Alþýðublaðið - 08.11.1940, Page 3
---------MÞÝÐUBLAÐIÐ------------------------
Ri-tstjóri: Stefán Pétursson.
Ritstjórn: Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Sfmar: 4ð02: Ritstjóri. 4901: Innlendar fréttir. 5021: Stefán Pét-
ursson (heima) Hringbraut 218. 4903: Vilhj. S. Vilhjáms-
son (heima) Brávallagötu 50.
Afgreiðsla: Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu.
Símar: 4900 og 4906.
Verð kr. 2.50 á mánuði. 10 aurar í lau
AT.ÞÝÐUPRENTSMIÐJ AN
Hvort er betra, brúnn eða rauður?
-----♦-----
ENGINN athugull maður hef-
ir gengið þess dulinn, að
allt síðan í vor hafa blöð Sjálf-
stæðisflokksins, Vísir og Morgun-
blaðið, verið að velta því fyrir
sér, hvort væri betra, brúnn eða
rauður, hvort þau ættu heldur
að miða afstöðu sína við væní-
anlegan sigur nazismans eða lýð-
ræðisins í því stríði, sem nú
stendur yfir. Öll fortíð þessara
blaða, að minnsta kosti síðam Hit-
ler brauzt til valda á Pýzfcalandi,
hefir hvíslað að þeim, að - þau
skyldu ekki gefa upp vonina Um
sigur nazismans. En margt það,
sem skeð hefir siöan í vor, hefir
hins vegar fyilt þau efasemdum
um, að sá óskadraumur þeirra
myndi rætast, og ótta við það, uð
lenda að lokum vitlausu megin.
Pess vegna hafa þau tvístigið
og enga ákveðna afstöðu þorað
að taka til ófriðarins fram áþenn
an dag, né heldur til þeirra afla,
nazisrpans og lýðræðisins, sem
þar eigast við, enda þótt allir
viti, að þau eru ekki takmörkuð
við ófriðarlöndin ein, heldur raun
verulega í baráttu Upp á líf og
dauða um allan heim. Það hefir
komið einhver vonsæl lyfting í
Vísi og Morgunblaðið í hvert sinn,
sem nazisminn hefir gert nýja
útrás og lagt undir sig ný lönd,
en dregið neyðarlega niður í
þeim að sama skiapi, þegar loka-
sigur nazismans hefir þrátt fyrir
allt brugðizt, og lýðræðisþ'jóð-
imar sýnt hinn ósigrandi lífs-
þrótt sinn.
1 afstöðunni til þess, sem ver-
ið hefir að gerast hér heima hjá
okkur, hafa Sjálfstæðisflokksblöð-
in tvístigið á nákvæmlega sama
hátt. Annað veifið hafa þau of-
sótt Alþýðublaðið fyrir hina á-
kveðnu afstöðu þess með lýðræð-
isþjóðunum og á móti nazisman-
um, sakað það um hlutleysisbnot
og undirlægjuhátt við Breta, eins
og þýzk nazistablöð eru vön að
að gera, þegar þau ætla að þagga
niður almenningsálitið á meðal
hlutlausra þjöða, og reynt að
breiða yfir undirróður nazista-
armsins i Sjálfstæðisflokkn-
um með því að neita tilveru hans
og tala um „nazistagrýlu“ hjá
Alþýðublaðinu, þegar það hefir
bent á moldvörpustarf þessarar
„fimmtu herdeildar“ hér. En
hinn sprettinn hafa þau beygt sig
og bukkað fyrir 'brezka setulið-
inu. afneitað nazismanum, og Vís-
ir meira að segja gengið svo
'langt í því, að fyrst eftir að setu-
liðið kom hingað í vor var ekki
annað sjáanlegt, en iað hann hefði
að fullu sagt skilið við sína hálf-
nazistisku fortið.
En því miðui' váhð það
ekki nema skammgóð vit-
glóra. Upp á síðkastið hefir
engu verið líkara, en að Vísir
væri kominn í hreint og beint
kapphlaup við kommúnistablað-
tð hér í naggi við brezka setu-
liðið og níði um Alþýðublaðið,
fyrir það, sem hann kallar hlut-
leysisbrot þess, „Undirlægjuhátt"
og „nazistagrýlu".
Alþýðublaðið hefir undanfarna
daga nokkrum sinnum gert þetta
bakfall Vísis, og raunar eimnig
Morgunblaðsins, að umtalsefni og
bent á hvernig bæði þessi blöð
halda áfram að daðra við naz-
ismann' í þeirri augijósu von, að
það verði þeim drýgst til fylgis
Dg vatda í framtíðinni. Ot af því
hafa spunnizt nokkrar umræður,
þar sem Sjálfstæðisflokksblöðin
hafa að vísu haft lítið fram að
færa annað en slagorðið um „naz
istagrýluna" í Alþýðublaðinu, en
Alþýðublaðið hinsvegar minnt
þau á hin og þessi dæmi um
nazistískan fréttaflutning og á-
róður þeirra og áhrifin, sem hann
hefir haft á hina yngri kynslpð
Sjálfstæðisflokksins. Enda vantar
ekki heldur dæmin um þau í
dónalegum árásum á einstaklinga
I brezka setuliðinu, leynilegUm
útvarp sstöðv’um, Hitlersmyndum
inni á heimilum, skemmdarverk-
I
‘um og öðrum slíkum afrekum
þess lýðs, sem þykist vera að
berjast fyrir sjálfstæði okkar gegn
hinu brezka setuliði, en er raun-
vemlega að kalla á vaxandi í-
hlutun þess með athæfi sínu.
Bn Vísir er ekkí í vandræðum.
I ritstjórnargrein hans í gær er
því að vísu ekki lengur haldið
fram að aðvaranir Alþýðublaðs-
ins gegn nazismanutm í Sjálfstæð-
isflokknum sé „grýla“ ein. En
hinsvegar hefir hann nú upp-
götvað, að „það gæti verið skaÖ-
legt“, eins og hann kemst að ^orði,
að tala um hann, „eins og högum
okkar er nú komið“, „þegar hér
hefði tekið sér aðsetur her manns,
feem ætti í baráttu við nazism-
ann upp á líf og dauða“. Það
sé, „að gera mikinn hluta is-
lenzku þjóðarinnar tortryggilegan
í augum Breta“, og raunverulega,
„að gera róg um landa sína“!
Og auðvitað er því ekki gleymt,
frekar en endranær, að láta ut-
anríkismálaráðherrann að end-
ingu vita, að hann sé „ekki fær
um að gegna þeirri ábyrgðar-
miklu stöðu, sem hann nú skip-
ar“, ef hann þaggi ekki niður
í Alþýðublaðinu, „blaði utanrikis-
málaráðherrans" og banni því nú
jekki aðeins að láta í ljós skoðanT
sínar á því, sem er að gerast
úti í heimi, eins og Vísir lét
sér þó nægja að krefjast hingað
til, heldur einnig, að tala Um
okkar innanlandsmál! Og fer nú
að verða skiljanlegt hvers vegna
Sjálfstæðisflokkurinn sækist svo
mjög eftir embætti utanrikismála-
ráðherrans, fyrst að hann heldur
að það veiti eins konar einræðis-
vald, meðal annars til þess aíð laf-
ALÞÝÐUBLAÐIÐ föstudagur s. nóv. 1940.
Nokknr orð til mlnningar
11 sMpveipia á Braga.
-----♦-----
Eítir SiprióK L Ölalsson fsrn. Siómannaféiagsins.
SORGLEG var fregnin, er
barst til landsins frá Bret-
landi þ. 31. okt. s.l. um togar-
ann Braga, sem farizt hafði
daginn áður og 10 af 13 manna
áhöfn látið lífið, allt menn á
bezta aldri, hraustir og táp-
miklir. Eftir langa sjóferð yfir
hafið og meðfram ströndum
Bretlandseyja höfðu þeir kom-
izt án þess að nokkuð yrði þeim
að grandi® Sama giftan og al-
mættisverndin hafði yfir þeim
verið eins og öllum sjómönnum
vorum og skipum, er siglt hafa
um höfin frá stríðsbyrjun.
Skipinu *er lagt fyrir akkeri
skammt frá landi. Menn ganga
öruggir til hvílu og bíða morg-
unbirtunnar; þá skal sigla í
höfn. Enginn gerir ráð fyrir
því, að hætta sé á ferðum.
Á næstum augnabliki eru
orðin hræðileg umskipti. Skip-
ið er komið á kaf í djúpið, eng-
in leið til undankomu, 10 menn
láta líf sitt, en 3 bjargast
nauðulega.
Ísland og íslenzka sjómanna-
stéttin er 10 mönnum fátækari.
Konur, mæður og börn sitja
heima, sem hafa misst allt, sem
þeim var kærast. Söknuður og
sorg fyllir hugann. Bjartar von-
ir bresta og kvíðinn um fram-
tíðina lamar alla lífsgleði. Sag-
an endurtekur sig sí og æ. Sjó-
slysum verður seint afstýrt með
öllu.
Meðal þeirra, sem fórust á
Braga, voru 5 félagsmenn í Sjó-
mannafélaginu og flestir þeirra
um mörg ár. Þeir voru allir á-
gsetir félagar, sem höfðu í gegn-
um margra ára baráttu bundið
tryggðxvið félag sitt og fengið
traust á því. Um mörg ár höfðu
þeir verið saman undir stjórn
Ingvars Ágústs skipstjóra og
voru iþví eins og óaðskiljanlegir
skipsfélagar. Þeir voru því
bundnir sterkum vináttu- og fé-
lagsböndum hver til annars.
Þeir voru viðurkenndir dugn-
aðarmenn við störf sín á sjón-
um, enda fyrstu menn til allra
nema prentfrelsið þvert ofan í
stjórnarskrána og banna blaða-
umræður, ekki aðeins Um utan-
ríkismál, heldur einnig um innan-
landsmál, hvenær sem þær gætu
orðið flokki utanríkismálaráðherr-
ans óþægilegar!
En sem sagt: Nazisminn í Sjálf
stæðisflokknum er staðreynd, sem
Vísir treystir sér ekki lengur í
móti að mæla. En hann er hara
„tabu“. Það má ekki minnast á
hann, því það er , að gera mikinn
hl'uta íslenzku þjóðarinnar tor-
tryggilegan" og „að bera róg um
landa okkar“ við Breta!
„Vér bnosum“ — og skiljum,
að þrátt fyrir allar vangaveltur
milli nazismans og lýðræðisins
hingað til, vill Vísir þó ennþá
halda sér opinni leið til þess að
koma sér vel við Breta, ef illa
skyldi fara fyrir Hitler úti í
I heimi.
starfa hjá Ingvari skipstjóra,
sem mat þá mikils, en hann var
viðurkenndur góður skipstjórn-
ari og naut hy-lli manna sinna.
Félagarnir fimm voru þessir:
Lárus Guðnason, Kárastíg
11, 45 ára, lætur eftir sig konu
og 2 börn.
Sveinbjörn Guðmundsson,
Njálsg. 56, 49 ára, lætur eftir
sig konu og 1 barn.
Elías Loftsson, Skólavörðust.
35, 33 ára, lætur eftir sig konu
og 1 barn.
Allir þessir voru hásetar.
Þorbjörn Björnsson, mat-
sveinn, Laugavegi 20 B, 38 ára,
lætur eftir sig konu og 2 börn.
Sigurmann Eiríksson, 1. stýri
maður, Barónsstíg 3, 42 ára,
lætur eftir sig konu og 2 böm.
í dag fer fram jarðarför
Ingvars Ágústs skipstjóra og
um leið minningarathöfn þeirra
níu skipsfélaga hans, sem létú
líf sitt samtímis honum, en lík-
amir þeirra hvíla nú á marar-
botni suður við Englands-
strönd. Við minnumst þeirra
allra eins og þeir væru bomir
til hinstu hvílu í íslenzkri mold
með skipstjóra sínum, þökkum
þeim dáðríkt starf í þágu lands
síns og þjóðar, þökkum þeim
tryggð við stétt sína og málefni
hennar, og biðjum guð og góða
menn að sefa sorgir ástvina
þeirra og létta þeim byrðina.
Minningin um röska og góða
drengi lifir meðal starfsbræðra
og félaga.
Sigurión Á. Ólafsson.
Póst- m símamálastjórninni
,ÚVIeð því að póstur frá Ameríku verður nú að fara um
Bretland til skoðunar, skal kaupsýslumönnum bent á, að
til þess að hægt sé að fá afgreiddar vörur úr Ameríkuskip-
unum, strax þegar þau koma, er heimilað að skipin taki með
frá Ameríku, í skipsgeymslu hjá skipstjóra, farmskírteini
ásamt vörureikningi með upprunaskírteini, vátryggingar-
skírteinum og víxlum vegna innheimtu á greiðslu fyrir vör-
urnar í skipinu og skulu skilríki þessi afhent í opnu, frí-
merktu umslagi brezka aðalræðismanninum í New York,
sem kemur þeim til skipstjórans.
Enn fremur geta verzlunarfyrirtæki í Ameríku sam-
tímis fengið send með skipinu verzlunarbréf varðandi vör-
ur í skipinu eða vörur væntanlegar með næstu skipum, með
því að senda bréf þessi (á ensku) í tveim eintökum, sitt í
hvoru umslagi, opnum og frímerktum, til brezka aðalkon-
súlsins í New York, sem kemur öðru eintakinu til skip-
stjórans, en lætur hitt eintakið á póst, sem fer um Bret-
land.“
Kápiisktiiii
Og
úrval af kápuefnum
Kápubúðin Laugaveg 35
TanDlækningastofu
hefi ég opnað á Öldugötu 3, áður Tannlækningastofa frú
Ellen Benediktsson.
Viðtalstími kl. 10—12 og 4—6.
Laugardaga kl. 10—12.
Sími 2286.
MATTHÍAS HREIÐARSSON, tannlæknir.
Innilegus,tu þakkir færum við öllum þeim, er sýndu
okkur hlýja vinsemd á silfurbrúðkaupsdegi okkar í gær.
Grímheiður Jónasdóttir. Sigurður Ólafsson.
—ÚTBREIÐIÐ ALÞÝBUBLAÐIB—