Alþýðublaðið - 13.11.1940, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 13.11.1940, Blaðsíða 3
MÍÐVIKUDAGUR 13. NÓV. 1940. ALÞÝÐUBLAÐSÐ ----------MMÐUBLAMB------------------------* Ritstjóri: Stefán Pétursson. Ritstjórn: Alþýðuhúsinu við Hverfisgotu. Símar: 4902: Ritstjóri. 4901: Innlendar fréttir. 5021: Stefán Pét- ursson (heima) Hringbraut 218. 4903: Vilhj. S. Vilhjáms- son (heima) Brávallagötu 50. Afgreiðsla: Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. Símar: 4900 og 4906. Verð kr. 2.50 á mánuði. 10 aurar í lau AI, ÞÝÐUPRENTSMIÐJAN -4-----------;------------------------------♦ Hvað vakir fyrir SjálfstæðisliohkiuH? Bjarni Sæmundsson. Q AMBANDSÞING UNGRA O SJÁLFSTÆÐISMANNA, sem setið hefi'r á rokstóium hér í Reykjavík undanfarha daga, heiðra'ði Alþýðublaðið með sér- stakri samþýkkt i tilefni af grein- um þess „varðandi málefni lands- ins út á við og afstöðu vora til ófriðaraðilanna“, en vék um leið nokkrum orðum að utanríkis- málaráðherranum, svipuiðum þeim, sem getið hefir að lesa í blöðum Sjálfstæðisfiokksins síð- ustu: daga. Morgunblaðið sagði í gær, að samþykktin hefði verið gerð „vegna gálausra skrifa Alþýðu- blaðsins". En það þótti Vísi of lítið sagt. Samkvæmt frásögn hans var samþykfctin gerð „vegna skrifa Alþýðublaðsins gegn ís- lenzkum málstað og hagsmun- tum“! En samþykktin sjálf hljóðar þannig: „Sambandsþing ungra Sjálf- stæðismanna átelur mjög harð- iega hin ábyrgðarlausu skrif Al- þýðubláðsins, að undanförnu varðandi málefni landsins ut á við og afstöðu vora til ófriðarað- ilanna. Telur sambandsþingið al- gerlega óviðunandi, að formaður Alþýðuflokksins, Stefán Jóhann Stefánsson, gegni áfram embætti utanrikismálaráðherra, méð þvi að láta slík skrif viðgangast ó- átalið tí málgagni flokks síns og með því móti stöðu sinnar vegna>. gefið óf.riðaraðilum hættulegt til- efni til þess að taka martk á skrifum blaðsins.“ Svo mörg eru þau orð. Og svo gáfulega og þjóðlega orðaðar •eru þær samþykktir, sem sam- bandsþing ungra Sjálfstæðis- manna lælur frá sér fara. En lát- um málið á samþykktinni liggja milli hluta og snúum okkur að innihaldi hennar. Hvaða „skrif Alþýðublaðsins" eru það þá, „varðandi málefni landsins út á við og afstöðu voria til ófriðaraði]anna“, sem sam- bandsþing ungra Sjálfstæðis- mánna „áte!ur“ svo ,,harðlega“? Þar er ekki um neitt að villast: Það eru greinar Alþýðublaðsins á móti þýzka nazismanum og með JýðræðisþjóðunUm, í stríðinu, sem nú stendur yfir. Slíkar greinar vill sambandsþing ungra Sjálf- stæðismanna ekki „láta viðgang- ast“. Með þeim telur það ófrið- araðilunum vera gefið „hættulegt tilefni“. Og ritstjóri Vísis, sem átti sæti á þinginu, bætir {)eim vísdómi meira að segja við1 frá eigin brjósti, að þessar greinar Alþýðublaðsins séu „skrif gegn íslenzkum málstað og hagsmun- um“! Hver hefir áður heyrt annað eins? Að gagnrýna þýzka nazism- ann á prenti og taka afstöðu með lýðræöisþjóðunum, á að vera sama og að skrifa „gegn íslenzk- um málstað og hagsmunum"! Rit- stjóri Vísis er sjálfur lögfræðing- 'ur. Og auk hans sátu að minnsta kosti þrír iögfræðingar sam- bandsþingið, þar af tveir prófess- (orar í lögum. Ekki geta þeir ver- ið svo illa að sér, að þeir viti ekki, að samkvæmt atþjóðalögum er hlutleysi ekki falið í neinu öðru en því, að ríki, sem slíkt, haldi sér frá allri hlutdeild í hernaðaraðgerðum. Sú krafa, að blöð og einstaklingar séu hlutlaus í skrifum sínum eða 'orðum, á sér engan stað í alþjóðalögum. En hvað eru herramir i Sam- bandi ungra Sjálfstæðismanna aö hugsa um alþjóðalög? Hitler og Göbhels heimta „algert“ hlutleysi. Þeir vilja ekki leyfa neina gagn- írýni á þýzka nazismanum í hlut- lausum löndum, né nemar sam- úðaryfirlýsrngar með lýðræðis- þjóðunum, og krefjast þar af leiðandi þess, að þeim blöðum, sem eins og Alþýðublaðið eru andvíg nazismanum, verði bann- að að láta skoðanir sína/r í ljós, án irokkurs tillits til þess, hvort prentfrelsi er rikjandi i hlutað- eigandi landi eða ekki. Og þessia kröfu gerir Samband ungra Sjálf- stæðismanna nú að sinni! Og þykist með því vera að berjast fyrir „íslenzkum málstað og hagsmunum"! Rétt eins og það vseri íslenzkur málstaður og hags- munir, að við létum kúgast dl þess af þýzka nazismanuin, að afsala okkur þeim réttindum, sem okk'ur ber samkvæmt alþjóðalög- um og prentfrelsinu innanlan'ds í viðbót! Nei, þeir menn, sem slíkar kröfur bera fram, eru ekjri að hugsa um „íslenzkan málstað og hagsmuni“, heldur um eitthvað annað. Blöð Sjálfstæðisflokksins, Morg- unblaðið og Vísir, tóku það illa upp, að Alþýðublaðið skyldi á dögunum segja þann sannleikai, að nazistar væru hér enn að verki innan Sjálfstæðisflo'kksins og að áhrifa þeirra gætti alvar- ’lega í flokknum og blöðum hans. Alþýðublaðið tók þó skýrt fram, að allir hinir gætnari menn Sjálf- stæðisflokksins hefðu megnustu skömm á slíku daðri hans við nazismann og vildu ekkert af því vita, en þeir hefðu enn aldrei megnað að fá flokkinn til að segja fyrir fullt og allt skilið vib hina nazistisku undirróðursmenn. Þetta kölluðu Morgunblaðið og Visir ,,grýlu“ og „rógburð“ og sóru fyrir það, að nokkurra naz- istaáhrifa gætti í Sjálf stæðis- flokknum. En hvað er það annað eri á- hrif nazismans, sem fram komia í samþykkt sambandsþings ungra Sjálfstæðismanna? Og þar er því ækki einu sinni til að dreifa, að Frh. á 4 .síðu. B Dr. phil. BJARNI sæ- MUNDSSON verður jarð- sunginn í dag. Dr. Bjarni f'æddist að Járn- gerðarstöðum í Gullbringusýslu 15. apríl 1867. Foreldrar hans voru húsfrú Sigríður Bjarna- dóttir og maður hennar, Sæ- mundur bóndi Jónsson að Járn- gerðarstöðum. Hann var reynd- ur til 1. bekkjar Lærðaskólans í Reykjavík haustið 1883 og lauk þaðan stúdentsprófi með I. einkunn vorið 1889. Sigldi samsumars til Hafnar og inn- ritaðist þar í háskólann. Bjarni valdi sér að ðalnámsgreinum dýra- og landafræði, en sem aukagreinar kaus hann eðlis- og efnafræði. Eftir 5 ára há- skólanám lauk hann embeettis- prófi í þessum greinum og fluttist heim sumarið 1894. Þetta haust fékk dr. Þorvaldur Thoroddsen lausn frá kennslu- störfum við lærða skólann og kenndi Bjarni fyrir hann sem stundakennari um veturinn. En dr. Þorvaldur kom ekki að skól- anum aftur og.tók því Bjarni til fullnustu við kennslustörfum hans.Var honum veitt adjúnkts- embættið aldamótaárið og gengdi hann því til haustsins 1923, að hann fékk lausn frá embættinu með fullum launum, til þess að geta óskiptur sinnt vísindastörfum sínum, Dr. Bjarni kenndi því við Lærðaskólann (síðar Hinn alm. menntaskóla) í nærfellt 30 ár., Sá, sem þetta ritar, naút kennslu hans í skóla aðeins einn vetur. Við vorum fáir í bekknum, enda nutum við kennslunnar ágætlega. Kennar- inn gerði efnið ljóst og skemti- legt jafnt með orðum og mynd- um, sem hann var framúrskar- andi hagur að draga. Ég minnist með sérstakri ánægju og þakklæti einnar kennslu- stundar, sem fram fór suður í Fossvogi vorið 1923. Dr. Bjarni las þar úr jarðlagaskipun bakk- anna fyrir okkur nemendur. Þar opnaðist mér ókunnur heimur, sem mér hefir síðan jiót!; vænt um. Enda þótt dr. Bjarni hyrfi frá Menntaskólanum 1923 hefir á- ‘hrifa hans gætt þar áfram, því að enn eru notaðar kenslubæk- ur hans í dýra- og landafræði og jarðeðlisfræði. Kennslustörf dr. Bjarna virðast hafa yerið ærin einum manni. Þó gnæfa vísindaafrek hans ofar. Strax eftir heimkom- una frá háskólanum, hóf hann með þrautseigju og dugnaði að rannsaka dýraríki íslands. Þeim rannsóknum hélt hann á- fram til dauðadags með sömu alúð, og sama dugnaði og þær voru í öndverðu hafnar.. Árang- ur þeirra rannsókna hefir birtzt í' fjölda stærri og smærri rit- gerða, sem ekki verður hægt að telja allar hér. í tímaritið Andvara reit dr. Bjarni skýrslur um fiskirann- sóknir sínar. Greina þær frá 40 ára rannsóknum, sem vart mun hægt að meta til fullnustu ís- lenzkum útvegi á þessum stór- brotnasta þróunarferli hans. í „Skýrslu um hið íslenzka náttúrufræðifélag" og í tíma- ritin ,,Náttúrufræðingnum“ og og „Ægi“__hefir dr. Bjarni rit- að fjölda margar greinar um ís- lenzk dýr og íslenzka náttúru, og hann kunni á því lag mörg- um öðrum fremur að skrifa skemmtiiega og alþýðlega um vísindaleg efni sem margar blaða- og tímaritagreinar hans bera vott um. Með lausninni, frá kennslu- störfunum öðlaðist dr. Bjarni meiri tíma til ritstarfa, er sum- þart lutu þá að því, að kynna íslendingum sjálfum hin æðri dýr. Koma út eftir hann þrjú stór rit um þetta efni: „Fisk- arnir“ (Pisces islandiæ), 1926, 528 bls., með fjölda mynda og korti; „Spendýrin (Mammalia islandiæ), 1932, 437 bls. með mörgum myndum, og loks „Fuglarnir11 (Aves islandiæ), 1936, 699 bls., sömuleiðis prýdd fjölmörgum myndum. Sumpart hnigu nú ritstörf dr. Bjarna að því að kynna erlendum starfs bræðrum, meir en áður, niður- stöður rannsóknanna. Allt frá árinu 1897 reit dr. Bjarni greinar í danska vísindaritið „Videnskabelige Meddelelser fra Dansk Naturhistorisk For- ening“, sem hann nefndh „Zoo- logiske Meddelelser fra Island.“ Eru þessar greinar um 20 tals- ins og fjalla þær um spendýr, fugla og fiska og ýms lægri dýr; sérstaklega um útbreiðslu þeirra og lifnaðarháttu. En auk þessa reit hann fyrir þetta sama tímarit tvær ritgerðir, aðra um sæliðorma, hina um hveljudýr. í tímaritinu: „Meddelelser fra Kommisionen for Havund- ersögelser“ á dr. Bjarni nokkr- ar ritgerðir um útbreiðslu og nytsemi fiska. Ég skal benda á: „Continued marking Experi- ments on Plaice and Cod in Icelandic Waters“ (1913), og enn fremur á greinar um aldur og vöxt þorskfiskanna, — „On the Age and Growth of the Cod . . in Icelandic Waters“ (1923, ’25 og ’29; þrjár ritgerðir). Áð- ur hafði dr. Bjarni ritað mjög mikilsverða grein í hið kunna ritsafn: „Skrifter udgivet af Kommissionen for Havunder- sögelser“, er hann nefndi: „Ov- ersigt over Islands Fiske, rnéd Oplysning om deres Forekomst, vigtigste biologiske Forhcld og ökonomiske Betydning11 (1909), Frá öndverðu áttí dr. Bjarni sæti í ritstjórn ritsafnsins „Zoology of Iceland" og þar er hann höfundur að ritgerðinni um spendýrin (1^39). «j Þótt ég hafi hér aðeins nefnt nokkrar ritgerða dr. Bjarna, nægir það að sýna hversu ó- venju afkastamikill rithöfund- ur hann var, Félagsstörf dr. Bjarna hafa bæði verið fjölþætt og mikils- verð, og öll leysti hann þau af hendi með framúrskarandi dugnaði og fangnum huga. Hann var jafnan ráðunautur ríkisstjórnarinnar um allt, er laut að rannsóknum sjávar og ósaltra vatna íslands. Hann var formaður „Hins ísl. náttúru- fræðifélags11 frá árinu 1905, og hann hafði yfirumsjón nátt- úrugripasafnsins, og hann hefir átt drýgri þátt um vöxt þess og viðhald en nokkur annar. Hann sat í stjórn „Fiskifélags ís- lands“ frá stofnun og hann var leiðbein'andi jafnt erlendra sem innlendra náttúrufræðinga, er fengust við rannsóknir lands vors og sjávar. Dr. Bjarni Sæmundsson hlaut að verðleikum margan frama fyrir afreksstörf sín, en ég hygg, að um engan hafi hon- um þótt jafn vænt né metið meir, en þann, — er háskóli Kaupmannahafnar kjöri hann heiðursdoktor vorið 1929, á 450 ára afmæli skólans. Þegar dr^ Bjarni hélt heim frá þeirri at- höfn kvaddi ég hann á skips- fjöl og ég man, að hann hafði orð á þeirri virðingu, sem sér væri sýnd með kjörinu. Fyrir nokkrum árum mætti ég dr. Bjarna Sæmundssyni á Þingvelli. Við biðum þar Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.