur starfað hjá Loftleiðum
í rúmlega tvö ár.
Þeir lögðu af stað frá Gand-
er klukkan hálfþrjú í nótt.
Síðan segir ekki af ferðum
þeirra fyrr en klukkan hálfátta
í morgun. Þá kölluðu þeir á
veðurathugunarskipið Bravo,
sem var staðsett á 56,5 gráðu
norðlægrar breiddar og 51
gráðu vestlægrar lengdar. Sögg
ust þeir eiga í erfiðleikum og
væru að missa flugið. Þeir kváð
ust vera í 35 mílna fjarlægð
frá skipinu, en báðu um rat-
sjárstaðarákvörðun. Hafa þeir
þá verið þremur stundarfjórð-
ungum á eftir áætlun. Veður-
athugunarskipið heyrði ekki
kall þeirra, en loftsk'eytastöðin
Lake Eon, sem er 140 mílur
suðvestur af Gaase á Labrador.
Þetta kort er af flugleiðlnni frá Gander á Nýfundnalandi yfir
Narssarssuaq á Grænlandi til íslands. Merkt er með krossl, þar
sem veðurathugunaskipið Bravo er staðsett. Flugmenn Piper-Apac-
he-vélarinnar sögðust vera 35 mílur frá skipinu, þegar sfðast heyrð-
ist frá þeim.
héyrði það og kom því áleiðis
til Bravo. Veðurathugunarskip
ið hóf þegar leitina og var kom
ið klukkan hálfellefu í morgun
á staðinn, sem flugmennimir
höfðu tilkynnt. Síðan hefur
Apache-vélarinnar verið leitað
ákaft, en árangurslaust.
Leitinni hefur verið stjórnað
frá Torbey á St. Johns og hafa
’þrjár bandarískar herflugvélar
leitað á svæðinu í allan dag.
Allar eru þær búnar ratsjám.
Um klukkan sjö í kvöld bættist
í hópinn Cloudmastervélin
Framhald á bls. 15.
T" i