Tíminn - 18.05.1963, Blaðsíða 3

Tíminn - 18.05.1963, Blaðsíða 3
COOPER TÚK INN LYF FYRIR LENOINGIINA NTB-CAPE Canayeral 17. maí Germferð Gordons Coopers endaSi á dramatískan hátt, þeg ar upp kom bilun á sjálfvirka útbúnaíBnum, sm átti að setja af stað eldflaugar þær, sem skyldu koma geimfarlnu af braut sinni inn á aðdráttarsvið' jarðar, og geimfarfnn varð sjálf ur að annast lendinguna. Hefði hann gert eitt einasta handtak rangt, átti hann á hættu að brenna upp bæðl sjálfan sig og geimfarið. En þetta tókst samt giftusamlega og Cooper lenti á réttnm stað á réttum tíma. Læknir geimfarans, dr. Char- les Berry, skýrði frá því í dag, að Cooper hefði tekið inn örf- andi töflu, áður en hann hóf lendinguna. Dr. Berry kvaðst hafa gefið honum fyrirmæli um, að taka inn dexadrine-töflu, en Cooper hafi sagzt vera vel vakandi og vel upplagður. En læknirinn kvað samt sjálfsagt að hann tæki lyfið inn og aðrir myndu róast við það. Hann sagð ist að sjálfsögðu ekki vita, hvort hinn ágæti árangur væri dexadríninu að þakka og úr því fengist aldrei skorið, en hitt væri víst, að Cooper hefði unn ið stórvirki með eða án hjálpar lyfsíns. Cooper tók við stjórn geim- farsins eftir að hafa veríð á lofti í 29 tíma og stýrði því sjálfur síðustu fimm tímana. Þegar honum voru gefin fyrir- mæli frá Canaveralhöfða um að fara af braut sinni og koma til jarðar, svaraði hann einfald- lega: „Það er í lagi“. Á jörðu niðri var hins vegar mikið um að vera. Sérfræðingar og eldri geimfarar reyndu eftir mætti að finna lausn. á vandanum, og yfirmaður tilraunanna sagði í dag, að þeir hefðu hlaupið í gegnum allar bækur, sem hefðu verið skrifaðar um geim- ferðir. Cooper stýrði sér til jarðar með aðstoð stjarna og sjón- deildarhringsins, og það tókst svo vel, að hann lenti aðeins örfáum sekúndum eftir áætlun. Hann lenti í Kyrrahafi skammt frá þeim stað, þar sem banda- ríska skipið Kearsage beið hans og á leiðinni niður harmaði . hann í skeyti til yfirmanns skipsins, að geta ekki lent á þil fari þess. Þegar Cooper var kom inn um borð í Kearsage voru fyrstu orð hans þessi: „Ég er sammála þeim hinum. Þetta var stórkostlegt“. Kearsage hélt með Cooper til Hawai og á leiðinni skýrði.hann geimvísindamönnunum frá því, sem fyrir hann bar í geimferð- inni. Frá Hawai mun Cooper svo fara ril Canaveralhöfða. Á þriðjudaginn mun hann halda til Washi'ngton, og þar verður honum fagnað eins og þjóðhöfðmgja. Hann mun aka í heiðursvagni til Hvíta hússins, þar sem Kennedy forseti mun bjóða hann velkominn og sæma hann heiðursmerki geimfara. — Síðan mun hann aka um götur borgarinnar og taka á móti heillaóskum fólksins. Ófriður er Dr. Luns, utanríkisráðherra Hollands svarar spurningum blaSamanna í sölum Hótel Sögu siSdegis í gær. — Myndina tók Ijósmyndari TÍMANS,—GE. ÓVÍST UM LAUSN Á VANDAMÁLUM VESTUR-EVRÓPU GB-Reykjavík, 17. maí. UTANRÍKISRÁÐHERRA Hol- lands, dr. Josep Luns, sem hing- ag kom í opinbera heimsókn í gærkvöldi, ræddi við fréttamenn í dag að Hótel Sögu og kvað ekki neinna verulegra breytinga að j vænta á næstunni um aðild Breta j eða annarra að Efnahagsbandalag : inu, og bæri ýmislegt til. Ekki væri heldur að vænta neinna stórtíðinda af Ottawaráð- stefnunni. Eins og stæði, væri íta- lía án virkrar ríkisstjómar, og ekki hægt að fullyrða um afstöðu Danmerkur og Noregs. Aðspurður um viðræður hans við de Gaulle þegar síðarnefndi heinisótfi Holland, kvað hann ekki vera um neinn persónulegan fjandskap þeirra að ræða, hvað svo sem þeim hefði farið á milli. Treshner fundinn? NTB-Portsmouth, 17. maí. Bandarískir vísindameinn, sean tekið hafa þátt í leitinni að banda ríska kjiarnorkukafbátnum Thresh- ner, sém sökk út af strönd Massa- chusettsfylkis fyrir páska, til- kynntu í daig, að flak kafbátsins virtist fundið. Dr. Paul Fye við hafrannsókna- stofnunina í Woods Gole í Massa- ehusertts sagði, að fyrir lægju ljós- myndir, sem virtust vera af flak- leifum einmitt á þeim stað, þar sem talið er að Treshner hafi sokkið. Myndirnar eru þó of ógreinilegar til þess að hægt sé að segja með fullri vissu, að þær sýni brak úr Treshner. Myndir þessar voru teknar á þann hátt, að myndavélum var sökkt niður á 2500 metra dýpi í hafið á slysstaðn um, sem talinn er. Myndavélarnar voru með glampaútbúnaði og tóku myndir aðeins tíu metra frá botni. Myndavélunum var sökkt frá haf- rannsóknarskipinu Atlantis, sem er eitt þeirra mörgu skipa, sem taka þátt í leitinni að Treshner. Hann hefði þveit á móti reynt de Gaulle af að vera viðræðugóðan mann, sem skilningsríkur væri líka á þrjósku annarra. Blaða- mannafundur forsetans í Brussel hefði að vísu komið eins og reið- arslag. En tíminn einn myndi leysa þetta mál. Maðurinn væri dauðlegur. líka í stjórnmálum. — Holland hefði átt um sárt að binda eftir styrjöldina, hvorki meira né minna hefði stríðið kost að Hollahd 280 þúsund mannslíf. og enginn væri búinn að gleyma vitfirringnum Hitler. En það þýddi ekki fjandskap við þýzku þjóðina. Og í nýlegri ræðu utan- ríkisráðherra Vestur-Þýzkalands hefðu komið fram sjónarmið, sem dr. Luns gæti fallizt á. Stríðsminn ingarnar væru ofarlega í hol- enzku þjóðinm en hún liti á mál- in frá raunsæju sjónarmiði. Um þriðja stórveldið, sem de Gaulle hugsaði sér í Vestur-Evr- ópu andspælis Sovétrikjunum og Bandaríkjunum kvaðst dr. Luns ekki vera trúaður á tilurð þessa. Allt yrði að bíða síns tíma um ^amkomulag vestur-evrópskra þjóða, um mál er biðu lausnar. enn i NTB-London og Vientiane, 17. maíi Souvanina Phouma, forsætisráfl- herra í Laos, tilkynnti í morgun, [ að hersvci'tir kommúnistahreyfing j arinnar Pathet Lao liiafi gert árás-! ir á stöðvar hlutlausra í Lathuang, j litlu sveitaþorpi um tíu kíiómetra i austan við Krukkusléttu. Souvanna Phouma hefur einnig, í bréfi til sendiherra Bretlands j og Sovétríkjanna í Vientiane vís- að á bug kröfu kommúnista upi [ að eftirlitsstöð, sem alþjóða eftir- litsnefndin hefur sett á Krukku- sléttu, verði lögð iniður. Rússneska fréttastofan TASS i skýrir frá því í dag, að opinber- lega hafi verið birt í Moskvu upp-l kast að tilmælum til forsætisráð-j herra Laos, þar sem allar þjóðir, [ sem sæti áttu á ráðstefnunni um málefni Laos árið 1962, eru hvatt ar til að hamla ekki tilraunum for sætisráðherrans til að koma á eðli legu ástandi í landinu. Uppkastið er formað sem tilmæli frá for- mönnum ráðstefnunnar, fulltrúum Breta og Sovétríkjanna, og þau voru afhent brezka sendiherranum í Moskvu fyrir fjórum dögum, seg ir TASS. Talsmaður brezka utan- ríkisráðuneytisins sagði í dag, að Bretland gæti ekki fallizt á stað- hæfingar, sem kæmu fram í orð- sendingu, sem Sovétríkin vilji senda til forsætisráðherrans í Laos. Talsmaðurinn kvað uppkast ið vera að verulegu leyti boðskap frá Souphanauvong, varaforsætis- ráðherra í Laos, sem er stuðnings maður kommúnista. En það er einmitt stefna flokks Souphanou- vongs og vina hans, kommúnist- Laos anna, sem gerir alþjóða eftirlits- nefndinni erfitt um vik að fram- kvæma þau eftirlitsstörf, sem Geneve-sáttmálinn gerir ráð fyrir. BÚLAN ViO RÁÐANLEG NTB-Stokkhólmi, 17. mai. Bólusóttarsjúklingarnir í Stokk hólmi eru nú orðnir 11, en heil* briigðisyfirvöldn tetja þó ekki ástæðu enn ti'l að fyrirskipa alls herjarbólusefcninigu í borginni. Hins vegar eru vissir starfshópar, fólk, sem mikil samskipti hefur við almenning, bólusettir og eftlr- spurn manma eftir bólusetningu fer sívaxandi. HeilbrigðisyfirvöLdin taka það skýrt fram, að ástandið sé fullkom lega viðráðanlegt og þau benda á, að sjúkdómurinn sé takmarkaður við þann hóp manna, sem hafði •samband við sjómaninn, sem flutti sýkina með sér frá Indónesíu. í öryggisskyni hafa heilbrigðisyfir- völdin þó búið sig undir að geta hafið fjöldabólusetningu, ef ástand ið skyldi snögglega versna. Hægt er að hefja slíkt verk með sólar- hrings fyrirvara og ljúka bólusetn ingu allra Stokkhólmsbúa eða nokkuð meira en einni milljón manna á viku. FYRSTU KOSN- 'AR ÍKFNYA NTB-Nairobi, 17. maí. Lögreglu- og hersveitir voru í dag rei'ðubúnar til að taka í taum ana, ef til óeii'ða kæmi i lok kosn ingabaráttunnar, en fyrstu kosn- ingar í Kenya hefjast á morgun. Sveitirnar voru kallaðar út, þar eð fyrir hafa komið ofbeldisaðgerð ir og árekstrar milli andstæðra flokka og stjórnmálamanna síðustu viku kosninigabaráttunnar. Kosningarnar, sem hefjast á morgun, munu standa í níu daga. Tvær og hálf milljón manna hafa kosningarétt, og eru 90 prósent Framhald á 15. síðu. T 'f" M I N N, laugardagurinn 18. maí 1963 3

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.