Alþýðublaðið - 20.11.1940, Page 1

Alþýðublaðið - 20.11.1940, Page 1
RITSTJÓRI: STEFÁN PÉTURSSON ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN XXI. ARGANGUR MIÐVIKUDAGUR 20. NÓV. 1940 275. TÖLUBLAÐ Stjórnarkosningar á Alþýðusambands pingi og Alþýðuflokksþingi í gær. ---+--- Sameiginleg pingslit féru fram klukkan 2 I dag. Sigurjón Á. Ólafsson kosinn forseti Alþýðusambandsins. ------«------ STÖRFUM Alþýðusambandsþingsins var lokið í gær- kveldi, en þingslit fóru þó ekki fram fyrr en kl. 2 í dag. Á síðasta fundi þingsins í gær var kosin sambands- stjóm til tveggja ára, eins og hin nýju lög sambandsins mæla fyrir, og er hún skipuð 17 mönnum og jafnmörgum varamönnum. Sambandsstjórn er þannig skipuð: Forseti: Sigurjón Á. Ólafs- son, formaður Sjóm.fél. Rvíkur. Varaforseti: Jón Axel Péturs- son, formaður Stýrimannafél. íslands. Ritari: Guðgeir Jónsson, for- maður Bókbindarafél. Rvíkur. Meðstjórnendur úr Reykja- vík: Jóhanna Egilsdóttir, for- maður V.K.F. Framsókn, Magn- ús H. Jónsson, formaður Hins ísl. prentarafélags, Sigurður Olafsson, gjaldkeri Sjómanna- fél. Rvíkur, Runólfur Péturs- son, formaður Iðju, félags verk- smiðjufólks. Meðstjórnendur' úr Hafnar- firði: Sigurrós Sveinsdóttir, for- maður V.K.F. Framtíðin, Jón Sigurðsson erindreki. Meðstjórnendur fyrir Suður- land: Guðmundur Sigurðs- son, Vestmannaeyjum, Hálfdan Sveinsson, formaður Verka- lýðsfélags Akraness. Meðstjórnendur fyrir Vestur- land: Hannibal Valdimarsson, forseti Alþýðusambands Vest- fjarða, Finnur Jónsson alþing- ismaður. Meðstjórnendur fyrir Norð- urland: Erlingur Friðjónsson, Frh. á 2. siðu. Sigurjón Á. Ólafsson. Jón Axel Pétursson. Unperjalanð gerist aðlli að Þríveldasáttm álanam. UNGVERJALAND hefir nú gerzt aðili að þríveldasátt- mála lýýzkalands, Ítalíu og Japan, og hefir samningur þar að lútandi þegar verið undirritaður á ráðstefnunni, sem nú stendur yfir í Wien. Á þessari ráðstefnu eru ekki aðeins mættir Ribbentrop, Ciano greifi og ungversku ráðherrarnir Teleki greifi og Czaky greifi, eins og sagt var frá í fréttunum í gær. Hitler er einnig mættur á ráðstefnunni, og með honum sendiherra Japana í Ber- lín. Komu'þeir til Wien í morgun. Fregnin um bandalag Ungverja I an, vekur enga undrun í Loridon. lands við möndulveldin og Jap- I Frh. á 2. síðu. Stefán Jóh. Stefánsson kosinn forseti Alþýðuflokksins. ♦------- U FTIR að störfum Alþýðusambandsþingsins var lokið í gærkveldi, hófst fundur í þingi Alþýðuflokksins og stóð hann langt fram á nótt. Voru tekin fyrir og afgreidd nefndarálit, þar á meðal álit stjórnmálanefndar, sem lýsir afstöðu flokksins til allra helztu mála, sem nú eru efst á baugi. Því næst var kosin stjórn fyrir Alþýðuflokkinn og er hún slripuð 33 mönnum og jafnmörgum váramönnum. Stefán Jóh. Stefánsson. Flokksstjórnin er þannig skipuð: Forseti: Stefán Jóh. Stefáns- son. Varaforseti: Haraldur Guð- mundsson. Ritari: Jónas Guðmundsson. Meðstjórnendur úr Reykja- vík: Sigurjón Á. Ólafsson, Ingi- mar Jónsson, Guðmundur R. Oddsson, Ásgeir Ásgeirsson, Guðmundur í. Guðmundsson, Soffía Ingvarsdóttir. Meðstjórnendur úr Hafnar- firði: Kjartan Ólafsson, Emil Jónsson. Meðstjórpendur fyrir Suður- land: Guðmundur Jónsson, Stykkishólmi, Sveinbjörn Odds son, Akranesi, Ragnar Guðleifs- son, Keflavík, Kristján Guð- mundsson, Eyrarbakka, Páll Þorbjörnsson, Vestmannaeyj- um. Meðstjórnendur fyrir Vestur- land: Guðmundur Hagalín, ísa- firði, Finnur Jónsson, ísafirði, Hjörtur Hjálmarsson, Flateyri, Þórður Jónsson, Súðavík, Sveinn Einarsson, Patreksfirði. Meðstjórnendur fyrir Norð- urland: Erlingur Friðjónsson, Akureyri, Erlendur Þorsteins- son, Siglufirði, Magnús Bjarna- son, Sauðárkrók, Halldór Al- bertsson, Blönduósi, Sigurður Kristjánsson, Húsavík. Meðstj órnendur fyrir Aust- urland: Sveinn Guðmundsson, Fáskrúðsfirði, Sveinn Guðna- son, Eskifirði, Oddur A. Sigur- jónsson, Norðfirði, Gunnlaugur Jónsson, Seyðisfirði ,Ólafur Jó- hannesson, Vopnafirði. Varamenn fyrir Reykjavík: Felix Guðmundsson, Guðgeir Jónsson, Björn Bl. Jónsson, Arngrímur Kristjánsson. Varamaður fyrir Hafnar- fjörð: Una Vagnsdóttir. Varamenn fyrir Suðurland: Guðmundur Helgason, Vestm., Helgi Sigurðsson, Stokkseyri. Varamenn fyrir Vesturland: Stefán Stefánsson, ísafirði, Haraldur Guðmundsson. Bjarni Friðriksson, Súgandaf. Varamenn fyrir Norðurland: Steindór Steindórsson, Akur- eyri, Hrólfur Þorsteinsson, Hvammstanga. Varamenn fyrir Austurland: Ólafur Magnússon, Norðfirði, Emil Jónasson, Seyðisfirði. Endurskoðendur voru kosnir: Jón Brynjólfsson, Jón Guðjóns- son. Varaendurskoðandi: Ólafur Þ. Kristjánsson, Hafnarfirði. ^kl. 2 í dag um leið og Alþýðu- Alpýðuflokkspinginu var slitið sambandspinginu. Stefna Alpýðnflokkslns i bln um aðkallandi vandamálam -------.... Ályktun, samþykkt á þisigi þýðuflokksins seint f gærkveldi ST J ÓRNMÁL AÁL YKTUN - IN, sem Alþýðuflokksþing- ið samþykkti í gærkveldi, er svohljóðandi: 1.16. þing Alþýðuflokksins lítur svo á, að núverandi meðferð æðsta valds í land- inu hafi verið upp tekin sem bráðabirgða ráðstöfun miðuð við það, að allir aðalstjórn- málaflokkarnir tækju þátt í stjórnarsamstarfi, en slíkt samstarf getur vitanlega af ýmsum ástæðum rofnað, hve- nær sem er. Þingið ályktar þess vegna að flokkurinn skuli vinna að því að v&ran- leg skipun fáist á þessi mál sem allra fyrst, á þann hátt, að þjóðin haldi fullveldi sínu og ísland verði sjálfstætt og óháð lýðveldi, er fari að öllu leyti sjálft með mál sín. 2.16. þing Alþýðuflokksins tel- ur æskilegt, á þessum alvar- legu tímum, að náið samstarf sé með öllum lýðræðisflokk- um um alþjóðarmál, en skil- yrði fyrir því að slíkt sam- starf geti átt sér stað, er, að þing og stjórn geri ráðstafan- ir til þess að ekki verði fyrir horð borinn hlutur neinnair stéttar í landinu og þess vandlega gætt að engri stétt haldist uppi að hæta hag sinn á annarra kostnað, svo og að full hollusta sé sýnd í sam- starfinu. Fyrir því átelur flokksþingið þær aðgerðir, sem fram hafa komið til að draga um of tamn einstakra stétta, svo. og hinar tilefnis- lausu árásir Sjálfstæðisflokks blaðanna á einstaka ráðherra. 3.16. þing v Alþýðuflokksins skorar á Alþingi og ríkis- stjórn að taka upp fullkomið eftirlit með þeim mönnum og samtökum, sem aðhyllast er- lendar ofbeldisstefnur, og gera ráðstafanir til þess að koma í vcg fyrir þjóðhættu- Frh. á 4. síðu.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.