Alþýðublaðið - 15.03.1941, Page 4
LÁUGABDAGUR 15. MARZ 1941.
H ALÞÝÐUBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR
Næturlæknir er Halldór Stefáns
»on, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfs apóteki.
ÚTVARPIÐ:
18.30 Dönskukennsla, 1. fl._
19.00 Enskukennsla, 2. fl.
19.25 Þingfréttir.
20.00 Fréttir.
20.30 Leikrit: „Þegar næturgalinn
söng“, eftir Michael Arlen
(Brynj. Jóhannesson, Indriði
Waage, Arndís Björnsdóttir).
21.30 Danslög.
(21.50 Fréttir)
24-00 Dagskrárlok.
SUNNUDAGUR:
Helgidagslæknir er Gunnar
Cortes, Eiríksgötu 11, sími 5995.
Næturlæknir er Ólafur Þ. Þor-
steinsson, Eiríksgötu 19, sími 2255.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnarapóteki.
ÚTVARPIÐ:
10 Morguntónleikar: Kammer-
músik eftir Beethoven og Brahms
serenade Op. 8 eftir Beethoven.
Píanokvartett í A-dúr Op. 26 eftir
Brahms. 11.00 Messa í dómkirkj
unni (síra Friðrik Hallgrímsson).
Sálmar nr.: 231, 397, 420 og 565.
12.00 Hádegisútvarp. 15.30 Mið-
degisútvarp: Karnevalslög. 18.30
Barnatími. (Sig. Thorlacius). 19.15
Slavneskir dansar eftir Dvorák.
19.50 Auglýsingar .20.00 Fréttir.
20.30 Norræna félagið: Færeyskt
kvöld. a) Stefán Jóh. Stefánssson:
Ávarp. b) Chr. Djurhuus sýslumað-
ur: Ræða (á færeysku og í þýðingu)
c) Færeysk alþýðulög (plötur). d)
Aðalsteinn Sigmundsson: Færeyjar.
e) Ole Jakob Jensen: Færeysk
danzkvæði. f) Pétur Sigurðsson:
Úr sögu Færeyinga. g) Þjóðsöngur
Færeyinga. 21.55 Fréttir. 22.00
Danslög. 23.00 Dagskrárlok.
MESSUR:
í dómkirkjunni á morgun: kl: 11
síra Friðrik Hallgrímsson; kl. 5 síra
Bjarni Jónsson.
Barnaguðsþjónusta í Laugarnes-
skólanum á morgun kl. 2 síra Jón
Thorarensen prédikar.
í Hallgrímsprestakalli á morgun:
kl. 10%. Barnaguðsþ j ónusta í
Austurbæj arskólanum, síra Jakob
Jónsson, kl. 11 f. h. hámessa í frí-
kirkjunni síra Sigurbjörn Einars-
son.
Fríkirkjan. Kl. 2, barnaguðsþjón
usta, síra Árni Sigurðsson, kl 5
síra Árni Sigurðsson.
Dönsk guðsþjónusta á morgun kl.
11 f. h. í „Trefoil Sailorshome",
Tryggvagötu. Síra Rasmus Bier
ing Prip prédikar.
í kaþólsku kirkjunni í Landakoti:
Lágmessa kl. 6% árd. Hámessa
(Minning Sigþórs Guðmundssonar,
háseta á Gullfossi) kl. 10 árd.
Bænahald og prédikun kl. 6 síðd.
Föstuguðsþjónusta í Hafnarfjarð
arkirkju á morgun kl. 5, síra Garð-
ar Þorsteinsson.
í fríkirkjunni í Hafnarfirði á
morgun kl. 2. Barnaguðsþjónusta.
Föstuguðsþjónusta kl. 5, síra Jón
Auðuns.
Messað á morgun að Bjarna-
stöðum kl.2.
Útskálaprestakall. Messað í
Keflavík kl. 2. Barnaguðsþjónusta
kl. 5, síra Eiríkur Brynjólfsson.
í kapellu háskólans á morgun,
sunnudaginn 16. kl. 5, e. h. stud.
theol. Jens Benediktsson stígur í
stólinn. Sunnudagaskólinn kl. 10
f. h. inngangur um aðaldyr.
Reykjavíkurannáll h. f.
sýnir revyuna „Hver maður sinn
skammt“ næstkomadi mánudags-
kvöld.
Óperettan „Nitouche“
verður sýnd annað kvöld.
Kynnikvöld.
Annað kynnikvöld Guðspekifé-
lagsins hefst á morgun kl. 9. Koma
þar fram 3 ræðumenn, er tala með
al annars um orsakalögmálið
,,karma“), ást og hatur í ljósi Guð-
spekinga o. fl. Auk þess verður leik
ið á hljóðfæri á undan og eftir
erindunum.
Leikflokkur Alþýðuflokksfélagsins
hefir æfingu á morgun kl. 10
f. h. stundvíslega í alþýðuhúsinu,
gengið inn frá Hverfisgötu.
Söngfélagið Harpa
hetfir samæfingu næstkomandi
mánudagskvöld kl 8% á venjuleg-
um stað
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
heldur almennan félagsfund í
Iðnó n. k. þriðjudagskvöld kl. 8.30
gengið inn um norðurdyr. — Á dag
skrá verður m. a. skattamálin og
hefir þar framsögu Jón Blöndal
fulltrúi Alþýðuflokksins í milli-
þinganefnd í skatta- og tollamálum.
Dýrtíðarmálin og ýms félagsmál.
Félagar fjölmennið á fundinn.
Faust
er sýndur í síðasta sinn í kvöld.
Stúdentafélag Reykjavíkur
heldur fund í Oddfellowhúsinu
á morgun, um sjálfstæðismálið, er
ríkisstjórninni boðið á fundinn.
Eyrbekkingar.
Af ófyrirsjáanlegum ástæðum
hefir stjórn Eyrbekkingafélagsins
orðið að fresta fundi þeim, sem
átti að verða á morgun. Verður
hann að líkindum sunnudaginn 23.
þ. m„ en þess mun verða nánar
getið hér í blaðinu.
Marionetteleikfélagið
. sýnir „Faust“ annað kvöld kl.
8% í Varðarhúsinu.
Ný atbvæðagreiðsla bjá
hároreplusveiDnm.
Hárgreiðslustúlkuntum barst
í gær tilboð frá hárgreiðslumeist
urunum um lausn á deilurmi.
Fer allsherjaratkvæðagreiðsla
fram í dag um það hjá svein-
unum, hvort taka skuli þessu
tilboði.
STRÍÐSSLYSABÆTUR
Frh. af I. síðu.
lega misjafnar eftir því, hve
mannmörgum fjölskyldum þeir
höfðu fyrir að sjá.
Töluverður dráttur hefir orð-
ið á því, að tekin væri ákvörðun
um greiðslu þessara stríðsslysa
bóta og mun sá dráttur hafa
stafað af því, að beðið var eftir
dómi hæstaréttar í máli Stýri-
mannafélags Íslands gegn stríðs-
tryggingafélaginu og Trygg-
ingastofnun ríkisins, sem raun-
vetf-ulega, stóð um það, hvað
skoða skyldi slys af völdum
stríðsins, en sá dómur féll ný-
lega, eins og frá var skýrt hér
í blaðinu.
\
LANDRÁÐAMÁLIÐ
Fxh. af í. síðu.
geirsson og stóð málflutningur-
inn til kl. 4V2.
Er dómur í málinu væntan-
legur á mánudagsmorgun.
WM NÝJA BÍÓ H m GAMLA Bion
„Gold Diagers" i Paris Fyndin og fjörug amerísk ,,Revy“-mynd frá Warner Bros, með mörgxun tísku lögum. Aðalhlutverkin leika og syngja: RUDY VALLEI, ROSEMARY LANE, HUGH HERBERT o. fl. RoMBSon-fMskylðan (SWISS FAMILY ROBINSON). Stórfengleg amerísk kvik- mynd frá Radio Pictures. THOMAS MITCHELL EDNA BEST FREDDY BARTHOLOMEW.
Aukamynd: LONDON CAN TAKE IT. 1 | J Sýnd kl. 7 og 9.
Sýnd kl. 7 og 9. I á 1
Tónlistarfélagið og Leikfélag Reykjavíkur.
„NI‘I OUCHEU
Sýni&sg annað kvöld kl. S
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4—7 í dag.
ATH. Frá kl. 4—5 verður ekki svarað í síma.
Reykjavíkur Annáll h.f. !;
Revyan
verður næst leikin ;!
mánudagskvöld kl. 8
Aðgöngumiðar seldir á morg-
un (aunnudag) kl. 4—7 og ;!
eftir kl* 1 á mánudag. ;!
S. A. R.
Dansieiftir
í IHné f kvold.
Hin ágæta hljómsveit Iðnó leikur.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 6. —
Tryggið ykkur þá tímanlega,
Aðeins fyrir íslendinga.
Ölvuðum bönnum bannaður aðgangur.
KratlHW
*
'M __j!^
90 THEODORE DREISER:
JENNIE GERHARDT
hans. — Ef þú hefðir elskað hana, hefðirðu kvænzt
henni. Þú getur ekki tekið konu og búið með henni
órum saman án þess að kvænast henni og fullyrt
svo, að þú elskir hana. Þú berð ef til vill í brjósti
einhverja þrá til hennar, en ást er það ekki.
— Hjvernig geturðu verið viss um, að ég sé ekki
kvæntur henni? spurði Lester kuldalega. Hann lang-
aði til að sjá, hvernig faðir hans tæki þessu.
— Það er ekki alvara þín, sagði gamli maðurinn,
stóð á fætur og starði grallaralaus á son sinn.
— Nei, það er það ekki, svaraði Lester. — En ef
til vill kvænist ég henni.
— Það er ómöulegt, æpti gamli maðurinn. — Ég
trúi því ekki. Ég trúi því ekki, að maður með þínum
framtíðarvonum geri slíkt axarskapt. Hvar er dóm-
greind þín? Þú hefir buið með henni arum saman
og ætlar svo að ganga að eiga hana. Hvers vegna
gerðirðu það þá ekki strax? Þú leiðir blygðun yfir
fjölskyldu þína, eyðileggur hamingju móður þinn-
ar, veldur fyrirtækinu tjóni, veldur opinberu
hneyksli og svo ætlarðu að kvænast stúlkunni, sem
á sök á þessu öllu. Ég trúi þessu ekki.
Gamli maðurinn gekk eirðarlaus um gólf.
— Vertu nú ekki svona órólegur, faðir minn. Á
þennan hátt komumst við ekki að neinni niðurstöðu.
Hún er ekki svo vond kona, sem þú hyggur, og ég
vil ekki, að þú talir um hana á þennan hátt. Þú
hefir aldrei séð hana, og þú þekkir hana ekki.
— Ég veit nóg, sagði gamli maðurinn mjög ákveð-
inn. — Ég veit að engin kona með sómatilfinningu
myndi haga sér eins og hún hefir gert. Það er áreiðan-
legt, að hún er að reyna að klófesta peninga þína.
Hvað ætti það að vera annað? Það er deginum ljós-
ara. — Faðir minn, sagði Lester og lækkaði róm-
inn. — Hvers vegna talarðu svona? Þú hefir aldrei
séð þessa stúlku. Þú myndir ekki þekkja hana, þótt
þótt þú sæir hana. Louise kom og heimsótti mig og
reiddist við mig, segir frá þessu í mikilli' æsingu og
litar alla frásöguna og þið trúið öllu sem hún segir.
Hún er ekki svo slæm sem þið álítið og í þínum spor-
um myndi ég ekki tala svona um hana. Þú ert órétt-
látur gagnvart góðri og göfugri konu og þú vilt ekki
reyna að líta með sanngirni á þetta mál.
— Sanngirni! Sanngirni! sagði gamli maðuriim
og dæsti við. — Og svo fer þú að tala um sanngirni.
Er það sanngjarnt gagnvart mér, gagnvart fjölskyldu
þinni, gagnvart móður þinni látinni, að taika stúlku
af götunni og búa með henni? Finnst þér það sann-
gjarnt og áttu von á því, að við tökum því með þökk-
um?
— Hættu nú, faðir minn, hrópaði Lester og band-
aði frá sér. — Ég aðvara þig. Ég vil ekki hlusta á
svona skraf. Þú ert að tala um konuna, sem ég bý
með — sem ég ef til vill kvænist. Mér þykir mjög
vænt um þig, og ber mikla virðingu fyrir þér, en
ég vil ekki, að þú segir annað en það, sem þú getur
staðið við. Hún er ekki stúlkan af götunni. Þú veizt
það, jafn vel og ég, að ef svo hefði verið, þá hefði ég
ekki farið að búa með henni. Við verðum að ræða
þetta mál með meiri ró og spekt, annars fer ég mína
leið. Mér þykir þetta leiðinlegt — meira að segja
mjög leiðinlegt, en ég sá ekki, hvað er hægt að gera
í þesssu máli að svo stöddu og ég vil ekki hlusta á
svona hjal.
Archibald gamli varð áð stilla sig. Þrátt fyrir reiði
sína virti hann og mat að verðleikum sjónarmið sonar
síns. Hann hallaði sér aftur á bak í stólnum og
starði á gólfið. Hvernig átti hann að haga sér í þessu
máli? Það var honum hulin ráðgáta.
— Búið þið á sama stað og áður? spurði hann.
— Nei, við erum flutt út í Hyde Park. Ég hefi leigt
þar ofurlitla höll.
— Ég hefi frétt að þið alið upp barn. Átt þú það
barn?
X — Nei.
— Átt þú nokkur börn?
— Nei.
Það var heppilegt.
Lester strauk hökuna, en svaraði engu.
— Og þú ert ákveðinn 1 því að ganga að eiga hana?
hélt gamli maðurinn áfram.
— Það hefi ég ekki sagt, svarði Lester. — Ég
sagði, að ef til vill myndi ég kvænast henni.
— Ef til vill! — Ef til vill! æpti gamli maðurinn
og reiðinn sauð niðri í honum. — Hivíh'k raunasaga!
Og þú með allar þínar glæsilegu framtíðarvonir.
Hvernig geturðu átt von á því, að ég trúi þér fyrir
miklum hluta af auðæfum mínum manni, sem ber
svo litla virðingu fyrir því, sem almenningur áHtur
sæmilegt eða ósæmilegt? Kaupsýslufyrirtækið, fjöl-
skylda þín, mannorð þitt og framtíð, allt þetta virðist