Tíminn - 22.08.1963, Blaðsíða 9
LögreglubíH { Chlcago á fullri ferö.
Hðl lögregl'unnar döklcur á hðr-
nnd.
Officer White sagði: „Svartur
lögreglumaður er eins vel virt-
ur og hans hvíti starfsbróðir”.
Næst fórum við yfir í glæpa-
rannsóknadeildina og einn af yf-
hmönnunum þar tók á móti mér
og sýndi mér þeirra verik, eins
og ég sagði frá hér í byrjun. Á
veggjum voru kort af borginni;
sum sýndu hvar flestir bflaþjófn
aðirnir voru framdir, önnur
sýndu innbrot; þjófnaði; nauðg-
anir; morð 02 svona mœtti lengi
telja. Eftir að hann hafði útskýrt
fyrir mér, hvernig lögreglan fer
að finna út formúlu þá, er gl'æpa-
eða afbrotamaðurinn notar við
sína vinnu, sýndi hann mér kort-
ið, er sýndi stolna bfla. Á sumum
stöðum var varla hægt að sjá í
það fyrir mislitum pinnum; hver
pinnaliíur táknar sérhverja bfla
tegund.
— Við notum sömu aðferð við
bflaþjófa og aðra afbrotamenn;
fyrst reynum við að finna út, ef
hér sé sá sami eða þeir sömu,
ef þeir vinna í hóp, sem hefur
stolið bílum í einhverju vissu
hverfi. /
Hann sýndi mér á nokkrum
stöðum á kortinu, hvar lögregl-
an hafði séð, að sami maðurinn
var að verki og beið aðeins eft-
ir að hann reyndi einu sinni enn.
Á hverjum mánuði er um 3000
bíl'um stolið í Chicago, af þeim
finnast 93% innan sama mánað-
ar; eitt prósent finnst al'drei aft-
ur; þeir eru annaðhvort bútað-
ir niður í varahluti eða smyglað
til Suður-Ameríku, þar sem hægt
er að fá gott verð fyrir þá. Af
öllum bílum er auðveldast að
stela Chevrolet, enda er 48% af
öllum stolnum bílum af þeirri
tegund; næst kemur Ford með
18%.
— í gærkvöldi lögðum við
gildru fyrir bílaþjóf; við fengum
lánaðan trukk frá ávaxtasölu og
settum í hann tvo leynilögreglu-
menn með senditæki og þeir
unnu við að aka út ávöxtum,
eins og aðrir starfsmenn fyrir-
tæddsins. Síðan " settum við
nokkra lögreglubila í nánd við
þá ,en ekki samt svo, að á þeim
bæri. Þessi bflaþjófur, sem hér
er um að ræða, hafði stolið all-
mörgum trukkum og rænt öllu
úr þeim. Við gerðum varla ráð
fyrir að ná honum á fyrsta
kvöldi, en ávaxtabfllinn með okk
ar mönnum í var ekki búinn að
vera lengi úti, er maður stanz-
aði hann og ætlaði að reka okk-
ar menn út með byssu, en vissi
ekki sitt rjúkandi ráð fyrr en
hann var kominn í handjárn og
situr nú á bak við lás og slá.
Næst skoðaði ég byssusafn lög
reglunnar og þar má sjá byssur
af öllum stærðum, aldri og gerð
um. Þarna sá ég nokkur fræg
morðvopn, eins og t. d. vélbyssur
frá A1 Capon tímabilinu. Officer'
White sagði mér, að stundum
tæki Chicagolögreglan um ÍOO
byssur á dag af fólki, sem hand-
tekið liefði verið fyrir einhvers
konar afbrot. Flestar af þessum
byssum eru eyðilagðar með því
að bræða þær upp,
— Við í lögreglunni verðum
að ganga með okkar skammbyss-
ur alla daga hvort sem við er-
um á vakt eða ekki, allan ársins
hring. Þó að maður fari í jóla-
boð með fjölskylduna, eða í bíó
með frúnni, verð ég alltaf að
hafa byssuna, smá leðurkylfu
og handjárn á beltinu. Þetta er
óþægilegt tfl að byrja með, en
venst fljótt. Við megum velja
okkar byssu og eins verðum við
að kaupa hana sjálfir og flestir
af okkur kaupum okkar sikot líka;
þetta er gert tii þess að við för-
um a. m. k. betur með vopnið
og eins til bess, að við séum ekki
að nota það í neina vitleysu.
Ég spurði officer White, af
hverju þeir yrðu að hafa byss-
una alltaf á sér.
— Það er gert til þess, að við
getum handtekið mann, ef með
þarf, þótt við séum ekki á vakt.
Það kemur oft fyrir, að lögreglu
maður, sem er ekki á vakt sér
kannski glæpamann, sem er eftir
lýstur, og þá getur lögreglumað-
urinn tekið hann á staðnum. Eins
er þetta til að verja okkur t. d.
ef afbrotamanni, sem er nýkom-
inn úr fangelsi, finnst að hann
þurfi að borga lögreglumannin-
um fyrir að taka sig og stinga
sér inn með því að reyna að sjá
fyrir honum. Þá verðum við að
geta varið okikur; svona nokk-
uð kemur afar oft fyrir.
Einna fróðlegast fannst mér að
sjá rannsóknarstofurnar, þar sem
lögreglan notar sérfræðinga og
vfsindamenn til að leysa ýmis
glæpamál, með því að nota tækni
og vísindi nútímans. Einn sér-
fræðingur var að rannsaka blóð-
bletti í skyrtu einhvers fórnar-
lambs, Ung kona, rithandarsér-
fræðingur, var að s-koða falsaðar
ávísanir; 50% af fölsuðum ávísun
um er hægt að rekja tfl falsar
ans og ná honum. Á enn öðrum
stað var sérfræðingur að reyna
að finna vott af eiturlyfjum í
saum á ferðatösku, sem hafði
verið notuð til að flytja eitur í
frá ,,birgðarmanninum” til „sölu
mannsins” Þá hitti ég lásasér-
fræðing, sem var að athuga pen
ingaskáp, sem hafði verið brot.
inn upp. Þarna sá ég alls konar
verkfæri, sem notuð höfðu ver
ið við innbrot; allt frá risastórum
skerara, sem lfktist mest stórum
dósahníf og hafði verið notaður
til að „skera upp” járnhurð, eins
og maður gerir við sardfnudósir;
eins yar.þarna loftkældur dem-
antsbojr, sem kostað hafði hundr-
uð -doflaFa. að búa til; hann var
skilinn eftir á staðnum, enda
gerði það lítið til, þar sem þjóf
urinn stal þúsundum dollara og
komst í burtu.
Þá sá ég eiturlyfjadeildina, þar
voru nokkrir leynilögreglumenn
önnum kafnir. Inni hjá þeim sátu
tvelr skuggalegir náungar og
annar eflaust að „þynnast upp”
af eitri, því að hegðun hans var
allfurðuleg. Officer White hélt
að þetta væri eiturlyfjaneytandi,
sem væri að hjálpa lögreglunni
upp á sama.
Þegar hér var komið sögu, var,
tími til kominn að hitta leyni-
lögreglumanninn frá unglinga-
deildinni, sem ég átti að vera með
um nóttina, og sem ég skrifa
um í seinni hlutanum af þess-
ari grein.
Dagurinn var orðinn alllangur
og allt það, sem ég hafði séð.
heyrt og fundið út, var löngu
búið að fylla upp vasabók mína.
Ég gekk út úr aðalstöðvunum.
kvaddi vin minn White, sem
hafði haft svo mikið fyrir mér
og gekk út á bflastæðið, þar sem
ég átti að finna Henry, Ulrich.
leynilögreglumann.
Chicago í júní 1963.
jhm.
Næturleiðangur með lög-
reglunni birtist á morgun
ÞÉR EIGIÐ ALLTAF LEIÐ FRAM HJÁ ÞÖLL
ÞÖLL ER ÞÆGILEGUR VIDKOMUSTAÐUR 1
HJARTA MIÐBÆJARINS
TÓBAK — ÖL — SÆLGÆTI — ÁVEXTIR — ÍS
HEITAR PYLSUR ALL AN DAGINN
OPIÐ KLUKKAN 8—JS.
GJÖRIÐ SVO VEL OG LÍTIÐ INN
„ÞÖLL” Veltusundi3, (ViðHótel
I ísland, Bifreiðastæðið)
HARÐVIÐDR -
PLÖTUR
FYRIRLIGGJANDI: Eik — teak — brenni —
birki — abachi — gaboonplótur — spónaplötur
brennikrossviður — furukrossviður — profilkross-
viður — Gipsonitplötur.
Væntanlegt í vikunni:
Yang-teak og plastplötur
PÁLL ÞORGEIRSSON
Laugavegi 22 — Sími 16412
LAUS STAÐA
Staða framkvæmdastjóra Féiagsheimilis Kópavogs
og Kópavogsbíós er auglýst íaus til umsóknar frá
1. okt. n.k.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri
störf og launakröfur sendlst skrifstofu bæjar-
stjórans í Kópavogskaupstað fyrir 5. sept. n.k.
Auglýsing
frá Síldarverksmiðjum ríkisins um verð á
síldarmjöli
Verð á síldarmjöli á innlenclum markaði hefur ve’
ið ákveðið kr. 500 00 pr. 100 kíló fob. verksmiðju-
höfn miðað við að mjölið se greitt fyrir 1. nóv
n.k. Eftir þann tíma bætasí við vextir og bruna-
tryggingargjald.
TÍMINN, fimmtudaginn 22. ágúst 1963 —
9