Alþýðublaðið - 09.04.1941, Qupperneq 2
BtfÐVIKUDAGUR 9. APRIL 1941
ALÞYÐUPLAÐIÐ
Loftvarnanefnd hefir ákveðið
að loftvarnaæfing verði ha!d-
in laugardaginn 12. april n.k.
Er hér með brýnt fyrir monn-
um að fara eftir gefnum leið-
beiningum og fyrirmælum, og
verða feir, sem brjéta settar
reglur, látnir sæta ábyrgð.
Reykjavík 9. apríl 1941.
Loftvarnanefnd. -
En sTeitaskólarnlr of fin-
Ir fyrir kaupstaðabörnin ?
----«----
Fnrðulegummæliformanns Fram
sóStnarfloftíksins á alþmgi í gær
STRÍÐIÐ Á BALKANSKAGA
Frh. af 1. síðu.
Hörðust er viðureignin sögð
hafa verið um svonefnt Rupels-
skarð, par sem 150 grískir sjálf-
boðaliðar stöðvuðu margfalt of-
urefli Þjóðverja klukkustumdum
saman. Það vom grískir sjálfboða
liðar, sem tóku að sér að verja
skarðið og komust Þjóðverjar
'þar ekki pversfótar með véla-
hersveitir sínar fyr en Grikkim-
ir voru aliir með tölu fallnir.
Atustur í Þrakíu, par sem eng-
in vörn var neynd, vegna þess
að ekki var talið hugsanlegt að
veita nokkurt verulegt viðnám á
svo mjórri og flatri strandlengju,
em Þjóðverjar komnir suður að
Eyjahafi og hafa tekið hafnar-
borgina Dedeagatch aðeinsrúma
20 km. frá landamærum Tyrk-
lantds.
Tyrkneska stjórnin ræddi igær
við herforingjaráö sitt hið nýja
ástand, sem skapast hefir við
pað, en hún hefir enn sem fyr
enga opinbera afstöðu tekið til
blurðanna á Balkanskaga,
BandariKin kanpa 39
dSnsk skip.
Það hefir nú verið tilkynnt í
Washington, að Bandaríkin muni
kaupa pau 39 dönsk skip, sem
hald varhald var lagt á í höfnum
par vestra, og er sendiherra Dana
í Washington sagður hafa getið
sampykki sitt til pess.
Talið er víst, að skipin verði
pegar í stað tekin til vopnaflutn-
inga til Evrópu og þá fyrst og
fremst til Grikklands og Júgó-
slavíu.
LOFTÁRIRNAR á kiel
Frh. af 1. síðu.
Margar minni loftárásir voru
gerðar á borgir á Norður-Þýzka-
fand í fyrrinótt. Þjóðverjar gerðu
einnig margar loftárásir á Eng-
Iand, en enga, sem stórkostlegt
tjón varð af.
Fregnir frá London í morgun
herma, að sprengjuflugvélar
Breta hafi gert aðra loftárás á
Riel í nótt, en nánari fregnir af
henni voru þá enn ókomnar.
Loftárásá Coventrjr i nðtt
Fregnir frá London í morgun
herma einnig, að þýzkar sprengju-
flugvélar hafi gert mikla loft*
árás á Coventry í nótt og hafi
hún staðið í margar klukku-
stundir,
Ógrynni af’ eldsprengjum var
varpað niður yfiT borgina og á
eftir peim sprengjum af stærstu
gerð. Nákvæmar fregnir voru
ekki komnar frá Goventry, en tal-
ið er að tjónið hafi orðið mikið.
NORSKT SKIP SKOTIÐ í KAF
Frh. af 1. síðu.
björgunarbáta með samtals 37
mönnum, annar er frá skipinu
sem Gulltoppur bjargaði mönn-
um af s.l. sunnudag, en hinn er
af norska skipinu.
Áheit á Neskirkju.
Nýja kirkjan í Nessókn hefir
fengið 50,00 kr. áheit frá sjö-
mannskonu á Seltjarnarnesi. Beztu
þakkir. G. A.
4í\7IÐ skulum leggja
V þann hugsunarhátt
til hliðar á þessum tímum,
að tryggja þurfi efnaðri
borgurum þjóðfélagsins
skemmtistaði. Hugsum heid-
ur meira um það að bjarga
okkar æskulýð, — ekki að-
eins undan beinum hernað-
araðgerðum, heldur og ým-
is konar annarri óhollustu.“
Þannig fórust Sigurjóni A.
Ólafssyni orð í umræðum um
frv. til 1. um heimild fyrir ríkis-
stjórnina til að taka á leigu
fundahús, þinghús og skólahús
í sveitum, vegna brottflutnings
barna úr kaupstöðum landsins.
Var frv. rætt í Efri deild á
þingfundi í gær.
En ástæðan til þess, að Sig-
urjóni fórust þannig orð, var
sú, að Jónas Jónsson hreyfði
því, að viss skólahús í sveitum
yrðu undanskilin sumardvöl
kaupstaðabarna. Væru þessir
skólar svo fínir, að allt myndi
þar spillast og eyðileggjast, við
tilkomu barnanna úr kaupstöð-
unum. Tilnefndi han neinkum
kvennaskólana að Hallorms-
stað, Laugum og Laugalandi,
þar sem kvenfólkið hefði búið
um sig með þeim þokka, sem
því einu er laginn. Þá kvað
hann ófært að taka Laugarvatn
til dvalarstaðar fyrir böm, því
að þar væri löngum þægilegur
sumardvalarstaður og funda-
staður fyrir Reykvíkinga.
Páll Hermannsson tók í sama
strenginn um kvennaskólana,
og gat þess þar að auki, að hann
óttaðist, að ef vinnukrafti yrði
ekki bætt við bændur í sumar,
mundi verða mikil töf og trafali
að því, að börn úr kaupstöðum
yrði flutt í stórum stíl til sveita.
Sigurjón Ólafsson andmælti
þessum skoðunum kröftuglega.
Hann kvað það liggja í augum
uppi, að gott og stjórnsamt fólk
yrði að veita bömunum umsjá
á hinum stærri stöðum, eins og
skólunum. Væri þegar nokkur
reynsla fengin í þessu, og virt-
ist hún ekki þurfa að fæla frá
þessum ráðstöfun’am. Og vissu-
lega væri það betra að börn
okkar fengi að dveljast x um-
ræddum skólum en að þeir
yrðu teknir til afnota af erlend-
um hermönnum.
Hvað Laugarvatni viðvéki,
kvað Sigurjón það alkunnugt,
að þar lægju auðugir borgarar
við á sumrum sér til skemmt-
unar. En vissulega þyrftu allir
að gera sér það vel ljóst, að
margar þarfir væru ose ná
brýnari en sú, að tryggja efn-
aðri borgurum þjóðfélagsins
skemmtistaði.
En hvað ætli mæðurnar, sem
mest og bezt hafa unnið að
stofnun umræddra húsmæðra-
skóla, segi um það, að þeir aéu
of góðir dvalarstaðir fyrir
börn, sem eru í hættu stödd í
kaupstöðunum.
Lélegnr Dsgsbrnoar-
fnndor i gærkveldi.
AGSBRÚNARFUNDUR-
INN í gær var lítið ann-
að en rifrildi og skammir.
Hann var ákaflega illa sóttur og
var fundarsalurinn ekki nema
hálfur.
Stjórnin lagði til að ársgjald
félagsmanna hækkaði upp í 20
krónur — og var það samþ.
Stjórn félagsins varð fyrir mik-
illi aðfinnslu og vaír Héðinn
einn til varnar. Allar tillögur,
sem voru andvígar honum voru
úrskurðaðar frá af honum sjálf-
um — án þess að það væri frek-
ar rökstutt.
Var stjórnin í algerum minni
hluta á fundinum.
Fjórar nýjar bækur
frá forlagi Isafoldarprentsmiðju:
Tómas Sæmundsson, æfiferill hans og æfistarf. Eftir Jón Helgason
dr. theol., biskup. Þessarar bókar hefir verið beðið með mikilli
eftirvæntingu. Menn um land allt hafa hlustað á erindi Jóns
biskups Helgasonar og ákveðið að kaupa bókina, þegar hún
kæmi í bókaverzlanir. Nú er bókin komin og upplag er lítið.
Á fömum vegi. Sögur eftir Stefán Jónsson kennara. í þessari bók
eru 7 sögur, hver annarri betri, sem vekja mun almenna athygli.
Um loftin blá. Eftir Sigurð Thorlacius skólastjóra. Þetta er önnur
útgáfa bókarinnar, fyrri útgáfan seldist á nokkrum dögum
fyrir jólin. Þarna er sumargjöfin handa unglingum um land allt.
100 íslenzkar myndir. Pálmi Hannesson rektor valdi og samdi for-
mála. Ef þér viljið gefa vinum yðar erlendis fallega minningar-
gjöf, þá er engin heppilegri en þessi bók.
Lesið þessar bækur um páskana og gefið þær í sumargjöf.
BÓKAVERZLUN ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJU.
Stndebaker tilkynnir:
Studebaker-vörubíllinn er til í öllum stærðum.
Verðið er mjög vel samkeppnisfært.
Skrifstofnr vorar
verHa lokaðar allan dag~
Inn, laugardaginn fyrir
páska^ Afgreiösla i síma
1700 til hádegis pann dag
Slóvátryggingarfélag Islands h.f.
Opið verður um páskana, eins eg hér segirs
Fimmtudaginn 10. þessa mán.
Föstudaginn 11. þessa mán.
Laugardaginn 12. þessa mán.
Sunnudaginn 13. þessa mán.
Mánudaginn 14. þessa mán.
ATH. Látið börnin koma fyrrihluta dags.
Geymið auglýsingima.
8 f, h. — 3 e. h.
3 e. h. — 7 e. h.
Fyrir bæjarbúa og yfirm. úr hernum.
Fyrir brezka hermenn.
LOKAÐ ALLAN DAGINN.
Fyrir bæjarbúa og yfirmenn úr hernum.
Fyrir alla karlmenn.
LOKAÐ ALLAN DAGINN.
Fyrir bæjarbúa og yfirmenn úr hernum.
Fyrir brezka hermenn.
Miðasalan hættir 45 mín. fyrir lokun.
SUNDHÖLL REYKJAVÍKUR.
( 7,30 f. h. — 7 e. h.
í 7 e. h. — 10 e. h.
I 8 f. h. — 12 á h.
I 1 e. h. — 3 e. h.
f ciag er sfðastl sSludagnr f 2. tlokki.
Dregið á laugardag. — HAPPDRÆTTIÐ