Tíminn - 04.09.1963, Blaðsíða 15
REYRHÓLAKIRKJA
Framailo al lö sifiu.
Búizt er við miklum mann-
fjölda an Revkhólum t'l að vera
við vígsluná og koma sumir
langt að, t. d. mun Breiðfirð-
ingafélagið í Reykjavík fara
hópferð vestur og út nágranna
sveitum hafa margir tilkynnt
komu sina.
Unmð er nú nótt sem dag,
apj hetta má, við að ljúka þvh
sem Ijúka þarf fyrir vígsluna,
en ýmislegt verður eftir þó að
þessum áfanga sé náð. T. d.
vantar oil sæti, en í bili er not-
azt við 100 stóla, sem leikfélag-
ið á Reykhólum á og lánar kirkj
unni við vígsluna og þar til
félagsheimili rís af grunni á
Reykhóíum.
Kirkjubyggingin er nú í mik-
illi fjárþröng og er það ósk og
von forráðamanna safnaðarins
að vinir og velunnarar kirkj-
unnar sýni hug sinn í verki og
Iáti eitthvað af hendi rakna nú
í sambandi vig vigsluna.
20. ÞÚS. TUNNUR
Framhald aí 16. síðu
þrær eru fullar á Norðfirði, en
þar tæmist ein í nótt og þangað
eru væntanleg 3 skip strax í kvöld.
Fréttaritari blaðsins á Norðfirði
spáði því í kvöld, að sólarhrings-
aflinn myndi verða drjúgur, því að
mörg skip hefðu verið að veiðum
í dag, og aflað vel.
Fréttaritarar höfðu verið boðað-
ir til Söltunarstöðvarinnar Sunnu-
vers klukkan 16 í dag, því að þá
var þúizt við, að saltað yrði í 20
þúsundustu tunnuna. Úr því varð
þó ekki, því að nægilega mikið
magn af síl'd hafði ekki borizt, en
í fcvöld er Björn Jónsson væntan-
legur með síld tU stöðvarinnar, og
þá verður þessi merkistunna fyllt.
Saltað var í allan gærdag á Seyðis
firði. Bræðslan þar er þúin að
bræða 192.000 mál í sumar, en
mun véra búm að taka á móti yfir
200 þús. málum.
Síldarflutningaskipið Lúðvig er
að lesta síld á Seyðisfirði, sem
farið verður með tU hafna við
Eyjafjörð. Skipið tekur um 5000
mál. Engin síld hefur verið flutt
norður nú í margar vikur.
Fjórir bátar komu til Reyðar-
fjarðar í gærkveldi og í dag með
3100 mál og tunnur. Þar var saltað
í tveimur stöðvum í dag, en tvö
skip eru væntanleg inn í kvöld.
Mikil veiði hefur verið á Reyðar-
fjarðardýpi og útlit gott í nótt,
enda er logn og þoka og bezta veð-
ur.
Síldarafl'inn s. 1. sólarhring var
rúmlega 21 þús. mál og tunnur hjá
rúmlega 30 skipum.
ÍJjróttir
Framhald af 5. síðu.
Þróttar. Hann hefur á þessu ári
nokkrum sinnum verið í úrvalsliðum,
Reykjavíkurúrvali og suðvesturlands
úrvali.
Sjálfsagt eru menn ekki á eitt sátt
ir með val landsliðsins að þessu sinni
eins og gengur. Þó verður ekki ann
að sagt, en valið hafi tekizt nokkuð
vel.
Varamenn fyrir liðið verða: Heim
ir Guðjónsson, KR; Hörður Felixson,
KR; Sveinn Jónsson, KR; og Örn
Steinsen KR. — Þess má geta, að
landsliðsnefnd er ekki bundin því
að velja eingöngu leikmenn úr 20
manna hópnum fyrir landsleikinn 14.
september i London.
Landsleikurinn á laugardaginn
verður 35. landsleikur fslands. —
fsland hefur tvívegls áður leikið
gegn áhugamannaliði Englendinga.
gegn áhugamannaliði Englendinga,
og tapað í bæði skiptin. Fyrri leikur
inn var í Reykjavík 1956 og unnu
Englendingar með 3—2. Síðari leik-
urinn var í London 1961. Þá unnu
Englendingar með 1—0.
ÚUMARVEIÐIN
Framhald af 1. síðu.
ákvefiið að svip'a þá báta áfram-
haldandi leyfi, sem ekki hafa sent
skýrslurnar sem skyldi, enda er
þetta eina leifiin fyrir fiskifræð-
inga, að rannsaka humarveifiina,
og sjá hvar hún er mest, og annað
því um líkt.
f Vestmannaeyjum hafa fjórar
fiskvinnslustöðvar tekiff á móti um
225 lestum humars í sumar, og
koma bátarnir aðalleéa með hann
slitinn. Þar fengu 40 bátar leyfi,
en þegar mest hefur verið, hafa
um 30 bátar stundað veiðarnar.
Nú eru aðeins 8 bátar éftir á v€ið
um. Aflinn hefur verið heldur góð
ur í allt sumar, og ekki er útlit
fyrir að humarinn gangi til þurrð
ar, eins og rætt hefur verið um,
að hann kynni að gera af of mik-
ffli veiði.
Aðalveiðisvæffin eru í kringum
Vestmannaeyjar, undan Jökli og
við Eldey. Veiðin við Jökul hefur
verið ágæt, og þar er humarinn
allstór en hins vegar er hann
smærri og verri við Eldéy, þar
sem magniff er aftur á móti miklu
meira.
Einir 9 bátar hafa stundað hum-
arveiðar frá Akranesi, og hafa
tveir þeir hæstu, Ásbjörn og Fram
nú fengið um 100 leStir. Aflinn
hefur verið ákaflega misjafn í
róðri, allt frá einni upp 1 8 lestir.
í gær komu þangað 5 bátar með
3—5 lestir hver.
Reitingshumarafli héfur vérið
hjá Keflavíkurbátum, en þó ekki
eins góður og annars staðar. Bát-
arnir hafa komið inn meff 2—3 lest
ir úr róðri.
Afli Sandgerðisbáta var ágætur
framan af, en fór síðan heldur
versnandi, smækkaði humarinn og
nýtist því miklu verr. Bátarnir fá
ailt upp í 6 lestir í róðri, en fyrir
1 kg. af fyrsta flokks humar fá
sjómennirnir kr. 12,70, komi þeir
með humarinn slitinn, fást fyrir
hann um 50 kr.
Fimm heimabátar hafa veriff á
humarveiðum frá Þorlákshöfn í
sumar en auk þess hafa nokkrir
affrir lagt þar upp afla sinn. Afl-
inn hefur verið um 1000 körfur,
nálægt 25 lestum á dag, að meðal-
tali. Nokkuð hefur borið á öðrum
fiski með, eins og t. d. löngu og
karfa og er karfinn verkaður á
Bandaríkjamarkað. í fyrrá voru
framleiddir 1220 kassar í Þorláks
höfn, en nú verffur framleiðslan
um 2200 kassar, en bátarnir erú
lika heldur fleiri nú en þá. Þor-
lákshafnarbátar munú vera áð
hætta á humarveiðum, þrátt fyrir
það að veiðileyfin hafi verið fram-
lengd, vegna þess, að undanfarna
daga hefur veiðin verið áberandi
minni. Aflahæsti báturinn er Þor-
lákur II meff 84 lestir, og annar
er Friffrik með 83 lestír, en heild
araflinn er um 340 lestir og mið-
ast þessar tölur við 19. ágúst s. 1.
í fyrra voru seldar úr landi 356
lestir af frystum humar og var
verðmætið kr. 38.837.000.00. Hum-
arinn er eingöngu seldur til Banda
ríkjanna, Bretlands og Sviss.
ÓÞEKKT VEIKI
Framhald af 1. síðu.
Það hefúr þó verlð haíd manha, að
garnavsiki væri hér til áð dreifa,
en virðist ekki hafa vlð rök að
styðjast. En dýrin geta tekið veik-
ma, og vitað er. að stofninn hef-
ur haft samgang við garnaveikt
íé.
í fyrra virtist þessi óáran mest
í unguin dýrum, sennilega þeim
sem voru illa fram gengin eftir
veturinn. Ormaaukning í þörmum
-•ar greinileg. Guðmundur sagði,
aó þekking okkar á háttum dýr-
arna væri mjög takmörkuð og
aefndi sem dæmi. að mönnum er
c.Ils ekki íjóst, á hvaða grösum
dýrin lifa á hverjum árstíma og
hvernig bessi grös dafna frá ári
tii árs
Prestum fjölgaö
í hðfuöborginni
KH-Reykjavík, 3. sept.
Um æslu áramót verða veitt sex
ný prestembætti í Reykjavíkur-
prófastsdæmi samkvæmt hinni
nýju skiptingu í sóknir og presta-
köll, sem dóms- og kirkjumálaráðu
neytið hefur ákveðið. Þrír prestar
Kvikmyndað
á Seyðisfirði
Reykjavík, 3. sept.
Fyrir stuttu kom hingað til lands
með flugvél Flugfélags íslands
franskur kvikmyndatökumaður,
sem mun taka hér landkynningar-
kvikmynd á vegum Geysis h.f. und
ir stjórn Reynis Oddssonar. Mun
myndatakan hefjast þegar á morg
un austur á Seyðisfirði.
Mynd sú, er hér um ræðir, verð
ur 35 mm mynd í litum og Cinema
scope. Taka hennar er styrkt af
ýmsum aðúum Má þar til nefna
útanríkisráðuneytið, Flugfélag ís-
lands, Loftleiðir, Eimskipafélag ís
líinds, Samband íslenzkra sam-
vinnufélaga, Ferðaskrifstofa ríkis-
ins og ef til vill fleiri ferðaskrif-
stofur og útflutningsfyrirtæki sjáv
arafurða.
I gær vai haldið austur á Seyð
isfjörð og þar verða teknar mynd
ir úr síldarvinnu og einnig er ætl
i.nin að naida á síldarmiðin með
síxdveiðiskjpi Síðan mun haldið
aftur hingað til Reykjavíkur.
Eins og íyrr segir, verður Reyn
ir Oddss VíV stjórnandi-hinnar pýju
myndar. Framkvæmdastjóri Geýs-
is er Gastur Þorgrímsson.
Siópróí
BÓ-Reykjavík, 3. sept.
í morgun fóru fram sjópróf vðgna
drukknunar Þorleifs Sigurbjörnsson-
ar, matsveins, sem féll fyrir borð af
Þorkeli mána. Þorleifur horfði á kvik
myndasýningu með skipstjóra og
fleirum áður en lagt var af stað frá
Hull. Hann var ódrukkinn um borð
um kvöldið og sást síðast um klukk-
an 2 um nóttina. Um klukkan þrjú
þurfti einhver að komast i búrið, en
Þorleifur var þá ekki í koju og
fannst hvergi. Þá var skipinu snúið
við til að leita, en árangurslaust.
Veður var talið gott, er þetta gerð-
ist. Fleira kom ekki fram í réttinum.
„HLAUPTU AF ÞÉR . . .
Framhala af 16. síðu.
Hlutverx i leiknum eru í hönd-
um Erlings Gíslasonar, Brynju
Benediktsdóttur, Péturs Einarsson
ar, Helga Skúlasonar, Helgu Bach-
mann og Guðrúnar Stephensen.
Leikstjót-i er Helgi Skúlason. Leik
flokkurino hefur um þrjáf vikur
t’I sýninga a Suðurlandi, og verða
nokkrar sýningar í Reykjavík, hin
fvrsta á föstudaginn kemur.
ÁRÁSARMENN
Framhau ai 16 síðu.
sem hefur þétta mál með höndum.
Peningunum höfðu þeir eytt og
brenndu veskið, sem þeir tóku af
rnannin'im við Elliheimilið, til að
Koma í veg fyrir að það vitnaði
gegn þeim báðir hafa játað. Leif-
ur kvaðst ?kki hafa gengið frá
málinu, eu blaðið mun krefjast
nafnbirtiníBi strax er dómari hef-
ur fengið það i hendur.
verða í þremur nýjum prestaköll-
um, en auk þess hafa þrjú ein-
menningsprestaköll verið gerð að
tvímenningsprestaköllum.
Samkvæmt hini nýju skiptingu
Reykjavíkurprófastsdæmis eru
prestakóliin orðin alls 18 talsins,
en fyrst um sinn verða prestarnir
þó ekki nema 15, þar eð fólksfjöldi
í þremur nýjum prestaköllum, Sel-
tjarnarnesprestakalli, Háaleitis-
prestakalli og Fossvogsprestakalli,
gefur ekki tilefni til embættisveit-
inga þar strax.
Éinmenningsprestaköllin þrjú,
ELDUR í MÁNA
Framhald af 1. síðu.
hét áður Halkion, eikarbátur, smíff
aður í Rödvig í Danmörku 1944 og
er 43 brúttólestir.
Máni átti að koma til Reykjavík-
ur klukkan 9 í kvöld, en var ókom
inn klukkan 10,50.
BREMSUTÆKI
Framhald af 16. síðu.
Tækið er dæla með tveim stimpl
um, tengd við höfuðdælu í fólks-
bílum. Hún skiptir kerfinu í fram
og aftur lduta, þannig að stimpl-
arnir loka til skiptis eftir því hvar
bilun á sér stað, og hemlarnir
virka mcð fullu afli á tvö hjól.
Tækið koslsr 775 kr. í fólksbíla
og 3000 kr í vörubíla og langferða-
bíla. Það hefur nú verið sett í 4
blla hér og þykir gefast vel.
Skúli Svemsson, formaður á bíla
verkstæði lögreglunnar, tjáði blað
mu, að lögreglan hefði augastað
á tækinu i sina bíla, og kvaðst hafa
mikla trú á því.
Samkvæmt þessu ætti enginn aff
þurfa að „verða bremsulaus“ eins
og sagt er á máli fagmanna.
DRENG.JAMÓT
Framhald at 5. síðu.
„i hlaupi 110 m'gr. hl., 4x100 m
beðhlaup, kúluvarp, kringlu-
kast, hástökk, langstökk, 200 m.
luaupi, 801 m. hlaupi, 200 m. gr.
hlaupi, 1000 m boðhlaupi, spjót-
kasti, sieggjukasti, þrístökki,
stangarsxökk.
Þátttaka er heimil öllum meðlim
úm íþróttafélaga í Reykjavík, sem
eru á drengjaaldri þ. e. 18 ára á
þessu ári eða yúgri.
Sigurvegeri í hverri grein hlýt-
ur sæmdarheitið „Drengjameistari
Reykjavíkur" í þeirri grein.
Mótið cr um leið stigákeppni
og verða rc-iknuð stig af 6 fyrstu
mönnum í hverri grein. Keppt er
um verðlauriabikar og hlýtur fé-
lag það sem flest stig vinnur grip
þennan.
Þátttökutukynningar sendist
skriflegar til vallarstjóra í síðasta
lagi þriðjudaginn 3. sept.
Frjálsíþróttadeild KR
sem nú verða veitt í fyrsta sin,
eru Ásprestakall, Grensáspresta-
kall og Bústaðaprestakall. Þrjú ein
menningsprestaköll, Nespresta-
kall, Háteigsprestakall og Lang-
holtsprestakall, hafa verið gerð að
tvímenníngsprestaköllum. Frestur
til að sækja um þau er til 15. okt.
Kosið verður fyrir októberlok og
embættin veitt frá næstu áramót
um, þar sem kosið verffur í haust.
GRÝTTU HÆNUR
Framhald af 1. síffu.
uðu þeir 20—80 rúður, en í hinu rifu
þeir vírnet frá gluggunum og grýttu
hænsnin. Fimm hænur lágu dauðar
og blóðugar um morguninn, en átta
limlestum og hálfdauðum hsénum
var slátrað. Piltarnir sem léku þetta
eru 18 ára gamlir, báðir utanbæjar,
en sá þriðji 16 ára Reyikvlkingur.
Þeir höfðu allir bækistöð hjá stelpu,
sem Reykvikingurinn þekkir, en móð
ir hennar var ekki heima og stjúpi
bennar á sjónum. Á meðan settist
vinurinn upp hjá henni og bauð hin-
um tveimur að deila með sér. Auk
þess sem þegar er talið, brutust þeir
inn í KR-skálann og Sælakaffi við
fjórða mann, hænsnabanarnir stálu
2 skyrtum í búð við Laugaveginn og
10—15 bókum stálu þeir í bókaverzl
unum og seldu aftur í fornbókaverzl
unum fyrir lítið verð. í Bl’esugróf
stálu þeir reiðhjóli og létu það liggja
fyrir utan hjá gistivinkonu sinni, en
þá kom stjúpinn helm af sjónum,
tók reiðhjólið og seldi það á verk-
stæði fyrir 300 krónur. Hann eyddi
péningunum, vitandi að hjólið var
stolið.
TÍÐ BARNAMORÐ
Framhald af bls. 3.
lézt á sjúkrahúsi skömmu sðar.
Glæpamaðurinn var horfinn og
enda þótt fjölmennt lögreglulið
kæmi á staðinn með sporhunda
aðeins nokkrum mínútum seinna,
sást hvorki tangur né tetur af
manninum og var engu líkara en
jörðin hefði gleypt hann. Slð-
degis í dag komst allt á annan
endan innan lögreglunnar, er
fréttir af eldri manni, sem var
með tvær litlar telpur í skógar-
runna í útjaðri Stokkhólms og
hagaði sér undarlega 1 návist
þeirra. En í þessu tilfelli virtlst
allt vera með felldu. Seirit í dag
fann lögreglan nælonfrakka riiorð
ingjans, blóðugan og rifinn, langt
frá morðstaðnum, eftir að lögregl
unni hafði tekizt að kortleggja
leið þá, sem morðinginn mun
hafa farið að loknu ódæðisverk-
inu.
Seint í kvöld sagðist lögregían
vongóð um, að takast mætti að
hafa hendur í hári morðingjans
áður en langt um liði.
Hjartanlega þakka ég öllum þeím, sem glöddu mig
á áttræSis afmæli mínu þann 22 ágúst s.l., með lieim-
sóknum, gjöíum ug skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Guðbjörg Sigurðardóttir,
Rauðanesi, Borgarhrepp, Mýrum.
Konan mín,
Arma Sigurðardóttir
andaðist 3. september á Elliheimilinu GrUnd.
Helgi Jörgensson,
Stórholti 14,
TÍMINN, miðvikudaginn 4. september 1963
15