Tíminn - 18.05.1963, Blaðsíða 9

Tíminn - 18.05.1963, Blaðsíða 9
 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ: L TROVMORE sviðsskipting Guðna Bjarnason- ar ágæt og ljósin hans Hall- gríms. Það er svo sem gott og bless- að að fá að heyra II Trovátore og ekíki út á það að setja, þótt hún sé f'lutt hér á landi. Nokk- ur vorkunn er að gera Verdi hærra undir höfði með óperu- sýningar. En <sé hins vegar hug- myndin að ganga þannig á röð- ina af óperum hans, er hætt við að með sama gangi og verið hefur hér, muni taka ærinn tima að kynna íslenzkum lei'k- húsgestum allar þær óperur Verdis, sem enn eru fluttar í óperuhúsum heimsins, hvað þá að gera óperubókmenntunum yfirleitt nokkur skil. Þær þrjár óperur Verdis, er nú hafa ver- ið hér fluttar, eru allar ein- hver melodiskustu verk sinnar söng laglð sitt á enda. En það var sem betur fór ekki margt slíkt til oþæginda. Hitt var lei-k- stjóranum vorkunn, að hann hefur ekki ráðið við að tukta til kórinn. Söngkonurnar eru þó fremur undanskildar, því þær láta sér ekki nægja að syngja, heldur tekst þeim að hreyfa sig vel frjálsmannlega. Aftur á móti er fullmargt um spýtu- karla, sem ættu þó að vera farnir að liðkast, svo oft sem þeir fá að láta ljós sitt skína á sviðinu. Þau Sigurveig Hjaltested (Azucena) og Jón Sigurbjörns- son (Ferrando) fara með mest- an sigur út úr þessari sýningu. Fullkomið samræmi söngs og leiks hjá Jéni, skapmikill söng- ur og limaburður óaðfinnanleg- ur. Hlutverk Sigurveigar er öf- undverðasta að því leyti, að það gefur mesta möguleika, en söngkonan leggur sig líka alla fram um að nýta það, og veld- ur því oftast, þótt dálítið ójafnt sé. En hún er tvímælalaust ein okkar bezta óperusöngkona. Guðmundur Guðjónssyni vex fiskur um hrygg, röddin orðin meiri í sér, og erum við bet- ur settir meðan hann tekur ekki atvinnuboði erlendis frá. Guð- mundur Jónsson (Luna greifi) þarf ekki mikið fyrir þessu að hafa. Rödd hans er ekki síður falleg en fyrr og glæsileg, þeg ar söngvarinn vill það við hafa, en leikgleði hans kom ekki nógu mikið innan frá. Leonoru söng Ingeborg Kjellgren frá Svíþjóð. Hún hefur bæði til að bera ágæta vel skólaða sópran rödd og persónuleika, reynir á engan hátt að ríkja á sviðinu á kostnað hinna, eins og stund- um kemur fyrir hjá erlendum gestum. heldur samlagast mjög vel öðrum á sviðinu. Aðrir, sem með hlutverk fóru, Svala Nielsen, Erlingur Vigfússon. Gunnar Einarsson og Hjálmar Kjartansson. stóðu vel í stykk- inu. Leiktjöld Lárusar Ingólfs sonar eru vel þolanleg, leik- Við sannfjprðumst um bað einu sinni. að það eru hreint ekki amalegir óperukraftar, sem við eigum. beir sem svngja helztu hlutverkin í II Trova- tore, og fieiri haukar eru til í horni TTndarlegt má kallast hve fólk þetta er heimakært. því satt að sesia er synd. að ÓDerur eru hér svo sialdan fluttar og betta listafólk fær ekki verkefni við hæfi nema Luna greifl (Guðmundur Jónsson), Ferrando (Jón Sigurbjörnsson) og kórinn. Azucena (Sigurveig 'Hjaltested) og Manrico (Guðmundur Guðjónsson) tegundar, en þær eru svo keim líka-r, af aðeins einu tímabili listar hans, en eftir það átti hann raunar eftir merkasta sköpunarskeið ævi sinnar, sem reis hæst undir lokin. T. d. nu á 150. afmælisári Verdis hefði Þióðleikhúsið ekki gert réttar að taka til flutnings einhverja af síðustu óperum hans, annað hvort hinn mikla harmleik Ot- hello eða Falstaff, einu gaman- óperuna, er hann samdi, og það eftiif áttrætt, og er Iíka ein bezta gamanópera heims- ins? Verdi var oft borið á brýn framan af árum að skrifa undir þýzkum og ítölskum áhrifum og að gera óperur sínar að sölu vöru með melodiskum brögð- um. En hann var sívaxandi són- skáld alla sína löngu ævi, og síðustu verk hans eru dýpst og mest. Það er ekki úr vegi að líta í bréf, sem hann skrifaði vini sínum á síðasta listsköpun arskeiði sínu. Þar segir hann: „Ég vildi helzt óska, að ung- ur maður, sem byrjaði að semja tónverk, falli ekki fyrir þeirri freistni að láta sig dreyma um að verða aðeins melódíu-smið- ur. Melódían og harmónían eiga aðeins að vera tæki lista- manns til að skapa músik. Komi einhvern tíma sá dagur, að við hættum að klifa á meló- díu og harmóníu, ítölskum og þýzkum stefnum, fortíð og framtíð o. s. frv. — þá máske rís ríki listarinnar". Þannig hélt hann áfram að endurnýja li®t sína fram til hims síðasta. Því kynnumst við efcki list hans fyrr en við höf- um heyrt verk hans frá síðasta skeiðinu. Gunnar Bergmann. eftir Giuseppe Verdi Gerhard Schepelern hljómsveitarstj. — Lars Runsten leikstjóri Ætli það sé ekki nokkuð merkilegt rannsóknarefni, hve sumt er líkara með íslending- um og ítölum en mörgum þeim þjóðum öðrum, sem nær obk- ur standa? Tökum t.. d. það, hve báðar nefndar þjóðir hafa mikið gaman af söng. Fyrst er nú það, að í báðum löndunum eru allir reiðubún- ir að syngja hver með sínu nefi. Eitt af þjóðareinkennum okkar, frægt orðið út um lönd, er að ókunnugir landar geta helzt ekki ræðzt við í lang- ferðabílum fyrr en búið er að kveða stemmu eða syngja „Kát ir voru karlar“ eða „Siggi var úti með æmar í haga“ eða „Heyr mitt lag, Violetta!" — Söngurinn tengir saman sálir, sem áður var óralangt milli og máttu ekki mæla. Svipaða sögu segja óljúgfróðir ferðalangar á suðurvegum, þá reki fyrst í rogastanz, er leiðin liggur um sveitir og þjóðvegi Ítalíu, að þeir eru sífellt að mæta inn- fæddu almúgafólki, og hvort sem það er bóndinn með full- fermdan hestvagninn á leið á markaðinn eða strákur dang- landi keyri aftan i belju, em þeir tíðast syngjandi aríur full um hálsi, svo ætla mætti, að þeir væm að fara á lofcaæfingu í óperanni. Og ekki yrði ég hissa, þótt maður heyrði einn góðan veðurdag unga fólkið hér kyrja aríur á ítölsku eins og að drekka vatn, hvort held- ur er á síldarplönum, í frysti- húsum eða á traktoram, eftir að rokk og bossa nova er farið veg allrar veraldar. II Trovatore var fyrst flutt í janúar 1853 í Róm. Það þoldi enga bið, þótt komið væri hlaup í Tiherfljót og vatnið flæddi um götur borgarinnar. Hinir á- fjáðu aðdáendur Verdis vildu ekki fyrir nokkum mun missa af framsýningunni, stilltu sér. upp fyrir utan miðasöluna árla morguns og stóðu þar ökladjúpt í vatni til kvölds. unz svningin hófst. Tveim árum áður var Riffoletto framsýnd, en mánuði siðar La Traviata. Og alla tíð síðan eru þessar þrjár óperar víðact og tíðast fluttar af öll- um þeim sæg. sem Verdi samdi en það var víst hátt á þriðja tug. Nú hafa þessar þriár ver- ið fluttar einnig hér. II Trova tore síðast framsvnd í Þjóð- Ieikhúsinu á dögunnm. og ef að likum lætur. verður þar oft þiðröð á næstunni. með því að leita ttt annarra landa. Svo er það að verða fast við kvæði eftir óperusýningar hér, að þær hafi tekizt furðanlega vel, miðað við allar aðstæður (siþr. líka mannfjöldasaman- burðinn) og gildir það líkahér. Það er nefnilega varla einleik- ið, hvemig þetta slampast af, að smala liðinu saman, æfa það og samstilla á fáum vikum og síðan framsýning upp á líf og dauða. Ekki þarf við því að búast, að þá sé allt fínpússað og falli eins og fjöl við rass. En í þetta sinn skortir ekki mikið á. að svo sé. (En varla er hægt að kalla þetta annað en slembilukku. Nú er setztur að hér heima á bezta aldri einn lærðasti og reyndasti ópera- söngvari íslenzkur. Hví ekki að láta slíkan mann hafa hönd í bagga um undirbúning óperu- sýninga hér á landi?) En svip- mót þessarar sýningar var sem sagt harla gott, þótt óneitan- lega hefði náðst betri árang- ur, ef þessi hraðsuðuleið væri ekki valin. Það duldist ekki, að hljómsveitarstjórinn danski, Gerhard Schepelem, var mun öfundsverðari af verki en leik- stjórinn Lars Runsten frá Sví- þjóð, þótt hans verk beri ekki að lasta. Að vísu orkar sumt hjákátlega, en hvað skal segja? Óneitanlega er skrýtið að sjá vaskan og frísklegan ungan mann eins og Manrico okkar (Guðmund Guðjónsson) setja sig í annarlegar stellingar og standa þannig hreyfingarlaus, að eftir drykklanga stund finnst manni þetta vera tröll, sem hefur dagað uppi með hendur á lofti. Svona var hann látinn bíða á meðan Azucena J a i T f M I N N, laugardagurinn 18. maí 1963

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.