Tíminn - 01.09.1963, Síða 3
Soraya, fyrrverandi Iraks-
keisaraynja, hefði einhvern
tíma getað' búizt við betri mót-
tökum i Tyrklandi, en hún fékk
núna fyrir skömmu. Þá var hún
keisaraynja, en nú er hún verð-
andi kvikmyndastjarna, sem
handtekin var og færfi á lög-
reglustöðina, vegna átaka, sem
hún lenti í við ljósmyndara. —
Soraya hafði komig til Istanbul
til að heimsækja kvikmynda-
leikarann Maximilian Schell, en
hann er þar að leika í kvik-
mynd. Þau lentu svo í átökum
við Ijósmyndarann, Ozkan
Shahm, sem sagði lögreglunni,
að hann hefði reynt að ná mynd
af þeím, þar sem þau voru að
kyssast. Eftir ag stillt hafði
verið til friðar var Schell spurð
ur ag því, hvort þetta hefði
verið auglýsingabrella, en hann
hristi höfuðið og sagðist þá ekki
mundu vera með svona rosa-
legt glóðarauga. Á myndinni
er Soraya í fylgd með lögreglu
þjóni á leið í fangelsið.
☆
Gene Tierney nýtur nú mik-
illar undrunar og aðdáunar í
Hollywood, þar sem hún hefur
hafið kvikmyndaleik á ný eftir
tíu ára hlé. Hún var ein stærsta
stjaman þar í kringum 1940,
en eftir fjölda af áföllum í
einkalífinu fékk hún taugaáfall
og dvaldist í mörg ár á tauga-
hæli, með stuttum millibilum.
Einíhvern tíma vann hún t. d.
sem afgreiðslustúlka í Kansas.
Þetta varð frægt úti um öll
Bandaríkin og fólk flykktist að
til að virða hana fyrir sér, og
þá þurfti aftur að flytja hana á
heimilið. En þegar hún náði
sér, giftist hún olíumilljóna-
mæringnum Howard Lee og
fékk hlutverk í kvikmynd Ott-
os Preminger, „Toys in the
Attic“. Þetta er frekar smátt
hlutverk, en hl'utverk Gene er
engu að síður stórt, þar eð hún
þarf að vinna sér samúð og vin
áttu þjóðarinnar eftir að hafa
verið dæmd ósiðsöm, sjálfselsk
og kaldlynd. Á myndinni eru
frá vinstri Dean Martin, Yvette
Mimieux og Gene Tierney,
sem ieikur ríka ekkju.
í SPEGLITIMANS
Þegar Profumo hneykslið
náði hámarki notuðu þau sér
tækifærið, leikararnir Anthony
Newley, Peter Sellers og Joan
Collins, sem er nýbökuð eigin-
kona Newleys, og gerðu 33-
snúninga háðplötu, sem þau
nefndu „Fool Britannia“. En
forstjórar hljómplötufyrirtækja
hrista hneykslaðir höfuðig og
neituðu ag gefa plötuna út. —
Newiey tók þá það til bragðs,
að klippa út hneykslanlegustu
setningarnar og gefa plötuna
út sjáltur. Lagið „I love you
Chrisline" fékk þó að vera
kyrrt og er það sungig við
laglínuna úr „What kind of
Foll am I“. Textinn við þetta
lag er á ensku: „I love you
Christine ever since you were
sixteen; I’ve been thinking of
you daily since I seen you down
Old Baiiey, I will send you
flowers and candy, ’cause I love
you more ’n Mandy.
☆
Bandariskir visindamenn
segjast nú vera að fullkomna
tveggja manna kafbát, sem
hægt verð'ur að nota undir yfir-
borði sjávarins, eins og flugvél
í loftinu. Mun þetta faratæki
verða mjög gagnlegt við neð-
ansjávarrannsóknir.
☆
Rithöfundurinn og fornleifa-
fræðingurinn, Hjalmar Rued
Holand, lézt nýlega í Bandaríkj
unum, níræður að aldri. Hann
eyddi allri starfsævi sinni i
það, að rannsaka þau ógreini-
legu atriði, sem benda til þess,
að víkœgar hafi komig til N,-
Ameríku, áður en Columbus
kom þangað. Roland var óþekkt
ur, þegar hann árið 1908 heyrði
um bónda í Kensington í Minn-
easota, sem fundið hafði stein
með nokkug undarlegri áskrift.
Holana réði rúnir, sem á stein
inn voru ristar, og innihald
þeirra benti til þess, að viking
ar hefð'u komið til Norður-
Ameríku árig 1362. Allt líf Ho-
lands fói síðan í það, að rengja
gagnrýnendur, sem héldu þvi
fram, ag rúnirnar væru falsað-
ar. Þetta er þýðing Holands á
rúnunum: Átta Gotar og 22
Norðmenn eru í landkönnunar-
ferð frá Grænlandi um Vest-
urhöf. Við háð'um stríg við
(vatn), sem er tveimur eyjum
frá pessum steini og eins dags
ferð. Víð veiddum fisk einn dag
inn, og þegar við komum heim
lágu tiu af mönnum okkar dán-
ir í blóo' sínu AVM (heilaga
María) b.jargaðu okkur frá hin-
um vonda. Tíu af mönnum okk
ar eru við ströndina og gæta
skipa okkar, en það er 14 daga
ferð héðan. Árið' 1362.
☆
Það var látig heldur afskipta
laust, þó að sjimpansa-apinn,
Sheba /æri sinna eigin ferða í
dýragarðinum á Rhode Island,
þangað til að það sást til henn-
ar, þar sem hún var ag snúa
lyklinam í inngöngudyrunum
að ljónabúrinu. Síðan þá hef-
ur hennar verig vandlega gætt.
☆
GaDor-mæðgurnar, sem allar
eru frægar, hver á sinn hátt,
hittust nýlega allar í New York.
þar sem móðirin var að opna
snyrtístofu Það þarf ekki að
taka þag fram, að hún þurfti
ekki á mikilli auglýsingu að
halda til að koma fyrirtækinu
af stað. Hér er mynd af þessum
fríða hópi og talig frá vinstri
eru þær: Eva, Magda, Jolie,
það ei mamman og Zsa Zsa.
Anna Bretaprinsessa, er eins
og við höfum áður minnzt á,
að breytast í þroskað'a stúlku.
Hún er farin að setja upp á
sér hárið, vasapeningar hennar
hafa verið hækkaðir um helm-
ing, hún er hætt ag starfa í
skátahreyfingunni og áreiðan-
legasta einkennig er það, að
hún er farin að' hafa auga fyr-
ir karlmönnum, eða svo segja
enskir blaðamenn.
☆
Fyrrverandi eiginmenn og
nánir vinir Brigitte Bardot
hafa myndað með sér glæsi-
legan ldúbb, og er hinn 35 ára
gamli Roger Vadim formaður
hans. Umræðuefni á hinum
mánaðarlegu fundum klúbbsins
er Brigitte Bardot, og skyldi
engan furða.
☆
Ungliugar í Bandaríkjunum
eru svo háðir símanum, að
prófessor nokkur í Michigan-
fylki hefur komizt að þeirri nið-
urstöðu, að auðveldara sé að
ná sambandi vig þá, þá leið.
Nú kennir hann bekk sínum í
gegnum símann heima hjá sér,
en nemendurnir sitja í skóla-
stofunni og heyra í honum í
hátalara. Þeir geta gripið fram
i og spurt spuminga í gegnum
síma, sem er í skólastofunni.
☆
Þetta er þag nýjasta á sviði
fegrunaiiyfja í Bandaríkjun-
um. Þessi gríma er gerð af hár-
greiðslumanni Jaqueline Kenne
dy, Kenneth Battelle. Tilgang-
ur hennar e: að skýla andlitinu
fyrir roki og kulda á veturna,
en ekki sá, að gera sig ókenni-
legan, eins og maður gæti hald
ið, eða nota á grímuballi. Við
erum nú samt ekki viss um að
þessi tízka eigi eftir að verða
mjög vinsæl.
Bertina Acevedo er kúbönsk
kvikmyndastjarna, sem nú dvel
ur í Moskva. Segja margir, að
hún sé þar í áróðursskyni fyr-
ir Castro. Bertina er áberandi
lagleg og vel klædd og konurn-
ar á götunum í Moskvu horfa á
hana nðdáunar- og öfundaraug-
um. Margar þeirra stöðva hana
einnig ti! að fá eiginhandarárit
un. Bertina stillti sér upp á
Rauða torginu fyrir ljósmynd-
arann, og árangurinn varð sá,
að einu sinni fáum vig að sjá
mynd af kvenmanni frá Moskvu
en ekk' eldflaugum, fallbyssum
eða ílokksforingjum. Bertina
segist ekki vera kommúnisti
heldur listamaður, hvernig svo
sem Rússarnir taka í það.
☆
Hinu vinsæli danski leikur
„Teenagerlove”, er að ná mikl-
um vinsældum fyrir utan Dan-
mörku. Hér verður hann sýnd-
ur í Þjótleikhúsinu á komandi
vetri og eftir mánuð verður
hann írumsýndur í Stokkhólmi.
Hcfundar leiksins eru Ernst
Bruun Olsen og Savery, og þeir
munu sviðsetja verkið í Stokk-
hólmi. Mjög góðir leikarar hafa
verið valdir í flest hlutverk.
Hér er mynd af nokkrum þeirra
tekin a æfingu, en þeir eru
Gösta Krantz, Jarl Kulle, Lars
Ekberg, Margit Carlqvist og
Gertrud Fridh.
T f M I N N, sunnudagur 1. september 1963,
3