Tíminn - 28.03.1963, Blaðsíða 2
I
t
Á FÖSTUDAGINN Var fór fram
keppni um heimsmeistaratitilinn í
fjaðurvigt milli heimsmeistarans,
Davey Moore, 29 ára gamals banda
rísks svertingja, og Kúbubúans
Sugar Ramos, sem er tvítugur að
aldri. Leiknum lauk á þann ó-
vænta hátt, að Moore var sleginn
niður í 10. lotu en fram til þess
tíma hafði hann heldur haft yfir-
höndina. Moore var hjálpað td
búningsherbergis síns og var þar
að ræða vig blaðamenn og fleiri,
er hann skyndilega leið út af. Var
hann þegar fluttur á sjúkrahús, en
komst ekki framar til meðvitundar
og lézt á sjukrahúsinu á mánudag
— nákvæmlega ári eftir, að annar
'heimsmeistari Paret hafði látizt af
völdum meiðsla, sem hann hlaut
í hringnum.
Myndirnar hér á síðunni sýna
þennan sorglega atburð. Á efstu
myndunum sést, þegar Ramos
slær Moore lokahögg leiksins, og
heimsmeistarinn hnígur út í kaðl-
ana. Högg Ramos hittir Moore á
hnakkann, en eftir leikinn úrskurð
uðu þrír læknar, að aðalorsök
þess, að Moore lézt hafi verið
slæmt högg, sem hann hlaut á
hnakkann, þegar hann skall á
kaðlana. Og á stærstu myndinni
tilkynnir hringdómarinn George
Latka, að Ramos sé orðinn heims
meistari, en það er skammt á milli meið'sli Moore. Hann hafði þá ver- leiður yfir atburðinum. Frú Moore um Moore Qg er það elzta að tala
gleði og sorgar, og sýnir hin tví- ið í sigurveizlu, en lét þegar hætta sagði að'eins: „Eg ásaka þig ekki við móður sína í síma. — (Ljós-
dálka myndin Ramos niðurbrotinn, henni. Hann flýtti sér á fund — þetta er vilji guðs“. Neðsta myndir: Polfoto).
þegar hann frétti um hin alvarlegu konu Moore, og sagðist vera mjög myndin sýnir fjögur af fimm börn
T í M I N N, fhnmtudagur 28. marz 1963. —