Tíminn - 09.07.1963, Síða 7

Tíminn - 09.07.1963, Síða 7
imtfmt Ritstjórnar^rein úr „Th@ Times“: Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Frarakvæmdastjóri: Tómas Árnason. — Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb), Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjórnar: Tómas Karlsson. Frétta- stjóri: Jónas Kristjánsson. Auglýsingastj.: Sigurjón Davíðsson. Ritstjórnarskrifstofur í Eddu húsinu, símar 18300—18305. Skrif stofur Bankastr. 7. Afgr.sími 12323. Augl., sími 19523. Aðrar skrifstofur, sími 18300. Áskriftargjald kr. 65.00 á mán. innan- lands. í lausasölu kr. 4.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f, — Verður Pakistan tvö ríki? Kðofningurinn milli hinna aSskildu ríkishluta vex stöðugt. Kaup iðnaðarmanna MORGUNBLAÐIÐ hefur nú játað, að það sé vegna áhrifa frá ríkisstjórninni, að atvinnurekendur hafa enn ekki fallizt á að veita iðnaðarmönnum hliðstæða kaup- hækkun á þessu ári og aðrar stéttir hafa fengið. í for- ustugrein, sem Mbl. birtir á sunnudaginn, er því haldið fram, að rangt sé að láta iðnaðarmenn fá þá 5% kaup- hækkun, sem félög verkamanna og iðnverkafólks fengu á síðastliðnum vetri, því að hún hafi aðeins verið ætluð hinum lægstlaunuðu. Blaðið bætir því við, að „sumir hópar iönaðarmanna séu meðal hinna tekjuhærri í þjóðfélag- inu“. Þessi skrif Mbl. staðfesta það, sem hafði hlerazt áður, aö atvinnurekendur vilja aðeins veita iðnaðarmönnum 7%% kauphækkunina, en ekki 5% kauphækkunina, sem áður varð á þessu ári. Þannig er ætlunin að skerða hlut iðnaðarmanna miðað við aðra, frá því sem verið hefur. Við rök Mbl. fyrir þessari afstöðu er margt að athuga. í fyrsta lagi er það alrangt, að nokkuð hafi verið sam- ið um, að 5% kauphækkunin næði aðeins til hinna tekju- lægstu. Ríkisstjórnin hafði ekki heldur neina forgöngu um þessa 5% kauphækkun, eins og Mbl. vill vera láta. Það voru verkalýðsfélögin nyrðra og atvinnurekendur þar, sem upphaflega sömdu um hana, án nokkurra af- skipta ríkisstjórnarinnar. Önnur félög fylgdu svo á eft- j.r. í þeim félögum, sem hafa fengið þessa hækkun, eins og t. d. Dagsbrún, eru ýmsir sérlærðir verkamenn, sem hafa hærra kaup en velflestir meðlipur iðnaðarfélaganna. Kauphækkun þessi var því ekki neitt bundin við þá lægst- launuðu, eins og sést líka á því, að Kjaradómur hefur nú úrskurðað að allir opinberir starfsmenn skuli fá hana, iafnt þeir, sem eru í hæstu og lægstu iaunaflokkum. Það er og alrangt, að iðnaðarmenn séu yfirleitt tekju- háir, ef miðað er við kauptaxta Það er þvert á móti minni launamunur á iðnaðarmönnum og ófaglærðum mönnum hérlendis en víðast annars staðar. Hitt er það, að sumir iðnaðarmenn hafa sæmilegt kaup með því að vinna mjög mikla aukavinnu. Það byggist sannarlega ekki á neinu réttlæti, þegar nkisstjórnin beitir sér fyrir því, að menntun og kunnátta iðnaðarmanna verði minna tekin ti' greina við launa- greiðslur en verið hefur. Slíkt mun hins vegar draga úr nhuga fyrir því, að menn leiti sér tæknimenn'tunar, en fátt er þó nauðsynlegra, ef lífskjörin eiga að batna. Stétt gegn stétt Erfitt er að hugsa sér meiri hræsni, en þegar Morg- unblaðið heldur því fram, að það sé sprottið af umhyggju fyrir láglaunafólki. að ríkisstjórnin spyrnir gegn 5% kaup hækkuninni til iðnaðarmanna. RíkLstjórnin hefur aldrei sýnt minnsta áhuga fyrir högum láglaunafólks. Þegar samvinnufélögin og verka- lýðsfélög sömdu um 10—12% kauphækkun til handa þessu fólki sumarið 1961, kölluðu ráðherrarnir það svikasamninga. Stjórnarblöðin eru líka með stöð- ugar hótanir í garð samvinnufélaganna, vegna þess að þau hafa haft forystu um að hækka kaup þessa fólks. Umræddur falsáróður Mbl. sýnir vel, hvernig íhaldið reynir að hanga við völd með því að fylkja stétt gegn stétt. J þessu tilfelli reynir það að fylkja verkamönnum gegn iðn aðarmönnum. Þeir einu, sem gætu grætt á slíkum deilum væru stóratvinnurekendur, en til þess eru líka refir Mbl '-.kornir. Á sama hátt hefur það röynt að fylkja launafólki gegn bændum. Kóróna þessa falsáróðurs er sú, að íhald- ið hefur fyrir kjörorð: Stétt með stétt! Þegar Bretar létu a£ stjórn Indlands, skiptist Uandið í tvö ríki, Indland og Piakistan. Skiptiag þessi spratt af því, að Hindúar og Múhameðstrúar- menn gátu ekki unnið saman. Múhameðstrúarmenin stofnuðu því sérstiakt ríki, Pakistan. Sá galli var hins vegar á þessari ríkisstofnun, að Múhameðstrú- armenn voru aðallega vestast og austast í Indlandi og því skiptist Pakistan strax í tvo að- skilda Iandshluta, sem hefur gemgið örðugleiga að vin.na sam an, eins og rakið er í eftirfar- andi grein: PAKISTAN er í tveimur hlutum og þeir eru hvor öðr- um ólíkir að öllu nema trú. Þeir eru aðskildir öðru landi, Indlandi, þúsund mílna breiðu, og sjóleiðin milli þeirra er meira en tvöföld landleiðin. Þess landfræðilega staðreynd mótar stjórnmálin i Pakistan. Pólitísk og efnahagsleg vandamál, sem stafa af skipt- ingu Pakistan, eru enn verri viðfangs fyrir þá sök, að menn- ing íbúa Austur- og Vestur Pakistan er gerólík. Annar þjóðarhlutinn talar urdu og menning hans tilheyrir nálæg um Austurlöndum. Hinn þjóð- arhlutinn talar bengali og menning hans er suðaustur- asísk að uppruna. Efnahags- þróunin eykur á þennan mun. Þegar ríkið Pakistan varð til, voru báðir hlutar þess nokk- ufh veginn jafn skammt á veg kömnir éfnahagslega. í Austur Pakistan bjuggu 55% þjóðar- innar í miklu minna landi. í Vestur-Pakistan voru mun betri vegir og allar samgöngur. Það var því miklu betur undir það búið en ríkishlutinn hinum megin á Indlandsskaga, að njóta kosta fjárfestingar. í þessu var fólginn upprunj mismunarins. MEGINHLUTI þess fjár- magns, sem útfluttir eða land- flótta Múhameðstrúarmenn fluttu með sér frá Indlandi, rann til Vestur-Pakistan. Þar fundu innflytjendurnir hentug- ar aðstæður og upp úr 1950 fóru þeir að leggja hinn mikla verzlunarhagnað sinn í iðnað i landinu. Þegar fyrsta fimm ára áætlunin var gerð 1955, sáu þeir, sem áætlunina gerðu, fram á miklum mun skjótari og meiri árangur af fjárfest- ingu í vesturhluta ríkisins en austurhlutanum. Þeir lögðu því megináheralu á eflingu fjár- festingar þar. Stjórnarvöldin juku þannig með ákvörðun á þann mismun landshlutanna, sem upphaflega hafði orðið til vegna afskiptaleysis. Með því varð til táknrænt dæmi um áhrif lögmálsins, sem Gunnar Myrdal hefur nefnt áhlaðanda frumorsakar. Aukin fjárfesting í Vestur- Pakistan dró dilk á eftir sér. Um 80% af efnahagsaðstoð erlendis frá voru notuð i vest- urhluta landsins og eins fór uin meginhluta þess gjaldeyris. sem fékkst fyrir bastið, sem flutt var út frá austurhluta landsins. Bilið breikkaði milli efnahagsþróunarinnar í lands- hlutunum og það olli enn áherzlu á aukna fjárfestingu í vesturhlutanum. Muhamed Ayub Khan, forseti Pakistan FLEST þróunarlönd eiga við þetta vandamál að etja, en skipting Pakistan magnar það þar í landi. Engir möguleikar eru á að austurhluti landsins njóti að marki góðs af fjárfest- ingunni í vesturhlutanum Vegna fjarlægðar, annars tungumáls og menningar flyzt vinnuafl ekki'frá austurhlutan- um til þess að taka þátt í iðn- væðingu vesturhlutans og soga þannig til austurhlutans nokk- uð af ábatanum. Af þessu öllu lei'ðir, að Austur-Pakistan dregst lengra og lengra - aftur úr vesturhlut- anum, bæði að þróun og lífs- kjörum. Árið 1960 voru tekjur á íbúa um 23 sterlingspund í vesturhlutanum, en ekki nerna 16 sterlingspund í austurhlut- anum. Bilið hefur breikkað síðan. STJÖRN landsins er ljós þessi hneigð og hættan, sem af henni getur stafað, og er farin að reyna að vinna gegn henni. En munurinh er þegar orðinn of mikill. Knýjandi nauðsyn er að halda við hrað- anum í þróuninni í vesturhluta landsins og hin gífurlega fúlga sem varið er til skurðakerfis Indus-fljótsins, eykur enn á hann. Vanþróunin í austurhlutan- um veldur aftur því, að tak- mörk eru fyrir, hverju hann getur tekið á móti af fjárfest- ingu. Langvarandi staðvindar stytta til muna þann tíma árs- ins, sem hentugur er til verk- legra framkvæmda. Ríkisstjórn in hefur aukið til muna skerf austurhluta landsins til fjár- festingar samkvæmt annarri fimm ára áætluninni, en þang- að rennur þó enn minna en helmingur, jafnvel þó að frá h'eildinni séu dregnar þær 250 milljónir sterlingspunda, sem varið er í skurðakerfi Indus 1965 verður bilið milli lands- hlutanna orðið enn meira áber andi en það er nú og mun aukast með auknum hraða Ekki yrði unnt að bæta úr þessu með öðru móti en því, að fresta aðgerðum í vesturhluta landsins og beina allri orku að austurhlutanum. En auðvelt er að hugsa sér, hvaða við- brögðum slík uppástunga ylli i vesturhluta landsins. MISMUNURINN er þegar jrðinn að slagorði í Austur- Pakistan og fjarlæging hans að hugsjón. Tölulegar upplýs- ingar um efnahagsþróunina eru undirstaðan, en ýmis veiga mikil atriði hafa orðið til þess að munurinn veldur meiri gremju en ella myndi. Vegna minni menntunar einstaklinga í austurhlutanum eru flestar hinar hærri stjórnarstöður þar skipaðar mönnum frá Vestur- Pakistan. Augu þeirra íbúa austurhlutans, sem hug hafa á þessum störfum, kunna í upp- hafi að hafa verið opin fyrir nauðsyninni, sem olli þessu, en í seinni tíð er á þetta litið sem forréttindi Vestur-Pakistana. Stjórnmálamaður frá Austur Pakistan sagði fyrir skömmu: „Það er búið að gera okkur að nýlendu og við getum ekki þol- að það öllu lengur“ Hann benti á, hvernig útflutningsat- vinnuvegir Austur-Pakistan hefðu verið „mjólkaðir", eins og hann orðaði það, tú ágóða fyrir Vestur-Pakistan. Hann hélt því fram, að efling austur- hluta landsins hefði verið skor- in við nögl af þeirri tylli- ástæðu, að hæfni skorti til að veita henni viðtöku. Hin raun- verulega ástæða væri ósk um að halda aftur af austurhluta landsins, meðan vesturhlutinn öðlaðist aukið forskot. En bitr astur varð hann í orðum, þegar hann kom að því, hve hann taldi Vestur-Pakistana líta nið ur á Austur-Pakistana, tungu þeirra og menningu. , Þessi stjórnmálamaður lét opinskátt í ljós afstöðu, sem vart verður í auknum mæli meðal stjórnmálamanna og menntaðra manna í Austur- Pakistan. Sá, sem fyrir spyrst, rekst hvað efúr annað á ákveðna röksemdaleiðslu: „Hverjar voru frumkröfur Sambands Múhameðstrúar- manna í Indlandi, þegar að því kom, að ríkið yrði sjálfstætt? Jafnræði til stöðuvals. atvinnu og stjórnmálaáhrifa. Það var blindni og eigingirni Hindúa, sem þýddi þetta sem kröfu um aðskilnað. Nú gera Vestur- Pakistanir sig seka um sömu skyssurnar gagnvart okkur“. ÁSTANDIÐ er uggvænlegt og það liggur ekki í láginni Verði ekkert gert til þess að draga úr mismuninum og þeirri andúð, sem hann veldur. hlýtur að því að líða, að Austur Pakistanar taki að berjast fyr ir aðskilnaði. Erfitt er að segja. hve langt undan það kann að vera, þar sem aðrir hafa ekk) enn rennt huganum að þessu en stjórnmálamenn, embættis menn og ef til vill stúdentar Saga skiptingar landsins sýn ir ljóslega, hve auðvelt er að tileinka fjöldanum kröfur, sem miðstéttirnar standa á bak við ef skelegglega er að unnið póli tískt. Sumir stjórnmálamenn irnir eru reiðubúnir að hefja baráttu undir einkunnarorðun um: „Austur-Pakistan fyrir Austur-Bengali“. undir eins og þeir telja rétta stund upp runna. Þetta gæti orðið eftir einn eða tvo áratugi, en það kann að verða miklu fyrr í austur Framhaid á 6 síðu T f M I N N. briðiudaeurinn 9. iúlí 1963. — z

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.