Tíminn - 27.06.1963, Síða 16
Fímmhjdagur 27. júní 1963
140. H>l. 47. árg.
NORDURLANDAFÉRÐIN
Félag ungra Framsóknarmanna
efnár til Norflurlandaferðar 4. júlí
n.k. Flogið verður til Oslóar, en
þaðan ekið til Stokkhólms með
viðkomu á ýmsum stöðum. — í
Stokkhólmi verða frjálsir dagar,
en siðan ekið suður eftir Sviþjóð
til Helsingör og farið með ferj-
unni til Kaupmannahafnar. — í
Kaupmannahöfn verða aftur frjáls
ir dagar, en síðan verður haldið
til Óðinsvé, Hróarskeldu og Silki-
borgar. Himmelbjerget, Alaborg
og Skagen verða heimsótt og að
lokum siglt til Óslóar. Þar fá
menn frjálsa daga og farið verð-
ur í stutta ferð til Eiðsvalla og
Hammer. — Ferðinni lýkur 23.
júlí. Kostar hún aðeins 10.950
krónur, innifalin öll ferðalög, flug
ferðir, gistingar, morgunverður og
kvöldverður, fararstjórn og skipu-
lagningu. Fararstjórar eru Örlygur
Hálfdánarson og Baldvin Þ. Kristj
ánsson. Feiðaskrifstofan Lönd og
Leiðir Aðalstræti 8, veitir allar
upplýsingar.
HLAUPA MÓT
SUMRIOG SÓL
f gær var sannarlega sól og
sumar í Reykjavík, og ungir
sem gamlir kepptust við að nota
sér þetta blíðskaparveður. —
Amarhóll var þéttsetinn allan
daginn, og þar var þessi mynd
tekin af börnunum, sem hlupu
fagnandi um í sólskininu.
(Ljósm. Tíminn GE)
20 BRYR A SUMRINU
KH-Reykjavík, 25. júní
f sumar verður unniið að bygg-
ingu um 20 brúa á landinu, stærri
en 10 metra. Af þessum fjölda er
þó aðeins ein verulega stór, Þver-
árbrú í Rangárvallasýslu, en auk
þess verður lokið við Blðndubrúna
sem steypt var til hálfs í fyrra.
Þess má geta, að í ráði er að brúa
Köldukvísl á Sprengisandsleið í
sumar og yrffli þá sennilega notuð
hin 19 m langa brú, sem var á Öxna
dalsá, en sú brú var endurbyggð
fyrir tveimur árum. Ef Köldu-
kvísl verður brúuð, þá verður hfl-
um fært inn í Tungur. Til brúar-
smíða er veitt um 15 milljónum
króna, en auk þess er hin svokall-
aði' brúarsjóður, eða benzínféð, um
10 milljónir króna.
Árni Pálsson, yfirverkfræðing-
pr, veitti blaðinu eftirfarandi upp-
Brezkur togari
tekinn i Lónsbug
IH-Seyðisfirði, 26. júní.
Varðsklplð ÓSinn tók brezka tog
arann Dorade SN 49, að ólögleg-
um veiðum í Lónsbug, 1,2 sjó-
mílur innan flskveiðitakmark-
anna klukkan 1—2 í nótt.
Togaramenn voru að hífa pok-
ann, þegar varðskipið kom að
þeim. Enginn mótþrói var sýndur,
og kom varðskipið imeð togarann
til Seyðisfjarðar kl. 11,30 ár-
degis. Réttarhöldin hófust kluikk-
an 17,30 og koim þá skipstjórinn
á Dorade, Allan Wood, fyrir.
Dorade er frá Northschielde, um
300 l<esta skip, byggt 1962. Það
hefur einu sinni áður koanið í ís-
lenzka höfn, til Norðfjarðar. Eng-
ar garnlar saikir eru á skip eða
skipstjóra. Bæjarfógetinn á Seyð
isfirði dæmir í málinu, en verj-
andi er Gísli G. ísleifsson.
ðWW
lýsingar um brýr þær, sem eru 10
m á lengd og þar yfir og þegar er
hafin smíði á.
Á Tunguá hjá Háafelli í svo-
nefndum Miðdalavegi er hafin
smíði á 20 m steyptri bitabrú. Brú-
:n er gerð mestmegnis fyrir innan-
héraðssamgöngur, og fæst þá
hfingakstur um sveitina, en það
hefur mikið að segja, einkum
vegna mjólkurflutninga.
í Arnarfirði er hafin smíði á
10 m steyptri bitabrú á Sunndalsá.
Brúin er á fyrirhuguðum vegi, sem
á að liggja frá veginum á Vest-
fjarðahálendi niður í Arnarfjörð,
en við það kemst Arnarfjörður í
samband við hina firðina fyrir
norðan, og einnig verða samgöng-
ur greiðari við firðina að sunnan.
í V-Húnavatnssýslu er í smíðum
20 m bitabrú á Fitjaá, gerð fyrir
innanhéraðssamgöngur.
Haldið er áfram smíði Blöndu-
brúar, en hún er 69 metra löng
bitabrú með tvöfaldri akbraut og
auk þess meters breiðum gangstétt
um báðum megin. Var önnur
breiddin steypt í fyrra og tekin
i notkun um haustið, en brúnni
verður væntanlega að fullu lokið
i haust.
í fyrrahaust voru steyptir stöpl-
. •
ar á brú á Fnjóská hjá Laufási, en
nú er hafin vinna við að' koma
stálbitum íyrir og steypa gólf á
Drúna. Þarna' var fyrir gömul brú,
en sú var of veikburða fyrir þung
tæki. Brúin er leiðinni frá Akur-
eyri norður fyrir Vaðlaheiði og inn
í Fnjóskadal, en sú leið er þýð-
Framhald á 15. siðti.
BÓ-Reykjavík, 26. júní.
f dag kom upp eldur í Akur-
gerði 7, sem er tvflyft einbýlis-
hús, og voru upptökin í eldhúsi
á neðri hæðinni.
Slökkviliðið var kvatt út kl.
14,30, en því tóbst fljótlega að
ráða niðurlögum eldsins. Reykur
barst urn alla íbúðina og olli tals-
verðum skemmdum. Enginn' var
heima, þegar eldurinn kom upp,
húsfreyja hafði brugðið sér frá,
en húsið stóð ólæst. Magnús Egg-
ertsson, varðstjóri hjá rannsóknar
lögreglunni, var kvaddur á stað-
inn og komst að þeirri niðunstöðu,
að eins konar glerstjaki, sem stóð
í eddhúsglugganum heifði myndað
brennipunkt úr sólarljósinu og
kveikt í. Sólin skein beint inn um
gluggan, og gluggatjöldin voru úr
næloni.
ÞJÓÐDANSAFÉLAGLÐ SÝNIR í NOREGI
BÓ—Reykjavfk, 26. iúní. — Þjóðdansafélag Reykjavíkur, 35 manna hópur, flaug til Ósló i morgun í boði
þjóðdansafélagsins norska. — Hópurinn mun sýna á norrænu þjóðdansamóti i Osló, en siSan verSur ferSazt
norSur um iandið, allt til Bodö og haldnar sýningar á leiSinni. Með íslenzka dansfólkinu eru fjórir söngv-
ar og undirleikari. ÞjóSdansafélagiS norska kom hér fyrlr nokkru í boði ísl. félagsins, sem mun nú
dveljast hálfan mánuS i boði hins; en aS því loknu mun hópurinn dveljast í Kaupmannahöfn og ferSast
um Skotland. FerSaskrlfstofan Útsýn hefur skipulagt ferS þessa, og annast farseðla, leiSsögn og gistingu.
B-LISTW
EINS OG ÁÐUR hefur veriS auglýst, verSa
haldin skemmtikvöld i Súinasalnum i Sögu
næstkomandi föstudags- og sunnudags-
kvöld kl. 9, fyrir þá, sem unnu fyrir ES
listann á kosningadaginn. Leyfilegt er að
taka með sér gesti. AI9þingismenn Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík flytja stutt
ávörp. Fluttur verður nýr skemmtiþáttur,
sem Karl Guðmundsson verður með, og
Ólafur Þ. Jónsson óperusöngvari syngur
— Dansað verSur tll kl. 1. — Miðar verða
afhentir í Tjarnarg. 26, simar 15564; 16066.
SKEMMTIKVÖLD