Tíminn - 27.06.1963, Síða 8

Tíminn - 27.06.1963, Síða 8
Árið 1963, þriðjudaginn 25. júní, var í Hæstarétti í málinu nr. 66/1963: Gísli G. ísleifsson f.h. Burwood Fishing Co. Ltd., eiganda togarans Milwood, A 472 gegn vald stjórninni uppkveðinn svohljóð- sndi DÓMUR: Kærandi skaut úrskurði saka- dóms Reykjavíkur 20. maí þ.á. sam dægurs til Hæstaréttar. Hæstarétti bárust því næst eftirrit dómsrann- sóknar og skriflegar athugasemd- ir frá saksóknara rikisins og mál- flutningsmanni kæranda, dags. 22. og 27. maí þ.á. Við könnun á sak- argögnum þessum kom í ljós, að tiltekin dómskjöl vantað'i í endur- rit frá sakadómi og málið var þess eðlis, að rétt var, að það yrði flutt munnlega fyrir Hæstarétti samkvæmt 2. mgr. 31. gr. laga nr. 57/1962. Hæstiréttur ákvað því 30. maf þ.á., að málsskjöl þessi skyldu lögð fyrir dóminn og að mál ið yrði, eftir nauðsynlegan undir- búning, flutt munnlega. Jafnframt var af hálfu Hæstaréttar bent á, að í samræmi við dómvenju í mál- um af þessu tagi þyrfti að afla útsetningar og álits skólastjóra Stýrimannaskólans um staðará- kvarðanir stjórnarmanna varð- skipsins Óðins og Þórs í máli þessu. Við munnlegan málflutning, sem fram fór í Hæstarétti 19. þ.m., voru málsgögn þessi og nokkur fleiri lögð fyrir dóminn. Af hálfu kæranda er þess kraf- izt, að hald það, sem lagt hefur verið á togarann Milwood, verði fellt nið'ur gegn bankatryggingu að mati héraðsdóms fyrir öllum greiðslum, sem John Smith skip- stjóra kunni að verða dæmt að greiða. Þá krefst kærandi og kæru málskostnaðar úr ríkissjóð'i. Saksóknari ríkisins krefst þess, að hinn kærði úrskurður verði staðfestur og kæranda dæmt að greiða kærumálskostnað í ríkis- sjóð. I. Aðdraganda máls þessa er ekki lýst nema að litlu leyti í hinum kærða úrskurði. Verður því ekki komizt hjá að rekja málsatvik í meginatriðum, og þykir í því skyni rétt að taka upp orðrétta skýrslu skipherrans á varðskipinu Óðni, dags. 1. maí þ. á., en skýrslu þessa hefur skipherrann og þeir af skipshöfn hans, sem hlut áttu að máli staðfest með eiði. Skýrsl- an er svohijóðandi: „Laugardaginn 27. apríl 1963 gerði varðskipið tilraun til að taka fastan togarann Milwood, A 472, frá Aberdcen, sem var að taka inn vörpu sína innan fiskveiðitak- markanna út af Skaftárós. Skip- stjóri John Smith. Nánari atvik voru sem hér seg- ir: Laugardaginn 27. apríl 1963 var varðskipið á vesturleið í Meðal- landsbug. í ratsjá varðskipsins sá- ust allmikið af skipum um og inn- an við 0 sjómílna takmörkin út / af Meðaliandssandi. Ekki voru tök á því að greina hvers konar skip var hér um að ræða vegna slæms skyggnis Kl. 0515 var gerð eftirfarandi staðarákvörðun við hlið togarans AVONRIVER, A 660: Skarðs- fjöruviti roiðaðist í réttv. 277', fjarlægð 7,3 sjóm., er gefur stað togarans um 6 sjómílna fiskveiði- takmörkin, jafnframt sást þá ann- ar togari með berum augum norð- vestur frá staðnum og stefnan sett þangað. Kl. 0520 var komið að togaran- um MILWOOD, A 472, sem lét reka og var að innbyrða stjórn- borðsvörpu. Var eftirfarandi stað- arákvörðun gerð við hlið togar- ans. Skarðsfjöruviti miðaðist í réttv. 271°, fjarlægð 6,5 sjóm., dýpi 145 metrar. Gefur þetta stað tog- arans um 1,25 sjóm. innan 6 sjó- mílna fiskveiðitakmarkanna. Var strax kallað til togarans með hátal ara varðskipsins að hreyfa sig ekki, því bátur myndi verða sendur yfir til hans. Maður veifaði í brúar- glugga togarans og þótti sýnt, að kallið hefði skilizt. Kl. 0523 var duflið sett út við hlið togarans og um sama leyti sást mikið af fiski í kringum tog- arann og vörpupokinn lá fráskor- inn í sjó. Kl. 0526 setti togarinn á ferð og sigldi á duflið. Síðar kom í ljós, að tilraun togai'ans til að sigla nið- ur duflið' hafði mistekizt. Kl. 0527 var skotið lausu skoti að togaranum og eftirför hafin. Kl. 0528 var flautað stöðvunar- merkið K með flautu varðskipsins. Kl. 0529 var stöðvunarmerkið' K sett upp. Jafnframt var byrjað að kalla á togarann í talstöð varðskips ins, en hann svaraði ekki og hélt flótta sínum áfram. Var nú siglt samhliða togaran- um, en togarinn var á bakborða. Skömmu síðar beygði togarinn lít- ils háttar 1 bakborða, síðan hart í stjórnborða og virtist, að með sömu ferð og skipin héldu, myndi togarinn lenda á bakborðshlið varð skipsins. Voru vélar varðskipsins stöðvaðar og síðan settar á fulla ferfS aftur a til að reyna að forð- ast árekstur. Ekki varð vart við, að togarinn gæfi nein lögskipuð merki, áður en hann beygði. Kl. 0535 var skotið lausu skoti að brú togarans, og á sömu stundu skeður áreksturinn við hann, þann ig að þegai brú togarans er kom- in á móts við stefni varðskipsins, beygir togarinn í bakborða. Lenti borðstokkur og bátaþilfarshorn tog arans rétt aftan við aftari stjórn- borðsgálga á stefni varðskipsins. Voru þá vélar varðskipsins stöðv- aðar og skemmdir athugaðar. Kom í Ijós, að i.vö göt höfðu komið á stefni varðskipsins. Hið efra gat var um meter fyrir ofan aðalþil- far skipsins í geymslurúmi, hið neðra var í stafnhylki skipsins, rúman meter ofan við sjólínu. Þeg ar skipið hjó, rann sjór inn í stafn hylkið, eftir að sett var á ferð, en vindur og sjór voru á móti. Dælur skipsins voiu hafðar á því hylki til að létta þrýsting á því. Efra gat ið var þétt til bráðabirgða og vatns heldri hurð lokað. Kl. 0541 var eftirförinni haldið áfram. Kl. 0604 var skotið lausu skoti, en árangurslaust. Allan tímann var alltaf öðru hvoru kallað í tal- stöð varðskipsins, ýmist á 2182 kc. og 2226 kc. og reynt að hafa samband við togarann, en hann svaraði aldrei. Kl. 0625 var sent skeyti til Land- helgisgæzlunnar í Reykjavík og spurt, hvort ekki mætti skjóta töstu skoti á togarann. Kl. 0708 kom svar um að skjóta ekki á togarann að svo stöddu. Kl. 0807 kom skeyti frá Land- helgisgæzlunni um að setja upp alþjóðamerkjaflöggin OL, sem táknar „stöðvið eða ég skýt á yður“. Að'alstefnur skipanna tveggja voru frá 115° til 130° r/v. Var síðan haldið áfram víð hlið togarans. Barst þá einnig upplýs- íng frá Landhelgisgæzlunni, að brezka herskipið PALLISER færi frá Reykjavík kl. 1100 og væri æskilegt, að það fengi tækifæri til að reyna, h' að það gæti, t. d. með radíósambandi við togarann. Enn iremur var Geir Zoega, umboðs- maður brezku togaranna í Reykja- vík, að reyna að ná sambandi við útgerðarmann MILWOODS. Kl. 1250 var PALLISER í skeyti gefinn staður og stefna varðskips- ins og togarans svo og, að ógern- ingur væri að fá hann til að svara neinu kalli. Var um leið spurt, hvort herskipið gæti stöðvað hann, áður en varðskipið yrði að grípa til annarra ráða. Kl. 1335 barst svar við þessu skeyti frá PALLISER, þar seni sagt var, að honum hefði enn þá ekki tekizt að fá MILWOOD til að svara kalli sínu og bað um, að beðið yrði með harðhentari að- ferðir til að stöðva skipið, þar sem hann efaðist ekki um, að hægt yrði að leysa þetta mál, er hann kæmi á staðinn, og hann hefði eins og við áhuga á því, að alþjóðalög væru í heiðri höfð. Þegar HMS PALLISER fór að nálgast, hevrðist, að hann kallaði oft í togarann MILWOOD, án þess að hann svuraði,.en loksins þegar hann svaraði, heyrðist, að skip- herra HMS PALLISER lagði mjög að skipstjóranum að snúa við á móti sér eða stöðva, én skipstjóri MILWOOD neitaði algerlega öll- um slíkum tilmælum. Kl. 1725 var sent skeyti til Land helgisgæzlúnnar í Reykjavík, svo hljóðandi: „Sé ekki ástæðu til að halda þessari eftirför áfram, ef e-kki á að gera eitthvað meira. Svar óskast." Kl. 1818 barst skeyti frá Land- helgisgæzlunni, sem var sent til brezka herskipsins HMS PALLI- SER. Var það svohljóðandi: „As we intend co stop the trawler and have him obey our orders to go to an Icelandic port, please tell him this is important as this pursuite can no go on much long- er“. Kl. 1908 sneri togarínn Milwood í átt til HMS Palliser. Sneri þá varðskipið einnig við og fylgdist með togaranum í átt til HMS PALLISER í stefnu 277° réttvís- andi. Voru skipin þá stödd réttvís andi 157°, fjarlægð 128 sjóm. frá Vestra-Horni. Kl. 1960 birtist togarinn JUNI- PER, A 540, og virtist hann hafa elt skipin. Snerí hann við og hélt sér á mili' togarans MILWOOD og varð'skipsins. Kl. 2210 var Land helgisgæzlunni skýrt frá þessu og samkvæmt beiðni hennar var PALLISER þá sent eftirfarandi skeyti: „A British trawler is steaming here close alongside MILWOOD stop Please ask him to leave as MILWOOD is under arrest and this trawler has evidently nothing to do here“. Ekki varð vart við, að Palliser sendi þetta til togarans. Kl. 2340 hittu skipin HMS PALLISER sem sneri við og hélt i vesturátt eftir skipunum. Veður, þegar komið var að tog- aranum um morguninn: Austan 7, sjór austan 4 og súld. Veð'ur í eftirförinm var frá austan 5 til suðvestan 4—6, sjór frá ASA 4 til SV 3—4, skúrir. Sunnudaginn 28. apríl kl. 0148 voru skipin stöðvuð vegna vélar- bilunar todarans JUNIPER. Var þá ákveðið a® bíða átekta til kl. 0600 vegna veðurs til að skip- herra PALLISER gæti farið milli togarans og varðskipsins. Kl. 0600 fór skipherra PALLI- SER og sigiingafræðingur herskips ms um borð í MILWOOD til við- •æðna við skipstjóra togarans. — Nokkru seinna fóru varðskips- menn á gúmmíbát i áttina til tog- arans og hugðust sækja skipherra PALLISER en er gúmmíbáturinn var kominn nokkuð á leið, setti tog arinn á ferð og sneru varðskips- menn þá til baka. Kom þá boð frá PALLISER um, að skipstjóri tog- arans hefði haldið, að' varðskips- menn hefðu ætlað að ráðast til uppgöngu i togarann, en óskaði jafnframt þess, að gúmmíbátur varðskipsins yrði látinn sækja skip herra PALLISER, þó með því skil- yrði að aðeins 2 menn yrðu í bátn- um. Kl. 0750 var skipherrann sótt ur til viðræðna við skipherra varð fkipsins. Hinum var gert Ijóst, að hér eftir yrði notað vald til að færa togarann til íslenzkrar hafnar. — Hunt skipherra lýsti því yfir, að ógerningur myndi að' fá skipstjóra togarans til að fara í íslenzka höfn, þrátt fyrir það þó hann fengi fyr- írmæli frá eigendum togarans til að gera það Hann hefði gert skip- stjóra togarans það ljóst, að til alvarlegra átaka gæti komið og hann stofnað lífi skipshafnar sinn ar í hættu með þessu framferði. Togaraskipstjórinn hafði þá óskað eftir því, að skipshöfnin yrði flutt yfir í PALLISER og hann yrði einn eftir i togaranum og sigldi honum til Skotlands. Hunt skip- herra kvaðst hafa ákveð'ið að verða ' íð þessari beiðni hans. Honum "ar þá benr á. að mjög mikil hætta væri að skilja svona mann eftir einan í skipinu, það værí ekki að vita, hverju hann gæti tekið upp á, eins og iiugarástandi hans væri háttað. Eftir nokkrar umræður varð það loks að samkomulagi, að Hunt skipherra léti skipið í okk- ar hendur með eftirfarandi að- ferð: Hunt skipherra ætlaði að vera með tvo vélstjóra frá PALLISER um borð í iogaranum, flytja skips- höfnina alla nema skipstjórann yf ir í PALLISER og um leið og skipshöfnin væri komin yfir kæmu varðskipsmenn og yfirtækju skip ið. Ætlaði Hunt skipherra ásamt vélstjórum sínum ág varna skip- stjóra togarans að setja vélina í gang, á meðan varðskipsmenn kæmust um borð. Hunt skipherra var einnig búinn að segja, að færi svo, að fleiri af skipshöfninni vildu vera eftir um borð, myndi hann sjálfur taka skipið fast. Hann full yrti, að þetta gæti ekki mistekizt. Þessi áætlun fór nú fram, eins og ráð var fyrir gert, að öðru leyti en því, að þegar varðskipsmenn komu um borð í togarann, var skipstjóri hans nýfarinn um borð í togarann JUNIPER með aðstoð Hunt skipherra og á bát frá PALLI SER, en JUNIPER hélt strax á- leiðis til Skotlands. Þegar Hunt skipherra kom um borð í varð- skipið eftir þetta, var þessum að- gerðum hans harðlega mótmælt, tinnig var honum fengin eftir- farandi skrifleg orðsending: „I demand that you hand over to us the skipper of the MILWOOD at once or take him with you to an Icelandic port“. Hunt skipherra talaði' nú við brezka ambassadorinn í Reykjavík og skýrði honum frá málavöxtum. Hann bað ambassadorinn um að hafa samband við útgerðarmenn togarans JUNIPER og biðja þá um að snúa togaranum við til Reykja- víkur. Lofaði ambassadorinn þessu. Kl. 1838 var haldið á fullri ferð á eftir JUNIPER, einnig hélt PALLISER á eftir JUNIPER. Um kl. 1900 héldu varðskips- menn, 3 hásetar, 1. vélstjóri undir stjóm Leons Carlssonar 2. stýri- manns, með togaranum MILWOOD til Reykjavikur samkvæmt fyrir- mælum skipherra v.s. Óðins. Einn ig voru í togaranum 3 yfirmenn og 5 undirmenn frá PALLISER svo og 2 hásetar togarans, er vildu ekki yfirgefa togarann. Kl. 2055 hafði PALLISER tek- ízt að fá togarann JUNIPER til að snúa við og héldu öll skipin í norðvestur átt. Kl. 2309 stöðvaði PALLISER og sendi bát yfir að JUNIPER. Síðan tilkynnti PALLISER, að skipstjór- inn á MILWOOD hefði verið' flutt- ur um borð í herskipið. Kl. 2322 var ferðinni haldið á- fram. Veður á sunnudag var kul til SV 4—8, sjór SV 3—4, skýjað. Mánudaginn 29. apríl kl. 0015 var Landhelgisgæzlunni í Reykja- vík tilkynnt um flutning skipstjór ans á MILWOOD úr JUNIPER. Kl. 0137 tilkynnti PALLISER að hann ætlaði til MILWOOD til að taka menn sina. Kl. 1200 kom PALLISER að tog- aranum MiLWOOD í réttvísandi 285° frá Geirfuglaskeri, fjarlægð !8 sjómílur Setti hann út gúmmí- o.iörgunarbát, sem herskipsmenn voru sóttir í, en þrír vélstjórar tog arans fluttir um borð í MILWOOD. Kl. 1237 kom ÓÐINN að togaran fm og sendi tvo menn til viðbót- ar í hann Kl. 1310 hélt MILWOOD áfram ’J' Reykjavíkur, en PALLISER Framhald á 13. sfSu. HIN FRÆGA FLEYTA — TOGARINN MILWOOD 8 T f M I N N, fimintudagurinn 27. júní 1963. — i i .. 4 V I i 3 ; » " '• I, V V. V*/ V.V '•« ■»• VV /.•/. v ri ' 'i i • y ••*. y V.-;'••.-'• r ,f. > j :v I

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.