Tíminn - 11.05.1963, Page 8

Tíminn - 11.05.1963, Page 8
Dr. Benjamín Eiríksson: Rétt mat á sögu og samtíi er Kæri hr. ritstjóri! Erindi m;tt við' yður er að biðja yður að birta nokkrar athuga- semdir við bi'éf dr. med. Bjarna Jónssonar tii yðar. Mér bárust tvö blöð sama daginn, Þjóðviljinn og New York Times, með greinum sem vikja að rómversk-kaþólsku kirkjunni. Eg reyni að vera stutt- orður. Erindi mitt um Skálholt hefir nú birzt serprentað. Engum, sem les það getur dulizt að tilgangur- ínn með því að víkja að f jármálum trúboðsins er eingöngu sá, að sýna fnam á velvild og umburðarlyndi hinna íslenzku mótmaélenda gagn vart starfsemi trúboðsins, en ekki sá að gagnrýna þá framkomu, né að halda því fram að spítali þessi sé rekinn í ábataskyni. Dr. Bjami segir ósatt. í erindinu er tvennt gagnrýnt: fáfræði margra landa minna í sögu þjóðar sinnar og kirkju og svo ó- sæmandi framkoma trúboðsins gagnvart þjóðlegum verðmætum okkar í skjóli velvildar þeirrar, sem því hetir verið sýnd. Sú vel- vild er sérstaklega áberandi þeg- ar tillit er .tekið til hlutskiptis trúboðs mótmælenda í kaþólskum löndum. Dr. Bjarni takmarkar bréf sitt við tvennt: fómfúst starf St. Jósefs systra og fjárhagslegt gildi þess íyrir þjóði.na. Hvort tveggja er rétt mat, en þó langt frá því að vera einhlítt. Þegar Landakots- spítali var reistur strax upp úr aldamótunum hurfu íslendingar „frá því ráði að sinni“ að byggja eigin spítala. Frásögn svipaðs eðl- is er í ævisógu séra Áma Þóraiins- sonar um spítalabygginguna í Svar til dr. med. Bjarna Jónssonar Stykkishólmi. Áhrif svona hjálpar eru því exki alltaf aðeins góð. Bygging kaþólska spítalans dró úr framtaki íslendinga sjálfra. Nú á dögum vilja hinar vanþróuðu þjóð- ir helzt eklii svona hjálp. Og Norð- urlandaþjóð’mar ætla að miða hjálp sína til þessara þjóða, við þá afstöðu. Einu sinni hjálpuðu Norðmenn og síðar Danir okkur íslendingum með því að taka að sér verzlun okkar. Afleiðingamar fyrir okkur urðu örlagaríkar. Það er mikill vandi að hjálpa öðrum ; svo vel fari. Mér er farið eins og dr. Bjama, : ég dáist að þeim sem vinna mann úðarstörf, eins og systumar gera. Sumir gera þetta af því að þeir elska guð. Aðrir gera þetta af því að þeir elska mennina. Enn aðrir gera þetta af því að þeir elska guð í inanninum, og sá grand völlur er vist erfiðastur. Eg held að systumar myndu ekki vilja að starf þeirra væri kallag strit. Nákvæmur lestur skrifa dr. Bjama sýmr, að hann fullyrðir ekki að þjónusta spítalans sé eins góð og annarra spítala, þótt hann noti orðalag, sem í fyrstu virðist eiga að gefa það til kynna. En þessu máli hreyfði ég alls ekki í erindi mínu. f Danmörku var rekstri kaþólskra spítala breytt um 1935, þannig að állir kaþólskir spitalar þar .í landi era síðan rekn ir á sama grandvelli og spítalar ríkis og sveitarfélaga, þar með talin öll þjónusta hjúkranarliðs og lækna. í sambar.di við bréf dr. Bjarna datt mér í hug smásaga, sem ég las fyrir stuttu. Hún er á þessa íeið: Indvetji nokkur kom þar sem menn voru að vinna. Hann spurði þann fyrsta hvað hann væri að gera Bera grjót, svaraði hann. Annar svaraði sömu spumingu: ég er að byggja hús Hinn þiiðji svaraði: ég er að byggja musteri. Við skulum segja að trúboðið sé að bygg]a hús. Hvers konar hús? Dr. Bjarni myndi svara á þá leið að sér kæmi það ekki við, systumar eru góðar manneskjur. En amnar kynni ag spyrja: er verið að byggja veggi eða múra, sem kljúfa þjóðina, eða jafnvel and- legt fangelsi? Þýzka þjóðin skipt- ist í tvo ámóta hópa: mótmælend ur og kaþólikka. Munur á lífsskoð unum, mati á manninum og þjóð- félagsverðmætum, er þar ótrúlega mikill. Útkoman er ag sú þjóð- orleifð, sem Þjóðverjar eiga sam- eiginlega, er oft hlutir, sem í okk ar augum e-ru hvað minnst girni legir til eignar. Enda hafa Þjóð- verjar nútímans ekki verið far- sæl þjóð. Mér kemur trúboðig ekkert við, á þessa leið skrifar dr. Bjarni. En einhverjum kemur það við, sjálf- sagt öðram En í þjóðfélagsmálum uppgötva menn fyrr eða síðar hverjir era aðrir, hverjir eru hin- ir. Við eram ævinlega hinir. Þess vegna þarf að athuga hvað hlut- skipti hinurn er ætlað, ekki síður en okkur. * Hvar sem rómvei'sk-kaþólska kirkjan er í greinilegum minni hluta, sten'dur oftast einhver styr um hana. í erindi mínu veik ég Framhald á 13. siðu. Blómkveðja vorsins Friðrik Ólafsson skrifar um FRA SKAKÞINGIISLANDS ÞAÐ hefur alltaf verið ætlunin að birta hér í þættinum skákir frá Skákþingi íslands, en lítið orðið úr til þessa, þar eð einvígið um heimsmeistaratitilinn hefur reynzt mjög rúmfrekt. f dag verður þó breyting á og verður nú tekin Ú1 meðferðar ein skák Jóns Kristins- sonar, sem stóð sig með mikilli prýði í móti þessu, hlaut annað sætið, aðeins hálfum vinning fyrir neðan sigurvegarann. Andstæðing- ur Jóns í þessari skák, Björn Þor- steinsson, hlaut í fyrra annað sæt ið á Skákþingi íslands, en stóð - sig nú sýnu lakar, náði einungis 1 að deila 8,—11. sæti. Hvítt: Björn Þorstetasson. Svart: Jón Krlstinsson. SikHeyjarvörn. 1. e4, c5. 2. Rf3, Rc6. 3. d4, cxd4. 4. Rxd4, g6. 5. Rc3, Bg7. 6. Be3, Rf6. 7. Bc4, Ra5. (Þennan leik held ég, að Júgóslaf- inn Bertok hafi fyrst komið fram með í skák sinni við Fischer í Bled 1961. Fischer svaraði leiknum með 8. Be2 og fékk fljótlega betri stöðu, þar eð Bertok fór full geyst í sakirnar: 8. —, o-o 9. o-o, d5? 10. exd5, Rxd5. 11. Rxd5, Dxd5. 12. Rb5! í Áskorendamótinu í Curacao 1962 sýndi Benkö fram á í einni skáka sinna við Keres, að leikurinn á fullan rétt á sér. Hann lék 8. — d6 og fékk góða stöðu eftir 9. o-o, Bd7. 10. f4, o-o. 11. Rb3, Bc6. 12. Dd3, Rd7. í skákinni Parma-Friðrik, Lublijana 1962 reyndi hvítur því 8. Bb3, eins og Bjöm í skákinni hér, og hlýtur sá leikur að teljast öflugri en 8. Be2. Þá er þriðji möguleikinn í stöð- unni 8. Bxf7f Kxf7. 9. e5. Mér er einungis kunnugt um eina skák, þar sem þessi skemmtilega fðrn hefur verið reynd, en það er skák- in Ivkov-Soos, Vama 1962. Fram- haldið í henni varð: 9. —, d5 (9. —, Re8 eða -g8 strandar á 10. Re6! og eftir 9. —, Rh5 fær hvítur mann inn aftur með 10. g4). 10. exf6, Bxf6. 11. Df3, Rc6. 12. o-o-o með liðlegri stöðu fyrir hvít. Ef til vill leikur svartur bezt í 9. leik Rc4). FÁTT er höfundi kristindóms ins hugstæðara en gróður og brumandi líf vorsins, hið unga líf blóms þar sem kraftur leynd ardóma frá háum himnastóli breytir óhrjálegum efnum jarð vegs og moldar í angan, línur og liti, sem unnt er að segja um: „Þótt kóngar fylgdust allir að með auð og veldi háu, Þeir megnuðu ei hið minnsta blað að mynda á blómi smáu“. Á tímum myrkurs og hríða að vetri dreymir okkur um ólómstrandi líf vorsins, hugsun um eitthvað fagurt og liúft. Og þetta gjörir dimmuna léttbær- ari, frostið og kuldann fjarlæg ari í öllu þess veldi. Við viljum ekki verða vetrar- börn og skuggasálir, sem ber- um blæ dapurleika og vonleys- is. Og því verður fögnuðurinn djúpur og bljúgur, þegar fyrstu blóm vorsins fara að bruma og brosa jafnvel í hríðum, þar sem þau væru dauðadæmd að morgni, þótt þau væru að springa út í dag. Um huga líður ósiálfrátt: Ó faðir, gjör mig blómstur blítt, sem brosir öllum mót og kvíðalaust við kalt og hlýtt er kyrrt á sinni rót. Það er líkt og þessi bamslega bæn skáldsins verði fyrsta lexí- an, sem við lærum af blómun- um í vetrarhríðum bak sumar- málum. því að ,,það sumrarsvo seint á stundum. þótt sólin hækki sinn gang“. Og sannarlega þurfum við oft að fhuga þá lexíu í öllum slvs- um og harmahríðum hverfulla daga, sem oft verða svo undar- lega grimmir. dimmir og kaldir. En hvað yljar þá betur en blómkveðja samúðarríkra vina. Er unnt að hugsa sér nokkuð Ijúfara en þegar lítið. fallegt barn hringir dyrabjöll- unni og stendur í hretviðri hins ókomna eða nýkomna vors með ilmandi rósavönd f höndunum og segir: „Með þakklæti frá mömmu með beztu óskum frá pabba“. Allir skuggar áhyggna og þreytu, vonbrigða og lífsleiða eru samstundis horfnir á vængj um norðanstormsins. Og samt er enn þá dýr- mætara þeim, sem vini syrgir að finna og sjá þessi tákn vináttu og lífs, hins sigrandi lífs og ljóss, sem blómkveðja skilnings og samúðar flytur inn yfir þröskuld sorgarhússins. Sannarlega finnum við að blómin era hin fyrstu og bók- staflegustu börn ljóssins, „mold arundrið, sem glitrar og grær“. Og einhvers staðar bað sjálfur meistarinn, Kristur konungu? kirkjunnar okkur að líkjast þeim. Flytja með okkur fegurð, vonir og vor, huggun og angan inn í skugga og sorgir mann- lifsins. Ef við kunnum þetta blómsturmál ástúðar og hugg- unar, þarf engin orð. Bros og ilmur segja allt, sem þarf. Einu sinni var listamaður, sem var frábær blómamálari, spurður um orsök þess, að hann gjörði þau að sérverkefni sínu. Hann sagði: Fvrir mörgum árum var ég á leið til unnustu minnar með tuttugu rauðar rósir, sem áttu að vera afmælisgjöf á tvítugsaf- mæli hennar. En á leiðinni upp stigann í stórhýsinu, sem hún átti heima, kom ég að opnum dyrum, þar sem ég sá grátandi móður beygja sig niður að kistu dótt- ur sinnar, sem hún hafði misst á blómaskeiði. Ég hafði oft séð þessa ungu stúlku á ganginum glaða og fallega. Og nú datt 'mér allt i einu í hug að fara ekki lengra með rósirnar, sem unnustan átti að fá, heldur leggja þær við höfuð ungu stúlk unar, sem var dáin. Aldrei hef ég augum litið meiri Ijóma en þann, sem skein úr augum móðurinnar gegnum tárin, þegar hún leit á mig, þar sem ég spennti greipar við kist una, þennan ókunna mann, sem hafði í þetta sinn fylgt köllun hjartans. Síðan valdi ég blóm að sér- stöku viðfangsefni listarinnar, og mig hefur aldrei iðrað þess. Fátt veitir meira af fegurð og vonum, samúð og svölun frá hjarta til hjarta en blóm. Hlustum því á boðskap blóm- anna, prédikun vorsins. sem í þögninni yfirgnæfir ys og glaum hversdagsleikans. Þar birtist skáldleiki og minningar — svölun og huggun í senn. Þau tala í þögninni og bros- inu með litum og angan . þau orð, sem mannlegum vöram og tungu er ofvaxið að móta, mál hins himneska, eilífa og heilaga, sem kom frá háum helgidómi lífsins, en á hollvin í hverju minnsta blómi. Við finnum, að í hverju fold- arfræi byggir andi, sem fædd- ur er á ódauðleikans landi. Hegðið yður eins og börn ljóssins, blómin á jörðinni, en ávöxtur ljóssins er einskær góð vild , réttlæti og sannleikur". Breytið eins og blómin, mold og grjóti . hversdagsleikans i liti og ilm, ávexti og brosandi fegurð, og gerið þetta með því að opna bikar og krónu hjart- ans fyrir geisladýrð og daggar- úffa hæðanna, hins himneska vors. Geymið blómakveðju sum arsms unga. Gleðilegt sumar. Árelíus Níelsson. 8. Bb3, d6. 9. f3, Bd7. 10. Dd2, — (Rannsókn á þessari skák og fram angreindri skák, Parma-Friðrik, virðist leiða i ljós, að 10. Dd3 sé nákvæmasti leikurinn hér). 10. —, h5. (Þessi leikur hefur tvíþættan til- gang: Kemur í veg fyrir Be3-h6 og hindrar framrás hvíta h-peðsins. Hins vegar veikir leikurinn nokk- uð svörtu kóngsstöðuna). 11. o-o-o, Hc8. 12. h3, a6. (í skákinni Parma-Friðrik kaus svartur að halda niðri g-peði hvíts og lék 12. —, h4. Eftir skákinni hér að dæma virðist peðasókn þessi ekki ýkja hættuleg). 13. g4, b5. 14. g5? — (Þessum leik er vart hægt að hrósa, því að hann dregur úr spenn unni á kóngsyængnum og lokar auk þess mörgum mikilvægustu sóknarlínum hvíts. Góður og eðli- legur undirbúningsleikur fyrir sóknaraðgerðirnar eru 14. Kbl). 14. —, Rh7. 15. f4, — (Sókn hvíts lítur vel út, en er máttleysislegri en ætla mætti). 15. —, Rc4. 16. Bxc4, Hxc4. 17. f5, o-o. (Svartur hrókerar alls óhræddur, þrátt fyrir sóknaraðgerðir hvíts). 18. Hhgl, — (Það er fremur daufur blær yfir Framhald á 13. síðu. 8 TfMINN, Iaugardaginn 11. maí 1963 -

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.