Tíminn - 06.04.1963, Blaðsíða 5
|; íþrc ITTIR Ifalll Ml.ll ■ . í: 11111 ÍÞRÚTTIR 111 |1
KR leikur
þrjá leiki
í Danmörku
f íyrradag skýrðu dönsku blöðin
PolUiken og Aktuelt írá fyrirhug-
uðu keppnisferðalagi KR-inga til
Dánmerkur á sumri komanda á
vigum SBU — sjálenzka knatt-
spyrnusambandsins — en eins og ;
kunnugt er kom úrvalslið frá sam s
bandinu hingag til lands í fyrra
sumar og lék nokkra leiki hér.
Blöðin skýra frá því, að KR
muni leika þrjá leiki ytra — að
öllum líkindum um mánaðarmótin
júlí—ágúst — en ekki sé enn þá
ákveðið hvaða lig það verði, sem
KR mætir. Þó er talað um fjögur
lið í þessu sambandi, sem öll
koma til greina en þag eru AB —
1. deildarlið — og Lyngby, Hol-
bæk og Hilleröd.
Eins og skýrt var frá hér í blað
inu á sínum tíma, hafa KR-ingar
tekið flugvél á leigu til utanfarar-
innar og munu 2. og 3. flokkur fé
lagsins verða samferða meistara-
flokknum út, en 3. flokkur leikur
í Danmörku og 2. flokkur að öll-
um líkindum í Svíþjóð.
RITSTJÓRI HALLUR SÍMONARSON
! ^ Hástökkvarinn heimsfrægi, Rússinn Valery Brumel, er miög Iið-
tækur i fleiiri greihum frjálsra íþrótta en hástökki. Á innanliússmóti
í Leningrad nýlega náði hann 5873 stigum í sex grelnum — sem
| er bezti árangur, sem náð'st hefur. Sérfræðingar telja mjög líklegt,
ag Brumel gæti með smáæfingu í nokkrum greinum bætt heims-
| metið í tugþraut verulega. Á myndinnii sést Brumel varpa kúlu og
náði 14.61 metra — en hann hefur nokkrum sinnum varpað yfir
15 metra. (Ljósm.: TASS).
Lokahelgi handknaiileiksmótsins:
U rslit aleikir
ogfallbarátta
í dag. -17
íslandsmótið í bridge hefstj á landsmótinu spilað í tveim-
í dag kl. tvö í Skátaheimilinu ur flokkum, landsliðsflokki og
og stendur fram á 2. í pásk- meistaraflokki, 64 spil í leik
um. Fyrst verður spiluð sveita í landsliðsflokkum, en 40 í
keppni og er nú í fyrsta skipti meistaraflokknum.
Eftir helgina varpa hand
knattleiksmenn okkar önd-
inni léttara og leggja skóna á
hilluna í bili, en um helgina
lýkur löngu og viðburðaríku
keppnistímabili þeirra, sem
staðið hefur yfir nær sleitu-
laust frá því í október. — Satt
að segja er maður ekki al-
mennilega farinn að átta sig
á því, að keppnistímabilinu
sé að Ijúka — en hlaupandi
knattspyrnumenn um allar
jarðir og hækkandi sól tala
sínu máli — vetur konungur
er að kveðja og þá um leið
handknattleikurinn.
í fyrsta skipti í mörg ár, skeður
það nú, ag síðasti leikurinn í 1.
deild hefur enga úrslitaþýðingu —
Fram hefur tryggt sér titilinn fyr-
j ir leikinn við FH á sunnudaginn
j — og að sjálfsögðu má búast við að
töflunni, og reynt að útskýra spil- j spenningurinn, sem jafnan hefur
in eftir föngum. ríkt er þessir aðilar mætast, sé
fyrir bragðig rokinn út í veður os
vind. En til að bæta mönnum þetta
upp, verður háður á sunnudaginn
annar leikur í 1. deild — milli
KR og Þróttar — um fallsætið,
sem verður örugglega baráttuleik
ur.
Annars kemur unga fólkið til
Framhald á 15. síðu.
AGF vann
alla leikina
Danska knattspyrnuliðið AGF,
sem undanfarig hefur verið í
keppnisferðalagi í Bandaríkjunum
sigraði á miðvikudaginn banda-
rísku meistarana New York Hunga
ria með 3—1, eftir að hafa haft
yfir í hálfleik 1—0. — Þetta er
áttundi leikur AGF í förinni og
er ekki hægt að segja annað en
liðinu hafi vegnað vel, því það
kemur ósigrað til baka og hefur
unnið alla átta leikina.
Gisli Halldórsson, forseti ÍSÍ
í fréttatilkynningu frá orðurit-
ara segir, að hinn 29. marz s. 1.
hafi forseti íslands sæmt forseta
ÍSÍ, Gísla Halldórsson, arkitekt,
riddarakrossi fálkaorðunnar fyrir
slörf hans í þágu íþróttahreyfing-
arinnar. — Gisli hefur í áratugi
unnið íslenzku íþróttahreyfingunni
mikig og óeigingjarnt starf —
hann hefur um árabil verið for-
maður íþróttabandalags Reykjavk
ur og var á sl. ári kosinn forseti
ÍSÍ.
Þær sex sveitir, sem rétt hafa
til að spila í landsliðsflokki, eru
sveitir Einars Þorfinnssónar, Agn
ars Jörgenssonar, Brands Brynj-
ólfssonar og Þóris Sigurðssonar
frá Bridgefélagi Reykjavíkur, sveit
Laufeyjar Þorgeirsdóttur frá
Bridgefélagi kvenna, og sveit Jóns
Magnússonar frá Tafl- og bridge-
klúbbnum.
í 1. umferðinni, sem hefst kl. 2
í dag, spila þessar sveitir saman
í landsliðsflokknum. Jón og Þórir,
Agnar og Ólafur, Einar og Laufey.
í meistaraflokki spila 11 sveitir,
átta frá Reykjavík, ein frá Akur-
eyri (Mikhaels Jónssonar), ein
frá Hafnarfirði og ein frá Kópa-
vogi. Sveitakeppnin stendur fram
á skírdag. f kvöld verður einnig
spilað, allan sunnudaginn, mánu-
dagskvöld, þriðjudagskvöld, allan
miðvikudaginn og ein umferð á
skírdag.
Á laugardag hefst fslandsmótið
í tvímenningskeppni og verður
þar einnig spilað í tveimur flokk
um, landsliðs- og meistaraflokki. í
landsliðsflokknum verður baró-
meterkeppni; í meistaraflokki
venjuleg^ tvímenningskeppni. Nú-
verandi fslandsmeistarar eru Egg-
ert Benónýsson og Þórir Sigurðs-
son
í sambandi við íslandsmótið
verða leikirnir sýndir á sýningar-
Landskeppni ísland — U-Noregur
KEPPNIN VERÐUR I ÁLA-
6.-7. ÁGÚST N. K.
Á norræna frjálsíþróttaþing-
inu í nóv. s.l. hófust viðræður
milli norska og íslenzka frjáls
(íþróttasambandsins um mögu-
leika á að taka upp samskipti
á ný milli íslamss og Noregs á
sviði frjálsíþrótta. Töldu full-
trúar íslands ekki koma til
greina annað en keppni milli
Vestur-Noregs og íslands, þar
sem styrkleikahlutföll eru svip
uð þarna á milli.
Síðan í haust hafa norska og
íslenzka frjálsíþróttasambandið
staðið í bréfaskiptum varðandi
þetta mál og hafa samningar
tekizt á gagnkvæmum grund-
velli þannig, að íslenzka lands-
liðið mun fara utan og mæta
landsiiði Vestur-Noregs í Ále-
sund dagana 6. og 7. ágúst n.k.
Norska landsliðið mætir íslend
ingum síðan í Reykjavík 1964.
Það land sem sér um fram-
kvæmd landskeppninnar i
hvert sinn sér um uppihald allt
að 35 manna hóps í fjóra daga
og greiðir ákveðna fjárupphæð
jafnháa í hvort skiptl í ferða
styrk til þeirrar þjóðar, sem
ekki keppir á heimalandinu.
Stjóm FRÍ ákvað að ganga
til endanlegra sámninga um
þessi samskipti, þar sem fjár-
hagslegur grundvöllur virðist
tryggur, þó þannig aðeins, að
landslið fslendinga verði ekki
fjölmennara en 23—24 kepp-
endur. enda þykir sýnt. að slík
ur hópur fullskipi landsliðið.
Áætlað er, að landsliðið fljúgi
utan 3. ágúst og mæti keppend
um íslands á Norðurlandameist
aramótinu í Osló þann sama
dag og haldi því næst áfram til
Álasunds.
Þar sem dagarnir 6. og 7.
ágúst voru einu dagar sumars-
ins, sem hægt var að ná sam-
komulagi um fyrir landskeppn
ina, mun íslandsmeistaramótið
færast aftur til daganna 12. og
14. ágúst í stað 10.—12. ágúst.
Heimkoman verður 9. ágúst.
Samkvæmt afrekum 1962 þá
er 10 stiga munur á heildarút-
komu stigaútreiknings þjóð-
anna, Norðmönnum í vil. Er
því sýnt. að í keppnin verð
ur mjög tvísýn og jöfn.
T í MIN N , Iaugardaginn 6. apríl 1963
5