Tíminn - 04.09.1963, Page 2
Nú eru sex ár síðan norski rithöfundurinn Agnar
Mykle hneyksíaöi allan heiminn með bók sinni Rauði
rúbíninn. Nú er hann einhver dularfyllsti maðurinn
í Noregi. Hann neitar að hitta nokkurn mann og
dvelst í þorpinu Hallingdal, þar sem hann vinnur
að bók, sem verður betri
hann sjálfur.
Árið 1957 var nafn hans á
allra vörum, en þá kom bók hans,
Rauði rúbíninn út á vegum
Gyldendals-forlagsins í Osló. —
Hneykslið, sem varð út af bók-
inni gerði hana að metsölubók og
Mykle varg stórrikur maður. í
kjölfar vinsældanna sigldu rétt-
arhöld og þeim lauk með því,
að bókin var bönnug í Noregi.
Afleiðing bannsins varð svo sú,
að Norðmennimir fóru yfir til
Svíþjóðar og komu heim með
Rauða rúbíninn.
Næsta bók Mykles hét svo
„Lasso om fru Luna“, hún var
jafndjöif og sú fyrri, en náði
ekki eins miklum vinsældum. Síð
an þá hefur verig hljótt um rit-
en Biblsan, eða svo segir
höfundinu. Hann hefur neitað
að láta hafa nokkur viðtöl við
sig og hefur verið algjörlega ein-
angraður í íbúð sinni. Fyrir
nokkrum árum skildi hann við
konu s'ua, Jane, sem studdi hann
nvað mest meðan á réttarhöld-
unum stóð. Sagt er að önnur
kona sé kcmin í spilið og sé hún
hjúkrunarkona.
Þess liefur verið vænzt, að
fleiri bækur kæmu frá honum,
en allt hefur verið með kyrrum
kjörum. ífvað eftir annað hefur
hann loíað nýjum bókum, en allt
komig fyrir ekki. Samt er hann
búinn að brenna einum fjórum.
En nú lítur út fyrir, að ný bók
sé loksins á leiðinni. Hinn 26.
maí 1961 auglýsti hann í enska
blaðinu „Daily Express" eftir
útgefanda. sem vildi koma bók-
inni út. í auglýsingunni, sem einn
ig var sett í norsk blöð, lofaði
Mykle útgefandanum þvi að hann
mundi verða einn ríkasti maður
í heimi, ef hann tæki að sér verk
ið. Hann segist einnig geta lofað
því, ag bókin verði betri en
Biblían.
Enginn hefur samt enn þá hug
mynd ura það, hvers konar bók
þetta er og Mykle er þögull sem
gröfin.
LEÐURJA KKAPLÁGAN
Sænskir Leðurjakkar eru hinn mesfi vandræðalýóur og slá jafnvel jafn-
ingjum sínum annars staöar á Noróurlöndum viö í ólifnaöi og glæpastarf-
semi. Unglingarnir hér, sem hva® mestan óskunda gerðu í Þjórsárdalnum,
mundu ekki komast í hálfkvisti við þá, ef út í þaö færi.
Nýlega gerðu „Leðurjakk-
arnir" innrás í Danmörku, en
voru stöðvaðir af lögregl-
unni. Ólætin byrjuðu síðast-
liðna föstudagsnótt, þegar 25
„leðurjakkar," bæði strákar
og steipur keyrðu á fimm
bílum með ofsahraða í gegn-
um Kaupmannahöfn. Aðrir
bílar neyddust til að keyra út
fyrir vegatkantinn og fót-
gangandi fólk varð að halda
sig á gangstéttunum. Á end-
anum stöðvaðist öll umferð
á Strandgötu, og lögreglubíl-
ar og einkabílar hófu mikla
eftirför.
. Loks,tó,kst að sjtöðya lýðinn á
Kongcns Nytorv. þar sem lög-
reglan hafðllagt stórum bíl þvert
á akbrautina. Enginn af ungíing-
unum var undir áhrifum áfeng-
is, svo að þeir fengu leyfi til að
aka áfram. Samk-,æmt lögum
var ekki hægt að stöðva þá, að
dómstólarnir krefjast ákveðnari
sannana í slíkum málum. En
svo auðveldlega sluppu sænsku
unglingarnir ekki í Hróarskeldu.
Þrír teknir úr umferð
„Leðurjakkarnir“ höfðu tjald-
að á tjuldstað í Hróarskeldu, og
þar höfðu þeir truflað aðra tjald
gesti alia nóttina. Morguninn eft-
ir gat yfirmaður tjaldstæðisins
ekki lengur haft hemil á þeim
og kallað var á lögregluna. Ekki
var saint hægt að' stilla til friðar
fyrr en 10 umferðarlögregluþjón
ar á mótorhjólum höfðu gert sitt
ýtrasta.
Að þvi loknu voru farartæki
unglinganna rannsökuð og í ljós
kom, að þrír af bílunum voru í
svo slæmu standi, að það varð að
taka þá úr umferð. Bæði brems-
ur, stýrisútbúnaður og rafmagns-
leiðslur voru í ólagi, og þar að
auki voru dekkin gatslitin.
Bílana tengu þeir ekki aftur,
fyrr en þeir höfðu verið lagaðir
og reikningar munu verða send-
ir frá bílaviðgerðarmanninum og
björgunarsveitinni. Eftir þetta
snáfuðu „Léðurjakkarnir" heim,
öllum tii mikillar ánægju.
Framhald á 13 síðu
hneykslar
Itala
Nýlega gekk mikið á í Amer-
fku, vegna þess, að vikublað þar
hafði birt nektarmyndir af Jayne
Mansfield. Nú hefur það sama
komið fyrir í Ítalíu, þar sem vlku
blaðið „Espresso" birti langa
myndaseríu af kvikmyndaleik-
konunni Kim Novak. Serían er
úr kvlkmyndinni „Of Human
Bondage," sem gerð er eftir skáld
sögu Somersets Maughams. —
ítalska lögreglan gerði blaðið
upptæut og má ætla að barizt
verði um þau fáu eintök, sem til
eru. ítölsku yfirvöldin gáfu út
tHkynningu þess efnis, að það
væri gegn ítölskum siðgæðisregl-
um, ag birta nektarmyndir.
ur oorum löndum
„Stríó Nato viS
Olíufélagið“
í forustugrein, sem nýléga
birtist í Frjálsri þjóð og bar
fyrirsögnina: „Stríð Nató við
Olíufélaigið11, er vikið að því,
að stjórnarblöðin hafi í fyrstu
ætlað að gera sem minnst úr
hinum fyrirhuguðu herfram-
kvæmdum í Hvalfirði, en for-
kólfum stjórnarflokkaiuia orð-
lð ljóst, að það eitt myndi ekki
duga. Um þetta segir síðan:
„Dómsmá'laráðherra ríkis-
stjórnarinnar hefur að sönnu
hloti® það mikið í andlegan
arf frá heiðursmanninum föð-
ur sínum að hann skynjiar það
einhvern veginn lauslega, að
ekkl sé nú allt með felldu.
Bregður hann þá á það ráð, að
nota málflutnlng Magnúsar
Kjiartanssonar, ritstjóra komm-
únista, og reynir að rökstyðja
Hvalfjarffarsamning með því,
að Olíufélagið h.f., sem han,n
telur Framsóknarflokkinn
stjórnia, baignist á olíustöðinni
í Hvalfirði og því hafi verið
nauðsynlegt að byggja nýja
stöð, sem einhverjir aðrir gætu
haignazt á. Samkvæmt þessari
kenningu kommúnista og dóms
málaráðherra á Nato sem saigt
að vera komið í stríð við Olíu-
félagið h.f. og Framsókn út af
geymale'igu á olíustöð í Hval-
firði. Og ef dæma má af frétt-
um, hefur þetta mlkla stríðs-
félag „frjálsna þjóða“ ekki
verðugra verkefni með hönd-
um um þessar mundir, en þetta
geymaleiigustrí® við Olíufélag
Framsóknar á íslandi, því ann-
að heyrist ekki frá Nató nú.
Og þettia stríð sækir Nató svo
fast, að rikisstjórnin varð að"
gera samning um málið, að því
er hún sjálf segir.“
Mútubrigzlin
Mongunbliaði® endurprentar
nýlega þau fyrri ummæli
sín, „að Vinstri stjómin hafi
aamið um dvöl varnarliðsins á
íslandi um ótiltekinn tíma og
hafi meira að segja látið borga
sér álitlega fúligu í dollurum
!! fyrir vikið.“
Mbl. bætir því svo við, að
Þjóðviljinn sé aðalheimild sín
fyrir þessum söguburði.
Þjóðin mun hins vegar ekki
látia sér nægja, að Mbl. skýli
sér á bak við Þjóðviljann og
það enn síður, þar sem sjálfur
formaður Sjálfstæðisflokksms
hampar þessum söguburðl
manna mest. Ef Bjarni trúir
eitthvað á þennan söguburð á
hann að kæra viðkomandi rík-
isstjórn fyrir landsdómi og þó
fyrst og fremst utanríkisráð-
herra hennar. Guðmund í. Guð
mundsson. Geri han.n þetta
ekkl, játar hann annaðhvort,
að hann fari hér með tilhæfu-
laus ósann’indi eðia sé svo ger-
spilltur, að hann getur setið í
stjórn með mútusamninga.
mannlj ef hann á þess ekki
I kost með öðrum hætti.
Meðan Mbl. og Bj>arni halda
bessum söguburði áfram, mun
þjóðin spyrja: Hví stefnir
Bjarn'i Guðmundi í. ekki fyrJr
landsdóm? Hvérs konar stð%
ferði er það að saka mann um
mútusamningia, en styðja hann
samt sem utanríkisráðherra?
Eða er siðferði þessara slef-
bera slíkt, að þeir saka and-
stæðingia sína um mútusamn-
to'ga, vitandi vits, að þeir eru
að fara með hreina lygi?
2
TÍMINN, miðvikudagirtn 4. september 1963