Tíminn - 11.05.1963, Síða 6

Tíminn - 11.05.1963, Síða 6
 Sigurður Einarsson Fæddur í fátækt og umkomu- loysi, en vel gefinn og viljasterk- ur; hamrammur um afl og afköst í starfi; efnaðist vel og varð stór- bóndi; galt sveit sinni og samfélagi drjúgan hlut, mikinn í áskildum kvöðum, meiri í mannvænum af- komendum, hvers manns ljúfling- ur og hverjum manni vinsælli — svona var Sigurður á Hjaltastöð- um. Útför hans var gerö í gær frá Flugumýrarkirkju að viðstöddu miklu fjölmenni. Hann var jarð- sungínn af héraðsprófastinum, sr. Birni Bjömssyni á Hólum í Hjalta- dal. „Allrar veraldar vegur víkur að sama punkti" — og tjóar ekki um að fást. En sjónarsviptir er að því- líkum mönnum og sveitin eyð'ilegri eftir. Verður jafnan svo að góð- um mönnum gegnum, þótt yfir hemi furðu fljótt og maður komi í manns stað. Þetta er hið líkn- sama lögmál mannlegs lífs. Sigurður Einarsson var fæddur að Asgeirsbrekku í Viðvíkursveit 4. dag septembermánaðar 1890. — Var faðir hans Einar Guðmunds- son, vinnumaður í Hofsstaðaseli, en móðir Oddný Sigurðardóttir bónda í Gilhagaseli, Sigurðssonaf. Ekki voru þau gift. Var Sigurður á hrakhólum með móður sinni fá- tækri fyrstu árin, en fluttist með henni ungur að Stokkhólma í Akra hreppi til Péturs Andréssonar, er þar bjó með aldraðri móður sinni, Herdísí Pálmadóttur frá Syðra- Vallholti, systur Péturs í Valadal. Tók Herdís hann í fóstur er móðir hans lézt, en þá var hann 10 ára. Pétur í Stokkhólma var einkenni- legur maður um margt, einrænn r.okkuð og ómannblendinn og eng- in: veifiskati, sjálfstæður um alla hluti, greindur vel og tryggðatröll. Hann átti stóðhross mörg og reið- hesbakyn gott, enda frábær hesta maður sem þeir frændur fleiri fr^ Valadal Getur og varla hentara land til að hðka gæðinga en á víð- um völlum allt í kringum Stokk- hólma. Þar átti Sigui'ður eftir að spretta úr spori seinna meir, er hann sjálfur eignaðist margt hrossa. Þar í Stokkhólma ólst Sigurður upp til 17 ára aldurs. Hann batt tryggð við þessa jörð og þau mæðg dn, Herdfsi og Pétur. Það var gagn kvæm tryggð. Næstu áiún var hann í vinnumennsku á nágranna bæjunum í Blönduhlíð, austan Héraðsvatna, lengstum á Mikla- bæ og Hróiísstöðum. Varð af ævj- löng vinátta með honum og þeim Miklabæjarsystkinum, börnum sr. Bjöms prófasts og frú Guðfinnu. Á þeim árum var hann tvo vetur við nám í Hvítárbakkaskóla og bjó að vel og lengi. Árið 1917 kvæntist Sigurður Margréti Þorsteinsdóttur bónda og smiðs á Hjaltastöðum í Blöndu- hlíð, Hannessonar, og konu hans JÓrunnar Andrésdóttur, alsystur Péturs í Stokkhólma. Reyndist Margrét, sem er mikil greindar- og gæðakona, manni sínum hin ágæt- asta eiginkona. Þau ungu hjónin reistu þegar bú á Hjaltastöðum, í sambýli við Jórunni, móður Mar- grétar, er jr isst hafði mann sinn árið 1910, og bjuggu þar til 1919, þá í Flugua ýrarhvammi til 1921. Það ár lézt Pétur í Stokkhólma, ókvæntur og barnlaus. Þangað fluttu þau, Sigurður og Margrét, keyptu jörðina og bjuggu þar sam fieytt í 20 ár. Arið 1941 keyptu þau Hjaltastaði (að % hlutum, lA hluti jarðarinnar var og er eign Herdísar, alsystur Margrétar, sem jafnan hefur dvalizt með systur sinni og þí'.m hjónum) og fluttu þangað búferlum, en höfðu Stokk- hólma með fyrstu árin. Á höfuð- bólinu Hjaltastöðum bjuggu þau hjón óslitið unz Sigurður lézt hinn 16. apríl s.l. Sigurður bjó lengstum stóru búi, bæði í Sítilfkhólma og’ á' Újaltá- stöðum, en heflaði seglin hin síð- ústu árih, endá farinn að heilsu og örþreyttur af ævilöngu striti, en synirnir, ungir og röskir, reiðu búnir að taka við af öldruðum for eldrum — rg tekst ekki alltaf svo giftusamlega til. Börn þeirra hjóna eru sex, fimm synir og dóttir ein. Eru þau þessi, talin í aldursröð: Þorsteinn, bóndi í Hjaltastaða- hvammi, kvæntur Sigríði Márus- dóttur. Pétur, bóndi á Hjaltastöð- um, kvæntui Ragnheiði Þórarins- dóttur. Hjalti bóndi á Hjaltastöð- um, kvæntur Ingibjörgu Kristjáns dóttur, Leifur, jáinsmiður í Reykjavík, kvæntur Fríðu Elías- dóttur, Halldór, gullsmiður í Reykjavík og bóndi í Stokkhólma, kvæntur Fygeiði Bjamfreðsdótt- ur. Jóiunn, húsfreyja á Frosta- stöðum, gift Frosta Gíslasyni. Sigurður á Hjaltastöðum var maður mikillar gerðar um flesta hluti. Fölur var hann yfirlitum og grannholda, stórskorinn nokkuð og rúnum ristur og þó vel faiinn í andliti, sviphýr og hlýr í viðmóti; mikill á vöxt, óvenju herðabreið- ur og lítið eitt lotinn í herðum; írábær eljumaður og féll aldrei verk úr Jiendi; afburðamaður um 1 afl og atorku, enda gekk svo und-1 an honum einum, sem tveir eða fleiri væru að verki. Hann var hlé- orægur, manna stilltastur, hægur í fasi, geðljúfur og þó geðfastur, leitaði aldrei á aðra, en lét ekki Leldur un'dan fallast. ef á hann var sótt. Enda þót.t Sigurður Einarsson væri oftar en hitt alvarlegur í bragði, var hann þó undir niðri gleð'imaður og undi sér vel á gleði mótum, gat þá verið hrókur alls fagnaðar. Hann var ágætlega j gi'eindur, skáldmæltur vel en flík aði litt, launfyndinn og skemmti- lega glettinr. brá þá fyrir glampa í auga og gðhlýju brosi á vör. Hann hugsaði mikið um sam- félagsmál, nafði sjálfur fyrir því að brjóta hvert mál til mergjar, en lét ekki aðra hugsa fyrir sig. Hann var íélagshyggjumaður og umbóta, einlægur samvinnumaður, skipaði sér jafnan þar í sveit, sem oetur gegnir og horft er lengra en rétt um iætur fram. Hann var mikill manndómsmaður og mann- kosta. Þess vildi ég óska íslenzkri bændastétt, að þar mætti ávallt hvert rúm vera skipað jafn völdum manni og Sigurður Einarsson var. Sigurður á Hjaltastöð'um var hamingjumaður. Hann var búinn mkilum og góðum hæfileikum og neytti þeirra sjálfum sér og sam- félaginu tii heilla. Hann eignað- ist góða konu og góð börn — og búnaðist ágætlega. Hann átti hvers manns vináttu, þess er honum kynntist, engan óvildarmann. Eg held að hann hafi dáið sáttur við Guð, sáttur við alla menn. Slíkra er gott að minnast. Við hjónin og fjölskyldur okkar vottum Margréti á Hjaltastöðum og öllum vandamönnum þeirra hjóna einlæga samúð. 1. maí 1963. Gísli Magnússon Efni til umhuesunar Einstaka sinnum gefa blaða- menn og ritstjórar, með skrif- um sínum, kaupfélagsfólkinu í landinu efni til umhugsunar. Ekki er það vegna þess, að hin ir pennaglöðu menn séu að skýra og útlista eðli og tilgang sainvinnufélaganna, né benda á nytsemi þeirra fyrir þjóðina, með örfáum undantekningum. Ekki heldur vegna þess, að þeir með rökum bendi á vanmátt þeirra eða ókosti. Venjan er sú, að þeir slá fram fullyrðing- um, og stundum dylgjum, um þessi gagnlegu félög, byggðum á fullkomnu skilningsleysi og stundum fjandskap. Þetta má vera kaupfélagsmönnum hvatn ing og bending í þá átt, að full þörf sé á að þeir standi vörð um félög sín, útskýri á viðeig- andi hátt málstað þeirra og glöggvi sig sjálfir, svo sem verð'a má, á hlutverki þeirra og réttarstöðu. Nú síðast hefur kaupfélags- fólkið verið rækilega á þetta minnt með frekjufullum kröf- um eins af dagblöðum höfuð- boigarinnar um það, að sam- band kaupfélaganna, SÍS, fremdi trúnaðarbrot og birti opinberlega reikninga all- margra kaupfélagsfyrirtækja, vegna þess að félögin og fyrir- tækin væru „almenningseign" og „almenningur" ætti heimt- ingu á að vita allt, sem máli skiptir úr reikningum þeirra. Nú mun ef til vill einhverjum finnast, að hér sé um ómerki- legt mái að ræða, en svo er ekki. Hér er um grundvallar- atriði að ræða, sem sé það, hvort félógin eru frjáls félags- skapur frjálsra manna, sem lýt- ur lögum þjóðfélagsins í einu og öllu, en hinir og aðrir menn, utan feiaganna, eiga engan kröfurétt á um einkamál, frem ur en á önnur félög og fyrir- tæki, sem einnig starfa sam- kvæmt landslögum. Þetta er áríðandi að kaupfélagsfólkið, hvar í fk'kki sem það stendur, geri sér og öðrum ijóst. Hitt er svo annað mál, að það er broslegt, að ætla lands mönnum að trúa því, að reikn ingar kaupfélaganna séu ein- hvers konar leyniskjöl, sem feli þýðingarmiklar upplýsingar fyrir landsföðurlegum stjórn- málaforingjum. Nú standa yfir aðalfundir kaupfélaga víða um land. Frétt- ir af þeim fundum eru sagðar í útvarpi og birtar í blöðum. Mörg félög gefa út prentaðar eða fjölntaðar ársskýrslur. Þau gera félagsmönnum sínum glögga grein fyrir rekstri og allri afkomu. Hér er ekki um nein leyniskjöl að ræða og mættu ýmis önnur fél'ög og fyrir tæki tasa kaupfélögin sér til fyrirmyndar í þessum efnum. En þetta breytir engu um það, að kaupfélögin eru ekki „almenmr.gseign“ og Samband inu ber ekki skylda til að birta reikninga þeirra. Það væri æskilegt að trúnað armenn samvinnufélaganna fengju að hafa vinnufrið fyrir þess háttar kröfum. — PHJ. 3 Akranesi Verkamenn óskast til lengri tíma. — Upplýsinga.’ í Áhaldahúsi Vegagegerðar ríkisins, Borgartúni 5. Sími 12808 Sunnudag 12. mal og 19. mai 1963. 12. MAÍ KL. 10,30: S t ú I k u r : Blma Sólveig Lúkasdóttir, Jaffars- braut 33. Drlfa Garðarsdóttir, Stekkjarholti 22. Elísabet Árnadóttir, Brekkubraut-11. Ellsabet Guðmunda Alfreffsdóttir, Vesturgötu 146. Elsa Halldórsdóttir, Suffurgötu 118. Emilía Líndal Ólafsdóttir, Suffurg. 48. Erla Þórdís Ámadóttir, Sunnubr. 21. Eygló Gisladóttir, Vesturg. 153. Guðlaug Magnúsdóttir, 'Suffurg. 109. Guðlaug Sigríður Ólafsdóttir, Akurgerði 4. Guðmunda Björg Sigurðardóttir, Vesturgötu 159. Guffný Aðalgeirsdóttir, Sikagabr. 24. Guðný Ársælsdóttir, Brékkubr. 10. Guðrún Helga Siguröardóttir, Heiðarbraut 21. Petrea Ingibjörg Jónsdóttir, Vesturgötu 41. Þóra Emilía Ármannsdóttir, | Sóleyjargötu 10. Drenglr: Arnór Pétursson, Kirkjubraut 56. Árni Ingi Garðarsson, Bjarkarg. 16. Árni Sigurður Árnason, Suðurg. 16. Baldur Gíslason, Akurgerði 10. Birgir Þór Guðmundsson, Stillh. 9. Björgvin Vinjar Sigurðsson, Laugarbraut 9. Björn Halldórs Tryggvason, Höfðabraut 6. Björn Stefán Hallsson, Brekkubr. 13. Bragi Þór Sigurdórss., Brokkubr. 27. Einar Þórarinsson, Heiðarbraut 31, Eirfkur Bó Eiriksson, Kirkjubr. 11. Grétar Einarsson, Brekkubr. 16. Guðjón Jóhannesson, Skólabr. 28. . Guðmundur Guðmundsson, Vesturgötu 71. Guðni Björgúlfsson, ICirkjubraut 25. Halldór Sigurjónsson, Háholti 10. Jón Ágúst Gunnlaugsson, Laugarb. 5. 12. MAI KL. 2: Stúlkur: Guðrún Jónína Magnúsdóttir, Vallholti 7. Guðrún Hrólfsdóttir, Skólabr. 20. Guðrún Magndís Sigurðardóttir, Kirkjubraut 36. Guðrún Hólm Snorradóttir, Mánabraut 11. Gyða Maja Guðjónsdóttir, Akurgerði 10. Helga Viðarsdóttir, Vesturg. 65. Jórunn Guðmundsdóttir, Vallholti 13. Margrét Arnbjörg Guðmundsdóttir, Stekkjarholti 20. Margrét Jónsdóttir, Skólabraut 2. Sigrún Korts Óskarsdóttir, Stilih. 1. Soffía Gunnlaug Þórðardóttir, Skólabraut 23. Þuríður Georgsdóttir, Vesturg. 78B. Drenglr: Guðjón Guðmundsson, Vesturg. 63. Hallgrímur Hallgrímsson, Deildart 3. Hannes Oddsson, Vesturg. 19. Helgi Kristján Gunnarsson, Stillholti 15. Hjörtur Gunnarsson, Höfðabraut 1. Hlöðver Örn Ólason, Vesturg. 143. Hörður Ragnarsson, Sunnubraut 12. Ingi Þórir Gunnarsson, Vesturg. 111. Ingólfur Freysson Geirdal, Presthúsabraut 23. Jónas Bragi Hallgrímsson, Bjarkargmnd 9. Kristinn Þorsteinn Bjarnason, Suðurgötu 90. Sigurður Eðvarð Arnórsson, Kirkjubraut 5. Valur Norðfjörð Gunnlaugsson, Vesturgötu 123. 19. MAf KL. 10,30: Stúlkur: Ingibjörg Guðjónsdóttir, Arkarlæk. Jóhanna Einarsdóttir, Háholti 9. Jóhanna Margrét Einarsdóttir, Vestmann, Vesturgötu 97. Katrín Vestmann Þóroddsdóttir, Bekansstöðum. Kolbrún Kristjánsdóttir, Suðurg. 72. Kristbjörg Ásmundsdóttir, Víðigerði 1. Lovísa Jónsdóttir, Stillholti 7. María Friðrika Haraldsdóttir, Vogabraut 3. Ragnheiður Ríkharðsdóttir, Brekku- braut 7. Rut Vestmann Bjarnadóttir, Bjarkargrund 3. Sigrún Guðjónsdóttir, Litlateig 2. Sigríður Kristín Kristinsdóttir, Skagabraut 31. Sigurjóna Valdimarsdóttir, Krókatúni 16. Svava Jakobsdóttir, Vesturg. 115. Vigdís Jóhannsdóttir, Vesturg. 95. Þóra Sigríður Gunnlaugsdóttir, Sandabraut 4. D r e n g I r : Haraldur Sturlaugsson, Vesturg. 32. Hjálmar Geir Hjálmsson,, Vesturgötu 113. Jón Alfreðsson, Suðurgötu 28. Jón Már Jónsson, Vesturgötu 142. Kári Geirlaugsson, Heiðarbraut 7. Kristinn Guðmundsson, Sunnubr. 17. Kristján Pétur Guðnason, Suðurg. 57. Kristján Sveinsson, Jaðarsbr. 3. Maggi Guðjón Ingólfsson, Brekkubraut 17. Magnús Margeir Gíslason, Stekkjarholti 2. Matthías Garðarsson, Skagabr. 4. Reynir Már Samúelsson, Suðurg. 17. Rúnar Bjarni Jóhannsson, Akurg. 22. Teitur Stefánsson, Sóleyjargötu 6. Valdimar Hallgrímsson, Skólabr. 8. Valdimar Lárusson, Heiðarbraut 34. Framh. á bls. 15. T í M I N N , laugardaginn 11. maí 1963 — 6

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.