Alþýðublaðið - 24.04.1941, Síða 4
MHÖVIKUDAGUR 24. apÆ 1941
AIÞÝÐUBIAÐIÐ
MIBVIKUDAGUR
Næturlæknir er Þórarinn
Sveinsson, Ásvallagötu 5, sími
2714.
Næturvörður er í Laugavegs- og
Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
19,25 Þingfréttir.
20,00 Fréttir.
20,30 Kvöldvaka stúdenta: a)
Ávarp (Þorgeir Gestsson
stud. med., form. stúdenta-
ráðs). b) Kórsöngur (Stúd-
entakórinn, söngstj. Hallgr.
Helgason). c) Erindi: Spá-
maðurinn Amos (Jens
Benediktsson stud. theol.).
d) Einleikur á píanó (Jór-
unn Fjeldsted stud. mag.).
LitUl smnarbústaður
á erfðafestulandi i ndgrenní
bæjarins til sölu eða leigu.
f\ sama stað til sölu dömu-
reiðhjól í ágætu standi.
H. v. á.
Ráðsmann
og ráðskonu
vantar á sveitaheimili.
Upplýsingar »hjá Guðm.
Magnússyni kaupmanni,
Hafnarfirði. Sími 9199.
SnmaríagDaðor
Knattspyrnufélagsins
Víkingur er í Odd-
fellowMsinu i kvold
Aðgongumiða sé vitjað pang-
að fel. 5-7
e) Erindi: Hagmælska
(Andrés Björnsson stud.
mag.). f) Tvísöngur. g)
Stuttur leikþáttur (revya).
h) Kórsöngur (Stúdenta-
kórinn).
22,10 Fréttir — danslög.
Gömlu dansarnir
verða í kvöld kl. 10 e. h. í Al-
þýðuhúsinu við Hverfisgöut.
Kvenréttindafélag íslands
heldur aðalfund sinn í Þing-
holtsstræti 18 í kvöld kl. 8%.
Sumarfagnað
heldur glímufélagið Ármann í
kvöld kl. 10 í Iðnó. Verður þar
danssýning, gamanvísur og dans.
Frjálslyndi söfnuðurinn.
Messað í fríkirkjunni í Reykja-
vík sumardaginn fyrsta kl. 2.
Ferming. Síra Jón Auðuns.
Fríkirkjan í Hafnarfirði.
Messað á sumardaginn fyrsta kl.
5. Síra Jón Auðuns.
Knattspyrnufélagið Víkingur
heldur sumarfagnað sinn í Odd-
fellowhúsinu í kvöld.
Karlakór Reykjavíkur
heldur samsöng í kvöld. Söng-
stjóri er Sigurður Þórðarson.
Rakarastofur í
verða opnar til kl. 7 í kvöld.
Alþýffublaðið
kemur út tvöfalt árdegis á
morgun.
MalMnr Norræna
félagsins.
AÐALFUNDUR Norræna fé-
lagsins vár haldinn í gær-
kveldi.
Stjórn félagsins var öll endut'
bosin, en hana skipa Stefáín Jóh.
Stefánsson formaður. Guðlaugur
Rósenkrans ritari, Jón Eyþórsson
Páll Isólfsson og Vilhjálmur Þ.
Gíslason.
Ritari gaf á fundinum skýrslu
|um starfsemina s. 1. ár. I félaginu
erti nú 934 rfélagar, þar af í
ideildum 50 á Akureyri, 30 á
ísafirði og 75 í Vestmannaeyjum.
5 þúsund eintök
seldust í gær af
Barnahlaðinu.
¥ SAK JÓNSSON formaður
SUmargjafar sagði Alþýðu-
blaðinu í morgun að í gær hefði
Barnablaðið selst miklu betur en
nokkru sinni áður.
Alls seldust 5000 eintök á 1
krónu hvert, fo^ urðu hreinar
tekjUr kr. 4363,50, en allmiklar
tekjur munu vera af augiýsing-
lum í blaðinu.
1 Sundhöllinni var fullskipað
og góður ágóði af þeirri skemmt-
un.
1 fríkirkjunni var og allgóð að-
sókn.
1 dag er Sólskin selt á götUnum
og kiostar eintakið kr. 2,00. Eru
Reykvíkingar beðnir að taka sölu-
börnunum vel og kaupa bókina.
Er hún mjög skemmtileg aflestr-
ar.
En aðalsöfnUnardagurinn er á
morgun.
GRIKKLAND
Frh. af 1. síðu.
og Eginaflóann, sem skilja skag-
ann frá Mið-Grikklandi.
RooseveM Bandaríkjaforseti
gerði viðburðina á Grikklandi að
■mtalsefni í rfeeðu í gær og sagði,
að stríðið yrði ekki unnið með
einni sjóorustu eins og þeira,
sem háð var suður af Matapan-
höf ða á dögunum, en heldur ekki
táþað með undanhaldi eins og
því, sem nú færi'fram á Grikk-
landi. Sigur eða ósigu'r í styrjöld-
inni væri kominn Undir oTustunni
um Bretland, og hann væri jafin
vongóður eins og áður um það,
að sú ortista ynnist. Svo mikið
væri víst, að haldið yrði áfram
að sénda vopn ti'l Englands.
,Það var tilkynnt 1 Washington
í gær, að 1500 000 manns myndu
verða undir vopnuin x Bandatíkj-
uniun í júnímánuði í sumar.
PBGAMLA BfOH H NÝJA BfO W
Fjðrkfigarinn Við Svanafljót.
(BLACKMAIL.) (SWANEE RIVER.)
Ameríksk sakamálakvik- mynd. Aðalhlutverk leika: Aðalhlutverk:
Edward G. Robinson, Don Ameche,
Ruth Hussey og Gene Lockhart. Andrea Leeds og
A1 Jolson.
Sýnd klukkan 7 og 9. * 1 i
Börn fá ekki aðgang. 1 Sýnd kl. 7 og 9.
Sumardvil barna 1941
Öll börn, sem óskað er eftir að fari á sveita- go
barnaheimili í sumar á vegum sumardvalarnefnd-
ar, komi til læknisskoðunar í Miðbæjarskólann
næstu daga kl. 15,30 til 17.
FRAMKVÆMDANEFNDIN.
Frá brezka setuliðinu. I
Stórt „party“ notaðra blikkdunka til sölu hæst- 1
bjóðanda.
Dunkar brendir (að nokkru leyti bögglaðir) — R
60 smál.
Dunkar undan benzíni (kliptir og flattir) — 6
smál.
Dunkar undan ,benzíni (óbögglaðir) — 10 smál.
Dunkar undan sementi (óbögglaðir) — 10 smál.
Allt í Reykjavík og nágrenni.
Kaupandi verður að sækja dunkana, áður en vika
er liðin frá því að honum hefir verið tilkynnt, að til-
boði hans hafi verið tekið.
Um leyfi til skoðunar skrifist til
CHIEF ORDNANCE OFFICER,
ICELAND FORCE.
Haldið verður þó áfram að skrá . fjölga x hoixuim uipp í 2800000 á
mienti í herinn, oig er ákveðið að | þessU ári. ! j
109 THEODORE DREISER:
JENNIE GERHARDT
er hafði komið henni úr jafnvægi.
— En Iþú ert of mikill maður, Lester, til þess að
láta þér nægja tíu þúsund dollara á ári, hélt hún
áfram. — Þú ert alltof þekktur kaupsýslumaður til
þess að geta sætt þig við það, að draga þig í hlé á
unga aldri. Þú verður að fara aftur í kaupsýslustarf-
semina. Það sem skeð hefir getur ekki orðið þér til
neins tjóns, ef þú gerir kröfu til arfs þíns. Þú getur
sjálfur ákveðið þín skilyrði. Og ef þú segir henni
sannleikann, þá mun hún ekki vera í vegi fyrir þér.
Ef henni þykir vænt um þig, þá mun hún með gleði
færa þessa fórn. Það er ég sannfærð xxm. Og þú getur
auðvitað séð um það, að hún geti lifað áhyggjulausu
lífi.
— Hún kærir sig ékki um peninga, sagði Lester
dapurlega. /
— Jæja, jafnvel þótt svo sé ekki, þá getur hún
sennilega lifað án jþín, og það gengur henni betur,
ef hún fær ríkulegan lífeyri.
— Hún skal aldrei þurfa að líðá' skort, ef ég fæ við
nokkuð ráðið, sagði hann hátíðlega.
— En þú verður að skilja við hana, sagði hún á-
kveðin. — Þú verður að gera það. Hver dagur er
þér dýrmætur. Hvers vegna tekurðu ekki skarið af
sitrax í dag? Því ekki það?
— Það er ekki vert að hrapa að þessu, sagði
hann. — Þetta mál er erfitt viðfangs. Og svo að
ég segi eins og er, þá get ég ekki hugsað til þess.
Ég er ekki einn af þeim, sem hleyp um og tala um
einkamál mín við hvern sem er. Fram að þessu
hefi ég hliðrað mér hjá að tala um þetta, jafnvel
við foreldra mína. En mér hefir alltaf fundizt, að
þú stæðir mér nær en nokkur annar, og þegar ég
hitti þig aftur fannst mér ég þurfa að segja þér,
hvernig ástatt væri um mig. Mér þykir vænt um
þig. Ég veit ekki, hvort þú skilur, bvað ég á við,
eins og nú standa sakir, en svona er það samt. Þú
stendur nær mér en nokkur önnur manneskja. Þú
skalt ekki hnykla ibrýrnar. Þú vildir fá að heyra
sannleikann og nú ertu búin að fá að heyra hann.
Svo verður þú að dæma mig.
— Ég vil ekki stæla við þig, Lester, sagði hún
blíðlega og lagði höndina á handlegg hans. — Ég
vil aðeins elska þig. Mér þykir þetta leitt vegna
ungfrú Gerhardt. Hún er töfrandi stúlka. Ég met
hana mjög mikils. En hún er ekki kona við þitt
hæfi, það er hún áreiðanlega ekki. Það er ef til
vill ekki rétt gert af okkur að tala svona um hana,
en svona er það nú samt. Ég er sannfærð um, að
ef þú segir henni, hvernig ástatt er, þá mun hún
skilja þig og samjþykkja skilnaðinn. Það myndi ég
ekki gera í hennar sporum, Lester, það er áreiðan-
legt. Það myndi engin góð kona gera. Og ég er
sannfærð um, að hún skilur þig .Og ég held, að ég
skilji hana eins vel og þú og jafnvel betur. Ó,
sagði hún, — bara að ég gæti ná ðtali af henni.
Ég myndi áreiðanlega. geta komið henni í skilning
um þetta.
Lester starði á Letty og undraðist ákafann í henni.
Hún var fögur og mjög aðlaðandi.
— Við skulum ekki hrapa að neinu, sagði hann.
— Ég verða að hugsa mig um. Ég hefi ekki haft
tíma til að átta mig á þessu.
Hún varð þögul, dálítið vonsvikin ef til vill, en
ákveðin.
— Það ér kominn tími til að gera eitthvað, sagði
hún og horfði ástleitnum augum á Lester. Hún vildi
eiga þennan mann og hún blygðaðist sín ekki fyrir
að láta hann verða þess varan.
— Jæja, en ég verð nú samt að fá að hugsa mig
um, sagði hann ofurlítið órólegur. Svo kvaddi hann
í flýti og fór.
SEXTUGASTI OG FYRSTI KAFLI.
Lester hefði ef til vill látið strax til skarar skríða,
ef ekki hefði komið ofurlítið fyrir á heimili hans í
Hyde Park. Heilsa Gerhardts fór allt í einu að bila.
Smám saman hafði hann orðið að hætta störf-
um sínum í garðinum og að lokum varð hann að
leggjast í rúmið. Hann lá uppi í heribergi sínu og
Jennie hjúkraði honum af mestu nærgætni. Oft
kom Vesta litla upp til hans og sat hjá honum og
stundum kom Lester til hans. Rétt hjá rúminu var
gluggi og þar var dásamleg útsýn út yfir garðinn
og hverfið. Tímunum saman gat hann setið og horft
út um gluggann og velt því fyrir sér, hvernig allt
gengi núna, þegar hans nyti ekki við lengur. Hann
hafði grun um, að Wood, ekillinn, gætti ekki nógu
vel að hestunum og aktygjunum, að hlaðadrengur-