Tíminn - 29.03.1963, Qupperneq 16
\
YFI'RSTRIKAÐI hluti kortsins sýnir svæðið, sem blaðið veit um, að jarð skjálftans hefur orðið vart. Úrfellingin á jarðskjálftasvæðnu er birt á
forsfðu.
Jarðskjálftinn fannst
austur að Jökulsá á Brú
MB-IGÞ, Reykjavík, 28. marz.
TÍMINN spurðist frétta hjá frétta-
riturum sínum víða um land í gær
vegna jarðskjálftanna, sem hófust
kl. 23,17 í gærkveldi og hafa fund-
Izt allt fram á dag í dag, á svæðum,
skjálftans i Skagafirði, Utan Skaga-
fjarðarsvæðisins var fyrsti kippur
Inn að vísu a11 harður, en hvergi
hlauzt verulegt tjón af utan svæð-
islns, sem fjallað er um á forsíðu.
Suðaustanlands virðist fólk ekki
hafa orðið jarðskjálftanna vart. —
Eru nokkuð glöggar línur um
þetta, sem markast af Jökulsá á
Brú austanlands og Vik í Mýrdal
sunnanlands. Kortig hér að ofan
sýnir nokkurnveginn, hvaða lands-
hluti hefur sloppið við jarðskjálft-
ana, svo að fólk hefur ekki greint
neina hræringu.
ES-EGILSSTÖÐUM. — Jarðskjálft
ans varð ekki vart á Egilsstöðum.
Fréttaritari hafði samband við bæi
í Fellum og á Jökuldal. Á Helga-
felli í Fellum var fólk á fótum
um það leyti, sem jarðskjálftinn
var snarpastur, en þar fannst eng-
in hræring. Sömu sögu er að
segja frá Brekku í Fljótsdal. En í
Hjarðarhaga, sem er vestan Jök-
ulsár varð hans aftur á móti mik-
ið vart, þar færðist rúm úr stað.
Sömuleiðis varð vart við talsverðar
hræringar á Hákonarstöðum í Jök-
uldal.
KV-VOPNAFIRÐI. — Hér varð
ekki mikið vart við jarðskjálft-
anna, en þó fannst hann. Hans
varð miklu meira vart inni i sveit-
inni og þar fundust fleiri en einn
kippur.
ÞBKÓPASKERI. — Ekkert tjón
varð hér eða í Kelduhverfi af völd
um jarðskjálftans. Hér fundust
tveir kippir. Sá fyrrj :kl/ 23,17 og
var hann snarpur, en hinn síðari
kl. 23 23.
-Ti] marks um styrkleika fyrri
kippsins er það, að lóðunum í
lóðaklukku, sem hér er, sló sam-
an. í Öxnafirði og Kelduhverfi
fundust kippirnir rétt rúmlega tólf
á miðnætti.
Menn, sem voru staddir í sam-
komuhúsinu í Lundi í Öxnarfirði,
sáu á lofti salarins, að það var
eins og jarðskjálftinn gengi frá
norðri til suðurs.
í Skúlagarði stóð kona vig visk,
sem fullur var af vatni, en þó
mun hafa verið tveggja þumlunga
borð á honum, en vatnið gusaðist
upp úr vaskinum og út á borðið í
kring, þegar snarpari kippurinn
kom.
ÞJ-HÚSAVÍK. — Fyrsti kippurinn
og sá harðasti kom hér kl. 23,18.
Um tíu mínútum síðar komu tveir
kippir með örstuttu millibili en
miklu vægari en sá fyrsti. Kl. 24,02
kom aftur dálítið harðari kippur
og hálftíma síðar sá fimmti. Milli
þess sem jarðskjálftakippirnir
voru að koma fannst stundum væg-
ur titringur. Fyrsti kippurinn mun
hafa staðig yfir í'10-«-15 sekúnd-
ur.
Þeir, sem laust sváfu urðu varir
við smákipp af og til í nótLog
vart varð við þan nsíðari klukkan
átta í morgun. Hér er það álit
flestra að þetta sé mesti jarð-
'kjálfti. sem hér hefur fundizt síð-
an 1934. þegar hinn svokallaði
ÐalvikH"j'irðskjál|ti kom.
Fólk almennt hér á Húsavík tók
þessum atburðum rólega. Þeir, sem
voru háttaðir þegar ballið byrjaði
fóru ekki ' fætur 'r-imt var fyrsti
kippurinn svo harður að bækur
hrundu fram úr bókahillum og
einnig glermunir Á einu húsi hafa
komið fram sprungur.
BB-ÓFEIGSSTÖÐUM, — Hér varð
jarðskjálftans vart og fundust
nokkrir kippir. Ljós frá heimilis-
rafstöðvum blikkuðti, leirtau datt
úr hillum, vasar duttu og brotnuðu
og dynkir og brestir heyrðust.
ED-AKUREYRI. — Hér fannst
mjög snarpur kippur klukkan 23,
16 og annar minnj litlu síðar. —
Klukkan 23,54 fannst lítill kippur
en klukkan 23.59 allsnarpur. —
Fleiri smærri kippir fundust einn
ig. Fólk, sem var úti, sá göturnar
ganga í bylgjum. Munir, sem tæpt
stóðu í hillum, duttu niður, sömu-
leiðis myndir af veggjum, og allt
I gler og leirtau glamraði.
Þessu fylgdi svo dimmur og
þungur niður. Fólki varð víða
mjög byélt við og þusti út. Margir
fluttu sig niður í kjalara húsa
sinna eða höfðust við úti um
stund.
Eitthvað var um það, að fólk
fengi taugaáfall og veit ég tU þess
að læknis hefur verið vitjað til
nokkurra kvenna til að gefa þeim
róandi sprautur.
ÞV-HRÍSEY. — Hér fundust snarp
ir kippir og varg fólk allhrætt. —
Sumir höfðust við í kjöllurum
húsa sinna, það sem eftir var næt
ur. Klukkur stönzuðu og munir
færðust úr stað. Bátur var á leið
frá Akureyri til Hríseyjar. Urðu
skipverjar greinilega varir við
kippinn og lét skipstjóri stöðva
Framh á bls 15
Vaknaði
við vond
an draum
IGÞ-Reykjavík, 28. marz.
Ölxátur maður á Sauðár-
króki hafði nýlega hallað
sér á sitt glaða eyra, þegar
jarðskjálftinn byrjaði í gær
kvöldi. Hann hrökk upp með
andfælum eins og fleiri góð-
ir menn þar á staðnum, og
varð fyrst fyrir að bjarga
brjóstbirtunni, sem hann
hafði geymda í skáp í her-
berginu. Mátti það el$i
seinna vera, því að flaskan
var aö detta fram úr skápn-
um i hristingnum. Skalf nú
jörðin, en maðurinn sat að
brjóscbirtu sinni og kvað sig
einu gilda þótt björgin kloín
uðu. Þegar verstu hryðjurn-
ar voru gengnar um garð
hafði maðurinn sig á ról og
varð gengið út á götu. Vissi
hann ekki fyrr en hann var
kominn innan um torkenni-
legt íólk, sem virtist tilheyra
annarri öld. Manninum fór
ekki að lítast á blikuna.
Hann hafði vaknað við jarð
skjáltta hafði með naum-
indum bjargag brjóstbirtu
sinni og var nú kominn inn-
an um forfeður sína, að þvi
er virtist þarna á myrkri
nóti með dyn náttúruham-
fara i eyrum. En sannleikur
inn vsr sá að hann hafði rek
izt á hóp leikara, sem voru
að Koma af æfingu á fjalla
Eyvindi. sem verður sýndur
á Sauðárkróki á Sæluvik
unm og voru i búningum i
dag var mönum ag vonum
tíðræít um jarðskjálftann a
Sauöáikróki, og sá ölkáti
bætti við sögunnj af hinm
dularfullu reynslu sinni. fcj
Sumir háhýsahúar urðu skelk-
aðir — aðrir urðu ekki varir
GB-Rc-yKjavík, 28. marz.
Það gekk á ýmsu í háhýsun-
um hér í Reykjavík, en vegna
hæðar þessara húsa, er ekki
nema eðiilegt að þar hafi jarð-
skjálftans gætt mest, a.m.k. á
efstu hæðunum.
í dag hitti fréttamaður blaðs
ins fru að máli, sem býr á
þrettándu hæð í Sólheimum 23,
og þegai hún var spurð hvort
hún vær, búin að ná sér, svar
aði hún
— Hvcrt ég er búin að ná
mér? Eg var bar steinsofandi
og haíði ekki hpgmynd um
neitt fyrr en maðurinn minn
vakti mig nokkru eftir að hann
kom úr vinnu. Hann var nýkom
inn int, og rétt varð var við
einhvert skruðning og hrær
ingu en gerði sér ekki ljóst,
hvað þelta var, hélt að það
væru smiðirnir að vinna að
samkomi'salnum hérna á hæð-
inni. Það var nú allt og sumt
En fyrir allar aldir í morgun
hringdi hún mamma sunnan
úr Hafnarfirði til að vita, hvort
nokkuð hefði komið fyrir hjá
okkur. því að það hefði oltið
fram úr rúminu, svo að eitt-
hvað heíur gengið á í Firðin
um, úr hvl að mamma þeyttist
fram út rúminu. hún sem er
bæði stó.r og feit.
Maður < næsta skýjakljúf,
Sólheimum 27, sagði:
— Þetta hús er nú þannig
byggt, kdiiinn minn. veggirntr
þéttriðnu járnum einmitt tiJ
að þola o'na mestu jarðskjálfta.
Eg var giaðvakandi og sat við
skrifborðið mitt og rétt fann
einhvern smáskítlegan titring,
og það er ekki orð á því ger-
andi.
Húsvörðurinn bætti við: —
Tveir unglingar hér'uppi á hæð
unum stóðu á því fastar en fót
unum, að þeir hefðu oltið fram
úr rúmunum. Annars varð ég
ekki var við neina óeðlilega um
ferg eða hræðslu hjá íbúunum.
Veitingaþjónn á Hótel Sögu
var staddur hjá húsverðinum.
Hann sagði: — Það gekk áreið-
anlega meira á úti á Hótel
Sögu. Þa? var fullur veitingasal
urinn á áttundu hæð, allir
þustu app frá borðunum, konur
af ýmsum þjóðum íandi og
Framh a bls lð.
ssn
J
i
/