Tíminn - 18.05.1963, Blaðsíða 13
GERIÐ BETRI KAUP EF ÞIS GETIfl
VREDESTEIN HOLLENZKIHJÚLBARÐINN
flugkénnsla —-
^ _ FARÞEGAFLUG
I
Æskulýðsráð Reykjavíkur og
Farfagladeild Reykjavíkur efna
tö gðngu- og ljósmyndatökuferðar
mk. sunnudag (19. maí). Lagt
verður af stað frá Búnaðarfélags-
húsinu við Lækjargötu kl. 10 f.h.
ojf ékið í mynni Jósepsdals, en
þaðan verður gengið á Vífilsfell
og um nágrennið. Leiðbeint verð-
ur um meðferð myndavéla og
myndatökur. Þátttakendum er ráð
lagt að vera vel búnir og hafa
með sér nesti. en veitt verður
kókó á áningarstað. Unglingum
sem verið hafa í ljósmyndaiðju á
vegum Æskulýðsráðs er sérstak-
lega bent á þessa ferð. Nánari
upplýsingar verða veittar í síma
15937 á föstudag kl. 2—4 og 8,30
—10 e.h.
M'mning
Framhald af 8. síðu.
19. aldar og fólkið ekki flutt burtu
meg sér nema það, sem kallað var
búslóð. Þetta var ævintýraferð í
fögru haustveðri í dalinn, sem
mörgum ferðamanni hefur leikið
hugur á að sjá og skoða, þótt fá-
ir hafi tekig svo hraustlega til
orða sem Guðm. Einarsson frá
Miðdal, er hann leit Víðidal í
sumarákrúða: „Að jafnvel dalir
Alpafjalla bliknuðu".
Þarna intii í reginfjöllum höfðu
bændurnir — Víðidalsmenn —
svo voru þeir alltaf nefndir, byggt
hlöðu við fjárhúsin með timbur-
þaki ,og skarsúð. Hlöðuþakið var
nær ófúið. Fluttum við það á
klökkum bundið í klyfjar yfir
Kollumúla td kofabyggingarinnar.
í Ársriti Ferðafélagsins 1940 seg-
ir Pálmi Hannesson að þessi kofi
á Stóra-Hnausnesi í Kollumúla sé
einn sá bezti, sem þann hafi séð
hér á landi, þiljaðuit í hólf og gólf
með ofni til upphitunar og matar-
gerðar.
Þetta mun hafa verið eitt
minnsta húsið, sem Jón J. Brunn-
an var yfirsmiður að. Því mörg
voru þau myndarleg á mælikvarða
þess tíma, svo sem hús það, er
nú gistihús á Höfn, hótelið, sem
kallað er, byggt sem einnar fjöl-
skylduhús. Þá voru steypuhræri-
vélar ekki komnar til sögunnar,
hvað þá önnur hjálpartæki nú-
tímans.
Þær eru margar minningarnar,
sem ég á frá samfylgd okkar um
áratugi og allar á einn veg.
Eitt af því, sem hreif mig mjög
var bjartsýni hans og innsýni í
ókominn tíma. Það var sem hann
dreymdi fyrir daglátum, eins og
kallað er í Skaftafellssýslu. Vissi
fyrir hvernig .lífið léki. við Jiann
og samstarfsménnina þann dág-
inn. Þegar hann var formaður á
Stafafellsbátnum við eyjaferðir og
fiskiróðra frá Papós var sjaldan
farin ónýtisför. Ef Jón hvatti til
sjóferðar tókst hún jafnan vel.
Eg hélt að hann ætti draumkonu,
sem segði óorðna hluti, en vera
má að forspá hans hafi verið
vökudraumur — hugboð —. Eg
man ekki eftir að hann segði okk-
ur drauma sína. Um áratugi 'var
Jón útgerðarmaður í félagi við
tmann systur sinnar, Bergþóru,
sem var mikil ágætiskona. Það
var hinn kunni sægarpur, Sigurð-
ur Ólafsson frá Bæ í Lóni — bú-
jörð Úlfljóts lögsögumanns — sem
fór með bát þeirra Björgvin og
var um mörg ár aflahæstur á
Homafirði og hlekktist aldrei
alvarlega á, þótt teflt væri oft á
tæpasta vaðið.
Þeir mágarnir bjuggu lengi í
sama húsi, er öllum þurfandi stóð
opið, og við sveitúngar þeirra
kölluðum „gistihúsið, sem enga
borgun tekur“.
Þótt Jón byggi við sjóinn öll
hin síðari ár gleymdi hann ekki
landinú. Talaði hann oft um frið
sæld og fegurð fjallanna og víð-
sýnið, er hann sat yfir kvíaám í
SuðursveÚ, þar sem Vatnajökull
teygir tungur sínar niður í dal-
botnana og við augum blasti út-
hafig endaxaust og heillandi.
Árið 1917 kvæntist Jón heitmey
sinni Jónínu Guðbjörgu Jóhanns-
dóttur. Hún átti til Húnvetninga
að telja í föðurætt, en móðurætt
hennar var af hinni kunnu Fjalls-
ætt í Ámessýslu. Eftir eins árs
sambúð andaðist Jónína, en eftir
lifði dóttir, er hlaut nafn móðúr
sinnar. Hún ólst upp hjá föður
sínum og systrum hans við mikið
ástríki. Varð heimili þeirra hin
næstu ár í Höfn í Hornafirði og
jafnan síðan. Nú er Jónína Brunn-
an húsfrú á Höfn gift Ársæli Guð
jónssyni, útgerðarmanni, eiga þau
4 efnilega syni.
HeimiHð hefur jafnan verið róm
að fyrir myndarskap og gestrisni.
Jón J. Brunnan byggði með tengda
syni sínum nýtt hús — Sólberg
— stórt og vandað. Mun það hafa
verið með síðustu húsum, sem
hann vann við. Hann var félags-
lyndur maður og samvinnuþýður,
enda fulltrúi Hafnarbúa um ára-
bil á fundum Kaupfélags Austur-
Skaftfellinga. Vildi hann hag
landbúnaðar og sjávarútvegs sem
mestan og beztan. Hann var sí-
vinnandi meðan heilsan leyfði og
tók gestum sínum með mikilli
hlýju.
Fyrir allmörgum árum varð
hann fyrir áfalli við vinnu, svo
eftir það gekk hann ekki að störf-
um utanhúss, en hélt sjón og
heyrn til síðustu stundar. Naut
hann þá sem áður ástúðar og um-
hyggju dóttur sinnar og annarra
vandamanna. Með honum er til
moldar hniginn sannur Skaftfell-
ingur, fastheldinn á fornar dyggð-
ir, en þó framfaramaður hins nýja
tíma. Bjartsýnn, stórhuga og sterk
ur í raun.
S. J. Stafafelli
Sú kvikmynd sovézku kvikmyndavikunnar, sem flestar sýningar eru á,
nefnist Seryozha, sem Kópavogsbíó tók til sýningar á ölium þrem sýningum
{ þrjá daga, og er síðasti sýningardagur i dag. Mynd þessi hefur vaklð
mikla aðdáun hvarvetna þar sem hún hefur verið sýnd. Söguhetjan er
timm ára drengur, Seryozha, sem misst hefur föður sinn og eignast sfðan
nýjan föður. Þegar mynd þessi var sýnd í Bandaríkjunum, birti vikuritið
Time mjög lofsamlegan dóm um hana, lét þá svo ummælt, að flestar banda-
rískar barnamyndir væru pauðaómerkilegar, þegar þær væru bornar saman
vlð mynd sem þessa. — Hér birtist mynd af Seryozha og nýja pabbanum.
FLUGSÝN SÍMI 18823
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðrá
mun í sumar frá 1. júlí til 31. ágúst reka sumar-
dvalarheimili fyrir fötluð börn að Reykjadal í
Mosfellssveit. ,
Fyrstu tvær víkurnar verður ekki hægt að taka
nema um það bil 20 börn, en að þeim tíma lokn-
um alls 40 börn.
Upplýsingar í síma 12523.
Styrktarfélag lamaSra og fatlaðra.
Húsmæður
Lækkað verð á ofnahreinsileginum EASY-OFF,
vegna tollabreytinga.
Verð kr. 40.00 pr. glas.
Sendum í póstkröfu um land allt.
REGNBOGINN,
Bankastræti 6. — Sími 22135.
Humarbátur
TIL SÖLU
36 tonn, tilbúinn á veiðar. Bátnum fylgja enn frem-
ur öll dragnótaveiðarfæri.
Snorri Árnason, lögfr. Selfossi.
Til sölu
Húsignin Mýrarhús í Vogum, Vatnsleysustrandar-
hreppi ásamt 1750 ferm. erfðafestulandi, er til
sölu. — Nánari upplýsingar gefur Oddviti Vatns-
leysustrandarhrepps. Sími Vogar 12 c.
T í M I N N, laugardagurhm 18. maí 1963
13