Tíminn - 01.06.1963, Side 12
Laugardagur 1. júní 1963
121. fbl.
47. árg.
Fimm
tonn
á dag
BÓ-Reykjavík, 31. mai.
LANDLEGA hefur verið hjá
síldarbátum og humarbátum í
nokkra daga. Afli humarbáta var
mjög góður í fyrri viku, og allt
að 5 lestir eftir sólarhring, en
mesti afli sem bátar komu með
var um 7 lestir. Humarinn veidd-
ist aðallega í nánd við Eldey. Átta
Akranesbátar verða á humarveið-
um í sumar, og eru sjö þeirra byrj
aðir. Tveir humarbátar frá Reykja
vík hafa lagt afla sinn á land í
Sandgerði, en fjórir heimabátar
þaðan verða á humar og tveir
þeirra byrjaðir. Þá eru nokkrir
Reykjavíkur og Hafnarfjarðarbátar
byrjaðir á humar.
Vormót í
Helgadal
SKÁTAFÉLAGIÐ Hraunbúar
heldur hið árlega vormót sitt í
Helgadal nú um hvítasunnuna. —
Mótið verður sett laugardaginn 1.
júní og verður slitið hinn 3. júní,
á annan í hvítasunnu.
16 skátafélög víðs vegar af land
inu hafa boðað þátttöku sína í
þessu móti og eru líkur til að um
700 skátar sæki mót þetta.
Á mótinu verða iðkaðar ýmsar
skátaíþróttir, farið í gönguferðir,
og varðeldar verða á laugardags
og sunnudagskvöld.
Á hvítasunnudag kl. 11 f.h. verð
ur guðsþjónusta, séra Bragi Frið
riksson prédikar.
Mótstjóri verður Marinó Jó-
hannsson, dagskrár- og varðelda-
Framhald á bls. 23.
ARNARHJÓN
BREIDAFIRDI
JK-Reykjavík, 31. maí.
Jakob Jónsson frá Rifgirðiingum
hefur talið amarhjónin á sunnan-
verðum Breiðafirði og telur þau
vera sex. Það er meiri fjöldi en oft
hefur venið talið, því upp á síð-
kastið hefur oft verið talað um,
að amarhjónin væru aðeDns fem
eftir hér á landL
Svæðið, sem Jakob hefur þaul-
kannað, er frá Bjamarhöfn á Snæ
fellsnesi norður í Gilsfjörð að
Suðureyjunum meðtöldum. Jakob
hefur sinnt þessu áhugamáli sínu
mjög mikið, haldið uppi fyrir-
spumum og talað við menn. í
fyrravor verptu sex amarhjón að
hans áliti á þessu svæði, þar af
tvenn í eyjunum. Auk þess vissi
Jakob um tvenn hjón á Vestfjörð
um, svo að amarhjónin á öllu
landinu hafa þá ekki verið færri
en átta.
4 VESTFIRZKUR ÖRN.
Aðalfundur
Iðnaðarbanka
AÐALFUNDUR Iðnaðarbanka
ísiands h. f. var haldinn í Þjóð-
leikhúskjallaranum laugardaglnn
25. maí.
Formaður bankaráðs, Sveinn B.
Valfells flutti skýrslu um starf-
semi bankans á s. 1. ári. f skýrslu
formannsins kom fram, að innlána-
aukning bankans hafði orðið meiri
en nokkru sinni áður eða 40,0 millj.
kr. þar af 35,0 millj. kr. aukning
á sparisjóðsinnstæðum. Námu
heildarinnstæður bankans því 203,0
millj. kr. í árslok. Útlánaaukning
bankans á árinu varö 27,6 millj.
krónur.
Þá fór fram kosning bankaráðs.
í bankaráð voru kjörnir: Sveinn
B. Valfells, forstjóri; Sveinn Guð-
mundsson, forstjóri Héðins og Vig-
fús Sigurðsson, framkvæmdastjóri
í Dröfn Hafnarfj., en af hálfu iðn-
aðarmáiaráðherra voru þeir Einar
Gíslason, málarameistari og Magn-
ús Ástmarsson, prentsmiðjustj.
Framhald á bls. 23.
RVSK FEKK UTSVARIÐ
JK-Reykjavík, 31 maí.
RÍKISSKATTANEFND felldi
fyrir skömmu úrskurð í deilu Ak-
ureyrar og Reykjavíkur um tekju-
útsvar SÍS og var hann á þá leið,
að Reykjavík bæri allt útsvarið en
Akureyrl ekkert. >etta eru um 600
þúsund krómur.
Ríkisskattanefndin staðfesti
þannig úrskurð yfirskattanefndar-
innar á Akureyri, sem hafði lýst
útsvarsálagninguna á SÍS á Akur-
eyri ólöglega. Akureyrarbær hafði
kært þennan úrskurð til ríkisskatta
nefndar og krafizt alls tekjuút-
svars SÍS, þar sem SÍS hefði meiri
starfsemi og framkvæmdir á Akur-
eyri.
Ríkisskattanefndin hefur haft
mál þetta til meðferðar í allan vet
1684 LESTIR AF SÍLI
Elías-Sandgerði, 31. maí.
VERTÍÐIN frá 1. janúar til 15. |
maí var í heild heldur léleg hér
þótt tíðarfar væri yfirleitt hag-
stætt, eiukum framan af og til
páska. Afli var í heild rýr alla
vertíðina, og eimkum á línu og í,
net, sem voru aSalveiðarfærin. — j
Nokkrir bátar fengu góð'an afla í
þorsknót, en það stóð stuttan
tíma. Hins vegar var góð síldveiði
í byrjun vertíðar þar tH seinni'
liluta jariúar, og stunduðu þær>
veiðar 7 bátar liéðan. Sfll fór að |
velðast óvenju snemma, eða 12. j
febrúar og veiddist mikið af því.'
Alls var Iagt hér á land um 1684
tonn af sfli, sem fór ýmist í beltu
eða frystingu, en þó mest í bræðslu
hér á staðnum. |
Héðan voru gerðir út 22 bátar,
þegar flestir voru; 6 með línu ein-
göingu, 6 með línu og net, 5 á slld-
veiðum og með Hnu, 5 bátar voru
með net eingöngu, 1 með línu og
færi, 1 var á sfldveiðum elngöngu |
og 1 á sílisveiðum. Veiðar í net hóf
ust fljótlega eftir að síli kom .á
miðin, og fór þá strax að aukast
aðsókn báta frá verstöðvum við
innamverðan Faxaflóa til að fá fyr-
irgreiðslu með að landa afla' sín
um hér, sem siðan er fluttur á
bílum í önnur pláss til vinnslu. Það
fer nú ört vaxandi, að bátar, sem
stunda veiðar framumdan Sand-
gerði ,komi hingað til að landa.
Skal tekið fram, að ekki er amazt
Framhald á bls. 23.
Raunar er það svipuð tala og
komið hefur í Ijós í hvert sinn,
sem arnarstofninn htefur verið
kannaður síðari árin. Amór Garð
arsson á Náttúrugripasafninu sagði
blaðinu, að arnarstofninn virtist
standa í stað og hafa gert það
í mörg undanfaiin áir. Homtm
hvorki fjölgar né fækkar. Hins
vegar hefur hann alveg horfið af
Suðvesturlandinu og virðist nú
þjappa sér meira saman kringum
Breiðafjörð og á Vestfjörðum.
ur. Hún kannaði starfsmanna-
fjölda, umsetningu og vinnustunda
fjölda hjá SÍS, bæði í Reykjavík
og á Akureyri, og komst að þeirri
niðurstöðu, að starfsemin væri
meiri í Reykjavík, þótt verksmiðj
urnar á Akureyri væru meðtaldar.
Féll úrskurður nefndarinnar sam-
kvæmt þvi.
f útsvarslögunum nýju, sem
komu til framkvæmda í fyrra,
voru ýmis atriði sem gátu valdið
ruglingi og voru jafnvel ósann-
gjörn í garð minni bæjarfélaga,
svo sem að útsvar skyldi aðeins
gjalda á einum stað og ætti sá stað
ur allt útsvarið. Eftir þeim lögum
var úrskurður ríkisskattanefndar
kveðinn upp. Nú í vor voru sam-
þykktar breytingar á þessum lögum
á Alþingi, þar sem gert er ráð fyt-
ir, að tekjuútsvarið skiptist milli
viðkomandi sveitarfélaga, svo að úr
skurður ríkisskattanefndar hefur
ekki almennt *ildi fyrir framtíðina.
JARÐ-
GASIÐ
EKKI
RANN-
SAKAÐ
MB-Reykjavík, 31. maí.
EKKI eru nú neinar horf-
ur á því, að ýtarieg rann-
sókn fari fram í sumar á
jarögasi því, er sífellt streym
ir upp á ýmsum stöðum aust
ur á Iléraði. Til þess skortir
bæði fjármagn og starfs-
krafta. Hins vegar mun í
sumar fara fram rannsókn
á jarðhita austur þar.
Blaðig átti tal við Jón
Jónsson, jarðfræðlng hjá Raf
orkumálaskrifstofunni. Hann
kvað ekki líkur á því nú, að
ýtarleg rannsókn færi í sum-
ar fram á þessu fyrirbæri.
Til þess skorti bæði fjár-
magn og starfskrafta, en Jón
er eini jarðfræðingurinn á
Raforkumálaskrifstofunni.
Undanfarin ár hefur staðið
tH að gera ýtarlega athugun
á jarðhita á Austurlandl og
mun Jón fara í sumar þangað
austur þeirra erinda. Mun
hann einkum rannsaka ýtar-
lega svæðl í kringum Urriða
vatn, en þar hefur hvað mest
ur jarðhiti fundizt. Mun Jón
gera drög að jarðfræð’ikorti
yfir þetta svæði. Jón mun
e>inig reyna að skoða alla þá
staði, sem vitað er um jarð
hfta á á Austfjörðúm.
í þessari ferð mun Jón
einnig heimsækja þá staði,
sem vitað er um jarðgas á,
en eins og fyrr segir, mun
þar ekki verða um neina ýtar
lega rannsókn að ræða. Er
vissulega illt til þess að vlta,
að ekkl sbuli unnt að rann-
saka slíka hluti, sem hugs-
anlega geta haft mflda þýð-
ingu, vegna fjárskorts.