Tíminn - 11.05.1963, Qupperneq 15

Tíminn - 11.05.1963, Qupperneq 15
VEðskiptavelta KÁ Framhald af 16. síðn. ar Jónsson, fulltrúi, Selfossi. Kaup félagsstjórinn, Grímur Thoraren- sen, las upp og skýrði rekstrar- og efnahagsreikninga félagsins fyrir ■siðastliðið ár. Viðskiptavelta fé- la.gsins hafði í heild aukizt um 28% fró fyrra ári. Vörusalan varð sam- tals 123,3 milljónir og sala undir- fvrirtækja, sem eru bifreiðasmiðja lyfjaverzlun, efnagerð, brauðgerð, hitaveita, kjötbúð, þvottahús sér- leyfisbifreiðir og innlendar afurð- ir varð 46 milljónir, eða samtals 169,3 milljónir. Til fyrninga var varið 2,8 mill- jónum og endurgreiðslur til félags- manna voru 1% af úttekt þeirra. Sú upphæð, sem nam 753 þúsund- um, var lögð í stofnsjóð félags- manna. Úr stjórn félagsins áttu að ganga þeir Bjarni Bjarnason, Baugarvatni, og Guðmundur Guð- mimnsson, Hfri-Brú. Voru þeir báðir endurkjörnir' til næstu þriggja ára. Til tveggja ána var kjörinn i stjórn Þórarinn Sigur- jónsson, Laugardælum, í stað Ei ríks Jónssonar, Vorsabæ. Varastjórnarmaður til þriggja ára var kjörinn Einar Gestsson, Hæli. Endurskoðandi var kjörinn Helgi Kjaf'ansson. Hvammi, til næstu þriggja ára. Fulltrúar á að alfund SÍS voru kjömir Jörundur Brynjólfssv>r Kaldaðarnesi, Bjarni Bjarnason. Laugairvatni. Sigur- grímur Jónsson, Holti, Grímur. Thorarensen, Selfossi og Teitur Eyjólfsson, Hveragerði. Börn í sveit Framhald af 16. síðu. úr barnahe.mili, á Laugabrekku, Víðiholti, Fitjum í Lýtingsstaða- hreppi og S'óru-Gröf í Staðahreppi og væru á þessum stöðum samtals 72 UftnLJá, voru um 30 börn á Litlu-Tjörnam í Ljósavatnshreppi og 38 drengir á Ástjörn í Noi'ður- Þing. Á flestum þessum stöðutn er ald ur barnanna yfrileitt 6—10 ára. Fyrir eldri börn eiu það helzt sumarbúðir Þjóðkirkjunnar, — KFUM og K, svo og skátabúðir. Þjóðkirkjan verður með hálfs mán aðaiflokka bæði á Kleppjámsreykj um í Borgarfirði og Löngumýri í Skagafirði. KFUM verður með sumarbúðir í Vatnaskógi, og verða þar bæði vikuflokkar og hálfs mán aðar flokkar Þrátt fyrir það, sem hér hefur verið talið upp, er ljóst, að mikill hörgull er á bamaheimilum í sveit um. Nokkur sveitaheimili hafa tek ið upp hja sér eins konar barna- heimilarekstur, og þó að eithvað sé bætt úr þörfinni með því, má telja það rnjög vafasama úrlausn, enda yfirleitt engin aðstaða fyrir hendi á þeirti bæjum,.sem hér um ræðir, að bæta á heimilið 10—20 bömum. Jónas játar Framhald af 16. síðu. Megin kafiinn í athugasemd Jón- asar H. Haralz er svohljóðandi og telur Tímir.n óþarft þar nokkru við að bætu eða gera athugasemd um: „Á fundi Verzlunarráðsins var þeirri spurningu beint til mín, iivort ekki væri sennilegt, að fram kvæmdir í landbúnaði yrðu meiri en áætlumn gei'ði ráð fyrir, og hvaða ráðs'afanir ætti að gera af opinberri hálfu til þess að ‘lyggjt* að svo yrð'i ekki. í svari mínu benti ég á, að aukning fram kvæmda í landbúnaði umfram það, sem áætlunir, gerði ráð fyiir, hlyti að leiða til offramleiðslu. Vanda- mál landbánaðarins hér á landi eins og í öðrum vestrænum lönd- um, þar sem miklar framfarir hafa verið í landbúnaði, væri fyrst og fremst hættan á, að framleiðsla vkist hraðar en neyzla. Þetta væri íslenzkum bændum sjálfum og for- ustumönnum þeirra ljóst, eins og áætlun Stéttarsambandsins ber vott um, og því teldi ég minni nættu en ella á því, að framkvæmd ir yi'ðu of miklar. Eg lét siðan í Ijóst þá skoðun mína, sem að sjálf sögðu kemur áætlunum Stéttar- sambandsins og ríkisstjórninnar ekki við, að erfitt væri að sjá, hvernig/^iægt væri að samræma tiltölulega hæga aukningu land- búnaðarframleiðslu og batnandi hag bændastéttarinnar sjálfrar með öðru móti en því, að bændum fækkaði. í bv: sambandi benti ég á að aldursskipting í bændastétt- inni væri r.ú þannig, að talsverð- ur fjöldi bænda hlyti að hætta búskap á næstu árum, og myndi þetta gera það vandamál, sem hér er fvrir hendi. auðveldara úrlausn ar en ella. BírtiíE samninginn Framhald af 16. síðu. vegna eru hæg heimatökin fyxir þau. að .fá.. hann .til birtingar. Þetta nudd um veiðiréttinn í Grímsá getur aldrei orðið eins áhrifaríkt og birting á samningnum sjálfum. Þess vegna eiga þessi blöð að birta samning- inn nú þegar, enda hlýtur þá að koma í ljós, svo að ekki verður um deilt, hvern ig þar hefur verið haldið á málunum. Og auðvi.tað kom- ast þessi blöð ekki hjá því, að birta greinargerðina, sem fylgir samningnum. Þessi gögn eru sem sagt í stjórnarráðinu, og ekki eft- ir neinu að biða með birt- ingu þeirra. KÓPAVOGDR Kosningaskrifstofa okkar er að Álfhólsvegi 4A, sími 16590; er opin frá kl. 10—12 og 2—10 e. h. Konúð, gefið og fáið upplýsingar. Framsóknarféiögin. Baiin Á BYGGINGARFRAMKVÆMDUM Að gefnu tilefni skal þaS skýrt tekið fram, að bann er lagt við öllum byggingarfrarnkvæmdum í Vatns- endalandi — sem og annars staðar innan lögsagn- arumdæmis Kópavogskaupstað'-u, nema að fengnu samþykki byggingarnefndar naupstaðarins. Ekki verður leyft að tengia hós, byggð án leyfis, við rafveitukerfið. Þá skal vakin athygli á því að slík hús er heimilt að fiarlægja á kostnað eiganda Kópavogi, 8. maí V Bæjarstjórinn Berlínarmúrinn endursýndur VARÐBERG og Samtök um vest ræna samvinnu endurtaka í dag kvikmyndasýningu þá, sem var í Nýja Bíói s. 1. laugardag vegna þess hve margir urðu þá frá að hverfa. Kvikmyndirnar, sem sýnd ar verða eru Berlínarmúrinn. Upp reisnin í Berlín 17. júní 1953 og listaverk barna. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Fermingar Framhald af 6 síðu. Valur Bjartmar Sigurðsson, Háholti 12. Viðar Stefánsson, Krókatúni 12. Þorláikur Sigurður Grímsson. Grimsholti. Þórður Magnússon, Skólabraut 22. Þórður Þorsteinsson Þórðarson, ’ Sóleyjargötu 18. Þröstur Kristjánsson, Suðurgötu 39. Altarisganga fermingarbarnanna og aðstandenda þeirra verður í Akraneskirkju þriðjudaginn 21, maí, kl. 8,30 siðd. Iþróttir á Akranesi Framhald af 5. síðu. ari, Eiríkur Þorvaldsson gjaldkeii og meðstjórnendur þeir Björgvin Hjaltason og Ársæll Jónsson. í lok þingsins voru Guðmundi Sveinbjörmiyyni sérstaklega þökk- störf hans i þágu ÍA og íþrótta- mála á Akranesi, en Guðmundur hefur manna lengst og bezt starf- að að íþrólfamálum í bænum, en hann var m. a einn af stofnendum knattspyrnufélagsins Kára árið 1922 og setið í stjórn ÍA frá stofn- un þess og mörg hin síðari ár- íormaður Sovézk kvikmyndavika br.am.naifi ii... ^jiéji. . . ur sýnd í Laugarárbiój 16. maí á öllum þrem sýningum. Síðan kem ur myndin Serjozka, og hún hlaut hvorki meira né minna en Krystal hnattarverðlaunin á rosahátíð í Karlovy Vary 1960, sú mynd verð- ar sýnd í Kópavogsbíói dagana 16.—19. maí á báðum sýningum kl 7 og 9 Síðan er kvikmyndin á leikdansi í Boslo.iileikhúsinu og nefnist hún Litli hestunnn Hnúfubakur, hún "erður sýnd í Laugarásbíói 17. maí kl. 5, 7 og 9 Vorgyðjan nefnist dansmynd, sem sýnd verður í Bæj arbíói 16 02 17. maí kl. 7 og 9. Töfratjaldið er breiðtjaldsmynd, t-yggð yfir austurlenzkt ævintýr, svnd í Austurbæjarbíói 14. maí k) 5 og 16 maí kl. 5 og 7. Loks er að nefna breiðtjaldsmyndina Meðan Eldarnir brenna, verðlauna mynd frá Cannes í Frakklandi, sem sýnd verð'ur í Laugarásbíói 18. og !9 mai kl 5 og 9. Auk þessa verða sýndar auka- myndir, fræðslu, vísinda- og teikni myndir Og enn er þess að geta, aö' á næstunni verða þessar rúss- nesku kvikmyndir sýndar eftir vikuna: Kvöldroðin segl í Háskóla mói, Söguleg sjóferð, og Spaða- c'rottningin báðar í Bæjarbíói. VAR EKKI ÖLVAÐUR GS-ísafirSi, 10. mai. f FRÉTT frá mér um daglnn af því, er togarinn Aston Villa slgldi hér á bryggjuna, var sagt að' skip stjórinn hafi verið undir áhrifum áfengls. Hafði ég þetta eftir heim- ildum, er ég taldi árelðanlegar. Nú er komið i Ijós, að þetta var rangt. Skipstjórinn var ekki undir áhrif um áfengls og leiðréttlst það hér með. Frestur útrunninn á sunnudagskvöldið BÓ-Reykjavík Fresturiim sem Verkalýðs- og sjómannafélag Miðneshrepps setti Guðmundi á Rafnkelsstöðum renn ur út á miðnætti á sunnudaginn. og kemur bá til vinnustöðvun á síldveiðum og síldarvinnu í landi, ef staða mílsins breytist ekki fyr- ir þann tíma Þrír bátar Guðmund ar eru nú á síldveiðum.' Aðrar veiðar og vinna hjá Guðmundi heldur nú áfram þótt síldarvinn- an stöðvist, nema samúðarverkfall komi til. í dag sat allt við sama í pessari deiiu. BO-Reykjavik, 10. mai Lögreglan handtók fimm ölvaða ökumenn í nótt, og er fjöldi tek- inna fyrir það brot kominn upp i 155 frá áramótum hér í Reykja- vík. Á SUNNUDAG er væntanlegur hingað til lands hinn kunni banda- ríski organleikari, E. Power Biggs. Kemur hann hingað á vegum Tón- listarfélagsins og mun halda tvenna tónleika fyrir styrktarmeð limi þess í Dómkirkjunni, þriðju- dag og miðvikudag, 14. og 15. þ.m., en auk þess er ákveðið að hann efni til tónleika á Akranesi, Ak- ureyri og í Vestmannaeyjum. Óþarft er að kynna E. Power Biggs í löngu máli fyrir íslenzkum tónlistarunnendum. Hann hefur verið hér tvivegis áður, bæði í Reykjavík og víðar. Margír merk- ustu tnólistargagnrýnendur vestan hafs telja Biggs fremstan í flokki morkustu núlifandi organleikara Bandaríkjanna, og það er m. a. haft til marks um vinsældir hans að í mörg ár í röð hefur hann ver- ið talinn vinsælasti organleikari Bandaríkjanna í skoðanakönnun, .sem tóhllstaftímárltið Musicál Amc' ricá hefur efnt til árlega meðal 850 gagnrýnenda í Bandaríkjunum og Kanada. Einnig má geta þess að á tón- lístarhátíð þeirri, sem efnt var til við opnun hins nýja tónlistarsalar í Lincoln Center í New York, kom E. Power Biggs þrívegis fram sem einleikari. Á fyrstu tónleikunum, sem fílharmoníuhljómsveitin í New York hélt í hinum nýju sal arkynnum sínum, lék Biggs „Fest liches Præludium" eftir Richard Strauss, en Leonard Bernstein stjórnaði hljómsveitinni, en á þess ari sömu hátíð lék hann einnig með sinfóníuhljómsveitinni í Fíladelfíu undir stjórn Eugene Ormandys, m. a. orgelhlutverkið í sinfóníu Saint Saens fyrir hljómsveit og orgel. — Þótti þetta sem von var mikill heið ur og viðurkenning fyrir hinn á- gæta listamann. E. Power Biggs hefur um árabil verið fastráðinn einleikari hjá sin- fóníuhljómsveitinni í Boston, en auk þess er hann kunnur um öll Bandaríkin og víðar fyrir tónleika þá og tónlistarþætti, sem hann hefur annast í mörg ár í útvarpi og sjónvarpi á vegum Columbia Broadcasting Service. Sama félag hefur einnig gefið út mikinn fjölda af hljómplötum, sem E. Power Biggs hefur leikið inn á öll merk- ustu verk orgelbókmenntanna fyrr og síðar. Þá liggur mikið og merki legt starf eftir Big.gs sem fræði- mann á sviði orgelbyggingar og þróun orgelsins sem hljóðfæris allt frá fyrstu tíð. Hefur hann samið margar ritgerðir um þetta efni, sem þirzt hafa í merkum ritum, j þar á meðal alfræðibókinni Ency- j clopedia Brittanica. Eins og fyrr getur mun E. Pow- j er Briggs halda tvenna tónleika fyrir styrktarmeðlimi Tónlistarfé- i lagsins í Dómkirkjunni, n. k. þriðju dag og miðvikudag, 14. og 15. maí, og hefjast þeir kl. 9 síðdegis báða dagana. Á efnisskránni eru einung- is verk eftir Johann Seb. Bach. — Síðan heldur hann organtónleika í kirkjunni á Akranesi n. k. föstu- dag, 17. raaí kl. 9 e. h., á Akureyri sunnudaginn 19. maí, o.g að líkind- um í Vestmannaeyjum þriðjudag- inn 21. maí. FJÁRSÖFNUN TÍL STYRKTAR ÁSTVINUM SJÓMANNANNA 16 I HINU mik-la ofviðri, sem geis- aði dagana 9. og 10. apríl s. 1. lét- ust, — eins og kunnugt er, — 16 sjómenn við störf sín á hafinu, — þar á meðal heimilisfeður og menn sem voru fyrirvinna heimila sinna. Eins og að líkum lætur, er þörf hjálpar. — Manntjónig verður að vísu ekki bætt, en mikils má sín samhugur og útréttar vinahendur til að létta þungar byrðar þeirra, : sem nú harma ástvini sína. Viljum vér hvetja til þess, að j hafin verði söfnun handa þessu j fólki. — Munum vér ásamt blöð- unum góðfúslega taka á móti gjöf- ! um í þessu skyni. Sigurðdr Stefánsson, vígslubisk- up, Hólastiftis. Birgir Snæbjörnsson, sóknarpr., Akureyri. Ingimar Ingimarsson, sóknarpr. Sauðanesi, N.-Þing. Leó Sigurðsson, útgerðarmaður, Akureyri. Pétur Sigurgeirsson, sóknarpr. Akureyri. Ragnar Lárusson, sóknarpr. Siglufirði. Stefán Snævarr, sóknarpr. Völlum, Svarfaðardal. Valdimar Óskarsson, sveitarstj., Dalvík. Þegar hafa borizt um 13 þústmd krónur í söfnunina. Þökkum innilega auðsýnda vináttu og samúð vlð andlát og jarðarför m-’nnsine mins og föður okkar, Ingvars Björnssonar kennara, Akranesi. Svava Steingrímsdóttir og börn. TÍMINN, iaugardaginn 11. maí 1963 — 15

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.