Alþýðublaðið - 23.12.1940, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 35. DES. 194«.
ALÞYOUBLA9ÍO
---------MÞÝÐUBIAÐIÐ -----------------------
Ritstjóri: Stefán Pétursson.
Ritstjórn: Alþýðuhusinu við Hverfisgötu.
Símar: 4902: Ritstjóri. 4901: Innlendar fréttir. 5021: Stefán Pét-
ursson (heima) Hringbraut 218. 4903: Viihj. S. Vilhjáms-
son (heima) Brávallagötu 50.
Afgreiðsla: Alþýðuhúsinu við Hvéríisgötu.
Símar: 4900 og 4906.
Verð kr. 2.50 á mánuði. 10 aurar í lau <
AI, ÞÝÐUPRENTSMIÐJAN
„Sendiherra Frakka í París“
AÐ hefir nú verið opinber-
lega tilkynnt, að Vichy-
stjórnin hafi skipað einn af
gæðingum sínum til þess að
vera „sendiherra Frakklands í
París“.
Þessi fregn lætur í eyrum
hvers manns sem hreint öfug-
mæli. Frakkland og París eru
ekki lengur eitt og hið sama.
Hin fagra og fræga borg frels-
isins og mannréttindanna er
fallin í hendur fjandmanna
Frakklands, sem jafnframt eru
fjandmenn alls frelsis og allra
mannréttinda.
Marga smán og svívirðu hef-
ir sú stjórn, er nú situr í Frakk-
landi, orðið að þola, en jafnast
nokkur þeirra á við þessa?
Allt hið dýrmætasta, fegursta
og stórkostlegasta í sögu Frakk-
lands er tengt við París —
hjarta Frakklands og hinnar
frönsku þjóðar.
Hinn „heiðarlegi friður“, sem
nazistar Frakklands ætluðu að
semja við nazista Þýzkalands,
sýnir kannske í engu betur en
þessu eina atviki hve „heiðar-
iegur“ hann er.
En var við öðru að búast?
Stjórn Frakklands kaus held-,
ur niðurlæginguna en hitt, að
falla með sæmd eða fara úr
landi og berjast áfram frá ný-
lendum sínum.
Tveir atburðir sýna vanmátt
og niðurlægingu Vichystjórnar-
innar allra bezt. Hún hefir lát-
ið dæma til lífláts þann son
Frakklands, sem berst í útlegð
sinni fyrir heiðri og framtíð
Frakklands. Hún lét varpa ein-
um af verstu landráðamönnum
þjóðarinnar í fangelsi, — sú
ráðstöfun stóð einn dag, þá var
hann látinn laus — að boði
Þjóðverja, en jafnframt var
stjórnin látin skipa sendiherra
í París, höfuðborg síns eigin
lands!
Og hvar liggja rökin til
þessa ótrúlega og átakanlega
harmleiks?
Þau liggja í blindni og svik-
semi þeirra forvígismanna
frönsku þjóðarinnar, sem
meira hafa metið stundar hag,
stundar metnað og alls konar
gamlar væringar en samhug
og samheldni þeirrar þjóðar,
sem fól þeim trúnað sinn.
Þau liggja í hræsninni,
blekkingunum og undirlægju-
hættinum, sem kommúnistar og
nazistar Frakklands sýktu hina
frönsku þjóð með á umliðnum
árum. Þegar hún ætlaði að
velta af sér okinu, var það of
seint.
En hver eru sigurlaun þess-
ara manna? Hvar eru komm-
únistamir frönsku, sem allt
gerðu til að eyðileggja Frakk-
land?
Flúnir, drepnir eða málalið
hjá þýzku nazistunum.
Hvar eru nazistarnir frönsku,
sem ætluðu sér að sýna heim-
inum að hæga væri fyrir
Frakkland að fá „heiðarlegan
frið“?
Fyrirlitnir landráðamenn og
níðingar, sem nú skríða um til
þess að fulllcomna niðurlæg-
ingu lands síns og þjóðar sinn-
ar.
Út á öldur ljósvakans senda
útvarpsstöðvar heimsins nú
fréttina: Sendiherra Frakk-
lands í París. — Hver verður
næsta fréttin, sem þær varpa
út um niðurlægingu þessa
forna stórveldis og forusturíkis
frelsisins og mannréttindanna?
Svona átakanleg geta enda-
lokin orðið þegar þjóðirnar
glata sjálfum sér og fara að
trúa á erlenda hjáguði.
örfá élntök af bókinni
verða seld í bókaverzlunum
í dag.
Beztu matarkanpin til
jolanna
gera þeir, sem verzla við búðir vorar.
MATARDEILDIN,
Hafnarstræti 5. — Sími 1211.
MATARBÚÐIN,
Laugavegi 42. — Sími 3812.
KJÖTBÚÐ AUSTURBÆJAR,
Njálsgötu 87. — Sími 1947.
KJÖTBÚÐIN,
Skólavörðustíg 22. — Sími 4685.
KJÖTBÚÐ SÓLVALLA,
Sólvallagötu 9. — Sími 4879.
Pantið sem fyrst, því að af sumum tegundunum
eru birgðir takmarkaðar.
Sláturfélag Suðurlaads.
Reglulegar hálfsmánaðar ferðir frá vesturströnd Bretlands
til Reykjavíkur. 3—4 skip í förum. Sérstaklega hagkvæm
flutningsgjöld, ef um stærri vörusendingar er að ræða.
Tilkynningar um vörur sendist
Culllford & Clurk Lt<4,
Lord Street, Fleetwood,
eða
Geir H. ZoUga
Símar 1964 og 4017,
er gefur frékari upplýsingar.
Ný bób:
Ui loftin bli.
IGURÐUR THORLACIUS
hefir þegar vakið athygli
sem söguskáld á alveg sérstök-
Um vettvangi. Harm skrifar dýra-
sögur með þeim hætti, að lesaud-
inn fær innsýn í líf dýranna, bar-
áttn peirra og strit, „g]eði“
þeirra og „sorg“. Bækur hans
prti! ævintýri í peim skilningi. að
þar er dýruniutn eignað dýpra
vitumdarlíf, fullkomnari hugsun
og „mannlegri“ tilfinningar en
dýrasálarfræðin telur þau ciga.
En þegar litið er á hið ytra,
eru bækur Sigurðar með miklum
i'aunveruleikablæ. í sögunni ,Um
loftin blá“ segir hann t. d. hvergi
frá atburðum, sem ekki gætu
gerzt. Aðal-söguhetjlumar eru
æðarhjónin Skjöidur og Brún-
kolla, sem trúlofast austan við
Svartaskerið og setjast afð í Hvial-
ey. Rammi söguinnar eða um-
hverfi eru bernskustöðvar hðf-
undarins, en annars er víðar
farið, og fólk iim allt land mun
kannast par við fuglalíf smnar
eigin byggðar.
Eitt bykir mér sérstök ástæða
%
til að benda á. Það er athyglis-
gáfa höfundar, sem sýnist vera
óvenjulega sfcörp. Sigurður á þvú
láni að fagna, að hafa lifað við
mjög náin kynni af íslenzku dvra-
lífi; hann hefir stuudað æðar-
varp, fjármennsku og sjðsóku, en
það er auðfundið, að hann hefir
haft opin augun fyrir jafnvel hin-
um smæstu sérkennum dýrateg-
undanna. , Um lpftin blá“ er því
ekki aðei.ns skáldsava, sem ung-
lingar og fullorðnir hljó'a oð lesa
af áhuga, heldur blátt áfram
kennslubók í náttúnufræði. Ég
vildi óska, að hann setti sér fyrir
ticndur að skrifa bók um fisk-
ana, eins og hann nú hefir skrif-
að um sauðkindina.
Rúmið leyfir ekfci, að lengra
sé farið út í að ræða um ein-
fetök atriði í sambandi við þessa
bók. En því spái ég, að hún
verði mikið lesin, ekki sízt í sjáv-
arþorpun'um úti um land. Og hér
í Reykjavík, þar sem æskulýður-
inn er orðinn fjarlægari dýralífi
lands'm, m-m margur unglingur-
im — óg h:nn fnllorðni engu
sí'u" — verða menntaðri maður
við að lesa „Um loftin blá.“
Síill búkarinnar' er góður, frá-
sögnin blátt áfram og laus við
alla tiigerð. Málfarið er eðiilegt
og Tam-íslenzkt.«.
Ef það mundi ekki vera of likt
auglýsingu, mundi ég vilja enda
þennan greinarstúf með ásborun
um að kaupa þessa bók til jóla-
gjafa. En ég vona að slíkrar á-
stooranna þurfi ekki við.
Bókin er útgefin af Isafold-
arprentsmiðju og með ágætri for-
síðumynd eftir Hafstein Guð-
mundsson prentara.
Jakob Jónsson.
Böra I jólaboðl ii]á
kanadisknm her-
möRDum.
K4NADISK herdeild, sem hér
er, „The Camer-on High-
landers“, bauð síðastliðinn laug-
andag hiundrað björmim til jóla-
boðs í herbúðum siitlum hér rétt
fyrir lutaa bæinn.
Voru bömin sótt í herbíium
að skemmtigarðiinum við Lækjr
argötu og skilað þangað aftur.
■* 1 herbúðunum vom böramiuni
sýndar kvikmyndir og jólasveinn
útbýtti gjöfum meðal þeirra.
Að lokmum skemmtunum og
gjafaúíbýtingu var börthmum
hoðið að borða.