Tíminn - 04.09.1963, Side 13

Tíminn - 04.09.1963, Side 13
Minning Framhald af 8. síðn. af mesta myndarskap. Magnús og Jóhanna hafa samt dvalið sem áður í skjóli sonar síns og raunar hefur Jóhanna verið forsjá heimilisins inn anbæjar. Eins og fyrr er getið hafði Magnús með höndum ýmis opinber störf um langt skeið ævinnar og vann sér vinsældir og álit fyrir og var auk þess nýtur og góður bóndi og hvers manns hugljúfi. Það sem hér hefur verið nefnt, myndi þó eigi nægja til þess að halda nafni hans á lofti um langan aldur, held- ur verða það ritstörf hans og fræði mennska, sem varpa mun skærustu ljósi á minningu hans. Þegar á æsku árum sínum fór hann að leggja stund á ættfræði og sagnfræði og komst þar með tímanum ótrúlega langt. Ritaði hann margt um það efni og birtust frásöguþættir eftir hann í ritum þeim er Sögufélag Hún vetninga gaf út. Oftast munu það hafa verið að flestra dómi veiga- mestu þættirnir í þessum ritum, þótt aðrir hefðu þar einnig margt gott að segja. Efnið í frásagnir sinar sótti Magnús víða að. Sat oft þegar hann gat, í Þjóðskjalasafninu í Reykjavík og tók afrit af merkum skjölum og heimildarritum, og var sérstaklega vandur að heimildum í frásögum sínum. Hann hafði sér- staða frásagnargáfu og frábært minni og skrifaði kjarngott og al'- þýðlegt íslenzkt mál, enda ótrúlega vel að sér í íslenzkri tungu. Tvær sjálfstæðar bækur komu út eftir hann: „Mannaferðir og fornar slóð- ir“ og „Hrakhólar og höfuðból". — Eru þær prýðilega ritaðar, fræðandi og skemmtilegar aflestrar og hlaut hann verðskuldað lof fyrir þær, bæði hjá lærðum og leikum. Allt sem Magnús lét frá sér fara á prent bar vott um sérstaka vandvirkni, því hann vildi hafa eitt, er hann vissi sannast og réttast. Handrit þau er hann lét eftir sig, eru bæði mikil að vöxtum og gæðum. Þannig voru t.d .dagbækur hans einar milli 10 o'g 20 bindi. Vafalaust verða öll hans handrit sett á Þjóðskjalasafn- ið. Hin síðari ár naut Magnús ofur- lítils styrks úr ríkissjóði fyrir fræða og ritstörf sín. Mun honum hafa þótt vænt um þá viðurkenningu þó eigi væri um mikla fjárupphæð að ræða. Þegar þess er gætt að Magnús mátti vinna hörðum höndum alla ævi, er undravert hvað hann varð a£kastamik|ll við ritstöafin. Sýnir það bezt elju hans og atorku, að hann notaði hverja tómstund til þess að sinna hugðarefnum sinum. — Magnús naut góðrar heilsu mestan hluta ævi sinnar. Hin síðari ár bag- aði sjóndepra hann nokkuð við rit- störfin. Leitaði hann sér lækninga við henni og fékk nokkra bót á, en þreyttist þó fljótt í augunum ef hann sat lengi við skriftir. Fyrir tæpum 10 árum hafði ég fyrst kynni af Magnúsi; það var á leiðinni milii Akureyrar og Blöndu óss, að við urðum samferða í bifreið og sátum saman. Heyrt höfðum við hvers annars getið en ekki sézt fyrr. Ræddum við margt saman og varð þetta upphaf vináttu okkar sem ent ist æ síðan. Síðar þegar el'dri sonur minn, Gunnlaugur kvæntist yngstu dóttur hans, Ásdísi, varð það til að styrkja vináttubönd okkar betur. Kom ég svo hin síðari ár að Syðra- Hóli á hverju vori og dvaldist þar í nokkra daga. Var það mér bæði andleg og Hkamleg hressing. Rædd- um við þá rnargt saman. Og það var ’ sannleika sagt bæði menntandi og mannbætandi að kynnast Magnúsi og eiga tal við hann. Þegar Magnús komst á snoðir um það, að ég fengist við að safna og skrá þjóðsagnir og annan fróðleik, þá hvatti hann mig til þess að halda áfram á þeirri braut og gaf mér góðar leiðbeining- ar. Var það mér góð uppörvun til meiri framkvæmda á því sviði. Síðast bar fundum okkar saman h.u.b. 5 vikum fyrir andlát hans. Var hann þá hress o(g léttur í máli að vanda og ræddum við margt saman að vanda. Eigi óraðl mlg þá fyrir því að það yrðu okkar síðustu sam- fundir. Magnús mátti telja sannan gæfu- mann. Hann naut ástrfkis í foreldra- húsum, eignaðist góða konu, heimili og mannvænleg börn og barnaböm, sem hann unni mjög. Honum varð það óblandin gleði að vera umkringd ur bamabömum sínum sem oft dvöldu á Syðra-Hóli um lengri eða skemmri tíma, Þrír dætrasynir hans bera nafn hans og unnu afa sínum heitt, enda var hann sérstaklega barngóður. Magnús naut líka þeirrar ham- ingju að geta að nokkru sinnt hugð- arefnum sínum og láta eftir sig verk sem lengi munu halda nafni hans á l'oft. Eitt er þó víst að með Magn- úsi fór mikill fróðleikur í gröfina og fer svo löngum með fróða menn. Við hann getur átt það, sem Forn- ólfur kvað um Ólaf Davlðsson lát- inn: Ótal fræðin afreksmanns eru á letraskránum, meira þó í huga hans hvarf með honum dánum. Magnús verður mér ávallt ógleym anlegasti maðurinn, sem ég hef kynnzt. Blessuð sé minning hans. Bragi Jónsson frá Hoftúnum Hnigmn er í valinn hái'.draður höfðlngi andans í Hunaþingi. Hugþekkur öllum héraðsmönnum sæmdarmaður á Syfira-Hóli Var þar og vann frá vöggu til grafar bújórð' sína hann bætti og prýddi. H'irðom þó mætti hönaum vinna ■ vafkustamaður -------— I /f£~3ft(Jans sviði, ^ 'v. Gróf hann úr gleymsku gömul fræði síðan þau leiftra á söguspjöldum. Hrakhóla þekkti og höíuðbólin mannaferðir og fornar slóðir Meitlað var mál og magni þrungið, frasagnarlist hans frábær þótti. Fróður um ættir að fornu og nýju, vann þau afrek sem aldrei gleymast. Réði hann margar rúmr duldar, réttlætiskennd hann ríka átti. Hógvær, stilltur ' og hjartaprúður, götu sms lífs hann gekk til enda. Vandamál sérhvers hann vildi leysa, geröi þag eftir getu beztu. Eigmkonu og ölium niðjum athvarf og skjól til eístu stundar Því er hljótt yfir Húnaþingi hnípin er drótt og harmi slegin. Vaimennis saknar vizíi'islynga leiðtogans góða um nngan aldur Löng þó ei yrðu okkar kynni, Magnúsi aldrei mun eg gleyma. Auðlegð síns anda 2. síðan Vandamál „Leðurjakkamir" eru mikið vandamál í Svíþjóð og einnig á hinum Norðurlöndunum, þegar þeir taka upp á því, að ferðast svona landa á milli. Þeir koma t. d. reglulega til Danmerkur og valda hvar sem þeir koma miklum óþægindum. Þetta er allt saman ungt fólk og algjör- lega sneytt allri siðgæðistilfinn- ingu. Fjrir nokkrum árum tók lögreglan á Helsingjaeyri þrjá vopnaða „Leðurjakka" fasta. — Þetta var 16 ára gömul stúlka og tveir átján ára gamlir piltar. Þau voru í stórum amerískum bíl og höfðu á honum tvö númer. í aftursædnu höfðu þau í farang ursstag skammbyssu, skot, hníf og járnkarl. Það líður aldrei sá dagur í Sví- þjóð, að „Leðurjakkarnir“ geri ekki einhvem óskunda og eins og áður er sagt, þá eru hvergi nokk urs staðar í heiminum til vand- ræðaunglingar, sem eru eins ó- fyrirleitmr og þeir sænsku. í Kristianstsd var mikið um að vera fyrir skömmu, þegar Þjórs- árdalsævintýrið endurtók sig. — Þar voru margar ungar stúlkur, sem komu hraustustu Iögreglu- þjónu.n til að blygðast sín. Þær voru mikið undir áhrifum áfeng- is og hlupu um naktar, þegar þær voru ekki í selskap vina sinna. Kveikt var í klósettunum á staðnum, verzlanir voru allar rændar og vörum þeirra dreift um allar götur. Fjórir lögreglu- þjónar /oru þar slegnir í rot. Blettavatn Ef uaglingar þessir geta ekki útvegað sér narkotika eða önn- ur eiturlyf, þá anda þeir að sér blettavatni eða þynni. Það hefur einkenniiega og æsandi áhrif á þá og þá verða þeir lausir við allar hömlur. Sænsku yfirvöldin hafa :gripið til ýmissa ráða gegn þessum ó- lifnaði og síðustu aðgerðirnar voru að setja upp stór skilti úti á vegum og passaskylda. Á skilt- unum eru teikningar og texti, þar sem stendur, að aðeins smábörn finni upp á því að eyðileggja nluti og gera hávaða og læti. — Vegabréfanna er hægt að krefj- ast af öilum unglingum, sem eru innan átján ára að aldri, og þann- ig er hægt ag koma í veg fyrir það, að unglingarnir hittist á kvöldin og næturnar í óheppileg- um og skuggalegum stöðum. FIMMTUGUR: Gísli Pálmason Gísli Pálmason er fæddur þann 4. sept.einber árig 1913 og er því fimmtugur í dag, stendur með öðrum orðum þar sem manneskj- an nær mestum hraða í lífshlaupið. Það er ekki ætlunin að skrifa hér iangt mal um Gísla, rekja ættir ellegar einstaka þætti í lífi hans, enda naumast á færi þess, sem bér ritar. Gísli Pálmason var fæddur norð ur á Akureyri, ólst upp við bláan fjörð, dökk fjöll og mikla sveita- sælu, eins og þeir nyrðra eiga að venjast. Líka harða vetur, krepp- una miklu eftir fyrra stríðið og þau hörðu kjör. Svo flutti hann suður, eins gg svo margir. Norð- lenzkur spaugari, fremur lágvax- inn, en snaggaralegur í bezta lagi fékk vinnu suður á Miðnesheiði, þar sem þá var verið að gera flug- stöðina miklu. Ojá. Sá sem þetta ritar veit í rauninni ósköp lítið um hann Gísla Pálmason í Nausti. Lítið af því, sem menn venjulega nota til að stikla á, pegar þeir skrifa afmæl- isgrein um starfsfélaga sína og vini, endí verður Gísla kannske allra sízt lýst með ættartölum löng um og lífsamstursskýrslum. Hin daglega umgengni þessa hjarta- stóra spaugara skiptir mestu mál. Gísli hóf störf í Nausti sem vinbirgðavörður þegar veitinga- húsið var stofnað. Hann umgengst ekki gesti í starfi sínu, heldur starfsfólkið. Á þessum níu árum hefur hann orðið einn skýrasti dráttur i þv: umhverfi sem hann starfar í. Létt lund, spaug, og gamansemi gerir langan vinudag skamman. Mörg okkar hafa í raun inni svo alvarleg viðhorf, takmark- eða kímnigáfu og lítið af bjartsýni, að okkur er bráðnauðsynlegt að vera í nálægð við þá sem bera ljós, eins og Gísli gerir. Enda hefur hann aflað sér vinsælda. Á afmæl- isdaginn verður slegið tjöldum. Borð svigna undir krásum og loft- ið titrar at' hlátri. Vinir og starfs- systkin Gisla safnast í veizlu, drekka mmni og flytja honum þakkir. B. Bender MINNING Framhald af 6. síðu. ur formaður ungmennafélagsins Neista á Djúpavogi. Gunnlaugur var í fáum orðum sagt mjög vax- andi maðui hér á Djúpavogi, og enginn vafi á, að ef honum hefði orðið lengra lífs auðið, hefðu vafa laust hlaðizt á hann sívaxandi trún aðarstörf fyrir byggðarlagið. Eg sem samstarfsmaður Gunn- leugs vildi við þetta tækifæri þakka nonum fyrir samveruna og votta foreldrum hans, systkinum, eiginkonu og börnum mína inni- legustu samúð vegna fráfalls hans. Diúpavogi, 6, júlí 1963 Kjartan Karlsson hann af mér veitti, gaf mér gleði sem glatast eigi. Kveð ég þig klökkur kæii vinur legg á þitt leiði laufbiað visið. Vísa þú átt vist á h&ðum, — eilífðarvist . með Ara og Snorra. Bragi Jónsson frá Hoftúnum Símahappdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra hefst a® nýju. Vinningar verða að þessu sinni 2 3ja her- bergja fokheldar íbúðir að verimæti kr. 225 þús. hvor, auk þess 10 aukavinningar, frjálst vöruval fyrir kr. 10 þús. hver. SÍMNOTENDUR eiga rétt á að kaupa sin númer til 10, des. DregiS á þoriáksmessu Hver vill ekki slíkan jólaglaðning? 13| T í M I N N , miðvikudaginn 4. september 1963

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.