Tíminn - 09.07.1963, Blaðsíða 6
VERZLUNARSTARF
Viljum ráöa röska stúlku til starfa í raf-
tækjaverzlun frá 1. ágúst n. k. að telja. —
Nánari upplýsingar geíur Starfsmannahald
S.Í.S., Sambandshúsinu.
STARFSMAN NAH ALD
Rangæingar
athugið
Við seljum hinar viðurkenndu Esso-brennsluolíur,
benzín og smurningsolíur Enn fremur hina kunnu
sjálfvirku Gilbarco olíubrannara, ásamt miðstöðv-
ardælum og miðstöðvarkötlum Olíutankar venju-
legast fyrirligg]andi i ymsum stærðum á hag-
kvæmu verði. Kynnið ykkur verð og greiðsluskil-
mála á þessum tækjum hjá okkur áður en þið fest-
ið kaup annars staðar.
Félagsmenn athugið sérstaklega.
Arður er greiddur af þessurrj, sem öSrum við-
skiptum.
KAUPFÉLAG RANGÆINGA
Olíusöludeild
Tilboð óskast
í nokkrar fólksbifreiðir er verða sýndar í Rauðar-
árporti miðvikudaginn 10. þ. m. kl. 1 til 3.
Tilboðin verða opnuð í sknfstofu vorri kl. 5 sama 1
dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Erlent yfirlit
löndum voru hernaðarafskipti
aðeins talin vestræn stjórn í
óbliðu formi, og ætti aftur að
grípa til þeirra yrði það aðeins
til þess að auka á fáleikana,
sem þegar gætir til muna í
Austur-Pakistan.
„Þeir ættu að athuga, hvað
gerðist í frak, áður en þeir
innleiða herlög hér á ný“, sagði
æstur Austur-Pakistani á þing
inu í Dacca. „Við erum fátæk-
ir og höfum engu að tapa og
létum fremur skjóta okkur
en . . . “
ERFITT er að gera sér I hug
arlund hverja framtíð sjálf-
stætt Austur-Pakistan gæti átt
í vændum. Ljóst er þó, að eng-
um virðist detta í hug nánari
tengsli við Vestur-Bengali. Ótt
inn við efnahagslega drottnun
Hindúahluta Bengals mun ein-
mitt hvetja til mikillar var-
færni, þegar farið verður í al-
vöru að vega kosti og galla að-
skilnaðarins.
Hvað er þá hægt að gera til
þess að efla samheldni ríkis-
ins? Fátt er um fjárhagsleg
úrræði. Mismunurinn er orðinn
of mikill til þess að unnt sé
að sigrast á honum og jafnvel
exfitt að koma í veg fyrir að
hann haldi áfram að aukast.
Þeir, sem óánægðir eru með
horfurnar, hafa látið í ljós í
Dacca álit sitt á nauðsyn stofn-
unar hugsjónaflokks, sem njóti
fjöldastuðnings meðal beggja
arma og berjist fyrir róttæk-
um, alhliða félagslegum og
efnahagslegum umbótum. En
eins og sakir standa sjást þess
hvergi merki, að slík flokks-
■myndun sé í aðsigi.
Stjórnin kann að freistast
til að treysta á múhameðstrúna
sem sterkasta einingarþáttinn,
en þess verður þegar vart í
Dacca, að jafnvel þeir, sem
áfjáðastir eru í að varðveita ein
inguna, líta ekki á trúna’sem
áhrifamikinn tengilið. Ef til
vill er bezta árangurs að vænta
ef Pakistan þokast í átt til laus-
ari tengsla milli ríkishlutanna,
en aukins stjórnmála- og efna-
hagslegs sjálfræðis hvors
þeirra um sig. Vera kynni, að
Austur-Pakistanar fyndu hvöt
hjá sér til þess að halda við
einingu ríkisins við þær að-
stæður.
Orðsending
til kaupenda Eldhúsbókarinnar.
Vinsamlegast athugið, að á bis. 54 (í júlíblaðinu
1963) hefur orðið prentvilla i húsráðunum: „Um
rabarbara“ — þar stendur m a.: Til þess er notuð
40% klórkalksupplausn, en þetta á að vera
40% kaleium clorid upplausn 'Kalcium clorid fæst
í lyfjabúðum). — Gjörið svo vel að leiðrétta þetta.
í septemberblaðinu verða m. a. uppskriftir af
lopapeysum. Á forsíðu októberblaðsins verður lit-
mynd af sex peysum, og kaupendum Eldhúsbókar-
innar gefinn kostur á að velja prjónauppskriftir
eftir vild. — Möppur utan um Eldhúsbókina geta
kaupendur hennar pantað í síma 24666, og verða
þær sendar heim.
ELDHÚSBÓKIN,
FreyjugÖtu 14, II hæð, símí 24666, Reykjavík.
LOKAÐ
Lokað vegna sumarleyfa 15 júlí til 6. ágúst.
Efnagerðin REKORD,
Brautarholti 28
SPYRJIÐ EFTIR
Framaaja *l» y síðu 1
er eins og hreina tæra lindin, sem
hverfur í gruggugt jökulfljótið, og
•ærður alltaf bætandi lind. Þjóð'ina
vantar mest af öllu sanna og lif-
andi trú — trú sem flytur fjöll.
Lifandi trú á hið sanna orð Guðs,
eins og það birtist oss í hinni
helgu bók, Biblíunni, og rituð er
af postulum Drottins Jesú. Ef vér
förum að efast um mátt Guð's í
Grðinu og yfir Orðinu, hættum
vér að treysta því og gerum það
máttlaust í lífi og athöfnum vor-
um. Áhrifin eru augljós.
Verði feskan alin upp í lifandi
trú á Guð, sem varð hold og bjó
með oss fullur náðar og sannleika,
(Jóh. 1, 14) þá munu ávextir trú-
arinnar eigi láta á sér standa. Þá
vex upp heilbrigð, lífsglöð æska,
sem eigi þráir vin og tóbak, eða
aðrar fánýtar skemmtanir, og lif-
u eigi í saurugleika holds og anda,
en hrópar sem Davíð konungur:
„Eins og hindin þráir vatnslindir,
þráir sál mín þig, ó Guð. Sál mína
þyrstir eftir Guði, hinum lifandi
Guði.“ Sálm. 42, 2—3. Hann mun
svara þá sálin hrópar, og æskan
vaxa í Guði frelsara sínum, hon-
um til dýrðar og landi og þjóð til
hlessunar Þá hún er fullþroskuð
íyrir Guðs orð og í orði Guðs,
mun hún gera öll sín verk fyrir
nans augliti. Þá verður eigi hægri
höndin upp á móti þeirri vinstri,
vg vinstri höndin rífur eigi niður
það, sem hin hægrf gerir, þvf að
Orð Guðs verður leiðarljós í öll-
um framkvæmdum. Og þá mun
þióðin drekka úr lækjum unaðs-
semda Guðs Þetta mun verða, þá
eldri kynslóðin undirbýr æskuna
í trú og sannleika til að ala upp
nýja æsku.
„Guði sé lof, sem oss hefur sigur
inn gefið fyrir Drottin vom
Jesúm Krist."
Sigurður Þórðarson,
Egg í Skagafirði.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Á morgun verður dregið í 7. flokld. /
1.100 vinningar að fjárhæð 2,010,000 krónur.
í dag eru seinustu forvöð að endurnýja
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
7. fl.
1 á 200.000 kr. — 200.000 kr.
1 - 100.000 - 100.000 —
26 - 10.000 ------ 260.000 —
90 - 5.000 450.000 —
980 - 1.000 980.000 —
Aukavinningar:
2 á 10.000 kr — 20.000 kr.
1.100
2.010.000 kr.
Ferðizt í Volkswagen - Akið sjálf nýjum bíl
©
Höfum til leigu Volksw agen og Land-Rover
Sé bífreiðin tekin á leigu i einn mánuð eð'a lengri túrta, þá gefum vlð 10 — 20% afstátt á leigugjaldi. —- Lelgjum bifreiðir okkar allt iiiður í 3 tíma.
0
ALMFNAIA BÍFREIDALEIGAN h.f.
REYKJAVÍK
Klapparstig '40 síml 1-37-76.
KEFLAVÍK
Hringbraut 106 sími 1513.
AKRANES ’
j'* Suðurgötu 64 sími 170.
I!
T í 1 I N N, þjiðjudagurinn 9. iúlí 1963. —