Tíminn - 11.05.1963, Page 14

Tíminn - 11.05.1963, Page 14
-nCT^33533E>aEma3aM völdm „með einiiverjum öðr- um ráðuim . . . með einhverjum öðrum vopnum.“ Göring talaði meira um aðalonálefnið, og lagði áherzlu á nauðsyn „fjárfórna“. sem „vissuiega myndi verða miklu auðveldara fyrir iðnaðinn að bera, ef hann gerði sér grein fyrir því, að (kosningarnar, seim fram færu 5. marz, yrðu áreiðanlega þær síð- u'st'u næstu tíu árin, jafnvel næstu hundrað árin.“ Iðnrekenduhum, sem þarna voru saman komnir, var gert þetta allt nægilega Ijóst, og þeir tóku með á'huga á móti loforðinu um enda- lok þessara andstyggilegu kosn- inga, lýðveldisins og afvopnunar- innar. Krupp, hergagnakonungur- inn, sem að því er Thyssen segir, hafði 29. janúar, hvatt Hinden- bupg til þess að skipa ekki Hitler í kanslaraembættið, stökk á f'ætur og lýsti yfir við kanslarann „þakk- l'æti“ fjármáiamannanna „yfir því, að þeim skyldi hafa verið skýrt svo nákvæmlega frá öllum smá- atriðum“. Síðan lét dr. Schacht hattinn ganga. „Ég safnaði þrem- ur milljónum marka“, sagði hann við NUrnberg-réttarhöldin. Hinn 31. janúar, 1933, daginri eftir að Hitler hafði verið gerður að kanslara, skrifaði Göbbels í dagbók sína: „Á fundi með for- ingjanum skipulögðum við bardag- ann gegn Rauðu hættunni. Enn sem komið er, munum við ekki grípa til beinma mótaðgerða. Til- raun bo'lsévika til byltingar verður, fyrst að brjótast út. Við munum' láta höggið ríða á réttu augna- bliki.“ Ekkert benti til þess þegar kosningabaráttan hófst, að bylting kommúnista eða sósíalista myndi brjótast út, þrátt fyrir st'öðugt auknar æsingar af hálfu nazista- yfirvaldanna. í byrjun febrúar hafði Hitlers-stjórnin bannað alla fundi kommúnista og stöðvað út- komu blaða þeirra. Fundarhöld sósíaldemókrata höfðu annaðhvort verið bönnuð eða S.A.-ribbaldar hleyptu fundunum upp, og hvað eftir annað var stöðvuð útkoma aðalblaða sósíalistanna. Kaþólski miðflokkurinn slapp jafnvel ekki við ofbeldisverk nazistanna. Steger wald, foringi Kaþólska verkalýðs- félagsins, var barinn af Brún- stökkum, þegar hann gerði tilraun til þess að ávarpa fund, og Briin- ing var neyddur til þess að leita lögregluverndar á öðrum fundi, eftir að S.A.-sveitir höfðu sært all'- ■marga fylgismenn hans. Alls var fiimmtíu og einn and-nazisti skráð- ur myrtur á meðam á kosningabar- áttunni stóð, og nazistarnir héldu því fram, að átján þeirra eigin manna hefðu verið drepnir. Brátt fóru menn að taka eftir mikilvægi stöðu Görings, sem inn- anríkisráðh. í Prússlandi. Göring vék hundruðum lýðveldisstarfs- manna úr stöðum þeirra og veitti nazistum embættin í staðinn, og lét sem hann tæki ekki eft'r Pap- en, sem var þó að nafninu til yfir- maður hans, þar eð hann var for- sætisráðherra Prússlands. Þeir, sem aðallega fengu stöðurnar, voru S.A.- og S.S.-liðsforimgjar. Hann skipaði lögreglunni að sneiða hjá því, „hvað, sem það kostaði, að sýna S.A.- S.S., og Stahlhelm-mönnum fjandskap, en en sýna á hinm bóginn enga vægð þeim, sem „væru fjandsamlegir ríkinu". Hann hvatti lögregluna til þess að „nota sem bezt skot- vopnin" og varaði við því, að þeim, sem ekki gerðu það, myndi hegnt. Þetta var bein skipun til prússnesku lögreglunnar, um að skjóta niður alla þá, sem voru á móti Hitler, en prússneska lögregl an stjórnaði tveimur þriðju hlut- um Þýzkalands. Til þess eins, að tryggja, að þessu yrði framfylgt á sem ýtarl'egastan hátt, kom Gör- ing 22. febrúar upp 50,000 ínanna aukal'ögregluliði, en 40,000 þess- ara manna voru út S.A. og S.S., en afgangurinn úr Stahlhelm. Þannig var lögregluvaldið í Prússlandi svo til algerlega í höndum nazista- óþokka. En þrátt fyrir allt þetta, kom ekki til þess, að „Bolsévika-bylt- ingin“, sem Hitler og Göring voru að bíða eftir, „brytist út.“ Ef ekki var hægt að egna til henmar, væri þá ebki hægt að búa hana til? Göring skipaði, að l'ögreglan gerði húsleit í Karl Liebknecht Haus, aðalbæk'stöðum kommún- ista i Berlín 24. febrúar. Kommún- ! istaforingjarnir höfðu yfirgefið húsið nokkrum vikum áður, og I sumir þeirra voru þegar farnir í i felur, eða höfðu kcmið sér hávaða- lítið til Rússlands. En hrúgur af áróðursritum höfðu verið skildar I eftir í kja'llaranum, og þau nægðu til þes að gera Göring kleift að ti'l- kynna opinberlega, að „skjöl“ þau, 'sem fundizt hefðu, sönnuðu, að kommúnistar væru í þann veginn að koma af stað byltingu. Almenn- ingur og jaf’nvel sumir í'halds- mannanna í stjórninni trúðu þessu ekki sem bezt. Greinilegt var, að finna varð upp á einhverju stór- kostlegra til þess að hræða með fjöldamn, áður en ko’sningarnar færu fram 5. marz. Þínghúsbruninsi Að kvöldi 27. febrúar sátu fjórir valdamestu menn Þýzkalands að kvöldverði á tveimur stöðum í Berlín. Varakanslarinn von Papen var með Hindenburg forseta í hinu fína Herrepklub í Vossstrasse. Hitler kanslari var kominn til heimilis Göbbels, þar sem hann ætlaði að snæða kvöldverð „en famille". Að því er Göbbels sagði, voru þeir að hvíla sig, hlustuðu á tónlist af hljómplötum og sögðu sögur. „Skyndilega“, sagði hann síðar í dagbókinni, „kom síma- hringing frá dr. Hanfstangl: Það 'hefur komið upp eldur í þing húsinu. Ég er viss um, að hann er aðeins að segja einhverja lyga- sögu, og segi foringjanum ekki einu sinni frá þes'su". En mennirnir tveir, sem sátu við kvöldverðarborðið í Herren- klub, voru aðeins handan við horn ið frá þinghúsinu. — S'kyndilega (skrifaði Papen Seinna) tókum við eftir rauðum 87 1 bjarnia i gegnum. gluggana og heyrðum hávaða frá hrópum og köllum á götunni. Einn þjónanna kom hlaupardi til mín og hvísl- 1 aði: „Þinghúsið brennur!" o>g ég 1 sagði forsetanum þetta. Hann reis á fætur og úr glugganum gátum við séð hvelf ngu þinghús'sins, | sem virtist vera upplýst af leitar- l'jósum. Annað slagið urðu útlín- | uinar óskýrar, þegar logarnir og reykurinn jukust. Varakanslarinn s'endi forsetann heim i bíl sínum en flýtti sér sjálf- ur til brennandi bygginga'rinnar. Á meðan hafði Göbbels, að því er hann sjálfur sagði, fengið eftir- I þanka vegna „lygasögu“ Putzi Hanfstangls, hringt í nok'kra staði, og fengið að vita, að þing- húsið var í raun og veru að ; brenna. Að fáum sekúndum liðn- I um voru hann og foringinn „á hraðferð niður eftir Oharlotten- ; burger Ohaussee í áttina að staðn- um, þar sem glæpurinn hafði verií , framinn og þeir fóru hvorki meira né minna en með 100 km. hraða I | á klukkustund". I 'Þeir lýstu því yfir, strax og ; þeir komu til þinghússins, að hér i væri um glæp að ræða, kommún- | istaglæp. Göring var kominn ! þangað á undan þeim, sveittur og 1 másandi og utan við sig af æsingi, og sór við guð, eins og Papen skýrði frá síðar, að „þetta væri kommúnistaglæpur gegn nýju stjórninni“. Göring hrópaði til hins nýja Gestapoforingja, Rud- olfs D’iels, „þetta er upphafið að kommúnistabyltingunni! Við meg um ekki bíða eina einustu mín- útu. Við sýnum enga miskunn. Sérhver opinber kommúnista- starfsmaður skal skotinn, hvar sem hamy finnst. Allir þingfull- trúar kommúnista skulu hengdir upp strax í kvöld“. 46 að allt verði t aftur. Kannski| hafið þér á’hug. á að fregna, að Mwa Chou hefvt fengið pestina, bætti hann við. — En hvar eru klefafélagar mín ir? spurði Blanche lágt. — Viljið þér vita það? — Já. — Ein er dáin, önnur alvarlega veik og við viturn ekki enn hvort sú þriðja hefur smitazt . . . — Veslings konurnar. En kannski er það þeim fyrir beztu. — Ef til vill. Nú skuluð þér leggjast til svefns um leið og þér hafið fengið dýnuna og teppin. Eg skal vera á næstu grösum, ef þér þarfnizt einhvers, þá getið þér hringt þessari bjöllu. Hann setti litla bjöllu við fletið. — Eg kem jafnskjótt og þér hringið, og engir aðrir munu koma hingað, bætti hann við og lagði áherzlu á orð sín. — Þökk fyrir, tautaði Blanche. Hún heyrði hann l’æsa dyrunum á eftir sér þegar hann fór. Það var yndisleg tilfinning að vera a-ftur hrein og vera laus við rifna og skítuga fatagarmana, að hafa fengið kalt vatn að drek'ka. Hún reyndi að hugsa ekki um að allt var þetta gert vegna þess að Mwa Chou vildi að hún lifði af, svo að hún yrði frísk aftur og gæti á ný mætt við yfirheyrslur. Hún hugsaði um leyndarmálið, sem John hafði tekið með sér í dauðann, hún hafði eiginlega hald- ið að hún hefði ímyndað sér þetta allt, en eftir samtal hsnnar og Mwa Chou, skildi hún að hann hafði sagt sannleikann þrátt fyrir allt. En hvað hafði hann gert við skjölin ? Hafði hann eyflilagt þau? Hún vonaði það, ef þau hefðu nú komizt í hendur Kínverjanna — eða Petrovs . . . Petrov. Hún vildi ekki hugsa um Petrov. Þegar leið á nóttina hækkaði hitinn og hún lá í hálígerðu móki. Hún vissi ekki, hvar hún var, eða hvað hafði komið fyrir. Henni fannst höfuðið þrútna út, og þegar hún reyndi að rísa upp, svimaði hana. En loks tókst henni að reisa sig upp og í lampas'kininu sá hún að arrnar hennar voru þaktir rauð- um fl'ekkjum. Svo að hún hafði þá ekki sloppið við pestina, þegar allt kom til' alls. Hún hafði smitazt. Hann hafði sagt, að hún þyrft1 ekki að vera hrædd, hún var ekki hrædd, hana langaði mest til að deyja. Hún hneig aftur út af á fletið, hún var böðuð í svita og átti erfitt með andardrátt. Hún var næstum meðvitundar- laus, þegar læknirinn opnaði mjög gætilega klefahurðina — hann hafði srnurt lásinn til vonar og vara. Læknirinn beygði sig yfir Blanche, svo gaf hann einhverjum merki, sem stóð í dyrunum. — Er hún lifandi? spurði Nic- hol'as Petrov mjög lágt. — Auðvitað, ég sagði yður, að áhrifin af þessari bólusetningu eru1 ekki hættuleg. Eftir tuttugu og fjórar klukkustundir verður þetta! liðið hjá. — Er þá hættulaust að flytjaj hana núna? — Þér verðið að gera það, því að ég hef frétt að háttsett per- sóna innan leynilögreglunnar, sem telur sig ónæman gegn sjúkdómn- um komi hingað á morgun til þess að taka við af Mwa Chou. Læknir- inn opnaði tösku sína og ók upp sprautu. — Eg skal gefa henni sprautu núna, sagði hann. — Svo verðið þér að sjá um, að ekki slái að henni. Þér eruð með bíl fyrir utan. — Já. — Það er gott. Blanche kveink- aði sér örlítið,_ þegar læknirinn A HÆTTUSTUND Mary Richmond sprautaði i handlegg hennar, svo beygði hann sig yfir hana og tal- aði lágt og mjög greinilega til hennar. — Hlustið á mig, sagði hann. — Þér eigið að fara burt héðan — á öruggan stað. Þér þurfið ekkert að óttast. En þér verðið að vera algerlega róleg. Ek'ki láta á yður kræla. ekki tala. Skiljið þér, hvað ég segi? — Já . . . ég skil, stundi hún. — En, . . . ég sé ekkert. — Bara betra. Gegnum þokuna, sem lagðist fyrir augu hennar, fannst henni hún greina andlit Petrovs, en það gat auðvitað ekki verið rétt. Hún sá hitasóttarsýnir. Og það hlaut að vera draumur, að einhver lyfti. henni upp. Það var bara dásamlegur draumur, að hann lét hana halla höfði sínu að öxl sinni og vafði teppum um hana. Læknirinn huldi andlit henn ar, svo.fór sprautan að hafa áhrif, þvi að hún missti aftur meðvitund. — Flýtið yður, sagði læknirinn. — Fljótt. — Fyrst verða ég að vita, hvern ig fer fyrir yður, — Þér þurfið ekki að hafa á- hyggjur mín vegna. Eg hef séð svo um, að ein konan, sem dáið hefur úr pestinni, verður borin hingað inn. Þegar verðirnir koma til að sækja þá, sem á að grafa, mun andlitið vera hulið. Enginn mun dirfast að líta á hana. Allir, sem deyja í nótt, verða grafnir við sól- aruppkomu og jafnvel þótt eftir- maður Mwa Chou verði tor- trygginn og láti opna gröfina, ' mun hann ekki geta þekkt nein lík, vegna þess að öll lík eru brennd vegna smithættunnar. — Þetta er óttalegt, sagði Petr- ov. — En þér vitiö til hvers þér eigið að snúa yður, ef þér þurfið á hjálp að halda. Eg ætla ekki að tefja yður lengur. Við skulum leggja af stað. Læknirinn fylgdi Petrov, sem bar hina dýrmætu byrði sína, eftir, ganginum, gegnum margar dyr og | tóm herbergi þar til þeir komu út |i portið. Venjulega stóðu varð-| menn þar, en ekki í nótt. Þeir 1 vildu ekki vera nærstaddir, þegar i j hinir dauðu væru bornir út. Petr- j I ov leit ekki í kringum sig þegar | þeir í niðamyrkrinu gengu að lit-| i'lli hurð á múrnum. Læknirinn hafði lykil og opnaði í flýti. — Flýtið yður, hvíslaði hann. — Og gæfan fylgi yður. Hann beið unz hann heyrði ekki lengur fótatak Petrovs síðan læsti hann dyrunum og stakk lykl inum í vasann. Síðan gelck hann aftur í áttina til fangelsisins. | — Þarna fór hraustur maður, hugsaði hann. — Hann hefur bjarg að mörgum mannslífum, en ég er | feginn, að hann er á förum, því að ég held að hann hefði ekki getað haldið þessu áfram öllu lengur. Yfirvöldin er faróð að gruna eítthvað. 31. KAFLI. Bíllinn brunaði áfram í nátt- myrkrinu í áttina til lendingar- staðar flugvélarinnar fjörutíu og átta stundum áður. Petrov sat við stýrið og í aftursætinu lá Blanche meðvitundarlaus og yfir hana breitt teppi, svo að hún sæist ekki. — Skollinn sjálfur, tautaði hann, þegar hann heyrði mótor- hjól nálgast. Hann hægði á sér og hönd hans leitaði ósjálfrátt í vasann þar, sem byssa hans var. Svo herti hann sig upp. Heppnin myndi sjálfsagt vera með honum hálftima i viðbót. Og að þeim tíma liðnum mátti allt lögreglulið Kína leita að honum og Blanche, þeir myndu hvorugt finna. Hann sveigði út á vegarkantinn og nam staðar um leið og mótor- hjólin komu brunandi, en hann drap ekki á bílum og e’inbeitti sér að því að vera kaldur og rólegur. Þegar lögreglumennirnir hoppuðu af hjól'inu og komu að bílnum, rétti hann sig upp: — Hvað var það? spurði hann á kínversku. — Vegabréfið, félagi. — Hér er það. Petrov tók upp vasabókina og rétti manninum skjal með kínversku letri. — Þér sjáið, að það er undirritað af Mwa Chou hershöfðingja, bætti hann 14 TÍMINN, laugardaginn 11. maí 1963 —

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.